NT - 09.05.1985, Blaðsíða 2

NT - 09.05.1985, Blaðsíða 2
 Fimmtudagur 9. maí 1985 2 Fréttir jÆfjm i Heilbrigðisyfirvöld: Semja neyðaráætlun gegn AIDS faraldri ^ /■ U m ■■ r M M 'm M ■ Það var sannkallaður ritstjórafögnuður hjá sovéska sendiherr- anum, Kassarov, í gærkveldi er þar hittust núverandi, fyrrverandi og kannski tilvonandi ritstjórar. F.v. Magnús Ólafsson, NT, Einar Karl Haraldsson, fyrrv. ritstj. Þjóðviljans, Guðmundur Árni Stefánsson, Alþýðublaði, Helgi Pétursson, nú fréttamaður á útvarpi. En tilefni vcislunnar var að 40 ár eru liðin síðan herir bandamanna sigruðu heri Hitlers í síðari heimsstyrjöldinni. NT-mynd: Sverrir. Rannsóknarstofa sett upp á Landspítalanum ■ AIDSfaraldurinnernúekki lengur fjarlægur og óraunveru- legur. íslendingar standa frammi fyrir því að hvenær sem er kann fyrsta tilfellið að grein- ast hér á landi. íslensk heilbrigðisyfirvöld eru nú í óða önn að búa sig undir baráttu við sjúkdóminn. Þó er óhætt að segja að engar tiltækar leiðir séu til til þess að hefta útbreiðslu sjúkdómsins til íslands. Smitleiðir eru margar, og má sem dæmi nefna að Alþýðuflokkurinn á biðilsbuxunum í útvarpsmálinu: Ef boðveitur • þá augiýsingar Deilan stendur eingöngu milli framsóknarmanna og sjálf- stæðismanna um auglýsingar í kapalkerfum storknunarefni sem blæðarar þurfa á að halda er flutt inn frá Finnlandi. • Það er einn liður í baráttu íslenskra heilbrigðisyfirvalda til að draga úr smithættu af storkn- unarefninu Faktor 8, að notuð verður sérstök hitameðferð, sem gefið hefur góða raun í tilraunastofum. Þá hefur verið ákveðið að koma upp sérstakri aðstöðu á Landspítaianum fyr- ir rannsóknir í veirufræði, þar sem hægt verður að rannsaka blóð blóðgjafa, og þeirra sem eru í áhættuhópum og síðast en ekki síst til að rannsaka blóð þeirra sem grunur leikur á að hafi smitast. Heilbrigðisyfirvöld hvetja alla þá sem einhverjar líkur eru á að hafi smitast að gefa ekki blóð. Til þess að draga úr hættu á smitun er fólki bent á að samförum við ókunnuga, sérstak- lega vændiskonur fylgir smit- hætta. Kynhverfir geta dregið úr smithættu með þvf að fækka rekkjunautum, og nota gúmmí- verjur. Landlæknir hefur lagt áherslu á að AIDS er ekki mjög smitandi sjúkdómur. Árekstur á sjó: ■ Alþýðuflokkurinn er tilbú- inn til að styöja tillögur um að auglýsingar verði leyfðar á jafn- réttisgrundvelli í útvarps- og sjónvarpsstöðvum ef gjaldskrá augiýsinga verður háð samþykki útvarpsréttarncfndar og tillögur Alþýðuflokksins um að boðveit- ■ur verði í eign sveitarfélaga nái fram að ganga. Þannig hljóðaði tilboð Jóns Baldvins Hannibalssonar, for- manns Alþýðuflokksins til Sjálf- stæðisflokksins og Bandalags jafnaðarmanna í umræðum um útvarpslagafrumvarpið í neðri deild Alþingis í gær, þar sem máliö er til 3. umræöu, en vonir standa til að hægt verði að greiða atkvæði um málið á dcildarfundi í dag. Enn var rætt um ástæðurnar fyrir því að málið hefur tafist svo lengi sem raun bcr vitni í neðri deild og gerðu bæði for- sætisráðherra og menntamála- ráðherra grein fyrir liinu um- deilda samkomulagi sem þau áttu að hafa gcrt um auglýsinga- þáttinn. Ragnhildur Helgadótt- ir sagðrað þau væru sammála um að þau væru ósammála um auglýsingaþáttinn og af því leiddi að þingmenn greiddu at- kvæði eftir sannfæringu sinni urn það mál, en Steingrímur Hermannsson sagðist hafa skilið samtal þeirra um að þingmenn hefðu frjálsar hendur þannig að annað hvort styddu menn