NT - 07.05.1985, Blaðsíða 27
Þriðjudagur 7. maí 1985 27
Forkeppni HM í handbolta pilta 21 árs og yngri:
íslendingar áfram
■ íslenska landsliðið í handknattleik
skipað leikmönnum 21 árs og yngri lék í
undankeppni HM um helgina. Liðið lék
við Hollendinga og Finna. Leikirnir fóru
fram í Danmörku og voru mjög jafnir og
spennandi.
Ísland-Holland .................22-21
Hollendingar skoruðu síðasta markið
er 8 sekúndur voru til leiksloka svo
íslenskur sigur var nokkuð öruggur en þó
erfiður. Leikurinn var jafn allt til loka en
íslendingar komust í 22-20 er tvær mínút-
ur voru eftir. Mörk íslands: Valdimar 5,
Jakob Jónsson 4, Geir Sveinsson 4,
Hermundur Sigmundsson 4, Agnar Sig-
urðsson 2 og Karl Þráinsson 1. Geir
Sveinsson var bestur íslendinga.
Ísland-Finnland................20-20
íslenska liðinu dugði jafntefli í þessum
leik þar sem Fiijuar höfðu skorað færri
mörk gegn Hollendingum en unnið með
einu marki eins og íslendingar. Ekki leit
þó vel út með stig því Finnar komust í
20-18 er lítið var eftir. íslendingar ná að
jafna 20-20. Á síðustu sekúndu leiksins
þá skoraði markvörður Finna þvert yfir
völlinn en tíminn var víst útrunninn og
markið ógilt.
íslenska liðið er því komið í aðalkeppni
HM sem fram fer á Ítalíu í desember.
Bogdan Kowalczyk þjálfar liðið og er að
gera góða hluti. Jakob Jónsson gerði 8
mörk gegn Finnum og Karl 4.
Grikkland:
Stórsigur Iraklis
- Sigurður Grétarsson á leið til Sviss
■ Sigurður Grétarsson og félagar hjá Hann mun leika í Sviss næsta
gríska liðinu Iraklis unnu stórsigur um keppnistímabil, með liðinu Luzern.
helgina í grísku 1. deildinni. Fórnarlömb- úrslitin i grikklandi um helgina voru
in voru Panionios. Ekki tókst Sigurði að ÞESSI:
skora í 6-0 sigri liðs síns en átti að sögn ^i““.--"Z-ZZVí
tvö stangarskot í leiknum. EUmíkos-Rek.................1-3
. Iraklis-Panionios...........6-0
Iraklis er nú í fimmta sæti f deildinni, Pienkos-Paok.....1-1
sex sdgum á eftir efsta íiðínu, Paok. M
Fjórar umferðir eru eftir i deildinm. Apoiion AUiens-Larisa .o-i
Iraklis á enn tölfræðilega möguleika á paok..... 26 16 6 3 48 23 41
meistaratitli en þeir möguleikar eru að- Panauunaikos .26 15 7 4 54 26 37
pino tnlfrínAitpoir Aek .............. 26 14 9 3 51 26 37
eins tottræonegir. oiympiakos .......26 15 6 5 42 20 36
Sigurður er nú að hverta tra telaginu. irakiis .26 16 3 7 47 25 35
« 3 r
U&undir j
DOPPEL DOSCH
-sjampó og sápa
í sama dropa!
■þrottir
Þýski handboitmn:
Óstuð á landanum
LIFAINDITRE
FJÖLGAR LENGI GREINUM
Hinn 20. febrúar 1902 stofnuðu kaupfélögin í
landinu með sér samband til að sinna ýmsum
sameiginlegum verkefnum.
Það hlaut nafnið Samband íslenskra samvinnufélaga
— og er fyrirtækið í eigu kaupfélaganna.
Sambandið hefur með höndum fjölþættan atvinnu-
rekstur — innanlands og utan — og annast
margvísleg verkefni fyrir samvinnufélögin um land 3
allt.
VINNUM SAMAN
$ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMViNNUFÉLAGA
Frá Guðmundi Karlssyni fréltaritara NT í V-Þýskalandi:
■ Slæm helgi fyrir íslensku strákana hér í
v-þýska handboltanum um helgina. Eini Ijósi
punkturinn var sigur Kiel, liös Jóhanns Inga,
gegn Schwabing. Þessi sigur gefur þeim enn
möguieika á meistaratitlinum.
Handerwitt-Bergkamen ................20-19
Atli Hilmarsson og félágar hófu leikinn af
miklum krafti og staðan eftir 20 mínútur 9-6 fyrir
Bergkamen. Þá kom slæmur kafli og Handerwitt
gerði fimm mörk í röð. Staðan í hálfleik 11-10.
Sama var uppá teningnum í síðari hálfleik.
Bergkamen komust í 17-14 en Handerwittsvaraði
með 4 mörkum. Staðan er 19-18 fyrir Bergkamen
er tvær mínútur eru eftir. Síðustu tvö mörkin
voru hinsvegar heimamanna og þar fengu þeir tvö
mjög dýrmæt stig í fallbaráttunni.
Atli átti þokkalegan leik og gerði 3 mörk.
