NT - 07.05.1985, Blaðsíða 25
Vestur-Þýska knattspyrnan:
Nágrannaslagurá
Ólympíuvellinum
- Bayern vann Gladbach en Bremen náði aðeins jafntefli - nú munar
tveimur stigum á liðunum og fimm leikir eftir - Spennan í hámarki
■ Baycrn Miinchen náði um
helgina tveggja stiga forystu í 1.
deild vestur-þýsku knattspyrn-
unnar er þeir unnu nágrannana
Borussia Mönchengladbach
meö fjórum mörkum gegn
engu. A sama tima gerði Brem-
en jafntefli við Leverkusen 2-2
eftir að hafa komist í 2-0. Spenn-
an er í hámarki því fimm um-
ferðir eru enn eftir og allt getur
því gerst.
Það var uppselt á ólympíu-
leikvanginum í Miinchen þar
sem Bayern og Borussia áttust
við, 75.000 áhorfendur. En allur
sá fjöldi varð fyrir vonbrigðum
með leikinn, eftir að Dieter
Höness skoraði með skalla á 34.
mínútu var eins og leikmenn
misstu áhugann á leiknum og
hann varð fyrir bragðið fremur
tilþrifa lítill. Samt tókst Bayern
að bæta við þremur mörkum án
þess að andstæðingarnir gætu
svarað fyrir sig. Það voru þeir
Lothar Mattheus, Roland
Wohlfarth og Reinhold Mathy
sem voru þar að verki.
Bremen stóð vel að vígi í
hálfleik á heimavelli sínum og
allt leit út fyrir sigur gegn Bayer
Leverkusen. Japanski miðvall-
arleikmaðurinn Jasuhiko Oku-
dera og hinn markheppni Rudi
Völler, landsliðsmiðherji Vest-
ur-Þjóðverja, höfðu báðir skor-
að og staðan 2-0. En Leverku-
sen var ekki á því að gefast upp
og liðið tryggði sér stig með
mörkurn frá Falko Götz og
Alois Reinhardt.
Kölnarar skutust upp í þriðja
sætið, upp fyrir Borussia Mönc-
hengladbach með góðum sigri á
Hamborg, 2-1. Það var lands-
liðsmaðurinn Klaus Allofs sem
gerði bæði mörkin fyrir Köln.
íslendingaliðunum gekk allt í
haginn þessa helgina. Atli Eð-
valdsson kom inná sem vara-
maður er Dússeldorf sigraði
gamla félagið hans Atla, Bor-
ussia Dortmund með tveimur
mörkum gegn einu. Lárus
Guðmundsson og félagar í
Bayer Urdingen léku á föstu-
daginn og unnu Bochum 3-1 og
Magnús Bergs getur haldið uppá
daginn því lið hans vann í fyrsta
sinn í langan tima, einnig á
föstudaginn. Eintracht
Braunschweig vann þá Kaisers-
lautern 2-1. Þetta er ekki ama-
leg uppskera.
ÚRSLIT UM HELGINA:
Köln-Hamborg 2-1
Mannheim-Frankfurt 3-1
Dortmund-Dússeldorf 1-2
Bielefeld-Karlsruher 4-1
Bremen-Leverkusen 2-2
Bayern-Gladbach 4-0
Stuttgart-Schalke 1-0
Bayer Uerdingen-Bochum 3-1
Brunchweig-Kaiserslautern 2-1
STAÐA EFSTU LIÐA:
Bayern 29 17 7 5 68-36 41
Bremen 29 15 9 5 76-46 39
Köln 29 16 3 10 57-49 35
Gladbach 29 13 8 8 65-43 34
Mannheim 29 11 11 7 41-40 33
Belgía og Holland:
Frábær árangur
- hjá Anderlecht - þarf aðeins eitt stig til að vinna titilinn
■ Belgíska stórliðið Ander-
lecht, sem Arnór Guðjohnsen
er hjá, hefur haft yfirburði í
belgísku 1. dcildinni í knatt-
Við tókum eftir....
Frá Guðmundi Karlssyni frétla-
manni NT í Vestur-Þýskalandi:
BREMEN hcfur alltaf
fengið mark á sig í síðustu
átta útileikjum. í síöustu
sex útileikjum hefur liðið
aðeins náð í 5 stig af tólf,
alveg eins og Bayern.
KAISERSLAUTERN
hefur aðeins fengið eitt
stig í síðustu átta útileikj-
um.
Bayern Múnchen hefur
aðeins tapað einu stigi á
heimavelli síðan 24. nóv-
ember 1984.
KOLN vann sinn fimmta
leik í röð er liðið lagði
Rremen. Upp-og-niður
stigasería Kölnara lítur
svona út: Sex sigrar í röð,
síðan fimm töp í röð og
nú fimm sigrar í röð.
