NT - 17.12.1984, Side 13
Mánudagur 17. desember 1984 13
■ Ein af grafikmyndunum í almanaki Þroskahjálpar. „Anægjan er auði betri“ eftir Lísu
Guðjónsdóttur.
Grafíklistamenn í al-
manaki Þroskahjálpar
■ Út er komið almanaks-
happdrætti Landssamtakanna
Þroskalijálpar og að þessu
sinni prýða almanakið grafík-
myndir eftir 13 íslenska lista-
menn, ein fyrir hvern mánuð,
auk forsíðu, og birtist með
almanakinu árangur samvinnu
Þroskahjálpar og félagsins ís-
lensk grafík. Myndirnar
sjálfar, þ.e. frummyndirnar,
verða til sölu fyrir milligöngu
Þroskahjálpar.
Vinningar í almanakshapp-
drættinu verða dregnir út mán-
aðarlega, í fyrsta sinn 31. janú-
ar og er þá vinningurinn Fíat
Uno, síðan eru mánaðarlega
dregin út Sharp litasjónvarps-
tæki.
Almanakið er gefið út í 16
þúsund eintökum og kostar
200 krónur. Þetta er meginfjár-
öflunarleið samtakanna
Þroskahjálpar sem eru lands-
samtök 24 félaga um málefni
fatlaðra og eru í senn sam-
starfsaðiii við stjórnvöld um
málefni fatlaðra og baráttu-
aðili fyrir rétti þeirra.
Skjaldborg:
Sigrún
■ „Sigrún" er ótrúleg lífs-
reynslusaga ungrarstúlku. Þetta
er önnur bók ísólar Karlsdóiíur,
en fyrsta bók hennar, Forlaga-
flækja, kom út á síðasta ári og
var firnavel tekið.
t-ORsrEifoí o. ÞOttsrmNS&ox
ÓHREIN BÖRN
UOOABÓK
Þorsteinn G.
Þorsteinsson:
Ungt Ijóðskáld
sendir frá sér
Óhrein börn
■ Óhrein börn heitir ljóðabók
eftir Þorstein G. Þorsteinsson
sem gefin er út af höfundi og
inniheldur 21 .Ijóð, ásamt
myndskreytingum eftir Árna
Elvar. Bókin er offsetprentuð
og í stóru broti.
Höfundur kemur víða við en
nokkur ljóðanna fjalla um lífið
og tilveruna í Reykjavík, með-
an önnur glíma við alheimsgát-
una sjálfa.
Blóðug átök
um olíulindir
■ Komin er út hjá Iðunni ný
bók eftir spennuhöfundinn vin-
sæla, Hammond Innes. Nefnist
hún Átök í Eyðimörk. Sögu-
sviðið að þessu sinni er brenn-
heitar sandöldur Arabíuskag-
ans þar sem arabísku fursta-
dæmin heyja blóðug átök um
' nýjar olíulindir. Mitt í eyði-
' mörkinni rís gróðursæl vin en
tortímingin vofir yfir eftir að
óvinasveitir hafa stíflað áveitu-
kerfi hennar. Grant lögmaður
flækist í furðulegt svikanet
harðsvíraðra Araba og spilltra
i landa sinna þegar hann heldur á
slóðir olíuleitarmanna til að
hafa upp á ungum skjólstæðingi
sínum.
Jarðfræðingurinn Davíðætlar
að bjarga vininni frá auðn og
dauða en á við ofurefli að etja.
Dirfska hans leiðir hann að
lokum í sjálfheldu við borg
óvinanna sem stýrt er af morð-
óðum fursta. Vinirnir falla einn
af öðrum, flugurnar suða og
blóðlyktin er megn. Dauðinn
virðist ekki eins skelfilegur þeg-
ar lífið er sjálft svona grimmi-
legt...
