NT - 17.12.1984, Blaðsíða 24
■ Það var skellt og laumað á báða bóga í leik HK og Víkings í 1. deild karla í blaki á laugardaginn. Svo fór að HK vann. NT-mynd: Sverrir
Heimsbikarkeppnin á skíðum:
Norðmenn í sérflokki
í skíðagöngu karla
Gamlar hetjur standa sig illa - finnskar konur ganga vel
Mánudagur 17. desember 1984 24
íþróttir
Blak:
Hörkw einvígi
tveggj aliða
hjá koi nunum
- Breiðablik og ÍS kljást
■ Þessa dagana stendur sem '
hæst mót í heimsbikarkeppn-
inni á skíðum. Þannig mun
verða allan veturinn, mikið um
mót og erfitt að fylgjast með
öllum keppnunum. Mikið var
keppt þessa helgi sem og aðrar
og eru hér helstu úrslit og það
sem markverðast gerðist.
Á laugardaginn var keppt í
stórsvigi kvenna í þorpinu
Maradonna Di Campiglio á
Ítalíu. Úrslitin í þeirri keppni
komu nokkuð á óvart en þar
sigraði v-þýska stúlkan Mari-
ana Kiehl. Eftir fyrri umferðina
hafði svissneska stúlkan Maria
Walliser forystu og það nokkuð
góða en Kiehl náði að sýna
mikið öryggi og hraða í seinni
umferðinni og sigra. Þetta var
aðeins annar sigur Kiehl í
heimsbikarkeppni og var stúlk-
an að vonum ánægð.
Svissneskar og v-þýskar
stúlkur voru í fimm af átta efstu
sætunum en bandarísku stúlk-
urnar Debbie Armstrong og
Tamara McKinney urðu í
fimmta og sjöunda sæti. Það
vakti töluverða athygli að Erika
Hess, núverandi heimsmeistari
varð aðeins í 14. sæti.
Hér er röð efstu stúlknanna:
Marina Kiehl V-þýsk......2:49,65
Maria Walliser Sviss.....2:50,57
Zoe Haas Sviss...........2:50,67
E. Kirchler Austurr......2:51,12
D. Armstrong USA.........2:51,37
Norrænar Greinar:
Finnar og Norðmenn hafa
haft mjög mikla yfirburði í
norrænum greinum í heimsbik-
arkeppninni. Finnar hafa kom-
ið best út í kvennagreinunum
en Norðmenn í karlagreinum.
í keppni í 3x5 km göngu
kvenna í Trento á Ítalíu sigruðu
finnsku stúlkurnar nokkuð
örugglega. Þær voru um 15
sekúnum á undan sovésku kon-
unum. Finnska liðið er borið
upp af Liisa Hammaelainen,
sem vann til þrennra gullverð-
launa á ÓL í Sarajevo síðastlið-
inn vetur. I þriðja sæti í þessari
keppni urðu svo b-lið Sovét-
ríkjanna og norska sveitin varð
í fjórða sæti. Eftir þessa keppni
hafa Finnar forystu í stiga-
keppninni með 26 stig en Sovét-
konurnar eru í öðru sæti með
20 stig og Norðmenn í þriðja
með 16.
Þá var keppt um helgina í
Davos í Sviss. Þar var keppt í
4x10 km göngu karla og var
keppnin hörð. Þó fór svo að
Norðmenn sigruðu og í öðru
sæti urðu Svisslendingar. Svíar
komu svo í þriðja sæti og
svissneska b-liðið í fjórða sæt-
inu. Finnar voru ekki í essinu
sínu í þessari keppni og höfn-
uðu í fimmta sæti. Þegar lögð
eru saman stig karla og kvenna
í skíðagöngu (sveitakeppni)
eru Norðmenn efstir og Finnar
koma alveg á hæla þeim. Norð-
menn eru með 42 stig en Finnar
40 Sovétmenn eru svo þriðju
með 32 stig.
í Davos var einnig keppt um
helgina í 30 km göngu karl^þar
voru Norðmenn í algjörum sér-
flokki, urðu í fjórum efstu
sætunum og af fyrstu 10 sætun-
um unnu þeir sjö. Ove Aunli
sigraði en landi hans Per Mikk-
elsplass varð annar og munaði
tæpri mínútu á þeim félögum.
