NT - 15.01.1985, Qupperneq 9
Þriðjudagur 15. janúar 1985
Norsk Hydro hefur eignast Mowi að fullu:
Hraðar líklega
uppbyggingu hér
■ Norska stórfyrirtækiö
Norsk Hydro hefur keypt að
fullu fiskiræktarfyrirtækið
Mowi, en það fyrirtæki hefur í
nokkur ár átt samstarf við
íslenska aðila um laxarækt hér
á landi. Hydro átti áður 75%
af Mowi. Er ástæðan fyrir
kaupunum taiin vera sú, að
sögn blaðsins Norges Handels
og Sjöfartstidende, að meðeig-
endur Hydro í Mowi hafi ekki
treyst sér til að taka þátt í
fyrirhuguðum stórfjárfesting-
um fyrirtækisins, þ.á.m. vegna
eldis og hafbeitarstöva á Is-
landi.
„Aðalforstjóri Norsk Hydro
hefur sagt að þessi kaup séu
þáttur í að gera fiskirækt að
verðugri fimmtu stoð í starf-
semi fyrirtækisins. Ég reikna
með að þessi breyting þýði að
farið verði hraðar í uppbygg-
ingu hér heldur en áður hefur
verið rætt um," sagði Eyjólfur
Konráð Jónsson, stjórnarfor-
maður í ÍSNO, fyrirtækis
Mowi og Tungulax, í samtali
við NT.
Eyjólfur sagði að í deiglunni
hefði verið ákvörðun um að
auka kvíaeldi ÍSNO í Lónunt í
Kelduhverfi úr l()0 tonna árs-
framleiðslu í 540 tonna fram-
leiðslu, í tveimur þrepum.
Jafnframt að byggja stóra
seiðastöð, fyrir allt að 5 milljón
seiði, til hafbeitar í Lónum.
En stærsta áætlun félagsins er
um byggingu 5000 tonna eldis-
stöðvar á Kistu á Reykjanesi.
„Við höfum alltaf viljað fara
hraðar í þessar áætlanir heldur
en Norðmennirnir," sagði Eyj-
ólfur Konráð.
Norsk Hydro hefur nú óskað
eftir að næsti stjórnarfundur
i'ÍSNO verði í Noregi 31. janú-
ar. Þar verða væntanlega tekn-
ar ákvarðanir um framkvæmd-
ir félagsins á árinu.
Sameinuð Fiskirækt
í tengslum við áætlaniríSNO
var síðast liðinn miðvikudag
gengið frá sameiningu tveggja
íslenskra fiskræktarfélaga,
Tungulax og Fiskiræktar.
Meðal eigenda síðarnefnda fé-
lagsins voru Hraðfrystihúsið
Norðurtanginn á ísafirði og
ísfélag Vestmannaeyja. Hluta-
fé nýja félagsins.sem ber nafn
Fiskiræktar hf., cr 36 milljónir
króna. Fiskirækt verður eign-
araðili að ÍSNO, með 55%
hlutafjár. Eyjólfur Konráð
Jónsson sagði að með þessari
sameiningu hefðu lslend-
ingarnir sett sig í stellingar
vegna stórátaks ISNO.
Mowi stærst?
Fyrirtækið Mowi er, að því
er Noregs Handels og Sjöfarts-
tidende telur, stærsta fiski-
ræktarfyrirtæki í heimi. Er
velta fyrirtækisins á þessu ári
talin verða á milljöröum ís-
lenskra króna.
■ Til greina kemur að nýta orkuna við Saltverksmiðjuna til að reka nýju kvíaeldisstöð ÍSNO á Rcykjanesi. Innfellt:
Eyjólfur Konráð Jónsson.
UH hagræðingh.
! M STARFSMENN stjornun skipuiag
Hagræðing hf.efnir til námskeiða:
Sölusálfræði og samskiptatækni dagana 19. til 20. janúar
og dagana 26. til 27. janúar tvö námskeið.
Þetta vinsæla námskeið fjallar um það sem sálfræðin hefur
uppá að bjóða í sambandi við kaup og sölu. Fjallað er m.a.
um: Opin og leynd samskipti, atferlisgerðir, grunn ákvörðunar
og hvernig hægt er að hafa áhrif á hann, tvíbindingu
samninga, gerð tilboða og fleira.
