NT - 17.12.1984, Blaðsíða 28
LÚRIR ÞÚ Á FRÉTT?
HRINGDU ÞÁ f SÍMA 68-65-62
Við tökum við ábendingum um fréttirallan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónurfyrirhverja ábendingu sem leiðir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónur ffyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT Síðumúli 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
Guðjón Árnason flýgur hér inn af línunni og skorar eitt af mörkum sínum fímm.
Handknattleikur 1. deild:
■ FH-ingar báru sigurorð af Víkingum í 1. deildinni í handknatt-
leik í leik í Hafnarfírði í gærkvöldi. Lokatölur leiksins urðu 32 mörk
gegn 26 FH-ingum í hag. Leikurinn var þófkenndur og mikið um
mistök á báða bóga. Staðan í hálfleik var 15-14 FH-ingum í vil. FH
gerði út um leikinn á tíu mínútna kafla í byrjun seinni hálfleiks,
skoraði sex mörk gegn einu marki Víkinga. Eftir það var aldrei
spurning hverjir myndu sigra heldur hversu inikill munurinn yrði.
Gangur leiksins var í stuttu
máli að Víkingar náðu forystu
með marki Karls Práinssonar
eftir hraðaupphlaup. Kristján
Ara jafnaði með einum af
sínum velþekktu þrumufleyg-
um. Aftur kom Karl Víkingum
yfir og Guðjón Árnason jafn-
aði fyrir FH. Eftir þetta var
jafnt á flestum tölum og FH
tókst aldrei að hrista Víking af
sér.
í seinni hálfleik mættu FH-ing-
ar mun ákveðnari til leiks og
sýndu skemmtileg tilþrif. A
fyrstu 10 mínútum seinni hálf-
leiks breyttist staðan í 21-15 og
útséð var um að Víkingar færu
heim 'stigalausir. FH-ingar
juku forskot sitt jafnt og þétt
og mestur varð munurinn níu
mörk 30-21. Lokamínúturnar
var stiginn mikill darraðardans
á fjölum íþróttahússins í Hafn-
arfirði og tókst Víkingum að
minnka muninn aðeins undir
lokin.
Steinar Birgisson lék ekki
með Víkingum og var þar skarð
fyrir skildi, sérstaklega í vörn-
inni. Markvarslan í leiknum
var frekar slök og helst var að
Sverrir Kristjánsson mark-
vörður FH stæði upp úr meðal-
mennskunni, en hann varði
alls 13 skot í leiknum. Talsverð
harka var í leiknum og kom
það niður á handboltanum,
sem því miður var ekki eins og
að hann gerist bestur hér á
landi. Víkinga virtist vanta
mun meiri brodd í sóknartil-
raunir sínar. Einstaklings-
framtakið var allsráðandi, og
liðið vann ekki sem skyldi
saman.
NT-mynd Sverrir
Það var engu líkara en að
FH-ingar keyrðu á hálfum
hraða í leiknum og það var
ekki nema rétt í fyrri hluta
seinni hálfleiks sem FH-ingar
sýndu Víkingum klærnar, og
það dugði.
Atkvæðamestur í liði Víkinga var Hilm-
ar Sigurgislason sem skoraði 7 mörk.
Þorbergur Aðalsteinsson 5, Karl Þráins-
son 4, Viggó Sigurðsson 3 (2v) Siggeir
Magnússon og Einar Jóhannesson ?
hvor og Guðmundur Guðmundsson eif t
mark.
Mörk FH-inga gerðu: Kristján Arason
9 (4v) Guðjón Árnason. Pálmi Jónsson.
Hans Guðmundsson og Þorgils óttar
Matthíesen fimm hver. Guðjón Guð-
mundsson 2 og óskar Árnason 1.
Brottvísanir af leikvelli voru fimm.
Þrír FH-ingar fengu að kæla sig og tveir
Víkingar.
