NT - 17.12.1984, Blaðsíða 11

NT - 17.12.1984, Blaðsíða 11
1lí Mánudagur 17. desember 1984 11 «cflur haf; „Þú skalt ekki stela“ ■ Refsivert er talið að brjóta þetta boðorð, sé ekki um lög- verndaðan þjófnað að ræða. En lögverndaður þjófnaður færist stöðugt í aukana, og oft í skjóli hins margþvælda hug- taks frelsi. Sú var tíðin, að hér á landi var sparnaður talinn til dyggða. Sparað var til elliára. Seinna kom önnur tíð. f>á voru uppfundin ráð, til þess að stela því, sem sparað hafði verið, hvort sem það var geymt í banka eða lífeyrissjóði. Enn kom tíð og undir þennan leka var sett. Nú er ný tíð og alltaf hækka raddir um frelsi til að snið- ganga gamla boðroðið: „Þú skalt ekki stela“. Nokkur hluti þjóðarinnar aflar verðmæta með vinnu sinni. Einu sinni var frá þeim stolið, en þeim tókst með sam- takamætti að rétta sinn hlut, og sækja sitt í greipar svo- nefndra atvinnurekenda. Þeirra bitrasta vopn nefndist verkfall. Enn er þessu bitra vopni beitt. Ekki til að rétta hlut þeirra, sem verðmætanna afla, fremur til að skerða hann. Nú er ófreskja, sem nefnd er Verðbólga dyggasta hjú þjóf- anna, og láglaunaóvitunum er ráðlagt að leita á náðir annarr- ar ófreskju, sem vísitala nefnist. En vita mega þeir að verði sú fyrrnefnda kveðin niður, lýsir svo af degi, að hin síðarnefnda verður að steini og engum að meini. Sjálfsagt er talið að þeir, sem verðmæt- anna afla, séu lægst launaðir þjóðfélagsþegnanna, eða því sem næst. En þeir, sem mestu hefur verið eytt í af andvirði sömu verðmæta, hæst launað- ir. Sagt er að starfsævi þeirra sé styttri en hinna, vegna námsárafrádráttar. Nokkuð er hæft í þessu. En spurningin er. Hve mikill á launamismunurinn að vera? Ætti þetta ekki að vera matsatriði? Einu sinni var því haldið fram í ræðu og riti, að upp fyrir helmings mun ætti ekki að fara. Er það ekki nóg? Hvaða áhrif hefði það á laun þeirra lægst launuðu, ef slíkt launamat yrði lögtest? Spor í rétta átt væri að banna með lögum allar yfirborganir þeirra launataxta, sem ákveðnir eru í kjarasamningum. Sá sem yfir- borgar ætti frekar að lækka verð vöru eða þjónustu. En ef til vill er hann á spena hjá verðbólgunni, og honum því umhugað um að sú þjófnaðar- lind sé dropasæl. Löglegar þjófnaðarlindir eru margar og margvíslegar. Þaðan er stór- feldasti þjófnaðurinn teigaður, en fyrir smáþjófnað er refsað. Er ekki efnahagsástand þjóðfélagsins slíkt, að tími sé til kominn að vinna gegn lög- vernduðum þjófnaði og endur- auka gildi boðorðsins „Þú skalt ekki stela.“ Magnús Guðmundsson Skrifið til: NT Lesendasíðan Síðumúia 15 108 Reykjavík ... eða hringið í síma 686300 milli kl. 13 og 14 frumsýnir stórmyndína í blíðu og stríðu Bssta kvikmynd ársins (1984) Besti leikstjóri - James L Brooks Besta leikkonan - Shirley MacLaine Auk þess leikur i myndinni ein 1 skærasta stjaman i dag: Debra Winger Myndsem allir þurfa að sjá Sýndkl. 5,7.30 og 10 Hækkaö verð Lélegar texta- þýðingar - „Lunch“ = kvöldverður? Fjalar hringdi ■ Mig langar að koma á framfæri spurningu um þýðingar bíómynda. Mér virðast þær oft unnar af ekki meiri þekkingu en svo að grunnskóla- krakkar hefðu getað verið þar að verki. Ég fór að sjá Terms of Endearment um daginn og textinn með myndinni var morandi í þýðingarvillum. Til dæmis var orðið „lunch“ þýtt sem kvöldverður. Þar sem þetta er nú Óskarsverð- launamynd, langar mig til að spyrja hvort textaþýðing við slíkar myndir sé sett í hendurnar á hverjum sem er. -Svar um hæl ■ Friðbert Pálsson, framkvæmda- stjóri Háskólabíós, sagði að reynt væri að velja hæfa þýðendur til að texta kvikmyndir. Tiltölulega fáir þýðendur þýddu myndir fyrir öll kvik- myndahúsin og væru flestir þeirra háskólamenntaðir og sumir hverjir löggiltir skjalaþýðendur. Friðbert sagði ennfremur að sál þýðandi sem hér væri um að ræða, hefði orð á sér fyrir góðar þýðingar og hefði honum verið falið verkið á þeim forsendum. Friðbert sagðist hins vegar ekki hafa séð myndina með texta og gæti því ekki sjálfur lagt neinn dóm á gæði þýðingarinnar. Hann vildi þó taka fram að ekki hefðu borist neinar kvartanir til kvikmyndahússins vegna þessarar myndar. AUSTURSTRÆTI lO

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.