Aðspurður um næsta tímabil sagði hann:“ Þelta
fer allt eftir því hvort við náum að hanga í
deildinni eða ekki.“
Dússeldorf-Lemgó......................22-16
Sigurður Sveinsson og hans menn töpuðu
þessum leik í seinni hálfleik. Eftir jafnan fyrri
hálfleik, staðan 10-9, seig Dússeldorf framúr og
sigraði stórt. Sigurður átti góðan leik, var að
venju bestur og geröi 8 mörk þar af fjögur víti.
Hann er því aftur orðinn markahæstur í deildinni.
Sigurður sagði að hann hefði aðeins gert þrjú
mörk um síðustu helgi „til að halda spcnnu í
keppninni“.
Dankersen-Essen ......................19-19
Alfreð og félagar töpuðu dýrmætu stigi um
helgina og má nú afskrifa þá í keppninni um
þýska meistaratitilinn. Alfreð var bestur hjá
Essen og gerði 5 mörk.
Essen spilaði í bikarnum í síðustu viku, þá
gegn Dússeldorf og sigraði 21-13.
Önnur úrslit í Þýskalandi:
Kiel-Schwabing......................... 24-19
Huttenberg-Gummersbach................. 15-24
Hofweiger-Reinfusche .................. 25-22
Grosswaldstadt-Massenheim.............. 22-16
Markahæstu menn:
Siguröur, Lemgó
Ohly, Huttenberg
Fratch, Essen ...
171 (75)
168 (78)
166 (54)
Enska knattspyrnan - mánudagur:
Fimmtán ára bið
- er á enda hjá Everton - Liðið varð enskur meistari
Frá Heimi Bergssyni frcltaritara NT í Eng-
landi:
■ Evertnn tryggöi sér sigur í ensku deildar-
keppninni í gær er liðið lagði QPR að velli 2-0.
Reyndar var Everton svo golt sem búið að vinna
deildina strax eftir að þeir sigruðu Tottenham á
White Hart Lane fyrir nokkrum vikum. En
sigurinn á QPR gerir það að verkum að Honard
Kendall getur loksins viðurkennt að nú sé meist-
aratignin í höfn.
Það voru 51 þúsund áhorfendur sem tróðu sér
inná Goodison Park og er það áhorfendamet þar í
vetur. Leikurinn var frekar slakur til að byrja
með og greinileg taugaspenna í leikmönnum
Everton. Það var svo Derek Mounthfield sem
braut ísinn með sínu 12.marki í vetur sem er
frábær árangur af miðverði að vera. QPR var
nálægt að skora er Bannister skallaði í slá.
1 síðari hálfieik sótti Everton meir og Sharp
skoraði undir lokin með fallegum skalla sitt 30.
mark á tímabilinu.
Mikil fagnaðarlæti brutust út er leiknum lauk
og leikmenn Everton hlupu marga hringi á
vellinum og voru ákaft hylltir. Þetta er fyrsti
bikarinn af þremur sem liðið er að eltast við á
tímabilinu.
Það eru nú 15 ár síðan Everton vann síðast
deildina en þá var Howard Kendall. fram-
kvæmdastjóri, einmitt í liðinu.
Man. Utd-Nott. Forest.................... 2-0
Daninn Jesper Olsen átti stórgóðan leik í liði
United og mataði samherja sína með
snilldarsendingum. Gidman skoraði beint úr
aukaspyrnu og Stapleton bætti við marki. Forest
missir sennilega af Evrópusæti. Þeir fengu gleði-
fréttir fyrir leikinn er vitnaðist að Peter Daven-
port hefði skrifað undir 3 ára samning.
Newcastle-Tottcnham...................... 2-3
Táningurinn Leworthy skoraði tvívegis fyrir
Spurs og Hoddle gerði fallegt mark af 20 m færi.
Beardsley skoraði bæði fyrir Newcastle.
Arsenal-Southampton ..................... 1-0
Mikilvægur sigur fyrir Arsenal. Rix skoraði.
Chelsea-ShefT. Wed....................... 2-1
Kerry Dixon skoraðf auðvitað bæði mörk
Cheisea en Smith gerði mark Wednesday.
Ipswich-Stoke............................ 5-1
Það kom mest á óvart í þessum leik að Stoke
skoraði. Birchen gerði það. Wilson skoraði 3 fyrir
Ipswich og Gates og Putney 1 hvor.
Aston Villa-Luton........................ 0-1
Stein kom Luton endanlega-úr fallhættu.
2. deild:
Það varð allt vitlaust á heimavelli Nolts County
þar sem heimamenn skoruðu þrjú mörk á 13
mínútum í fyrri hálfleik gegn Man. City. Áhorf-
endur Cíty ruddust inná völlinn og stöðva varð
leikinn í 30 mínútur. City skoraði tvisvar í seinni
hálfleik en það dugði ekki til. Portsmouth vann
Carlisle og berst haröri baráttu við City um 1.
deildarsæti á næsta ári.
Öimur úrslit i 2. deild:
Barnsley-Wimhledon ....................... 0-0
Cardiff-Crystat Pal....................... 0-3
Leeds-Shrewsbury.......................... 1-0
Middlesbr.-Birmingham..................... 0-0
Oldham-Fulham............................. 2-1
Sheffield United.-Blackburn............... 1-3
Wolves-Huddersíield....................... 2-1