BRAUNSCHWEIG
hafði tapað sex leikjum í
röð. Markatalan úr þeim
var eitt á móti átján.
Liðið vann nú loksins.
MANNHEIM hefur ekki
tapað leik í seinni um-
ferðinni, eða í síðustu
þrettán leikjum.
spyrnu í vetur. Liðið þarf aðeins
eitt stig til viðbótar til að gull-
tryggja 18. Belgíumeistaratitil-
inn. Nú eru fjórar umferðir eftir
en í þeim þrjátíu leikjum sem
búnir eru hefur þetta frábæra
lið skorað 88 mörk en fengið á
sig aðeins 19.
Um helgina vann Anderlecht
Mechelen með fimm mörkum
gegn engu og hefur 12 stiga
forskot á Waregem sem er í
öðru sæti.
Arnór Guðjohnsen er ekki
með neinum aulum í liði, alls
eru 17 landsliðsmenn frá hinum
aðskiljanlegustu þjóðríkjum hjá
Anderlecht. í vetur hefur borið
mikið á belgíska landsliðs-
manninum Enzo Scifo hjá
félaginu.
ÚRSLITIN í BELGÍU UM HELGINA:
Kortrijk-Gent l-l
Antwerp-Waterschei 3-1
Lierse-St. Niklaas 0-0
Beveren-FC Liege 0-2
Standard Liege-Beerschot 1-0
Lokeren-Waregem l-l
Anderlecht-Kv Mechelen 5-0
Seraing-Racing Jet 2-2
STAÐA EFS1
Anderlecht
Waregem
FC Liege
Club Bruges
Beveren
Ghent
LIDA:
30 23 7
30 18 6
30 15 10
29 15 10
30 14 6
30 12 10
0 88 19 53
6 57 32 42
5 54 31 40
4 57 37 40
10 55 29 34
8 57 34 34
Holland:
í Hollandi bar það helst til
tíðinda að bæði Ájax og PSV
töpuðu sínum leikjum á meðan
Feyenoord vann sigur á útivelli.
Þessi þrjú lið berjast harðri
baráttu um meistaratitilinn og
sigur Feyenoord kemur aðeins
fjórum stigum á eftir Ajax og
með leik til góða.
ÚRSLIT UM HELGINA:
AZ'67-Pec Zwolle 3-1
GA Eagles-Volendam 0-0
Sparta-Nac Breda 5-1
Excelsior-Muv 1-0
Den Bosch-Psu Eindhoven 2-1
Groningen-Roda Jc 2-2
Utrecht-Feyenoord 2-3
Haarlem-Ajax 1-0
STAÐA EFSTU LIÐA:
Ajax 29 21 5 3 77-32 47
PSV Eindhoven 30 16 12 2 79-30 44
Feyenoord 28 19 5 4 76-39 43
Groningen 29 14 8 7 50-35 36
Sparta 29 14 6 9 52-50 34
Hálfgert stríðsástand
■ írak vann Quatar í undan-
keppni HM á sunnudaginn með
tveimur mörkum gegn einu.
Staðan í hálfleik var jöfn, 1-1.
Þessi tvö lið eru í riðli ásamt
Jórdaníu og hafa írakar tryggt
sér sigur í riðlinum, hafa unnið
þrjá leiki en tapað einum. Quat-
ar hefur unnið tvö og tapað
tveimur og Jórdanir unnu einn
leik en töpuðu þremur. Athygli
vekur að engum leik í riðli
þessum lauk með jafntefli. Eftir
leikinn brutust út slagsmál milli
leikmanna og forráðamanna
beggja liðanna og urðu nokkrir
fyrir meiðslum.
írakar sigurvegarar í riðli 1-b,
mæta Sameinuðu arabísku
furstadæmunum sem unnu riðil
1-a í næsta leik í undankeppni.
■ Alain Prost var dæmdur úr leik vegna þess að bíllinn hans var
of léttur.
HM í kappakstri:
Prost úr leik
■ Alain Prost frá Frakklandi
kom fyrsturí mark á McLaren
bifreið sinni í San Marino kapp-
akstrinum sem fram fór á sunnu-
daginn. Hann fagnaði að sjálf-
sögðu sigri en sú gleði breyttist
í vonbrigði fljótlega þar sem í
Ijós kom að bíll lians var of
léttur og hann því dæmdur úr
leik. ítalinn Elio de Angelis var
því sigurvegari en hann ekur á
Lotus bíl. Angelis er einnig
stigahæstur í heimsmeistara-
. keppninni.
7. maí 1985 25
■ Klaus Allofs og liði hans Köln, hefur gengið mjög vel að
undanförnu og er liðið nú komið í þriðja sæti í deildinni. Allofs
skoraði bæði mörkin um helgina er Köln vann Hamborg 2-1.
