NT - 14.03.1985, Síða 24

NT - 14.03.1985, Síða 24
„Það verða engin uppboð,“ segja Patreksfirðingar: Hagnaður af rekstri hraðfrystihússins - uppboðsbeiðnirnar segja sína sögu segir sýslumaður ■ „Ég á ekki von á því að til neinna uppboða komi vegna Kaupfélagsins, og fyrirtækja sem eru í kringum það,“ sagði Jens Va'dimarsson fram- kvæmdastjóri hraðfrystihússins á Patreksfirði í samtali við NT í gær. t síðasta Lögbirtingablaði er gífurlegur fjöldi eigna í Vest- ur-Barðastrandasýslu auglýstur Engin síma- vandræði í Grafarvogs- hverfinu - bidlistarekki tit lengur,segirPóst« og símamálastjóri ■ Nú þurfa íbúar Graf- arvogshverfisins ekki lengur að bíða eftir símtól- um sínum. Samkvæmt upplýsingum frá Jóni Skúlasyni, Póst- og síma- málastjóra, þá eru nú sett- ir upp símar jafnóðum og umsóknir liggja fyrir, en nýlega var tekin í gagnið ný miðstöð í Hraunbæ, og línur í Grafarvog þegar orðnar yfir 100. Að sögn Jóns er búið að leggja jarðsíma í allt hverfið nú þegar og aðeins stóð á lausum númerum í hverfið, en nú hefur það sem sé verið leyst, og mun nú enginn hörgull á núm- erum. á nauðungaruppboði, þar á meðal hraðfrystihúsið á Patr- eksfirði að beiðni Fiskveiði- sjóðs. „Hvaö hraðfrystihúsið varðar, þá á ég von á því að þeim málum verði bjargað. Pað líður reyndar ekki svo árið að ekki sé annað hvert frystihús auglýst á nauðungaruppboði. Ég reikna með að þessu verði bjargað nú eins og áður. Rekst- urinn á frystihúsinu gekk mjög vel síðasta ár og fyrstu 8 mánuð- ina var hagnaðurinn um 6 millj- ónir króna samkvæmt bráða- birgðauppgjöri. Þar í er falinn rekstur togara og línubáts. Töl- ur fyrir allt árið eru ekki fyrir hendi, en okkur sýnist að þær verði ekki lakari en þetta." Jens sagði að ekki kæmi til uppboða nema í örfáum tilfellum af þeim sem getur að líta á tveim breið- síðum Lögbirtings. „Ég get ekki staðfest það að þessar uppboðsbeiðnir hafi ver- ið dregnar til baka,“ sagði Stef- án Skarphéðinsson sýslumaður við NT. „Það segir auðvitað sína sögu, að svo margar eignir skuli vera auglýstar á nauðungarupp- boði hér í sýslunni. Það gerist reyndar víðar, eins og tölur Húsnæðisstofnunar ríkisins sýna. Þetta segir allt sína sögu um ástandið í landinu." Stefán sagðist hafa ástæðu til að óttast að það kæmi til uppboðs á togar- anum Sölva Bjarnasyni- frá Tálknafirði, en það yrði rnjog alvarlegt mál fyrir það byggðar- lag. Óvenju mikið um árekstra ■ Óvenju mikið var um árekstra víða á landinu í gær. í Reykjavík urðu 15 ákeyrslur á tímabilinu frá sex að morgni til klukkan fjögur síðdegis. Þá urðu fjórir árekstrar á ísafirði og tvær útafkeyrslur og á Akureyri var vitað um tíu umferðaróhöpp. Að sögn lögreglunnar voru þetta allt minniháttar slys og engin meiðsl á fólki. A ísafirði og Akureyri gátu menn afsakað sig með hálku en Reykvíkingarnir verða að fara að lækka flugið og líta í kring um sig. Það borgar sig að flýta sér hægt þó að færðin sé góð og skyggni allt til Skagafjarðar. NT-raynd: Árni Bjama. Kennarasamband íslands: Fjársöfnun til styrktar framhaldsskólakennurum - og 2000 þeirra skuldbinda sig til að ganga ekki í störf framhaldsskólakennaranna ■ Um þessar mundir hyggst kennarasamband íslands gang- ast fyrir fjársöfnun til styrktar kjarabaráttu framhaldsskóla- kennara í HÍK og á söfnunar- féð að renna í kjaradeilusjóð HÍK. Þá hafa um tvö þúsund kennarar úr kennarasambandi íslands skuldbundið sig með undirskrift til þess að ganga ekki í störf framhaldsskóla- kennara sem tóku þátt í fjölda- uppsögnum þann 1. mars. Að sögn Valgeirs Gestssonar, for- manns KÍ,þá ætlast kennara- sambandið til þess að allir fé- lagar þess standi við slíka skuldbindingu. „Það er því ljóst að skólarnir verða ekki mannaðir með kennurum úr kennarasambandi íslands“ Stjórn kennarasambands Is- lands hefur auk þess sent menntamálaráðherra og fjármálaráðherra ályktun þar sem lýst er fullri samstöðu með félagsmönnum HÍK sem heyja nú harða baráttu fyrir bættum kjörum kennara.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.