NT - 17.12.1984, Page 14
IIX
Mánudagur 17. desember 1984 14
Utlönd
TakaBretarogSovétmenn höndum
saman um að banna stjörnustríðið?
Bretar fara lofsamlegum orðum um Gorbachev
I.ondon-Reuler
■ Mikhail Gorbachev, sem er rísandi stjarna í sovéska
stjórnkerfínu og líklegur eftirmaður Chernenkos, átti í
gær fund með Margaret Thatcher, forsætisráðherra
Breta, á sveitasetri hennar. Þau munu hafa farið víða í
viðræðum sínum, en aðalumræðuefnið var þó bann við
vígvæðingu himingeimsins. Þar er jafnvel talið að Sovét-
ríkin og Bretiand séu sammála um margt.
hafa farið mjög jákvæðum orð-
um um hann og segja að frá
honum stafi hlýju og gaman-
semi. Hann virðist einnig róleg-
ur, yfirvegaður og fullur sjálfs-
trausts, hafa bresku blöðin eftir
Krcmlstjórnin telur injög
brýnt að þetta mál verði efst á
baugi í samningaviðræðum Sov-
étríkjanna og Bandaríkjanna
um afvopnun, sem hefjast á
nýjan leik í Genf í janúar. Hún
leggur nú fast að vestrænum
valdamönnum að reyna að fá
Reagan forseta oían af stjörnu-
stríðsfyrirætlunum sínum.
Síðar í vikunni heldur Thatc-
her til Washington til fundar við
Reagan og er því víst að viöræð-
urnar fara fram á þýðingarmiklu
augnabliki.
Malcholm Rifkind, aðstoðar-
utanríkisráðherra Breta, sagði í
sjónvarpsviðtali í gær að Bretar
væru andsnúnir því að himin-
geimurinn yrði notaður í hern-
aðarskyni og gaf í skyn að þeir
hölluðust að þeirri skoðun Sov-
étmanna að bann ætti að leggja
við þvf.
Rauðuherdeildirnar:
Ekkidauð-
ar úr öll-
um æðum
Flórens-Reuter
■ ítölsk stjórnvöld telja
að þau hafí að mestu leyti
ráðið niðurlögum Rauðu
herdeildanna svokölluðu,
hryðjuverkasamtakanna
sem á síðasta áratug myrtu
átján frammámenn í
ítölsku þjöðlífí, þar á með-
al Aldo Moro, fyrrum
forsætisráðherra. Atburð-
ir sem gerðust í Bologna
og Róm nú um helgina
sýna þó að enn er eitt-
hvert lífsmark með sam-
tökunum.
í einu úthverfi Rómar
reyndu menn að ræna pen-
ingaflutningavagn. Einn
ræningjanna, Antonio
Giustini, rauður herdeild-
armaður sem farið hefur
huldu höfði, var skotinn
til bana og félagi hans,
Cecilia Massara, sem einnig
er eftirlýst, var flutt á
sjúkrahús. Tveir örygg-
isverðir særðust alvarlega
þegar ræningarnir reyndu
að opna bílinn.
í Bológna skaut skart-
gripasali einn konu til
bana og særði aðra er þær
reyndu að ræna verslun
hans á föstudaginn. Lög-
reglan segir að báðar kon-
urnar tengist Rauðu her-
deildunum.
í gærmorgun hringdi
svo maður á skrifstofu
dagblaðs í Flórens og
sagði að Rauðu herdeild-
irnar bæru ábyrgð á ráns-
tilraununum. Hann sagði
einnig að herdeildirnar í
Flórens lifðu. „góðu lífi“
og myndu láta vita af sér á
komandi mánuðum.
„Bretar hafa sjálfstæða skoð-
un á þessu máli og þeirri skoðun
munum við halda á lofti. Við
viljum ekki horfa upp á það að
himingeimurinn verði notaður
til að ógna mannkyninu frekar
en orðið er,“ sagði Rifkind.
Áður en fundur þeirra Thatc-
her og Gorbachevs hófst heim-
sótti hann höfuðstöðvar fyrir-
tækisins John Brown, sem gerir
nú tilboð í aö reisa feiknastóra
plastverksmiðju í Suöur-Rúss-
landi. Þar lagði Gorbachev
áherslu á það að efla bæri við-
skipti milli austurs og vestur.
