NT - 17.12.1984, Qupperneq 5
í a Mánudagur 17. desember 1984 5 ■ " “]
L , Fréttir 1 ~ °S lækka í
Vökumenn í HÍ:
Skera niður Stúdentaráð
■ Á síðasta Stúdentaráðs-
fundi lagði einn fulltrúa Vöku
fram tillögur um stórfelldan
niðurskurð í starfi ráðsins en
spamaðinum yrði varið til að
lækka innritunargjöld í Háskól-
ann. Tillagan sem var í fímm
liðum var felld með atkvæðum
umbótasinna og vinstri manna.
Um var að ræða sparnað fyrir
tæpa eina milljón króna.
Meðal hugmynda Öla Bjarn-
ar Kárasonar, sem bar tillöguna
upp, er að hætta fjárframlagi til
Stúdentablaðsins og fækka
starfsmönnum á skrifstofu ráðs-
ins þannig að þar sé aðeins eitt
stöðugildi í stað tveggja nú. Var
eining um þau mál meðal allra
Vökufulltrúa. Þegar kom að því
að ferðalangar á ráðstefnur
skyldu greiða fjórðung farareyr-
is sjálfir snerust nokkrir Vöku-
menn aftur á móti á band með
inn>
ritunar-
9/öfd
ÍHÍ
umbum og vinstri mönnum og
eins og fyrr segir voru allar
tillögurnar felldar.
1. verðlaun fyrir
búnað á tjaldstæðum
■ Vinningshafar í samkeppni Ferðamálaráðs íslands um búnað á tjaldstæðum taka
við verðlaununum, 100 þúsund kr., úr hendi Birgis Þorgilssonar ferðamálastjóra við
hátíðlega athöfn í gær. Höfundar tillögunnar eru Grétar Markússon og Stefán Örn
Stefánsson arkitektar FAÍ, Björn Jóhannesson landslagsarkitekt og Einar E.
Sæmundsen landslagsarkitekt en verkfræðilega ráðgjöf annaðist Gunnar St. Ólafsson
verkfræðingur.
NT-mynd: Kóbert
Sauðárkrókur:
Galdrakarlin-
um vel tekið
Frá Erni Þórarínssyni fréttaritara
NT í Skagafírði:
■ Leikfélag Sauðárkróks frum-
sýndi barnaleikritið Galdrakarlinn
í Oz eftir sögu Frank L. Baun s.l.
sunnudag við frábærar undirtektir
leikhúsgesta, sem bæði voru börn
og fullorðnir.
Leikstjóri er Hávar Sigurjóns-
son. Með helstu hlutverk í sýning-
unni fara: Katrín Þorkelsdóttir,
Bára Jónsdóttir, Viðar Sverrisson
og Hávar Sigurjónsson. Alls eru
leikendur 16, þar af 8 börn sem öll
eru 11 ára. Auk þess kemur fram
kór unglinga á aldrinum 12-15 ára
undir stjórn Hilmars Sverrissonar
tónmenntakennara, en hann hefur
einnig útsett alla tónlist fyrir sýn-
inguna og stjórnar flutningi
hennar.
Alls taka um 40 manns þátt í
sýningunni með ýmsum hætti.
Æfingar hófust 20. október. Næstu
sýningar verða milli jóla og nýárs.
Miðstjórn ASÍ:
Olíusaltfiskurinn:
Skemmdir
óverulegar
■ Allt bendir nú til þess að fáir tugir tonna
af saltfiskinum úr Stuðlafossi hafi skemmst
þannig að ekki verði hægt að skipa honum út.
Eins og fram hefur komið var helminginum
af saltfiskfarmi skipsins sem fara átti til
Portúgal, eða um 500 tonnum skipað í land
í Vestmannaeyjum eftir að oh'a komst að
vörunni. Stuðlafoss sigldi svo út með tæp
600 tonn.
Síðan þetta var hefur verið unnið að
endurmati á þessum fiski og er reiknað með
því að því ljúki á morgun og byrjað verði að
skipa saltfiskinum út eftir helgi. Megnið af
honum er alveg óskemmt, einhver hluti af
fiskinum kemur til með að falla í gæðaflokk-
un og eins og fyrr segir eru það fáeinir tugir
tonna sem mengast hafa olíunni og verður
ekki skipað út.
Nákvæmari tölur um magn og verðmæta-
tap liggja svo fyrir um helgina.
Bann á verðtryggingu
launa verði afnumið
■ Miðstjórn ASÍ skorar
á ríkisstjórnina og löggjaf-
ann að leggja á hiliuna
hugmyndir um framleng-
ingu á banni gegn verð-
tryggingu launa. Það sé
ekki aðeins rangt heldur
einnig óskynsamlegt að
torvelda þannig eðlileg
samskipti aðila
vinnumarkaðarins og
hindra samninga til lengri
tíma.
Miðstjórnin lýsir þeirri
eindregnu skoðun að það
eigi að vera samningsatriði
milli samtaka launafólks
og atvinnurekenda hvern-
ig kaupmáttur launa er
tryggður. Þótt stjórnvöld
hafi með lögum afnumið
verðbætur á laun, sé vísi-
tölubinding áfram við lýði
á fjölmörgum sviðum. Lán
séu flest verðtryggð og svo
sé einnig um ýmsa tekju-
stofna ríkisins.
Miðstjórnin segir kjara-
samninga snúast um kaup-
mátt en ekki kauptölur.
Tryggur kaupmáttur sé
forsenda kjarasamninga
til lengri tíma. í því efni
komi ýmsar leiðir til
greina og minnir mið-
stjórnin á hugmyndir
verkalýðshreyfingarinnar
í nýafstöðnum kjarasamn-
ingum í því sambandi.
JÓLAGJÖFIN HENNAR
NÝTT Á ÍSLANDI: JIL SANDER
Viö kynnum fjórar glæsilegustu ilm- og baðlínur sem fáanlegar eru á Islandi í dag:
WOMAN PURE, WOMAN TWO, BATH AND BEAUTY og MAN TWO, frá JIL SANDER.
Hönnuður þeirra er meöal fremstu tískufrömuða heims, JIL SANDER. Snyrtivörur
hennar eru einstæöar og einkennast af fáguöu látleysi. Komiö, sjáiö og sannfærist.
Viö mælum með JIL SANDER og bjóöum þig velkomna.
MIRRA
Hafnarstræti 17, R.
SARA
Bankastræti 8, R.
CLARA
Laugavegi 15, R.
SNYRTIVORUBUÐIN
Glæsibæ, Rvík
NAFNLAUSA BÚÐIN
Strandgötu, Hafn. •
NANA
Fellagörðum, R.
ANNETTA, snyrtist
Hafnargötu 23, Kef.
BYLGJAN
Hamraborg, Kóp.
SNYRTIHÚSIÐ
Eyrarvegi 20, Self