Thor-Hákon Holte varð svo í
þriðja sæti.
Þegar litið er á stiga stöðu
karla í göngukeppninni þá
kemur í Ijós að þessir þrír
Norðmenn raða sér í efstu
sætin. Mikkelsplass er efstur
með 48 stig en Aunli er annar
með 41 stig og Holte er þriðji
með 35 stig. Norðmenn í al-
gjörum sérflokki í skíðagöngu
karla.
Skíðastökk:
Austurríkismaðurinn Andre
as Felder sigraði í stökki af 90
m palli í Lake Placid á laugar-
daginn. Hann hlaut 225 stig og
stökk lengst 115,5m. í öðru
sæti varð Tékkinn Jiri Parma
sem hlaut 217 stig og stökk
lengst 117 m. Annar Austurrík-
ismaður varð í þriðja sæti með
214,1 stig og átti hann líka
lensta stökkið í keppninni,
ásamt Jiri meða 117m. Sá heitir
Ernst Vettori. Finnar hafa
löngum verið snjallir í stökki
og þeir áttu menn í 4,5 og 6.
sæti í Lake Placid.
Felder braut á sér löpp fyrir
tveimur árum og héldu menn
að hann ætti ekki afturkvæmt
á stökkpallinn, en hann sýndi
hörku og hefur nú sigrað í
þremur mótum það sem af er
vetri.
Svigkeppni:
I gær var keppt í svigi karla
í Madonna Di Campiglio á
Ítalíu og þar sigraði Júgóslav-
inn Bojan Krizaj. Hann hafði
forystu eftir fyrri umferðina og
hélt henni þrátt fyrir að Andre-
as Wenzel veitti honum harða
kcppni.We4i2el hafnaði svo í
öðru sæti og þriðji varð Peter
Popangelov frá Búlgaríu.
Sænski skíðagarpurinn, sem
hér áður fyrr var nánast ósigr-
andi, Ingemar Stenmark.varð í
fjórða sæti í sviginu í gær og
virðist vera að ná sér á strik.
Aðalkeppinautarnir í heims-
bikarkeppninni þeir Pirmin
Zurbriggen frá Sviss og Marc
Girardelli frá Austurríki féllu
báðir úr leik í fyrri umferð.
í heimsbikarkeppninni eru
nú efstir hjá körlunum þeir
Zurbriggen með 84 stig og
Girardelli með 70. Þriðji er
Robert Erlacher með 58 stig og
fjórði Max Julen með 45.
Hjá konunum eru Marína
Kiehl og Walliser efstar með 40
stig hvor og í 3 sæti er Traudl
Hácher með 30 stig. Sigurveg-
arinn frá í fyrra Erika Hess er
í ll.sæti með 8 stig.
■ Nú stefnir í hörkueinvígi
tveggja liða um íslandsmeist-
aratitilinn í blaki kvenna.
Toppliðin í deildinni, Breiða-
blik og ÍS, mættust á laugardag
og nú sigruðu stúdínur, þannig
að bæði lið hafa nú tapað
einum leik, hvort fyrir öðru.
Enn eiga liðin eftir að takast
tvisvar á og munu þær viður-
eignir ráða úrslitum, þar eð
þessi lið eru áberandi sterkust í
deildinni. Fjórir leikir voru í 1.
deildum karla og kvenna um
helgina.
Breiðablik byrjaði betur í
leik toppliðanna tveggja í
Digranesi, vann fyrstu hrinu
15-11. ÍS svaraði með tveimur
sigurhrinum, 15-4 og 15-10. Þá
tóku Blikastúlkurnar sig saman
og unnu 15-12, jafnt 2-2, en
stúdínur voru sterkari á enda-
sprettinum og sigruðu 15-9 í
oddahrinunni.
Víkingsstúlkurnar höfðu sig-
ur gegn Þrótti, og unnu þar
með annan sigur sinn í vetur.
