NT - 17.12.1984, Blaðsíða 6
IH' Mánudagur 17. desember 1984 6
LlL Bifn eidaíþróttir LlL
Núeru liðin lOárfrá því rallkeppni
var fyrst haldin hér á landi. Fyrstu
árin voru rallkeppnir og annað bíla-
íþróttastarf í höndum Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda. Bifreiða-
íþróttaklúbbur Reykjavíkur var svo
stofnaður árið 1977 sem íþróttadeild
innan FÍB og var rekinn af myndar-
skap í nokkur ár. Hin síðari ár hefur
deyfð færst yfir starfsemi klúbbsins.
Klúbburinn hefur að vísu verið fram-
kvæmdaaðili stærsta rall landsins,
Ljómarallsins, fram á þennan dag, en
ísakstur og rallíkross hafa til að
mynda nær alveg dottið upp fyrir.
Áhugamönnum hefur runnið þetta til
rifja, og nú hafa margir þekktir
rallmenn og aðrir áhugamenn um
bílaíþróttir lagst á eitt.
Blaðamaður NT hitti þá Jón og
Steingrím yfir kaffibolla í vikunni og
spurði þá spjörunum úr.
- Nú þegar bílaíþróttir hafa heldur
verið í öldudal hér á landi er spurning-
in sú hvort bílaíþróttir eru yfir hófuð
nokkuð fyrir íslendinga, ineð tilliti til
þess að hér eru bflar óhcmju dýrir,
svo og varahlutir og olíur, að ekki sé
talað um þegar fara þarf að sérútbúa
bfla?
„Það er vitað mál að bílaíþróttir
eru dýrt sport, en því sterkari sem
samtök bílaíþróttamanna eru, því
auðveldara er fyrir menn að byrja og
fá hjálp hver hjá öðrum, t.d. í
sambandi við að byggja upp bíla.
Að auki sé ég ekki að menn geti ekki
leyft sér þetta, þegar upp spretta
lúxusklúbbar og alls konar hlutir í
þjóðfélaginu," segir Jón. Steingrím-
ur: „Við megum ekki gleyma því að
íslendingar eru mesta bílaþjóð heims
þótt þetta sé allt svona dýrt hér. Með
öflugra starfi getum við fengið fleiri
með
Nóg fyrir hinn
almenna ökumann
Og nú eru þeir komnir í gang
félagarnir. „Sko, við erum að setja í
gang víðtæka starfsemi. og hún bein-
ist til að byrja með eingöngu að
hinum almenna ökumanni. Við ætl-
um að koma af stað keppnum í
ísakstri á næstunni fyrir venjulega
bíla. Hin fyrsta verður haldin 30.
desember, og hana köllum við firma-
keppni á ís. Menn geta komið á
sínum eigin bílum, hestaflatalan
skiptir ekki máli, heldur lagnin við að
keyra. Menn hafa samband við fyrir-
tækið sitt, fá að keppa fyrir það og fá
það til að greiða 2 þúsund krónur í
þátttökugjald. Við munum halda
fleiri slíkar keppnir og svo jafnvel
ískross síðar í vetur fyrir sérútbúna
bíla. Það er eins og rallíkross, fjórir
■ Steingrímur Ingason fram-
kvxmdastjóri BÍKR til hægri og Jón
Ragnarsson stjórnarmaður klúbbsins
til vinstri. „Alþjóðleg röll gætu orðið
mikill ávinningur fyrir Islendinga.“
NT-mynd Róbcrt
bílar á brautinni í einu. En það er rétt
að leggja áherslu á að í hinum
almenna ísakstri er engin hætta á að
skemma bílinn sinn, bílarnir þurfa
bara að fullnægja þeim kröfum og
lögum sem gerð eru til bíla yfirleitt,
þar er bara einn í brautinni í einu og
keyrir á tíma.“
- Engin flokkaskipting?
„Jú, flokkur venjulegra fólksbíla
með drif á einum öxli og svo flokkur
fjórhjóladrifsbíla".
Rallíkross í fullan gang
- Hvað með rallíkross, er það alveg
dottið upp fyrir?
„Það er von þú spyrjir, það var
bara ein keppni til íslandsmeistara í
sumar, en jafnan hafa þetta verið
margar keppnir sem gefa stig til
íslandsmeistaratitils. Þannig verður
það í sumar. Við höfum þegar lagt
■ Halldór Úlfarsson og Hjörleifur
Hilmarsson á fullri ferð í JóJó-rallinu
í haust. Halldór og Hjörleifur voru
íslandsmeistarar árið 1983 í ralli.
NT-mynd Árni Bjama
■ Rallíkross á vegum Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur árið 1980. Þá var keppt á Kjalarnesi, en nú mun BIKR leggja nýja rallíkrossbraut í nágrenni
Straumsvíkur. NT mvnd Róbert
drög að því að byggja nýja rallí-
krossbraut í nágrenni kvartmílu-
brautarinnar rétt hjá Straumsvík. Þar
verður fyrsta keppnin í maí og síðan
verður keppt þar reglulega í sumar.“
- Verður Ljómarall?
„Ljómarallið verður á sínum stað,
enda alþjóðleg keppni sem nýtur
sívaxandi vinsælda. Að auki mun
Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur,
BÍKR, standa að tveimur öðrum
öllum, alls þremur röllum af sex sem
haldin verða hér í sumar.“
- Ljómarallið er orðið alþjóðlegt rall,
hafið þið hug á að skipuleggja fleiri
alþjóðlegar rallkeppnir hér?
“Við teljum að ísland sé staður
sem gefur mikla möguleika í sam-
bandi við alþjóðleg röll. Við höfum
sérstöðu og sú athygli sem Ljóma-
rallið hefur vakið ýtir mjög undir
það.“
- Það stóð nú mikill styrr um íslands-
rallið svonefnda, verið þið ekki stopp-
aðir af af náttúruverndarsamtökum
og slíku?
