NT - 17.12.1984, Page 9
Engin tæpitunga
Sigurdur Thoruddsen
Eins og gengur
Endurminningar
Mál og menning.
■ Sigurður Skúlason Thor-
oddsen verkfræðingur fæddist
á Bessastöðum 1902. Þegar
hann var kominn nokkuð á
áttræðisaldur hóf hann að
skrifa minningar sínar. Og hér
eru þær nú komnar á bók.
Sigurður skrifar hispurslaust
og vill kannast við staðreyndir.
hann er t.d. ófeiminn að kann-
ast við að það heyrði til í æsku
hans að fólk hefði lús í höfði.
Hann gerir sér ekki far um að
fegra.
Hann segir vel frá berskuár-
um á Álftanesi og í Reykjavík
og margt frá skólaárum í
Reykjavík og Höfn. Hann
mun jafnan segja eins og hon-
um finnst og oftast græskulaus
eins og hann segir um skáld-
skap Jóns Helgasonar prófess-
ors, oftast græslulaust. Hins
vegar má reikna með því að
ýmsum finnist að frænda sinna
og feðra sé minnst örðuvísi en
þeir vildu. Fólk er svo við-
kvæmt fyrir umtali.
Sigurður stiklar á stóru eftir
að námsárum lýkur en þó kem-
ur fram hve kunnáttu og vís-
dómi verkfræðinga hefur fleygt
■ Gestur. íslenskur fróðleik-
ur gamall og nýr. I. Gils
Guðmundsson safnaði efninu.
í eftirmála með Gesti þeim,
sem hér heilsar lesendum í
fyrsta skipti, segir Gils Guð-
mundsson: „Riti því sem hér
hefur göngu sína og hlotið
hefur nafnið Gestur er ætlað
að flytja þjóðlegan fróðleik,
gamlan og nýjan, í víðtækustu
merkingu. Leitast verður við
að hafa efnið bæði fjölbreyti-
legt og fróðlegt, eftir ýmsa
höfunda og víðsvegar að af
landinu.
Árin 1964-1972 gaf Iðunn
út þjóðfræðiritið Heimdraga,
fjögur bindi alls, með sagna-
þáttum og margvíslegum fróð-
leik. Er Gesti ætlað svipað
hlutverk.“
Víst má Gestur standa sig ef
honum er ætlað að verða jafn-
vinsæll og Heimdragi var á
sínum tíma. Engu að síður
mega aðstandendur vænta
góðra undirtekta, svo vinsæll
sem þjóðlegur fróðleikur livers
konar hefur jafnan verið með
fram. Ýmislegt var honum
kennt í skóla sem lítt vár flíkað
á námsárum eldri verkfræð-
inga en þó er sem honum vaxi
meir í augum það sem kennt
var á efri árum hans umfram
það sem honum var kennt.
Það er pennaglöp þegar seg-
ir að Sigurður ívarsson hafi ort
undir nafninu Sigurður Z.
Hann merkti skáldskap sinn
aðeins Z en vegna kvæða hans
í Speglinum og hversu þau
voru merkt munu ýmsir hafa
farið að kalla hann Sigurður Z
í umtali.
Sigurður segir nokkuð frá
þingsetu sinni 1942-1946 en
lítil stjórnmálasaga verður úr
því. Finnst mér það slappasti
kafli bókarinnar og styður þá
skoðun að Sigurður hafi verið
betur upplagður til annarra
starfa.
Þess skal svo getið að lokum
að lesandi sem hefur ótrú á
brennivíni og aldrei hefur
öfundað fólk af áfengisneyslu
en stundum aumkvað það
hennar vegna fellir sig við
lýsingar Sigurðar á þeim sam-
kvæmum og mannfundum er á-
fengi var á borðum. Þar mun
rétt vera frá sagt og ekki reynt
að fegra.
H.Kr.
Gestur
íslenskum lesendum. Virðist
og svo sem enginn hörgull sé á
sífellt nýju efni til að birta í riti
sem þessu, enda mun langt í
land að þurrausinn sé sagna-
brunnur íslendinga.
Þetta fyrsta bindi Gests er
sannarlega fjölbreytilegt að
efni, frá ýmsum tímum og víða
að. Mest ber að sönnu á þáttum
frá 19. öld og hafa sumir þeirra
allnokkuð heimildagildi, þótt
flestir séu augljóslega valdir
lesendum til fróðlegrar dægra-
styttingar.
Ekki er auðvelt að gera upp
á milli þáttanna í bókinni, en
undirritaður hafði þó einna
mesta ánægju af að lesa endur-
minningar Arna Thorsteinsson
úr Bessastaðaskóla og
minningar Jóns Jónssonar frá
Sleðbrjót um Þorstein Erlings-
son.