Brcsk blöð velta persónu
Gorbachevs mjög fyrir sér þessa
dagana, enda er þetta kærkomið
tækifæri til að kynnast mannin-
um sem líklegur er til að ná
æðstu metorðum í Kreml. Þau
■ Mikhail Gorbachev, sem líklegastur þykir til að taka við sæti æðsta manns Sovétríkjanna, er nú í átta
daga opinberri heimsókn í Bretlandi. Ekki er annað hægt að segja en að hann hefji för sína með glæsi-
brag. Bresk blöð fara mjög lofsamlegum orðum um hann og þeir sem hafa hitt hann að máli segja að hann
sé bæði hlýlegur og gamansamur. í gær átti hann mikilvægan fund með Margaret Thatcher á sveitasetri
hennar. Ásamt þeim á myndinni er kona Gorbachevs, Raisa. símamynd-POLFOTO
Lögregla leysir upp
mótmælagöngu í Gdansk
Varsjá-Reuter
■ Til átaka kom milli lögreglu
og stuðningsmanna Samstöðu í
hafnarborginni Gdansk í gær,
en þá minntust Pólverjar þess
að fjórtán ár eru liðin frá því að
lögregla skaut til bana að
minnsta kosti 45 verkamenn í
borginni.
Að sögn sjónarvotta kom
lögreglan í veg fyrir að nokkur
þúsund manns næðu að ganga
að minnismerki við Lenín skipa-
smíðastöðina í Gdansk, sem
reist var til minningar um hina
föllnu verkamenn.
Samstöðuleiðtogar komust
ekki til þess að leggja blómsveig
á minnismerkið. I þeim hópi
voru Lech Walesa, Bogdan Lis,
Henryk Wukec og Andrzej Cel-
inski.
Atökin hófust eftir að um
7000 manns voru við messu hjá
Henryk Jankowski, presti og
einum helsta ráðgjafa Walesa.
Hluti messugesta tók sig saman
og ætlaði að ganga að minnis-
merkinu, en lögreglan var í
veginum og skaut á loft við-
vörunarblysum. Ekki er vitað
urn að slys hafi orðið á mönnum,
en einhverjir voru handteknir.
Að sögn sjónarvotta stóðu átök-
in yfir í um klukkutíma, en
lögregla hefur ekki tjáð sig um
málið.
Þetta er í fyrsta sinn sem
kemur til átaka í Gdansk, einu
helsta vígi frjálsu verkalýðsfé-
laganna síðan 1. maí er tekist
var á utan við heimili Lech
Walesa.
Jólagjafir handa kolanámumönnum
þeim sem rætt hafa við Gorbac-
hev.
Bretar hætta
geislamengun
á Atlantshafi
London-Rcuter
■ Bresk yfirvöld hafa fallist á
að hætta að losa sig við geisla-
virkan úrgang með því að
fleygja honum í Atlantshafið.
Umhverfismálaráðherra
Breta, Patrick Jenkin, segir að
nú sé verið að kanna aðrar leiðir
til að koma úrganginum í lóg.
Sérstök nefnd hefur verið sett á
laggirnar í þessum tilgangi. For-
maður hennar, prófessor Fred
Holliday, segir að Bretar hafi
neyðst til að fleygja geislavirk-
um úrgangi vegna þess að það
sé þrisvar til fjórum sinnum
dýrara að geyma hann en að
henda honum í hafið.
Breskir embættismenn halda
því fram að hingað til hafi ekki
fundist nein merki um skaðleg
áhrif úrgangsins á menn eða
umhverfi en vegna ótta um
langtíma áhrif sé samt skynsam-
legt að hætta að fleygja geisla-
úrgangi í hafið þar til frekari
rannsóknir hafi verið gerðar.
Mánudagur 17. desember 1984 15
Utlörad
Spánn:
Gonzalez stendur með
pálmann í höndunum
- sósíalistar samþykkja NATO stefnu hans
■ Þing spænska .sósíalistaflokksins, sem haldið var nú
um helgina, hefur mjög styrkt stöðu Felipe Gonzalez, hins
unga forsætisráðherra. Þingið gaf grænt Ijós á stefnu
Gonzalez gagnvart Atlantshafsbandalaginu og staðfesti
einnig efnahagsstefnu hans.
