NT - 07.05.1985, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 7. maí 1985
Vaka á móti breyttum skyldusparnaðarlögum
Þýðir 10% minnkun ráð-
stöfunarfjár námsmanna
■ Stjórn Vöku, fél. lýðræðis-
sinnaðra stúdenta í H.l. hefur
lýst algjörri andstöðu sinni við
hugmyndir þær um breytingar á
lögum um skyldusparnað ungs
fólks, sem félagsmálaráðherra
hefur lagt fram og skorar á hann
að falla frá þeim, en ella á
þingmenn að fella frumvarpið.
Breytingar þessar gera m.a.
ráð fyrir að skyldusparnaðar-
hlutfallið lækki úr 15% í 10% af
heildarlaunum, en jafnframt að
nánast engar undanþágur verði
veittar til að leysa skyldusparn-
aðarféð út fyrr en við 26 ára
aldur viðkomandi sparenda. En
til þessa hefur m.a. nám og
hjúskapur verið fullgildar ást-
Viðbeinsbrotinn
uppi á Vatnajökli
■ Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar sótti í-gærmorgun
viðbeinsbrotinn mann upp
á Vatnajökul, skammt
innan Jökulheima og flutti
til Reykjavíkur þar sem
gert var að meiðslum hans
sem eru minniháttar.
Maðurinn var á jöklin-
um á vegum Raunvísinda-
stofnunar við þykktar-
mælingar á Bárðarbungu.
Slysið varð um miðnætti í
fyrrinótt þegar maðurinn
kastaðist af snjósleða uppi
á jöklinum.
æður til úttektar fjárins.
Með því að gera námsmönn-
um ókleift að taka út skyldu-
sparnað sinn telur Vaka vegið
að fjárhagslegri stöðu náms-
manna. Þessi ráðstöfun mundi
fyrir flesta þeirra þýða að 10%
af sumarlaunum þeirra verði
bundin meðan á námi stendur,
og þar með 10% lækkun á
ráðstöfunartekjum þeirra.
Stjórn Vöku telur auk þess
vafasamt af hinu opinbera að
taka skyldusparnað af fólki,
ekki síst ef litið er til þess að
markaðurinn býður víða betri
ávöxtun fjár en hið opinbera
gerir með núverandi fyrirkomu-
lagi.
■ Fjöldi áhorfenda fylgdist
með nýbökuðum Islandsmeist-
urum í tvímenning í bridge í
íslandsmótið í tvímenning í bridge:
Sigtryggur vann...
Sigtryggi Sigurðssyni (til vinstri)
og Páli Valdemarssyni. Á
myndinni sjást þeir spila við
Símon Símonarson og Jón Ás-
bjÖrnSSOn. NT-mynd: Sverrir.
- ásamt Páli Valdemarssyni Sg.'SÍ tfSiS;
ráðin. Jón Baldursson og Sig-
urður Sverrisson og Sigfús
Árnason og Jón Páll Sigurjóns-
son börðust um annað sætið.
■ Páll Valdemarsson og Sig-
tryggur Sigurðsson unnu Is-
landsmótið í tvímenning í
bridge með yfirburðum um
helgina eftir að hafa leitt mótið
frá upphafi, og hnekktu þar
með veldi Jóns Baldurssonar
sem unnið hefur þetta mót síð- _
ustu fjögur ár. Jón varð að láta
sér annað sætið nægja í þetta
sinn ásamt Sigurði Sverrissyni.
Þó sigur þeirra Páls og Sig-
tryggs kæmi nokkuð á óvart,
þar sem þeir eru ekki fastir
spilafélagar, spiluðu þeir af
Þetta er fyrsta stórmótið í
bridge sem Páll vinnur en Sig-
tryggur hefur áður orðið
landsmeistari í sveitakeppni.
I
Lokaröð efstu para varð sú
að Páll og Sigtryggur enduðu
með 229 stig, Jón og Sigurður
með 169 stig og Sigfús og Jón
Páll með 157 stig. 1 4. sæti urðu
Ásmundur Pálsson og Karl
Sigurlíjartarson með 102 stig og
í 5. sæti Aðalsteinn Jörgensen
og Valur Sigurðsson með 94 stig
en verðlaun voru veitt fyrir 5
fyrstu sætin.
Hrönn Hafliðadóttir *
syngur Ijóð og aríur
■ Á hádegistónleikum
íslensku óperunnar í dag
flytja Hrönn Hafliðadóttir
altsöngkona og Þóra Fríða
Sæmundsdóttir píanóleik-
ari Ijóð eftir Brahms og
Wagner og óperuaríur að
auki.
Tónleikarnir hefjast kl.
12.15 í Gamla bíói og
standa í hálffima.
SÝNING Á HUGBÚNAÐI
FYRIR IBM S/36 OG S/38
7.0G 8. MAÍ ’85
10 FYRIRTÆKI SÝNA YFIR 50 KERFI
Á þessari sýningu kynna 10 fyrirtæki yfir 50 mismunandi hug-
búnaðarkerfi fyrir IBM System/36 og IBM System/38. Ýmsar nýj-
ungar koma þar fram og að auki margbreytilegar lausnir á hinum
hefðbundnu, daglegu verkefnum sem unnin hafa verið í tölvum
um árabil.
Þetta er kjörinn vettvangur fyrir þá sem bera ábyrgð á tölvu-
vinnslu í fyrirtækjum til þess að öðlast yfirsýn yfir þá margvíslegu
möguleika sem nú bjóðast.
(\J \ 1 :
Ath. Sýningin er aðeins opin í tvo daga.
Sýnendur: ALMENNA KERFISFRÆÐISTOFAN HF., FORRITUN SF., FRUM,
GlSLI J. JOHNSEN TÖLVUBÚNAÐUR SF., IBM Á ÍSLANDI, KERFI HF„
SKRIFSTOFUVÉLAR HF„ OSPREY, REKSTRARTÆKNI SF„ TÖLVUBANKINN.
SÝNINGARSTAÐUR: SKAFTAHLÍÐ 24
OPIÐ KL. 9-18
Skaftahlíð 24,105 Reykjavik.
Simi 91-27700.