■ „Rummenigge er sá besfi“
„Rummenigge er
sá besti í dag“
- segir Beckenbauer
■ „Karl Heinz Rummen-
igge er besti knattspyrnu-
maður heims í dag. Það
getur enginn haldið honum
niðri í 90 mínútur. Hann er
sá maður sem ég tel að
vinni leikinn fyrir okkur,“
sagði Franz Beckenbauer
landsliðseinvaldur V-Þjóð-
verja fyrir helgina, en um
helgina léku V-Þjóðverjar
við Möltubúa í undan-
keppni heimsmeistara-
keppninnar. Hvort Rumm-
enigge er bestur skal ósagt
látið hér, en orð Becken-
bauers rættust að öðru
leyti.
V-Þjóðverjar mörðu sig-
ur á Möltu, 3-2, og Karl
Heinz lagði upp tvö mark-
anna á glæsilegan hátt.
Beckenbauer fór í síðustu
viku til Mflanó og sá Karl
Heinz og félaga í Inter
leggja HSV að velli. Svo
hrifínn var Beckenbauer
eftir leikinn að hann lýsti
því yfir sem í upphafí var
nefnt.
V-Þjóðverjum hefur
alltaf gengið óhemju illa að
leika á Möltu. Þeir léku
þar árið 1974 og aftur árið
1979, og skoruðu samtals
aðeins eitt mark. Uppsker-
an var einn sigur og eitt
jafntefli. Og nú mörðu þeir
sigur yfir litla eyríkinu sem
ekki er hátt metið á knatt-
spyrnusviðinu.
Úrvalsdeildin:
Stranda-
maðurinn
skaut KR
á bólakaf
- ÍR vann 93-89 í
spennandi leik
■ Stórleikur Stranda-
mannsins sterka í liði
ÍR, Ragnars Torfasonar,
gerði það öðru fremur að
verkum að ÍR náði að
vinna þríðja sigur sinn í
úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik í vetur, er liðið
mætti „erkióvininum“ KR
í íþróttahúsi Hagaskóla í
gærkvöld. Hinn hávaxni
Strandamaður skoraði á
ljórða tug stiga í leiknum
og tók ógrynni frákasta.
Liðin fylgdust að frá
upphafí. Eitt stig skildi
jafnan, uns ÍR náði for-
ystu 31-26. KR svaraði
með góðum kafla, náði
yfírhöndinni 33-28, og
hafði yfír 47-42 í hálfleik.
Sama var uppi á ten-
ingnum í síðari hálfleik,
eitt stig skildi jafnan. KR
náði þó forystu undir
lokin, hafði yfir 82-77
þegar íjórar mínútur voru
til leiksloka. Tveimur
mínútum síðar var jafnt
85-85. KR-ingar höfðu
yfir 89-87 þegar rúmar 30
sekúndur voru til leiks-
loka, en þá var dæmt
tæknivíti á Jón Sigurðs-
son þjálfara fyrír að mót-
mæla dómi. IR fékk tvö
skot, sem Ragnar Torfa-
son nýtti til hinsýtrasta og
jafnaöi 89-89. IR-ingar
fyiltust lítonskrafti eftir
þetta og skoruðu tvær
síðustu körfur leiksins,
Gylfi Þorkelsson aðra og
Ragnar hina.
Ragnar Torfason bar
af í liði ÍR, aðrir voru
jafnir að getu. Guðni
Guðnason var bestur
KR-inga,
Stigin: ÍR: Ragnar 31,
Gylfi 16, Björn Steffens-
en, Karl Guðlaugsson,
Krístinn Jörundsson og
Hreinn Þorkelsson lOstig
hver, Bragi Reynisson,
Hjörtur Oddsson og Jón
Örn 2 hver. KR: Guðni
24, Birgir Mikaelsson 19,
Þorsteinn Gunnarsson
17, Ólafur Guðmundsson
13, Ómar Schewing 7,
Ástþór Ingason 5 og
Matthías Einarsson 4.
FH heldur sínu striki
Njarðvíkingar efstir
Stórsigur Everton
Létt hjá Valsmönnum
- íþróttir á 8 síðum -