Þættirnir í bókinni eru mjög
mislangir, eða frá fjórum til
fimm blaðsíður og upp í tíu til
tuttugu. Þeir eru allir vel og
smekklega valdir og í bókarlok
er kafli, sem ber heitið Smá-
Mánudagur 17. desember 1984 9
Konurviljavera
elskaðar og
elskaðar meira
■ „Hvernig elska á konu“ er
bók sem nýkomin er út hjá
Frjálsu framtaki h.f. Má segja
að þetta sé kennslubók fyrir
karla um það hvað konum
líkar best og verst í ástalífi
með þeim.
Höfundurinn, Michael
Morgenstern, sem sagður er
virtur lögfræðingur í Banda-
ríkjunum, áttaði sig á því eftir
áratuga reynslu, að sennilega
hefði hann sjálfur sem og flest-
ir karlar misskilið illilega öll
þessi ár hvað konum geðjast
að og geðjast ekki að í ástum.
Tók hann sig því til og kannaði
málið með viðtölum við fjöld-
ann allan af konum í heima-
landi sínu og skrifaði síðan
bók um niðurstöðurnar sem
selst hefur sem heitar lummur
í Bandarfkjunum. Michael
komst t.d. að því að það er
alger misskilningur hjá körlum
sem halda að stórt tippi og
óhemju úthald sé ofarlega á
vinsældalista meðal kvenna.
Sömuleiðis að: „Ekkert ergir
mig jafn mikið eða særir mig
meira en karlmaður sem sofnar
jafnskjótt og hann hefur lokið
sér af“, eins og hann hefur
orðrétt eftir einum viðmæl-
enda sinna. Niðurstaðan er
eiginlega sára einföld: Konur
vilja vera elskaðar, elskaðar
og elskaðar meira.
H.H.
Nei, ekkert slor
■ Rúnar Helgi Vignisson:
Ekkert slor. Skáldsaga.
Forlagið 1984.
112 bls.
Skáidsagan „Ekkert slor“
gerist í Plássinu á ótilgreindu
sumri, sem þó er ekki mjög
langt undan. Sögusviðið,
Plássið, gæti verið nánast
hvaða sjávarþorp eða útgerð-
arbær sem er á íslandi, utan
Faxaflóasvæðisins. Söguefnið
er í senn margslungið og ein-
falt, daglegt líf fólksins í Plássi,
og þó einkum og sér í lagi
þeirra sem vinna í hraðfrysti-
húsi staðarins, en það er kjarni
alls atvinnulífs í Plássinu.
í Fiskhúsinu h.f. vinnur fólk-
ið langan vinnudag við að
bjarga verðmætum þjóðarinn-
ar, flestum hundleiðist, eink-
um þó yngri kynslóðinni, en
■ Gils Guðmundsson
munir og eru þar birtar nokkr-
ar örstuttar sögur.
Skrá um mannanöfn er aft-
ast í bókinni, en allur frágang-
ur ritsins er vandaður. Lofar
þetta fyrsta bindi Gests sannar-
lega góðu um framhaldið.
Jón Þ. Þór.
nokkrir af eldri kynslóðinni
lifa og hrærast í útgerðinni og
fiskvinnslunni, sumir þekkja
jafnvel ekki annað en enda-
laust strit. Á hátíðum og tylli-
dögum fara menn í betri fötin,
taka þátt í þeim hátíðahöldum,
sem upp á er boðið, og sumir
lenda í knalli um kvöldið, með
misjöfnum árangri þó.
Þetta er í stystu máli umgerð
þessarar nýju skáldsögu. Hún
gæti að sönnu átt við um ótal
mörg sjávarpláss í íslandi og
hvergi ícemur beinlínis fram að
höfundur hafi einn stað í huga
öðrum fremur, þótt málfarið
bendi ótvírætt í ákveðinn
landsfjórðung.
Vísir menn hafa stundum
sagt, að aldrei eigi að hrósa
ungum höfundum fyrir þeirra
fyrstu bækur. Upp úr því hafist
ekki annað en það að þeir
skrifi bara vondar bækur það
sem eftir er, eða hætti jafnvel
alveg að dýrka skáldgyðjuna.
Víst mætti með smásmugulegri
rýni finna nokkra formgalla á
þessari skáldsögu, jafnvel
stöku stílbrot, en þeir gallar
eru hverfandi smáir í saman-
burði við kostina.
Höfundur þekkir greinilega
vel til söguefnis síns og hefur á
því góð tök. Málfar og samtöl
eru afar eðlileg, þó eilítið
glannaleg á köflum, og upp-
byggingu sögunnar kann ég vel
að meta. Sögupersónurnar og
allt umhverfi þeirra er einkar
eðlilegt í augum þess, sem
eitthvað örlítið þekkir til í
sjávarplássum úti á lands-
byggðinni, þótt ekki verði því
neitað, að sumar persónurnar
eru svolítið ýktar. Er það ef til
vill viljandi gert.
