NT - 07.05.1985, Blaðsíða 22
w
★ Rúminnihald 650 kg. (13 pokar)
★ Hleðsluhæð aðeins 90 sm.
★ Er stækkanlegur í 2000 kg. (40 poka)
★ Hefur fullkominn mulningsbúnað sem
mylur köggla
★ Einn söluhæsti áburðardreyfarinn síðustu
þrjú árin.
★ Til afgreiðslu strax
★ Góð greiðslukjör
SKOTAHRAUNI 15 - SlMI 91-54933
220 HAFNARFJÖRÐUR
95
STÓR-
VDJNINGAR
9.MAÍ
O, EL : £Z\£z:
4S ©
SHARPR6200 FIATUN0 45S SHARP VC 481
ÖRBYLGJUOFNAR Á KR. 17.600 ÁKR.280.000 MYNDBANDSTÆH Á KR. 44.900
Hjálparstarf á íslandi nútímans kostar mikið fé.
Eins þótt það sé allt unnið í sjálfboðavinnu.
Hjálparsveitir skáta e&ia því til stórhappdrættis með hvorki
meira né minna en 95 stórvinningum.
Þeir verða því margir sem detta í lukkupottinn 9. maí.
En hjálparsveitimar bjóða enn betur, vinning sem við skulum þó
vona að færri þurfi á að halda þó að reynslan bendi til annars:
VEL BÓNAR
HJÁLPARSVEITIR í VIÐBRAGÐSSTÖÐU
j#l| landssamband
HJALPARSVEITA SKÁTA
Þriðjudagur 7. maí 1985 22
Útlönd
■ „Ég man ekki hvort glasið ég á.“
ítalskar rannsóknir:
Gáfur drykkjumanna þverra
ogminni þeirra sljóvgast
■ Nýjar ítalskar rannsókn-
ir benda til þess að gáfur
þverri og minnið hjá miklum
drykkjumönnum verði smám
saman verra en hjá hóf-
drykkjumönnum og bindind-
ismönnum jafnvel þótt þeir
hafi ekki orðið fyrir heila-
blæðingum eða beinum
heilaskemmdum vegna
drykkjunnar.
Það hefur lengi verið vitað
að mikil áfengisneysla getur
leitt til alvarlegra heila-
skemmda sem skaða minni
og gáfnafar viðkomandi var-
anlega, en menn hefur greint
á um hvort áfengisneysla
leiðir til varanlegrar hrörn-
unar minnis og gáfna ef ekki
er um beinar heilaskemmdir
að ræða.
Hópur ítalskra vísinda-
manna við Modena-háskóla
á Ítalíu ákvað að kanna
minni og gáfnafar hjá
drykkjumönnum og bera það
saman við hófdrykkjumenn
til að reyna að fá úr því
skorið hvort vínþambarar
séu jafn skarpir og hinir sem
lítið drekka. Þeir rannsök-
uðu þrjáúrtakshópa. í einum
hópnum voru menn, sem
drukkið höfðu a.m.k. tvo
lítra af víni á dag í fimm ár
eða lengur, mennirnir í hóf-
drykkjuhópnum drukku ekki
nema einn lítra af víni dag-
lega og í þriðja hópnum voru
þeir sem drukku aðeins örfá
glös. (Það verður að hafa í
huga að rannsóknin var gerð
á Ítalíu.)
Þeir lögðu gáfnapróf og
tvenns konar minnispróf fyr-
ir alla einstaklingana í
hópunum. Með minnisprófun-
um var annars vegar athugað
hversu gott heyrnarminni
þeir höfðu og hins vegar
rúmminni þeirra, þ.e. sjón-
minni, hreyfiminni og jafn-
vægi.
Þá kom í Ijós að stór-
drykkjumennirnir stóðu sig
mun verr á öllum prófunum
en þeir sem drukku minnst.
Það vakti sérstaka athygli
hvað drykkjumennirnir
komu illa út á rúmminnis-
prófinu jafnvel eftir að tekið
hafði verið tillit til skerts
gáfnafars þeirra. Rúm- og
hreyfiminni þeirra var mun
verra en heyrnar- eða tal-
minni þeirra.
Vísindamenn eru nú að
velta því fyrir sér hvernig
geti staðið á þessum mun.