„Alþjóðleg rölltil
hagsbóta fyrir íslendinga“
„fslandsrallið og undirbúningur
þess var misskilningur á misskilning
ofan. í raun var þetta allt í lagi hjá
Frakkanum Bertrand. Hins vegar er
mjög eðlilegt að náttúruverndarfólk
hafi orðið tortryggið vegna svona
jepparalls, það þarf að fá tíma til að
átta sig á því hvað þetta er eins og
aðrir. Það er á hreinu að rall byggist
á þvf að aka á vegum, og allir þeir
sem fara út fyrir vegi tapa mjög á því,
svo að það reynirenginn. Við munum
hins vegar leggja áherslu á að þó svo
að erlendir aðilar myndu styrkja slíka
keppni hér þá yrði það ailtaf undir
íslenskri stjórn. Það voru helstu mis-
tök Frakkans að hafa ekki íslenska
stjórn á íslandsrallinu. Alþjóðleg röll
hér gætu orðið okkur mjög í hag,
bæði sem landkynning og sem gjald-
eyristekjur.“
- Hvað gerír Bifreiðaíþróttaklúbbur
Reykjavíkur fyrir utan það að skipu-
leggja og halda keppnir og mót?
„Almennur félagsskapur áhuga-
fólks um bílaíþróttir. Við höfum t.d.
hafið svokallaða fimmtudagsfundi,
þar sem menn koma saman, horfa á
rallmyndir og annað því tengt af
vídeói og ræða síðan saman um
starfsemina og írþóttirnar innan
klúbbsins. Þetta hefur þegar tekist
mjög vel. Við höldum fundina í
Smiðjukaffi í Kópavogi og þeir eru
auðvitað á fimmtudögum. Þar kemst
fólk að því hvað rall og bílaíþróttir
eru og þetta er algerlega opið hús og
enginn aðgangseyrir, allir velkomn-
m „Það kæfðiað mestu starfsemi Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur á sínum tíma aðhin mikla
starfsemi klúbbsins hlóðst á alltof fáar hendur. Tveir til fjórir menn gerðu allt, og slíkt hlýtur
að fara um koll. Við ætlum okkur að rífa þessa starfsemi upp og tilþess eru komnir 9 áhugasamir
menn í stjórn og framkvæmdastjóri í fullt starf. Hjá okkur ríkir almennur áhugi og eining um
að gera heiðarlega tilraun til þessa, “ sögðu þeir Jón Ragnarsson í stjórn Bifreiðaíþróttaklúbbs
Reykjavíkur og Steingrímur Ingason framkvæmdastjóri klúbbsins í samtali við NT í vikunni.
Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur á tímamótum:
„Það geta all
ir verið með“
„ísakstur, rallíkross og rall í fullan gang
- f jölskyldubíllinn getur líka verið með“
- Forkólfar BÍKR teknir tali
Mánudagur 17. desember 1984
I Fljótum:
Borað eftir heitu vatni
Frá Emi Þórarinssyni í Fljótum:
■ Borun eftir heitu vatni hófst í
síðustu viku á Reykjarhóli í Hegra-
neshreppi. Það er fiskeldisstöðin
Fljótalax sem stendur fyrir boruninni
og er vonast til að hægt sé að fá þarna
mun meira vatn upp en nú er, sem
gæfi laxeldisstöðinni stóraukna
möguleika til seiðaframleiðslu og lax-
eldis frá því sem stöðin hefur í dag.
Fiskeldisstöðin Fljótalax var byggð
sumarið 1982. Það sumar var í fyrsta
skipti borað í Reykjarhólinn, en áður
hafði dálítið af heitu vatni komið upp
úr hólnum og verið notað til upphit-
unar íbúðarhúss á bænum í áraraðir.
þetta sumar voru boraðar tvær holur,
304 og 105 metra djúpar, með bor frá
Orkustofnun. Ekki tókst að fá neitt
sjálfrennandi vatn úr þeim. Sama
sumar voru hins vegar boraðar tvær
30-40 metra holur lárétt inn í Reykj-
arhólinn, með litlum bor, og gáfu þær
3 sekúntulítra af 84 stiga heitu vatni.
Mælingar sem framkvæmdar hafa
verið af Orkustofnun benda til að
hægt sé að fá mun meira vatn.
Ætlunin er að bora nú allt að 250
metra langa holu skáhallt inn í Reykj-
arhólinn og reyna þannig að hitta á
heitavatnsæðina sem talið er að sé í
eða undir hólnum. Verkið er unnið
með bor frá Orkustofnun.
JÓIwXGJÖFIN 1 ÁR
KENWOOD
I ELDHUSIÐ
Myndmenntakennarar:
Björgvin
formaður
■ Björgvin Björgvinsson var
kosinn formaður Félags ís-
lenskra myndmenntakennara á
aðalfundi félagsins, sem haldinn
var nýlega. Fráfarandi formað-
ur, Ása Björk Snorradóttir, gaf
ekki kost á sér til endurkjörs.
Auk Björgvins eru í stjórn
félagsins Ánna Þóra Karlsdótt-
ir, Margrét Jóelsdóttir, Sigrún
Sveinsdóttir og Ása Björk
Snorradóttir.
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD
IhIHEKIAHF
J LAUGAVEGI 170 -172 SIMAR 11687 ■ 21240
VAREVFILL
GÖÐAN DAGINN
ÆTLAR ÞÚ ÚT
AÐ SKEMMTA ÞÉR.
TAKTU EKKIÁHÆTTU.
LÁTTU OKKUR SJÁ
UM AKSTURINN.
VIÐ LOKUM ALDREI.