Leiðbeinandi er Bjarni Ingvarsson, MA.
Þjónustusamskipti dagana 22. til 23. janúar og dagana 29.
til 30. janúar (tvö námskeið).
í þessu námskeiði er m.a. fjallað um: Samskipti, eðli þeirra
og gerðir, gagnkvæmur skilningur í þjónustusamskiptum,
stigskipting þjónustusamskipta, tvíbinding þjónustusam-
skipta, mikilvægi jákvæðrar hugsunar í þjónustusamskiptum
og margt fleira.
Leiðbeinandi er Bjarni Ingvarsson, MA.
Mannaforráð og launakerfi dagana 2. til 3. febrúar.
Markmið þessa námskeiðs er að kynna þátttakendum
grundvallarlögmál atferlisstjórnunar. Fjallað er m.a. um það
hvernig hægt er að stjórna afköstum og gæðum með
jákvæðum styrkingarkerfum, farið verður í markmiðssetn-
ingu, hvað það er sem viðheldur áhuga og hvernig hægt er
að auka áhuga.
Leiðbeinandi er Guðríður Adda Ragnarsdóttir en hún er að
Ijúka doktorsnámi í vinnusálfræði frá Exeter háskóla í
Englandi.
Þess má geta að Flagræðing hf. býður uppá bæði innanbúð-
arnámskeið (námskeið haldin innan fyrirtækja) og svo opin
námskeið.
Nánari upplýsingar í síma 84379 kl. 9 til 5 alla virka daga.
Metfjölgun hlutafélaga
-um 10% í fyrra
■ Á síðasta ári voru skráð
330 ný hlutafélög hér á landi.
Er þetta meiri fjöldi nýrra
félaga heldur en áður hafa
verið skráð á einu ári. Flest eru
þessi félög í verslun. Til
samanburðar má geta þess að
árið 1983 voru skráð 230 ný
hlutaíélög.
Samkvæmt upplýsingum
Ævars ísbergs, vararíkisskatt-
stjóra, er fjöldi hlutafélaga í
landinu nú samtals 3.794. Ná-
lægt 10% af þessum félögum
hafa því verið skráð á árinu
1984.
Ýmsar ástæður kunna að
liggja til stofnunar nýrra hluta-
félaga.
En nokkrir þeirra aðila sem
NT ræddi við gerðu því skóna
að setning nýrra skattalaga
snemma á síðasta ári, sem
m.a. veittu fólki skattafrádrátt
vegna fjárfestingar í hlutafé-
lögum, ætti stóran þátt í þess-
um aukna áhuga manna á að
stofna hlutafélög.
Nema bjartsýni á efnahags-
horfurnar hafi verið allsráð-
andi á árinu.
Nýja plasteinangrunarfyrirtækið Fjarðarplast er við Flatahraun 31 í Hafnarfírði.
Enn fjölgun í plasteinangrun
Ógnar steinullarverksmiðjan iðnaðinum?
■ Nýtt fyrirtæki, Fjarðarplast sf.,
bættist nýlega í hóp þeirra fvrirtækja
sem framleiða einangrunarplast. Eig-
endur fyrirtækisins eru tveir, Páll
Pálsson og Ölafur Ingi Tómasson, en
sá fyrrnefndi hefur starfað við plast-
framleiðslu í um tuttugu ár. Fram-
leiðsluvélar fyrirtækisins voru smíð-
aðar í Hafnarfirði, sem sýnir enn-
fremur hvað þessi iðngrein stendur
orðið föstum fótum hér á landi.
Nú munu fjórtán íslensk fyrirtæki
framleiða einangrunarplast, samtals
um 4 þúsund tonn. Lítill sem enginn
innflutningnur er á þess konar plasti,
en plastfyrirtækin keppa hins vegar
við innflutta glerull og steinull á
innanlandsmarkaðnum; Talið er að
þessi innflutningur nemi 1-2 þúsund
tonnum á ári.
„Þessi iðnaður kemur til með að
eiga mjög í vök að verjast þegar
steinullarverksmiðjan kemur," sagði
Hjörtur Hjartar hjá Félagi íslenskra
iðnrekenda í samtali við NT um
horfurnar í plasteinangrunarfram-
leiðslunni. Reiknað er með að Stein-
ullarverksmiðjan hf. á Sauðárkróki
hefji framleiðslu í haust.