Skáldsögur um daglegt líf
íslensks fiskverkafólks nú á
dögum eru næsta sjaldgæfar og
af þeim fáu, sem ég hef séð á
undanförnum árum, þykir mér
þessi bera af. Hér er sýnilega á
ferðinni höfundur, sem vert er
að veita fulla athygli í framtíð-
inni.
Bókin er unnin í Prentstof-
unni ísrún á ísafirði og er allur
frágangur hennar með ágæt-
um.
Jón Þ. Þór.
Málsvari frjálslyndis,
samvinnu og felagshyggju
Útgefandi: Nútíminn h.f.
Framkvæmdastj.: Sigurður Skagfjörð Sigurðsson
Markaðsstj.: Haukur Haraldsson
Auglýsingastj.: Steingrímur Gíslason
Ritstj.: Magnús Ólafsson (ábm).
Innblaðsstj.: Oddur Ólafsson
Tæknistj.: Gunnar Trausti Guðbjörnsson
Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík.
Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300
Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300. ritstjórn
686392 og 687695, íþróttir 686495, tæknideild
686538.
Setning og umbrot: Tæknideild b’T.
Prentun: Blaðaprent h.f.
Kvöldsímar: 686387 og 686306
Vegleg afmælisgjöf
■ Mikið hefur verið rætt og ritað á undanförn-
um árum um mengun á íslandi og víða verið
tekið tillit til þeirrar umræðu og endurbætur
gerðar. Þrátt fyrir það bendir margt til þess að
mengunin fari stöðugt vaxandi og má í því
sambandi nefna strandlengjuna á höfuðborgar-
svæðinu sem nú er orðin mjög illa útlítandi. Eina
sjóbaðsaðstaða borgarbúa, Nauthólsvíkin, hef-
ur verið lokuð um árabil vegna mengunar og fólk
hefur verið varað við því að fara með börn í
leikja- eða skoðunarferðir í fjörur borgarlands-
ins.
Einn helsti mengunarvaldurinn í fjörunum er
skólpið. í heilbrigðisreglugerð, sem sett var fyrir
allt landið árið 1972, segir að skólp skuli leitt út
fyrir stórstraumsfjöruborð. í höfuðborginni ná
skólpleiðslurnar í fæstum tilfellum svo langt
þannig að þar er því greinilega um hreint og klárt
lögbrot að ræða.
Að undanförnu hefur verið fjallað ítarlega um
þessi mál í NT. Eftir að hafa kynnt sér vel þá
gífurlegu mengun, sem blasir alls staðar við í
fjörum borgarlandsins, sér blaðið ekki annan
möguleika en að krefjast opinberrar rannsóknar
á þessum gífurlega mikilvæga máli, eins og fram
kom í helgarblaði NT.
Það er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir, að
þessi mengun setur ekki aðeins ljótan svip á
fjörur borgarinnar, heldur er hún einnig upp-
spretta sjúkdóma og margvíslegra kvilla, sem
hrjá borgarbúa. Þannig hafa rannsóknir Líf-
fræðistofnunar Háskóla íslands leitt í ljós, að
mengun af völdum salmonellasýkla er mikil og
samfelld á ákveðnum svæðum við strendur
borgarinnar. Fjölmargar tegundir sýkla fundust
í rannsókninni og höfðu sumar þeirra aldrei
verið greindar hér áður.
Mengunin getur borist yfir stór svæði borgar-
innar þegar vindur stendur af sjó og því
sjávarúði í kjölfarið. Þessi úði er talinn vera
beinlínis skaðlegur heilsu manna.
í gegnum árin hafa fjöldamargar áætlanir
verið gerðar til að leysa þetta vandamál. Örlög
þeirra hafa nær undantekningarlaust verið
aðgerðaleysi, þar sem fjármagn til slíkra aðgerða
hefur verið skorið niður.
Það er ljóst, að fallegir grasbalar, skólabygg-
ingar og dagheimili eru ofar á vinsældarlista
stjórnmálamanna en kostnaðarsamar mengun-
arvarnir. Ævinlega virðast vera til peningar til
að framkvæma það, sem efst er á vinsældarlistan-
um, en fjármagnsleysi borið við þegar ræða á
mengunarmál.
Það væri virðingarvert framtak hjá borgarfull-
trúum og borgaryfirvöldum að gefa borgarbúum
þá glæsilegu afmælisgjöf á 200 ára afmælinu eftir
rúmt ár, að ganga sómasamlega frá þessu
mikilvæga máli. Þannig gætu borgarbúar farið
að njóta þess ævintýraheims sem fjaran er og
það án þess að þurfa að óttast heilsuspillandi
sýkla skólpsins við húsdyr okkar.