Átök í Eyðimörk er átjánda
bók Hammond Innes á ís-
lensku. Sjaldan hefur hann sam-
ið sögu af annarri eins íþrótt og
hér. Hann hefur kynnt sér ræki-
lega umhverfi sögunnar og
sviðsetur hana af þeirri snilld
sem naumast á sinn líka.
Hammond Innes heldur lesend-
um sínum í spennitreyju hraðra
viðburða en fer þó aldrei út fyrir
ramma sennileikans.
Álfheiður Kjartansdóttir
þýddi. Oddi hf. prentaði. Brian
Pilkington hannaði kápu.
Æviskrár
tannlækna
■ Komið er út á vegum Tann-
læknafélags Islands Tannlækna-
tal 1854-1984. í ritinu er að finna
æviskrár 248 tannlækna.
Þar á meðal eru nokkrir Is-
lendingar, sem starfað hafa erl-
endis, og sömuleiðis nokkrir
erlendir tannlæknar, sem fengið
hafa íslenskt tannlækningaleyfi.
f bókinni er grein eftir Rafn
Jónsson um „Stofnun oe starf-
semi Tannlæknafélags Islands
fyrstu 30 árin 1927-1957.
Þar er einnig kandidataskrá,
nafnaskrá og skrá yfir stjórnir
félagsins frá upphafi.
Formaður ritnefndar Tann-
læknatals er Gunnar Þormar.
Bókin er samtals 232 bls. að
stærð og var sett í Prentþjónust-
unni hf., prentuð í Prentberg
hf. og bundin í Bókfell hf,
A kápuumslagi er mynd af
Brynjúlfi Björnssyni, sem var
aðal-hvatamaður að stofnun
Tannlæknafélags íslands 1927.
LEIKIR
Feröaleikir eru margir til og auka
ánægju yngstu feröalanganna.
Oröaleikir, gátur. keppni í hver
þekkir flest umferöarmerki og bíla-
talningarleikir henta vel i þessu
skyni.
||UJJFERÐAR
Þú færð
IBM PC/XT
hjá:
ÖFJTÖLVU
TÆKNI hf.
Microprocessor Technology
Ármúla 38 . Sími (91)
108 Reykjavík 687220
>----! ! ' . „ .. ■<
TÝPA
Á FÖSTU
Óskabækur unglinganna i fyrra og hittifyrra voru Viltu byrja
með mér? og Fjórtán . . . bráöum fimmtán — sögurnar um
Elias Þór Árnason eftir Andrés Indriðason. Bráðfyndnar sögur
um vandræðalegan strák og hressar stelpur.
Núer komin ný!
TÖFF TÝPA Á FÖSTU tekur upp þráöinn haustið ’83 þegar
Elias Þór byrjar i 8. bekk — en þráðurinn er bara ekki sá sami:
Mamma og Elias eru flutt í nýtt hverfi og Elías byrjar i nýjum
skóla með krökkum sem hann hefur aldrei séð. Þá er málið að
koma vel fyrir, vera töff, svalur að slást, djarfur að breika,
ódeigurað veifaflösku og tröllavindli. . . þó mann langi mest
til að skriða i felur niðri i geymslu. Best af öllu væri þó að sýna
nýju félögunum hana Evu, hlaupaspíruna af Skaganum — þá
gæti enginn efast lengur um að Elías væri Töff týpa á föstu!
Bækurnar um Elias Þór eru heillandi skemmtilegar og mjög
vel skrifaöar bækur sem sýna lif unglinga i Reykjavik á lifandh
hátt. Þær eru sjálfstæðar bækur hver um sig en segja þó eina
sögu saman: söguna af þvi hvernig Elias finnur sjálfan sig.
Snjallar myndir Önnu Cynthiu Leplar gefa bókunum aukið
gildi.
Bækur Andrésar hafa veriö söluhæstu unglingabækurnar
undanfarin ár. Þær bregöast ekki.
Verðkr.548.—
Félagsverðkr.466.— k i
gefum góðar hœkur
og menning