NT - 15.01.1985, Blaðsíða 12

NT - 15.01.1985, Blaðsíða 12
Þríðjudagur 15. janúar 1985 12 ■ Michael Jackson, stórsljarna, er hér í háruuðuin leðurjakka með Uylltuni axlastykkjum og rcnnilásum. Kannski hefur LaToya, systir hans, hannað jakkann. ■ Marlon Jackson söngvarí sést hér með söng- og leikkonunni Melba Moore. Hann er að kynna hana fyrir fjölskyldunni, og það er engu líkara en Melbu sé um og ó. ■ LaToya Jackson hcfur nó snúið sér að tískuhönnun í stað söngsins. Jackson systkinin eru að gera það gott ■ Michael Jackson popp- söngvari hefur frá barnsaldri verið kallaður „stórstjarna." Hann kom fyrst fram scm sntákrakki með fjölskyldu sinni, Jackson-fjölskyldunni, þegar þau komu fram sem „Jacksons Five.“ Michael varð fljótt stjarn- an þeirra og frami lians varð ótrúlegur á stuttum tíma. En það er ekki bara Mich- ael scm er í sviösljósinu, hin systkinin, hafa mörg gefið út plötur og látið að sér kveða. Marlon Jackson söng lagið „I Could Have Been A Cont- ender" og sló í gegn. LaToya Jackson, systir Michaels, hcfur líka sungið inn á plötur og videóspólur, en þykir ekki líkleg til að slaga ncitt upp í bróður sinn. Nú hefur hún skipt yfir í tískubransann. Hún hefur unnið að sérstökum stíl í fötum fyrir ungt fólk undir vörumerkinu „David Laurenz for LaToya." Þetta eru aðallega rúskins -föt eða flíkur úr leðri, bæði „toppar," síðbuxur, leður- kjólar og pils. Einkennandi fyrir þennan tískufatnað er t.d. hvítt leð- urpils, sem er smellt á hliöinni og fnittisjakki með miklum axlapúðum. LaToya-tískan er að verða mjög vinsæl og fást þessi föt í fínum tískubúðum í New York. „Michael er alveg sérstak- ur á sínu sviði, - en mig langar til að vinna mig upp á mínu sérsviði," sagði La- Toya.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.