Víkingur vann fyrstu hrinuna,
Þróttur tvær næstu, en síðustu
tvær hrinurnar voru Víkings, 3-2
HK fékk Víking í heimsókn
í fyrstu deild karla. HK hefur
sjaldan leikið betur en í tveim-
ur fyrstu hrinunum og rústaði
lið Víkings, 15-7 og 15-3. Vík-
■ Nú stendur yfir mikil ís-
hokký-keppni í Sovétríkjun-
um. Keppi þessi er kölluð Iz-
vestia-keppnin og eru öll sterk-
ustu landslið í íshokký með á
mótinu.
Einn leikur var í gær-reyndar
opnunarleikurinn- og áttust þá
við Tékkar og Svíar. Bæði
þessi lið eru með þeim bestu í
heiminum í dag og sem dæmi
þá kepptu Tékkar til úrslita við
Sovétmenn á ÓL í Sarajevo
síðastliðinn vetur. Það fór eins
ingar náðu upp góðri baráttu í
þriðju hrinu gegn hálfgerðu
varaliði HK og sigruðu 15-12,
en HK hafði tögl og hagldir í
fjórðu hrinu og vann 15-11, og
þar með 3-1. Leikurinn var mjög
vel leikinn á köflum, sérstak-
lega hjá HK. Bestu menn Kópa-
vogsliðsins voru þeir Ástvald-
ur Arthúrsson og Magnús
Magnússon, en Hannes Karls-
son var langsterkastur í liði
Víkinga.
ÍS vann Fram í 1. deild karla
í allsögulegum leik í Hagaskóla
á laugardag. Fram byrjaði vel í
báðum fyrstu hrinunum, komst
í 14-9 í fyrstu hrinu en varð að
sætta sig við tap 14-16. Enn
grátlegra var hjá Fram í annarri
hrinu, þá komst liðið í 14-6, en ÍS
vann samt 16-14. Allur vindur
var úr Framörum í þriðju hrinu
og unnu stúdentar hana 15-4.
Úrslitin 3-0. Enginn skar sig úr
í liði ÍS, þar voru menn jafn-
sterkir og jafnslakir eftir því
sem við átti. Kristján Már Unn-
arsson var sterkastur Framara
að venju.
Staðan í 1. deild karla:
Þróttur ... 7 6 1 20-9 12
HK........... 8 6 2 20-14 12
ÍS............ 7 5 2 18-9 10
Víkingur ... 615 7-16 2
Fram......... 7 0 7 6-21 0
og margir höfðu spáð að
Tékkar sigruðu með 3 mörkum
gegn 1. Leikurinn var þó nokk-
uð jafn og komust Svíar yfir 1-0
með marki Thelven. Lukac jafn-
aði og síðan skoraði Petr Klima
tvö mörk á síðustu 3 mínútun-
um. Annað markið kom i
„power play“ þ.e. þegar and-
stæðing er vísað af velli við brot
þá eru hinir einum leikmanni
fleiri og kallast það „power
play“.
■ Marja-Liisa Hamalainen gengur vel fyrir finnsku stúlkurnar
NBA-boltinn:
Celtics vinnur
- er með besta stöðu
■ Að venju var mikið keppt í NBA-körfuknattleiknum banda-
ríska um helgina og birtum við hér nokkur úrslit. Boston Celtics,
með Larry Bird í fararbroddi, er enn með bestu stöðuna í sinni
deild og reyndar af öllum liðunum í NBA:
Föstudagur:
Philadelphia 76Ers-Milwaukee Bucks 115-111
New Jersey Nets-Chicaco Bulls 111-109
Boston Celtics-Utah Jazz 117-106
Detroit Pistons-Indiana Pacers 120- 96
Dallas Mauvericks-San Antonio Spurs 119-102
Kansas City Kings-Denver Nuggets 123-117
Golden State Warriors-Portland Trail Blazers 105- 92
Sunnudagur:
Boston Celtics-Atlanta Hawks 101- 94
Philadelphia 76Ers-Chicago Bulls 114-102
Indina Pacers-New Jersey Nets 112-100
Cleveland Cavaliers-New York Kincks 102- 97
San Antonio Spurs-Phoenix Suns 120-111
Houston Rockets-Dallas Mavericks 117-115
Kansas City Kings-Seattle Supersonics 110-105
Los Angeles Clippers-Washington Bullets 109-103
Ishokký:
Sænskir tapa
fyrir Tékkum