NT - 20.04.1985, Síða 23
Laugardagur 20. apríl 1985 23
Raðauglýsingi
fundir - mannfagnaðir
Kvenfélagasam-
band Kópavogs
verður með opinn fund að Hamraborg 1,
(sjálfst. salur) í dag laugardag kl. 14.00.
Séra Agnes Sigurðardóttir talar um æsku-
lýðsmál. Börn tónlistarskóla Kópavogs leika
á blokkflautur. Kristín Viggósdóttir syngur
við píanóundirleik.
Stjórnin.
Aðalfundur
Stýrimannafélags íslands
verður haldinn í Borgartúni 18, mánudaginn
22. apríl kl. 20.30. Dagskrá:
1. Samkvæmt félagslögum.
2. Breyting á reglugerð styrktarsjóðs.
3. Breyting á reglugerð orlofsheimilasjóðs.
4. Önnur mál.
Nemendur Sam-
vinnuskólans1955
30 ára nemendur Samvinnuskólans, út-
skrifaðir 1955 hittumst öll á Hótel Sögu,
Súlnasal, laugardaginn 4. maí n.k. kl. 18.00.
Tilkynnið þátttöku til Þórarins 92-2102 92-
2170, Runólfs 91-20500, Jóns Ormars 91-
83666.
Félagsfundur
Samband eggjaframleiðenda boðar til
félagsfundar þriðjudaginn 30. apríl
n.k. kl. 13.00 að Vesturvör 27, Kópavogi.
Fundarefni:
Útungunar- og uppeldismál
Stjórnin
Aðalfundur
Iðju, félags verksmiðjufólks verður haldinn í
Domus Medica miðvikudaginn
24. apríl kl. 5.00 síðdegis.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Reglugerð sjúkrasjóðs Iðju.
3. Önnur mál.
Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir
árið 1984 liggja frammi á skirfstofunni.
Stjórn Iðju.
Starfsmannafélagið Sókn
auglýsir aðalfund
og orlofshús
Aðalfundur starfsmannafélagsins Sóknar
verður haldinn í Hótel Hofi við Rauðarárstíg
miðvkudaginn 24. apríl kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Tekið verður á móti umsóknum í orlofshús
félagsinsfrá 26. apríl-7. maí, sýnið skírteini.
Stjórnin.
Alþýðubankinn hf.
AÐALFUNDUR
Aöalfundur Alþýöubankans h.f. áriö 1985 veröur haldinn í
Súlnasal Hótel Sögu, Reykjavík, laugardaginn 27. apríl 1985
og hefst kl. 13.30.
Dagskrá
a) Venjuleg aöalfundarstörf í samræmi viö ákvæöi 18.
greinar samþykkta bankans.
b) Tillaga um heimild til bankaráös um útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa.
c) Tillaga um nýtt hlutafjárútboð.
Aögöngumiöar að fundinum og atkv'æðaseölar veröa afhentir
I aðalbankanum, Laugavegi 31, dagana 23., 24., 26. apríl
næstkomandi.
F.h. bankaráðs Alþýðubankans h.f.
Benedikt Davíðsson, formaður.
Þórunn Valdimarsdóttir, ritari.
atvinna í boði
Byggingar-
verkfræðingar
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli óskar eftir
að ráða byggingarverkfræðing í verkfræði-
deild. Mjög góð enskukunnátta skilyrði.
Umsóknir sendist ráðningaskrifstsofu varna-
máladeildar, Keflavíkurflugvelli eigi síðar
en 30. apríl n.k. Nánari upplýsingar veittar í
síma 92-1973.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til
umsóknar:
1. Starf fulltrúa á skrifstofu rafmagnsveitu-
stjóra. Um er að ræða starf ritara sem
vinnur við ritvinnslu og getur annast
kennslu, leiðbeiningar og þjálfun ritara og
annarra starfsmanna í ritvinnslu. Laun
eru samkvæmt kjarasamningi B.S.R.B.
og ríkisins.