Hnefaleikar:
Beítinu stolið
■ Sá sem hefur verðlaunabelt-
ið sem veitt er heimsmeistara
WBA í þungavigt hnefaleika,
á sér eða undir höndum nú, er
ekki heimsmeistari. Sá hefur
ekki unnið til beltisins, heldur
stolið því.
Hnefaleikarinn bandaríski,
Greg Page, tapaði bæði beltinu
og heimsmeistaratitlinum.
Beltinu var stolið frá honum á
sunnudagskvöld ásamt fleiri
verðmætum, og kvöldið eftir
tapaði hann heimsmeistaratitli
sínum í hendur Tony Tubbs,
sem vann Page á stigum í 15
lotu tilþrifalitlum bardaga.
Ránið var framið á meðan
Page var í kvöldverðarboði.
Auk beltisins var stolið verð-
mætum úr hótelherbergi kapp-
ans í Buffalo sem að sögn Page
eru 33 þúsund dollara virði.
Það jafngildir um 1,3 milljón-
um ísl. króna. Þar á meðal
voru tvö úr, myndavél, sjón-
aukalinsa á myndavélina,
hringur með níu demöntum í
og fleiri skartgripir.
„Þjófarnir nást, lögreglan náði
fingraförum, og er komin af
stað í málinu núna,“ sagði
Page á blaðamannafundi eftir
keppnina.
Knattspyrnumolar
■ Austriu Vín, mót-
herjar Everton í úrslitum
Evrópukeppni Bikar-
mcistara, cru efstir í 1.
deildarkeppninni í Aust-
urríki, eins og reyndar
Evcrton er í Englandi.
Um helgina vann Rapid
stórsigur á Austría
Salzburg, 7-2 og það á
útiveili. Úrslit í Austur-
ríki um helgina kom hér
á eftir og síðan staða
efstu liða:
Austria Salzburg-Austria Vin .... 2-7
DSV Alpine-Vin Sportclub........3-0
Fav Ac-Admira Wacker............2-1
Gak-Voest Linz .................3-1
Lask-Eisenstadt.................2-0
Sc Rapid-Spittal................4-0
SSW Innsbruck-Sturm Graz....... 5-0
Vin-Austria Klagenfurt..........2-2
Austria Vin 24 19 4 1 68 16 42
SC Rapid 24 15 7 2 65 21 37
Lask 24 14 4 6 39 28 32
SSW Innsbruck 24 10 8 6 43 32 28
Admira Wacker 24 19 8 6 43 32 28
Efsta liðiö í austur-
þýsku 1. deildinni í knatt-
spyrnu, Dynamo Berlín
tapaði um helgina fyrir
liðinu sem er í öðru sæti
Dynamo Dresden með'
einu marki gegn tveimur.
Nú eru þrjár umferðir
eftir í deildinni og Berlín-
arliðið hefur fjögurra
stiga forskot. Það þarf
því þrjú stig til að tryggja
titilinn ef Dresden vinnur
alla leikina.
Úrslit um belgina urdu þessi:
Stal Riesa-Hansa Rostock.......1-1
Wismut Aue-Magdeburg............2-0
Chemie Leipzig-Rot-Weiss Erfurt . 2-2
Carl Zeiss Jena-Stahl Brandenburg. 2-0
Vorwaerts Frankfurt-Lok Leipzig . 0-0
Motor Suhl-Karl Marx Stadt.....1-5
Dynamo Berlin-Dynamo Dresden . 1-2
STAÐA EFSTU LIÐA:
DynamoBerlin 23 17 4 2 75 26 38
DynamoDresden 23 13 8 2 56 25 34
Lok Leipzig 23 15 3 5 52 25 33
WismutAue 23 11 8 4 36 30 30
Magdeburg 23 9 9 5 46 28 27
Rot-Weiss-Erfurt 23 8 9 6 40 37 25
Manchester
ólympíuborg
■ Heimildir innan bresku
ólympíunefndarinnar
herma, að borgin Manchest-
cr á Englandi sé mögulegur
staður fyrir sumarólympíu-
lcikana árið 1992. Borgar-
yfirvöld í Manchester hafa
lýst yfir vilja sínum að taka
leikana að sér.
Vitað er að yfirvöld
þriggja borga á Bretlands-
eyjum hafa áhuga á að taka
leikana, Lundúnir, Manc-
hester og Birmingham.
Lundúnir og Manchcstcr
liafa sótt formlega um til
bresku ólympíunefndar-
innar, en ekki er Ijóst hvað
yfirvöld Birminghani gera.
Breska ólympíunefndin
mun ákveða hvaða bresk
borg verði boðin sem móts-
staður í lok júní á þessu ári.
Búist er við að jafnvel
sex aðrar borgir heiins
munu verða tilbúnar í slag-
inn um leikana, þar á með-
al Barcelona á Spáni og
París í Frakklandi.