frum- varpið eins og það kom frá menntamálanefnd neðri deildar með takmörkuðum auglýsing- um eða þá að það yrðu engar auglýsingar. Birgir ísleifur Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki, gerði athuga- semd við það sem hann kallaði villandi umfjöllun í fjölmiðlum, en þar væri ávallt talað um að deilt væri um livort ættu að vera auglýsingar eða ekki auglýsingar í þessum stöðvum. Benti hann á að þetta væri rangt því ágrein- ingurinn væri einungis um svo- kölluð kapalsjónvörp, sem eru áskriftarstöðvar og mega ekki afla tekna af auglýsingum sam- kvæmt frumvarpinu en útvarps- og sjónvarpsstöðvar sem verða með þráðlausa sendingu mega það hins vegar. Kvaðst hann vera fylgjandi því að leyfa aug- lýsingar í kapalsjónvarpsstöðv- um og benti á að þótt þingmenn Sjálfstæðisflokksins ætluðu að styðja breytingartillögu Friðriks Sophussonar þar að lútandi, væru þeir ekki að svíkja það samkomulag sem gert hefði ver- ið í menntamálanefnd, því í nefndaráliti meirihlutans væri það tekið skýrt fram að einstakir þingmenn áskildu sér rétt til að flytja breytingartillögur uni ein- stök atriði eða styðja tillögur sem kæmu fram þar að lútandi. Menntamálaráðherra gerði Menningarsjóðinn sérstaklega að umræðuefni í ræðu sinni sem einn þeirra þátta sem málamiðl- un hefði orðið um milli stjórnar- flokkanna og upplýsti að það væru bein tengsl á milli hans og auglýsingaákvæðisins, því ef engar auglýsingar yrðu leyfðar í nýju stöðvunum, þá yröi ekki heldur um neinar tekjur að ræða fyrir Menningarsjóðinn, cn hann á að fá 10% af öllum auglýsingatekjum og standa undir rekstri Sinfóníuhljóm- sveitarinnar og gerö innlends dagskrárefnis og þá sérstaklega fræðsluefnis jafnt fyrir Ríkisút- varpið sem einkastöðvar. Seingrímur Hermannsson vék í máli sínu að hinu frjálsa útvarpi sem hann kallaði og sagðist hlynntur því en öðru máli gegndi um frjálsar auglýs- ingar. Kvaðst hann hafa sínar efasemdir um þann tíma sem væri valinn til þess að leggja þetta frumvarp fram því nú væri þannig ástatt í þjóðfélaginu að það þyrfti að hugleiða vandlega hvernig við ráðstöfuðum okkar fjármunum. Kvað hann fram- sóknarmenn vilja efla Ríkisút- varpið sent mest og margir hefðu áhyggjur af því ef auglýs- ingatekjur þess minnkuðu. Hugsanlega leið útúr þeim ógöngum sem hcr væru á ferð- inni taldi forsætisráðherra liggja í tillögum sem Félag kvikmynda- gerðarmanna sendi honum þar sem áhersla er lögð á að efla innlenda dagskrárgerð og setja strangar reglur um auglýsingar í hinum nýju stöðvum. Leggja þeir til að tekið verði 50% gjald af innkaupsverði alls erlends efnis til innlendrar dagskrár- gerðar. Einnig benti forsætis- ráðherra á að Bretar og Ástra- líumenn hefðu þau ákvæði að ekki væri leyft að sýna auglýs- ingar í sjónvarpsstöðvum þar, sem væru gerðar erlendis. Jón Baldvin klikkti út í ræðu sinni með að segja að ef ekki yrði orðið við tilboði þeirra þá áskildi Alþýðuflokkurinn sér rétt til að cndurskoða afstöðu sína til málsins þegar það kæmi fyrir efri deild. Sjálfstýring togarans bilaði ■ Skuttogarinn Ýmir HF 343 frá Hafnarfirði lenti í árekstri við togbátinn Þuríði Halldórsdóttur GK 94 rétt fyrir hádegi í gær. Áreksturinn varð um 40 sjómílur vestur af Vestmannaeyjum. Talið er að orsök árekstursins hafi verið bilun í sjálfstýringu hjá togaranum Ými. Sjálfstýringin hafði slegið út áður í sama túr. Lóðsinn í Vestmannaeyjum var kallaður til aðstoðar og fór hann með tvo