Umsjón: Ragnar Baldursson og Egill Helgason
Ungfrú Evrópa
■ Fegurðarsamkeppnir eru enn vinsælar þótt mörgum fínnist þær
argasta niðurlæging fyrir kvenþjóðina. Norrænar stúlkur hafa löng-
um þótt vel gjaldgengar í fegurðarsamkeppnum og á föstudaginn var
ein Ijóskan úr norðrinu kjörin Ungfrú Evrópa í Vínarborg. Það var
hún Trine Elisabeth Mörk, 22ja ára gamall einkaritari frá Osló.
Símamynd-POLFOTO
Samkvæmt hefð er sósíalist-
aflokkurinn, sem nú hefur setið
við völd í tvö ár, mótfallinn
aðild Spánar að NATO. Mikinn
kostningasigur flokksins í okt-
óber 1982 má að hluta til skrifa
á reikning andstöðunnar gegn
NATO. Síðan flokkurinn tók
við stjórnartaumunum hefur
afstaða Gonzalez til NATO
hægt og hægt tekið breytingunr.
í atkvæðagreiðslum um utan-
ríkismál vann stefna Gonzalez
með atkvæðahlutfalli sem var
um 60 prósent á móti 40 prós-
entum. Tillögur um að Spánn
yrði hlutlaus, um úrsögn úr
NATO og unt að bandarískt
herlið yrði kvatt burt frá Spáni
voru felldar.
Sagt er að persónulegar vin-
sældir Gonzalez hafi ekki átt
lítinn þátt í því að svona fór.
Þingiö samþykkti með mikl-
urn nreirihluta fyrirætlanir
stjórnarinnar um að halda þjóð-
aratkvæðagreiðslu um aðildina
að NATO í febrúar 1986; mán-
uði fyrr en ráðgert er að Spánn
fái aðild að Efnahagsbandalagi
Evrópu. 1 kosningunni mun
Gonzalez að öllum líkindum
mæla með því að þjóðin greiði
atkvæði með aðildinni að
NATO, sem hann tengir aðild-
inni að EBE.
Spánn gekk í NATO í tíð
fyrri stjórnar árið 1982. Gonza-
lez telur að þar hafi ekki verið
rétt staðið að málum, en segir
að Spánn hafi ekki tapað sjálf-
stæði sínu á neinn hátt þrátt
fyrir aðildina.
Samkvæmt skoðanakönnun-
um er meirihluti Spánverja and-
vígur NATO-aðild. Bilið milli
þeirra sem eru með og þeirra
sem eru á móti hefur þó farið
minnkandi upp á síðkastið og
líklegt að niðurstöður sósíalista
þingsins geti lagt þar lóð á
vogarskálarnar.
Þingið samþykkti einnig
efnahagsáætlun ríkisstjórnar-
innar nreð 325 atkvæðum gegn
41 og á sömu lcið fór ; atkvæða-
greiðslaumnýttframkvæmdaráð
flokksins.
Gonzalez var bjartsýnn á
þinginu og sagðist fullviss um að
sósíalistaflokkurinn myndi
vinnaþingkosningarnar árið
1986 og einnig kosningarnar
árið 1990.
Dalai Lama fer
ekki til Tíbet
Nýja Dclhi-Rcutcr
■ Dalai Lama, hinn út-
lægi æðsti prestur og leið-
togi frá Tíbet, lýsti því yfir
í gær að hann niyndi ekki
heimsækja heimaíand sitt á
næsta ári. í yfirlýsingu hans
sagði ennfremur að vilji
kínverskra yfirvalda væri
sá að ef hann kæmi til Kína
á annað borð dveldi hann i
höfuðborginni Peking.
Fyrr í þessum mánuði fór
sendinefnd frá Dalai Lania til
Peking og átti viðræður við
stjórnvöld um möguleikana i
því að Dalai Lama sneri aftur til
Tíbet.
Dalai Lama sagði að sendi-
mönnunum hefði þótt mikið
konta til framfaranna sem orðið
hafa í Kína á síðustu árum. En
hann myndi ekki snúa aftur fyrr
en að Tíbetmálið væri til lykta
leitt á þann hátt að tíbetska
þjóðin gæti verið ánægð.
„Það eitt aö Kínverjar vilja
að ég dvelji í Peking bendir til
þess að enn séu óleysl vandamál
í Tíbet," segir Dalai Lama.
Dalai Lama hefur dvalið í
útlegð á Indlandi síðan 1959.
Þangað flúði hann eftir mis-
heppnaða uppreinsartilraun
gegn kínversku valdi í Tíbet.