Þeim hefur m.a. dottið í hug
sá möguleiki að áfengi hafi
meiri áhrif á hægra heilahvel-
ið en það vinstra þar sem
málstöðvarnar eru í vinstra
heilahveli en rúmminni og
rúmskyn í því hægra.
De Renzi, sem hafði yfir-
umsjón með rannsóknunum,
vill samt ekki draga of miklar
ályktanir af niðurstöðum
rannsóknanna þar sem mun
ítarlegri rannsókna væri
þörf. En sé þetta rétt verða
hættulegar afleiðingar ölvun-
ar á aksturhæfileika kannski
skiljanlegri.
(Byggt á New Scientist)
Ádeiluverk Byrons
lávarðar nýfundið
London-Reuter.
■ Áðuróþekktverkeftir
breska skáldið Byron
lávarð, háðsádeila í
óbundnu máli um stjórn-
málavafstur austræna ein-
ræðisherrans Tamerlanes,
fannst nýlega í kjallara
útgefanda hans í London.
Ævisöguritarinn Leslie
Marchand prófessor segist
hafa fundið verkið í pen-
ingaskáp þegar hann var
að rannsaka 12 bindi af
bréfum og dagbókum
Byrons, 161 ári eftir lát
skáldsins.
Marchand segir verkið
undarlegan samsetning en
ekki fari á milli mála að
það sé ritað með hendi
Byrons. Þetta sé góðlátleg
háðsádeila á ruddasskap
Tamerlanes og napurlegt
mat á mannlegu eðli yfir-
höfuð.
Mongólski sigurvegar-
inn Tamerlane, stjórnandi
Samarkand, geystist yfir
íran, Rússland sunnan
Kákasusfjalla, írak, Arm-
eníu og Georgíu og réðst
inn í Indland og Sýrland
áður en hann dó árið 1405.
Þegar Byron lýsir því
hvernig hann skattpíndi
þjóð sína til að fjármagna
stríðin segir hann: „Öll
þjóðin stakk skjálfandi
höndum í vasa sína sem
hann og ráðherrar hans
höfðu gert að vana sínum
að tæma.“
„Hann hjó einnig af
hausa, en þegnar hans
höfðu lítið sem ekkert við
það að athuga svo fremi
sem afhausunin og skatt-
píningin færu ekki
saman.“
Vestur-þýskir geðlæknar:
Þunglyndi kvenna eykst
burt með hefðbundin viðhorf - út með reiðina
■ Yfir 1000 sálfræðingar og
geðlæknar hittust nýlega í
Aachen í Þýskalandi og
funduðu um hvernig það er
að vera kona.
Ráðstefnufulltrúar voru
varaðir við því að of hraður
hjartsláttur og magaverkir
væru ekki endilega alltaf af
sálrænum toga þó að þung-
lyndi færi vissulega vaxandi,
sérstaklega á meðal kvenna.
Ráðstefnan einbeitti sér að
dæmigerðum kvenhlutverk-
um eins og móðurhlutverk-
inu og þá einkum kvörtunum
mæðra um stöðuga þreytu og
angist þeirra kvenna sem
hafa lokið móðurhlutverkinu
og finnst þeim ofaukið og
einskis virði lengur, en slík
þunglyndiseinkenni eru
dæmigerð fyrir konur sem
hafa unnið sér til óbóta fyrir
fjölskyldur sínar.
Önnur þunglyndistegund
er sú sem hrjáir þær útivinn-
andi konur sem finnst þær
verði alltaf að vinna betur en
karlkyns vinnufélagarnir til
þess að standast samkeppni
við þá en finna jafnframt til
sektarkenndar yfir því að
vera ekki fullkomnar hús-
mæður líka.
Svo eru það eldri húsmæð-
ur sem gjarnan vildu deila
nýtískulegra viðhorfi til
kvenhlutverksins með full-
orðnum dætrum sínum en
eiga í höggi við íhaldssama
eiginmenn sem láta ekki
hávaðalaust af hefðbundnu
hlutverki sínu.
Því var haldið fram að
yngri konur eigi auðveldara
með að vera meira en „hitt
kynið“, bæði í vinnunni og
heima hjá sér þrátt fyrir að
stelpum sé ennþá kennd
hefðbundin hegðun.
Þá má geta þess að þung-
lyndis-sérfræðingarnir voru
þeirrar skoðunar að fyrsta
skrefið upp úr þunglyndinu
sé nákvæmlega það að tjá
reiði sína.