slökkviliðsmenn og nokkrar dælur til að dæla sjó úr vélarrúmi Þuríðar, en talsvert magn af sjó komst í vélarrúmið í gegnum rifu sem myndaðist við áreksturinn. Ýmir skemmdist lítið, og hélt hann áfram í fyrirhug- aða söluferð til Þýskalands. Þuríð- ur Halldórsdóttir kom til Eyja klukkan 17:30 í gærdag, og átti að fara í skipalyftuna í Eyjum í gær. Hvað gera þingmenn í bjórmálinu? Mannekla á sjónvarpinu ■ Ríkisfjölmiðlarnir hafa ekki farið varhluta af launa- stefnu ríkisstjórnarinnar og þar brast á fyrir nokkru flótti starfsmanna til einkafyrir- tækja, sern borga mun betur. Sérstaklega hefur þetta kontið illa niður á tæknivinnu allri og nú mun svo vera komið á sjónvarpinu að ekki er hægt að manna „team" til að sinna öllunr málefnum. Þetta var raunin í gær þegar átti að taka upp Þingsjá Páls Magnússonar, þar sem m.a. átti að fjalla um hvað skildi að og sameinaði BJ og Al- þýðuflokkinn og hver væri ástæðan fyrir meintu fylgis- hruni Alþýðubandalagsins. En þegar til kom var ekki hægt að taka upp Þingsjána, og mun ástæðan hafa verið sú að engir tæknimenn voru inni til að sinna stúdíóvinnu! Er ljóst að hér verður að verða mikil breyting á ef útvarp og sjónvarp eiga að geta orðið samkeppnisfær þegar að „frjálst auglýsinga- útvarp" hefur verið leyft og ættu ráðamenn að sjá sóma sinn í því að hafa ákvæði í hinum nýju lögum sem heim- ila útvarpsstjóra að semja beint um kaup við starfsfólk Ríkisútvarpsins og binda ekki kauptaxtann við lág- launastefnu hins opinbera. Ef það gerist helst Ríkisút- varpinu ekki á því hæfa starfsfólki sem það þarfnast til að standa af sér leiftursókn frjálshyggjustöðvanna... ll'líl ii n, Bjórneysla 15-20 lítrar á hvern íslending í fyrra .uWWWll - samt er bannað að sel ja áfengt öl í landinu Hvað ætli hann þoli marga lítra í viðbót þessi Messað fyrir tómum húsum ■ Sjálfstæðismenn blésu í herlúðra um síðustu helgi víða um landið og riðu þeirra helstu hetjur þar um héruð. Fóru þeir nokkuð dólgs- lega og töluöu digurbarka- lega um stjórnarsamstarfið og iðnaðarráðherra setti sig meira að segja í spámanns- slellingar (þeir eru víða þess- ir Mústafar) á Húsavík og boðaði til kosninga með haustinu. Landslýður var allvel upp- lýstur um fundaherferð þessa, því Ríkisútvarpið óháða hljóp undir bagga með flokksmaskínunni og greindi samviskusamlega frá því helsta sem þessir herrar létu sér um munn fara. Er reyndar lítil von til að mikið hefði heyrst af þessari frækilegu för, ef útvarpið hefði ekki tekið til sinna ráða, því staðreyndin var sú að sárafáir mættu á fundiria og undir venjulegum kring- umstæðum hefði verið talað um messufall. Best gekk fjármálaráð- herra að draga í dilkinn, 50 manns munu hafa mætt á fund hans á Höfn, en ekki voru nema 12 hjá vara- formanninum á Egilsstöð- um. Og hver var svo ástæðan fyrir þessum óförum? Jú, sjónvarpið sendi í fyrsta skipti beint út frá Evrópu- keppni sjónvarpsstöðva og voru landsmenn allir límdir við skerminn og höfðu meira gaman af söng og tralli en þungbrýnu stjórnmálarausi. Ætti þessi miður skemmti- lega lífsreynsla að verða sjálfstæðismönnum umhugs- unarefni áður en þeir leyfa „frjálst útvarp" því léttmeti þessara stöðva verður eflaust tekið fram yfir þurrar ræður. Og það verða sjálfstæðis- menn að viðurkenna, þótt þeir séu oft að agnúast út í einokun útvarpsins. að þar eiga þeir * Valhallarmenn „hauk í horni" þegar á bjátar....

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.