Danir hætta
að leita að
kafbátinum
Kaupmannahöfn-Reuter
■ l)önsk tlotayfírvöld
tilkvnntu í gær að leit að
kafbáti, seni talið var að
gæti leynst í Isafirði á
norðvesturströnd Sjá-
lands, hefði verið hætt.
Hún bar engan árangur.
Leitin hófst á fimmtu-
daginn eftir að merki unt
ókennilegan hlut í firðin-
utn höfðu sést á ratsjá, að
sögn flotayfirvalda. Óstað-
festar fregnir danskra
blaða herma að tveir liös-
foringjar hefðu séð eitt-
hvað sem líktist kafbát,
fyrst í ratsjá og síðar í
sjónauka.
Þegar kafliátar sjást á
þessu svæði er talið nokk-
uð víst að þeir séu sovésk-
ir. Fréttir um kafbáta i
sænskri landhelgi hafa
annað veifið komið upp,
en leit sjaldnast borið
árangur.
Flotayfirvöld segja aö
innsiglingin í fjörðinn sé
aðeins sjö mctra djúp og
að ekki myndu aðrir en
nijög smáir kafbátar kom-
ast þangað inn.
Verkalýðsfélög, ein-
staklingar og ýmis samtök
út um allan heim hafa tekið
höndum saman um að gera
kolanámumönnunum bresku
kleift að halda jól. Þeir
hafa nú verið í hörðu verk-
falli í níu mánuði og orðið
þröngt í búi hjá fjölskyidum
þeirra, enda hefur stjórn
Margaret Thatcher einsett
sér að berja niður verkfallið
með hörku. „Danska
sjómannasambandið styður
bresku námumennina “
stendur á þessum borða
sem er strengdur yfir þilfar
skips sem lá við bryggju í
Kaupmannahöfn á laugar-
daginn. Það sigldi síðan til
Bretlands, fullt af mat og
öðrum varningi handa kola-
námumönnunum bresku.
Rajiv spáð stór
sigri á jólunum
■ Víðtæk skoðanakönnun,
sem indverskt dagblað stóð að,
spáir því að Kongressfiokkur
Rajivs Gandhi forsætisráðherra
vinni stórsigur í kosningunum,
sem fara fram á Indlandi á að-
fangadag jóla.
í skoðanakönnuninni segir að
Kongressflokkurinn muni vinna 366
af þeim 511 þingsætum sem í boði
verða. Hann hefur nú 351 þingsæti.
Flokkurinn fékk 42.7 prósent at-
kvæða í kosningunum 1980, en nú er
því spáð að hann fái allt að 54
prósentum.
Skoðanakönnun þessi er talin mjög
marktæk, en alls voru tólf þúsund
manns úr öllum stéttum og frá ýmsum
landshlutum spurðir. Sama blað
komst mjög nærri því að spá réttilega
um úrslitin í kosningunum 1980.
Múhameðstrúarríki
deila um Egypta
Sanaa-Reuter
■ Sýrlendingar og íranir beita
sér nú mjög gegn því að Egyptar
fái að sitja fund utanríkisráð-
herra samtaka múhameðstrúar-
ríkja, sem hefst í Sanaa, höfuð-
borg Norður-Yemen á þriðju-
daginn.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 1979 að
egypsk sendinefnd situr fund samtak-
anna. Þeir voru gerðir brottrækir úr
samtökunum eftir að Camp David
friðarsáttmálinn við tsrael var undir-
ritaður, en á fundi samtakanna í
Casablanca í janúar síðastliðnum var
samþykkt að veita Egyptum aðild á
nýjan leik.
Harðlínumenn í samtökunum vilja
að múhameðstrúarríki, sem samband
hafa við ísrael, verði skilyrðislaust
rekin. Líbýumenn og Suður-Ymenar
styðja Sýrlendinga og írani í þessu
máli. Súdanir, írakar og Pakistanir
eru hins vegar helstu bandamenn
Egypta.
Listamaðurinn Karl Lagerfeld hefur i samvinnu viö CHLOÉ-safnið í París
hannað þessi gullfallegu matar- og kaflístell „Kalablómið"
sem Hutschenreuther framleiðir úr postulini af bestu gerð.
SILFURBUÐIN
LAUGAVEGUR 55 101 REYKJAVlK SlMI 11066
c;--rnm