NT - 10.02.1985, Síða 5
Sunnudagur 10. lebrúar 1985 5
Á haugana eda ttl Hollands
VERÐMÆTUR
MOKKAFATNAÐUR
Á VERKSMIÐJUSÖLU
Hinn vandaði mokkafatnaður frá Akureyri:
JAKKAR, KÁPUR, FRAKKAR OG MOKKALÚFFUR,
HÚFUR OG SKÓR Á BÖRN OG FULLORÐNA
fœst á verksmiðjusölunni 7. - 16. febráar.
Einstakt tœkifœri til að eignast ekta mokkaflík á svo lágu verði.
Strœtisvagnaferðir frá Hlemmtorgi: Leið 10 f"3|
_________frá Lœkjargötu: Leið 15_ Es^ ~
+VERKSMBJUSALA*
SAMBANDSVERKSMIÐJANNA A AKUREYRI
Húsgagnahöllinni, Bíldshöfða
■ Ingvar Svavarsson, einn af starfsmönnum Hringrásar. Það má svo '
sannarlega tala um pappírsflóð lijá fyrirtækinu. Vtfíutningurinn nemur
þúsundum tonna á ári.
■ Pappír er efni sem við erum með
í höndunum daglega. Eins og aliir
vita er pappír unninn úr trjáviði og
það verður að segjast eins og er að
efni þetta er ekki í miklum metum hjá
okkur svona dagsdaglega. Þegar
pappírinn hefur verið notaður einu
sinni liggur leið hans oftast í rusla-
körfuna. Honum er hent í tunnuna
eins og hverjum örðum óþrifnaði.
Smám saman hafa mcnn þó verið
að gera sér betur og betur grein fyrir
því hvernig við erum stöðugt að sóa
auðæfum jarðarinnar. Menn hafa far-
ið í auknum mæli að velta fyrir sér
hvernig snúa megi þessari þróun við
eða að minnsta kosti að sporna við
henni. Endurvinnsla á pappír er gott
dæmi um þessa viðleitni. Væntanlega
eru það ekki eingöngu náttúru-
verndarsjónarmið sem hér hafa ráðið
ferðinni heldur einnig það að pappír
kostar peninga og með því að nota
hann aftur og aftur nýtast þessir
fjármunir betur en ella.
Síðastliðið sumar var stofnað fyrir-
tæki hér á landi, sem bern nafnið
Hringrás h/f, í þeini tilgangi að safna
saman úrgangs pappír til endur-
vinnslu. Að vísu mun pappírsnotkun
okkar eyjaskeggja ekki vera það
mikil að framleiðsla á pappír borgi sig
hér á landi og því hafa þeir hringrásar-
menn tekið það til bragðs að senda
pappírinn til Hollands og selja hann
þar.
Við Helgarblaðsmenn buðum okk-
ur í örstutta heimsókn til höfuðstöðva
Hringrásar við Borgartún í Reykjavík
til að fylgjast með þessum sérstaka
útflutningi.
Hringrás mun vera dótturfyrirtæki
Sindra-stáls h/f seiti einnig flytur út
brotajárn. Ingvar Svavarsson starfs-
maður Hringrsar sagði okkur að
pappírssöfnunin hefði smám sanian
verið að aukast og nú væru sendir
utan 20 tonna gánrar í hverri viku.
Eimskipaféíagið flytur pappírinn til
Hollands þar sem fer fram endur-
vinnsla á pappír í stórri verksmiðju
og síðan kaupum við hann aftur og
þannig heldur hringrásin áfram.
„Mörg fyrirtæki senda okkur pappír
og spara þannig bæði geymslupláss og
langar ferðir upp á öskuhauga. Við
erurn líka komnir nteð stóran bíl senr
fer um höfuðborgarsvæðiö og safnar
pappír. í Borgartúni er pappírinn
■ Áður en pappírinn er pressaður í böggla verður að flokka hann. Hér er álitleg stæða af pappakössum sem bíður
þess að komast inn í hringrásina.
síðan flokkaður og hann bundinn í
bagga. Fyrirtækið hefur fest kaup á
ntikilli pressu sem með ógnarkrafti
pressar efnið saman þannig að lítið
fari fyrir því og böggunum er því næst
raðað í stóra gánia sem keyrðir eru
beint um borð í flutningaskipið."
Ingvar sagði að þetta væri aðeins
lítið brot af þeim úrgangspappír sem
til félli á íslandi. „Við höfum ennekki
komist til að hirða nema lítinn hluta
af þessu og þá fyrst og fremst á
höfuðborgarsvæðinu. Mörg fyrirtæki
liafa komið sér upp litlum pressum
þar sem kassar og annar pappir er
pressaður og hann bundinn. Petta
sparar oft mikið húsrými. Síðan er
þetta sent til okkar eða þá að við
komum og látum bílinn okkar taka
baggana. Við getum þó ekki tekið
annað en pappír og því verður til
dæmis að hreinsa burtu allt plast úr
pappírnum áður en hann er pressað-
ur.”
Hér er urn töluvert magn að ræða
eins og áöur segir, eða um eittþúsnd
tonn á þessu fyrsta ári framleiðslunn-
ar. Það má því fara að bæta pappír á
skrána yfir útflutning frá íslandi.
JÁÞ.