NT


NT - 10.02.1985, Side 21

NT - 10.02.1985, Side 21
Sunnudagur 10. febrúar 1985 21 Þegar biskupinn gelti kirkjuprestinn ■ Frá því að hafa í síðsta Sögukorni heilsað upp á sauða- þjófa á Hólsfjöllum og Möðrudalsöræfum drepum við nú niður í Skálholti. þar sem áður var nokkurskonar höfuð- staður iandsins og úr ótal sög- um að moða. Á siðaskiptaöld urðu þar miklar róstur þegar umboðsmaður Dana var dysj- aður í Söðulhól fyrir yfirgang og Jón Arason sótti að Orr- ustuhól við kirkjugarðshornið. En lægra fer að þegar fyrsti lúterski biskupinn settist í stól lét hann gelda kirkjuprestinn í Skálholti fyrir sakir sem raktar verða hér á eftir. Gissur Einarsson var þá biskup og hafði leitað sér kvon- fangs til systur Odds Gott- skálkssonar, Guðrúnar. Segir Jón Halldórsson í Biskupasög- um sínum að Gissur hafi nú keypt konuna og siglt síðan utan vegna ótilgreindra erinda. Á meðan setti hann Eystein Pórðarson kirkjuprest ogoffic- ialis yfir staðinn ásamt móður sinni, Gunnhildi. Gúðrún hef- ur einnig verið komin á staðinn því nú dugði ekki minna en það að Eysteinn lá með báðum þessum kvenmönnunr um vet- urinn. Þegar Gissur kom að utan var hans heitelskaða þunguð og ól þríbura um sumarið. Hefur Gissuri þótt eitthvað til konunnar koma því hann hugð- ist taka hana í sátt og er haft eftir honum; „Það var hlaup og það var hoffmannshlaup; ég skyldi taka Gunnu mína í sætt aptur'". En hún „Gunna mín“, sneri við biskupi bakinu og segir Jón svo frá „en hún vildi aldrei; fór hún hingað og þangað, því hún vildi ekki heldur aðhyllast hann bróður sinn, var hún þversinnuð kona..." Hvað af þríburunum varð getur Jón í engu og er þá næst að rekja sögu síra Eysteins sem fékk að kenna á réttlátri reiði kennimanna aðeins fáum dögum eftir að biskup kom að utan. Var hann skemmdur, eins og það er orðað í heimild okkar, undir borðum í „stóru- stofunni í Skálholti". Voru að því verki bræður Gissur, Þor- lákur, síra Jón og Halldór sem síðar vígðist til prests. „varðist prestur vel og lengi við borðið, þar til hann fékk taparhögg í höfuðið; hafði hann síra Ey- steinn uppi á sér höggsleddu, stökk þá um síðirfram á gólfið, og þar fékk liann skemmdirnar mestar, þar til hann var sem dauður og féll, gengu þeir þá frá honum". Þannig lýsir Jón Halldórsson þessarri hrotta- legu aðgerð hinnar geistlegu stéttar. En Eysteinn var svo hafður til Laugaráss og greri þar sára sinna. Erþað skondin tilviljun að þessi saga er talin fyrsta ritaða heimildin sem til er um að byggð hafi verið á þeirri jörð. Jón Halldórsson klykkir út í sögu sinni á bráðskemmtilegan hátt. Hann segir að biskup hafi nú aldrei tekið Eystein í sátt en „þó komst hann seinna til prestastéttar, og giptist vestra; ekki átli hann börn við konu sinni, erfðu hann bræður hans“. Þessi síðasta málsgrein er eins og til þess að færa endanlegar sönnur á að verknaður bisk- upsbræðra hafi nú heppnast fullkomlega. Það að bræður Eysteins skyldu erfa hann gef- ur svo vísbendingu um að eitt- hvað hafi nú lítið orðið af þríburum þeirra Gunnhildar. -b Lausn á síðustu krossgátu 43 tf A H E P V i F E L L * . . fí T L 0 T r \ S kH s R fí K flj M fl L R 'fl1 K> F h\ G fi r P R E N p fí ,u N fí F 1 L M fl K r Ft M U N M L K R R R I T 1 L ft n M V E. T T 7r fí Þ E L 1 |s M f\ T?i é! N S K o K K l o Æ V t K ■R 0 N R E G o N N S I G fi N P K T r i *> ■ E fi & tsl 4 E N I F X 7? £ U I fí M F z R Ð l s N h? fí K 0 L Pl i V fí K R fí F T fi R ’s u N t r r fí 4 /E u P •H R 1 F t N R R H /E R R 6 N D r M £ y J U Ú N S U u [I L L l N V I N |m R M Á Yalta ráðstefnunni var það valdamvnstur sem heimurinn býr við í dag ákveðið í veigamiklum atriðum. Yalta ráðstefnan - Belgía frjáls! ■ Þann 4. febrúar voru 40 ár liðin frá því er Y aita ráðstefnan hófst suður á Krímskaga með þátttöku þeirra Roosevelt, Stalins og Churchill. Stóð hún til 11. febrúar. Á ráðstefnunni tókst Stalin að koma á ýmsum tilslökunum Rússuin til handa, svo sem að þeir hlvtu aukin landsvæði langt í austri gegn heiti um að segja Japönum stríð á hendur, tveimur mán- uðum eftir að Þjóðverjar hefðu verið yiirunnir. Þá er ákveðið að Þjóðverjum verði gert að greiða háar stríðs- skaðabætur. Eftir uppgjöfina á að skipta Þýskalandi í fjögur hernámssvæði. Samþykkt að útlagastjórnir Pólverja og Júgó- slava fylgist með framgangi mála. Þennan sama dag cr Belgía frelsuð að fullu og síðustu þýsku flokkarnir reknir út úr Þýskalandi. Stórtíðindi á austurvíg- stöðvunum þegar skriödrckar Konevs taka að aka á flotbrúm yfir Oder. Þann ó. febrúar cr meginhluti liðsins kominn yfir ána og hcfur sest um Breslau. Hundruð þúsunda skelkaðra Þjóðverja flýja í vesturátt og stefna flestir til hinnar „ör- uggu" borgar, Dresden. Þann 7. gerir breski flugher- inn næturárásir á þýskt lið í Kleve og Goch. Daginn eftir sækja Kanadamenn inn í Reichswald suðaustan við Nij- megcn. Tímamótaviðburður á vest- urvígstöðvunum þann 9. febrú- ar þegar kanadískt og breskt lið kemur að Rín. 3. her Bandaríkjamanna fer yfir ána Prum. Halifax-vélar varpa sprengj- um á olíustöðva.r í Rulir (Wannc-Eickcl) og B-17 vélar varpa sprengjum á olíustöðvar í Lutzkendorf. Nú eru sem flcst ríki hvött til þátttöku í styrjöldinni og margir hlýða kallinu. Þann 9. segja Ekvador og Paraguay Þjöðverjum og Japönum stríð á hendur. Hinn 10. tekur Rokossovsky Elbing og prússnesku Eylau. Þjóðvcrjar opna gáttir stífl- unnar Schwammeldauel Dam í Roer fljóti, til þess að stöðva framsókn Bandaríkjamanna. M Þjóðverjar töpuðu nú Belgíu í hendur bandamanna. í Belgíu voru margir skotpallar V-2 flauganna staðsettir, svo sem þessi hér á myndinni.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.