NT - 27.04.1985, Page 1

NT - 27.04.1985, Page 1
 Laugardagur 27. apríM985-109. tbl. 69. árg. Blessuð rigtiingin ■ Helgarveðurspáin gerir ráð fyrir að nú í morgun komi að landinu rigningarveður með suðaustan átt og seinnipartinn í dag gæti orðið allhvasst en hægara á morgun. Veðrið er mun breytilegra en hægt er að gera grein fyrir á einu korti og þannig er búist við köldu veðri á Austurlandi og Austfjörðum í dag eins og kortið sýnir en mun hlýrra á morgun, eða tveggja til sex stiga hita. Rigningin gæti sem hægast breyst í slydduél á Vesturlandi á morgun en þá kólnar heldur þar og á Suðurlandi. Innbrotsþjófur: Stal brenni- víni, vídeói og bjór ■ Innbrotsþjófur fór inn í íbúð í Gyðufelli aðfara- nótt sumardagsins fyrsta. Þjófurinn braut upp úti- dyrahurð, og komst þann- ig inn. Þegar inn var kom- ið lét hann greipar sópa ; um tbúðina, og valdi sér j það sem hann taldi helst I; fémætt. Meðal þess sem j : hvarf var litasjónvarp, tvö ! myndbandstæki af gerð- ; inni VHS og Betamix. M : saknaði húsráðandi í talsverðs magns af bjór og j í áfengi úr hirslum sínum. Leðurjakki var einnig í horfinn. íbúðareigandinn : hafði brugðið sér á < skemmtistað laust eftir miðnætti. Samráð ASÍ og VSÍ veldur átökum: Alþýðubandalagsmenndeila um ritstjórnarstefnu Þjóðviljans - fylgi engri „haltu kjafti“ stefnu segir Össur ritstjóri ■ Samkvæmt heimildum NT hefur Svavar Gestsson, formaður Alþýðubanda- lagsins heitið Ásmundi Stefánssyni forseta ASÍ stuðningi Alþýðubandalags- ins við samráðsviðræður ASÍ og VSÍ um nýsköpun atvinnulífsins og því með að Þjóðviljinn muni ekki beita sér í einu eða neinu gegn samráðinu, heldur taka upp „jákvæða umfjöll- un“ um það. „Það er rétt að það eru ýmsir aðilar, sem vilja stinga upp í Þjóðviljinn, en ég vil af gefnu tilefni taka fram, að Þjóðviljinn tekur ekki línu frá einum eða neinum. Þjóðviljinn er málgagn sósíalisma og verkalýðs og við teljum að við höfum unnið að því málefni með uppbyggilegum hætti,“ sagði Óssur Skarp- héðinsson ritstjóri Þjóðviljans, þegar NT bar þetta mál undir hann. „En það er rétt, að lýsa því afdráttarlaust yfir að Þjóð- viljinn tekur ekki neina „haltu kjafti“ línu frá neinum,“ hvort sem sá heitir Ásmundur, Guð- mundur eða annað,“ sagði Össur . „Nú þarf baráttu“ hét leiðari, sem Össur skrifaði fyrir 10 dög- um og hann varð til þess, að því er heimildir NT herma, að Ásmundur tilkynnti Svavari Gestssyni að áframhaldandi skrif í þessum anda myndu leiða til úrsagnar hans og fleiri úr verkalýðsarminum úr Alþýðu- bandalaginu. í framhaldi af því ræddi Svavar við Ásmund og hét honum því að flokkurinn og Þjóðviljinn myndu styðja sam- ráðið. Einnig mun í samningi þeirra gert ráð fyrir nýjum rit- stjóra Þjóðviljans, annað hvort Hafskip hf: Sex starfsmenn stálu 190 flöskum af áfengi - Heimildir NT segja stuldinn skipta tugum kassa af áfengi Sex starfsmenn Hafskips hafa játað að hafa frá því seint á síðasta ári stolið nokkru magni af áfengi úr vöruskemmum fyrirtækisins. Við yfirheyrslur hjá rann- sóknarlögreglunni hafa þeir játað stuld á 190 flöskum. Heimildir NT segja misferlið skipta hundruðum flaskna sem horfið hafa á einu bretti. Sömu heimildir, sem NT tel- ur vera traustar segja að umtalsvert magt af tóbaki hafl einnig horfið. Við yftrheyrslur rannsókn- arlögreglu viðurkenndu sex starfsmenn - þar af einn verkstjóri að hafa tekið ófrjálsri hendi 190 flöskur af áfengi. Jón Hákon Magnússon framkvæmdastjóri markaðs- sviðs Hafskips sagði að mönnunum hefði verið vikið úr starfi. „Skaðinn er ekki umtalsverður, en líklegt er að ÁTVR fari fram á bætur“ sagði Jón. ■ Sumarið er komið í Laugardalinn líka, eða það fannst Ara Ijósmyndara okkar er hann brá sér þangað í gær. Og þessi snáði hafði ekkert fyrir því að vera að fara inn þó hann þyrfti að létta ofurlítið á sér. NTn.,«d Art í stað Össurar, eða við hlið hans, og hefur Helgi Guð- mundsson blaðamaðurÞjóðvilj- ans og ritari Alþýðubandalags- ins verið nefndur í því sam- bandi. Svavar Gestsson mun fyrst hafa kynnt samkomulagið um stuðning við samráðið á fundi framkvæmdastjórnar flokksins og einnig hefur það verið rætt á óformlegum fundum áhrifa- manna innan hans. Munu Vil- borg Harðardóttir varaformað- ur Alþýðubandalagins og Óskar Guðmundsson ritstjórnarfull- trúi Þjóðviljans hafa lýst harðri andstöðu og Óskar lýst því yfir að samkomulag tvímenning- anna væri samkomulag um að brjóta samþykktir ASÍ þings og flokkssamjjykktir Alþýðu- bandalagsins. Heimildir NT fullyrða, að Ásmundur Stefánsson hafi ekki látið sérnægja yfirlýsingarSvav- ars um stuðning við samráðið heldur knúið fram yfirlýsingu frá Össuri, sem hann hafi skilið sem samþykki hans. Yfirlýsing Össurar hér að framan gefur því til kynna að endarnir hafi ekki verið hnýttir jafn tryggilega og Ásmundur og Svavar höfðu talið. Því er enn við að bæta að í kjölfar þessara mála hefur sam- ráð flokks og verkalýðshreyf- ingar verið til umræðu innan Alþýðubandalagsins. Hefur Vilborg Harðardóttir talið að formaður Verkalýðsmálaráðs flokksins Bjarnfríður Leósdótt- ir yrði viðstödd samráðsfundi, en Svavar Gestsson lagst gegn því. Segja heimildir NT að Vil- borg hafi boðað formlega tillögu um þetta í framkvæmdastjóm. Stúlkur 13-17 ára: Ef þið kunnið ai syngja, dansa og leika þá getið þið slegið í gegn sjá bls. 4

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.