2. Starf skrifstofumanns (vélritun, skjala-
varsla). Laun eru samkvæmt kjarasamn-
ingi B.S.R.B. og ríkisins.
3. Starf skrifstofumanns. Starfið felst að
mestu leyti í sendiferðum auk almennra
skrifstofustarfa. Umsækjandi þarf aðhafa
bílpróf. Laun eru samkvæmt kjarasamn-
ingi B.S.R.B. og ríkisins.
Umsóknir er greini menntun, aldur og fyrri
störf sendist deildarstjóra starfsmannahalds
fyrir 23. apríl nk.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118
105 Reykjavík.
RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til
umsóknar starf aðalbókara. Við erum að
leita að viðskiptafræðingi eða manni með
sambærilega menntun. Vanur bókhalds-
maður með yfirgripsmikla reynslu í bókhaldi,
stjórnun og uppgjörum kemur einnig til
greina. Laun eru samkvæmt kjarasamning-
um ríkisins og opinberra starfsmanna. Um-
sóknir er greini menntun, aldur og fyrri störf
sendist deildarstjóra starfsmannahalds fyrir
21. maí 1985.
Rafmagnsveitur ríkisins.
Laugavegi 118.
105 Reykjavík.
Sálfræðingur
Fræðsluskrifstofa Vesturlands, Borgar-
nesi óskar að ráða sálfræðing til starfa við
sálfræðiþjónustu grunnskóla í umdæminu.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna. Umsóknir með upplýsingum
um menntun og fyrri störf berist til fræðslu-
stjóra Vesturlands, Skúlagötu 13, Borgarnesi
fyrir 1. júní n.k. Nánari upplýsingar gefur
fræðslustjóri í síma 93-7480.
Sölufulltrúi
Við óskum eftir að ráða starfsmann til
sölustarfa á byggingarvörum.
Starfssvið hans verður m.a. að vinna að
markaðsetningu á nýrri framleiðslu.
Við leitum að frískum og frambærilegum
starfsmanni sem á gott með að hafa sam-
skipti við viðskiptavini og samstarfsfólk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá starfs-
mannastjóra, er veitir nánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur til
30. þessa mánaðar.
SAMBANDISL. SAMVINNUFEIAGA
STARFSMANNAHALO
Félagsráðgjafi
Óskast hálfan daginn hérst frá 1. júní.
Upplýsingar gefur félagsráðgjafi spítal-
•ans í síma 19600 milli kl. 8-12.
Rannsóknamaður
Orkustofnun óskar að ráða sem fyrst rann-
sóknarmann til starfa við efnagreiningar á
rannsóknarstofu. Um er að ræða tímabundið
starf. Frekari upplýsingar eru veittar af starfs-
mannastjóra milli kl. 10-12 næstu daga.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf sendist starfsmannastjóra fyrir 30. apríl
n.k.
T} ORKUSTOFNUN
GRENSÁSVEGI 9 - 108 REYKJAVÍK
Atvinna
Námsgagnastofnun óskar að ráða 2-3 starfs-
menn til að hafa umsjón með verkefnum á
sviði námsefnisgerðar. Kennaramenntun er
tilskilin og reynsla af námsefnisgerð æskileg.
Nánari upplýsingar gefur Sigurður Pálsson
deildarstjóri. Umsóknum ásamt upplýsing-
um um menntun og fyrri störf sé skilað til
Námsgagnastofnunar fyrir 1. maí.
NÁMSGAGNASTOFNUN
tilkynningar
Jörð óskast
> Óskað er eftir jörð til leigu í haust eða næsta
vor.
Kaup koma til greina. Skilyrði um allstórt
húsnæði. Helst á Suður- eða Vesturlandi.
Upplýsingar í síma 24634 Reykjavík á kvöld-
in og um helgar.