NT - 09.05.1985, Blaðsíða 8

NT - 09.05.1985, Blaðsíða 8
lil Fimmtudagur 9. maí 1985 8 ndur haf Barnaef ni á fjósatíma Kæra NT. ■ Mig langar til að koma með kvörtun til sjónvarpsins, út af því hvenær efni fyrir börn er í sjónvarpinu. Ég bý úti í sveit og þar sem ég bý eru kýr. Eins og flestir vita þarf að mjólka kýrnar og það er yfirleitt gert milli 6-8 á kvöldin, allavega þar sem ég þekki til. Ég er orðin það gömul, að ég er farin að gera gagn í fjósi og fcr því í fjós á nær því hverju kvöldi. Mætti ég benda á að það eru margir krakkar sem fara í fjós á hverju kvöldi og þykir gaman að horfa á t.d. Húsið á sléttunni eða Knapa- skólann og við getum því mið- ur ekki verið bæði í fjósi og setið inni í stofu og horft á sjónvarpið, - því miður. Hér gætu þó nokkrir hugsað, því við getum ekki bara hlaup- ið heim og horft á sjónvarpið og skokkað svo út í fjós og haldið áfram að mjólka. en því er ekki að heilsa, því mjalta- vélarnar bíða ekki sallarólegar eftir því að við komum út í fjós og höldum áfram að mjólka. Mig langar til að benda á að Reykjavíkurbörn og kaup- staðabörn eru ekki einu börnin í landinu, en því miður stað- næmist hugsunarháttur margra þannig að þeir hugsa ekki út fyrir Reykjavíkursvæðið. Þegar ég skrifa þetta, er ég á Ieiðinni út í fjós, - sem sagt að missa af Húsinu á sléttunni. S.B. Eins og flestir vita, þarf að mjólka kýrnar! Tökum til- boði Hagvirkis K.J. Skagafírði hringdi: ■ Ég trúi ekki að ríkisstjórn- in ætli að láta hjá líða að taka tilboði Hagvirkis um veginn norður. Þetta tilboð myndi stytta þann tíma sem við þurf- um að bíða eftir að vegurinn komist í gagnið úr 7 árum í 3 og yrði mikil bót að þessu. Hagvirki er löngu þekkt fyrir vönduð og skjót vinnubrögð og hæfileika til að vinna verk sem þetta. ■ Hagvirki hcfur gert ríkinu tilboð um að Ijúka lagningu varanlegs slitlags á veginn milli Akurcyrar og Reykjavíkur. BRAUÐ ems og að skera brauö EPLI hendinni haldiö eins og utan um epli og borin að , munninum / K30T klipið i handarjaöarinn HOOLK tekið um fingurmn meö þumal- og visifingri hegri handar / 6A KIAWt V J M4TUR L'Y borða eins og aö drekka úr glasi Meira táknmál í sjónvarpi ■ Ég varð mjög ánægð þegar ég sá í barnatímanum í sjón- varpinu síðastliðinn sunnudag að Sigurður Skúlason leikari hafði verið fenginn til að lesa upp ævintýri jafnt fyrir heyr- andi börn sem heyrnarlaus. Ég vona að það verði framhald á þessari nýbreytni sjónvarpsins því að heyrnarlaus börn eiga: ekki síður rétt á því að fá að njóta barnatímans en önnur börn. Auk þess hafa öll börn gott og gaman af að kynnast táknmáli heyrnleysingja nokkuð. Mér finnst reyndar að það mætti gjarnan gera það að reglu í barnatímanum, þegar ævintýri eða myndasögur eru lesnar að hafa litla mynd neðst í horni sjónvarpsins með þulin- um þar sem hann segði söguna einnig með táknmáli. Ef lesar- inn kann ekki táknmál sjálfur mætti hafa túlk sem túlkaði söguna jafnóðum yfir á tákn- málið. NT-lesandi Maðurinn í rúminu ■ Alveg er ég steinhissa á sumu fólki. Tökum t.d. kon- una sem eftir því sem NT segir fann mann hrjótandi í rúmi sínu þegar hún kom heim af balli. Á hverju átti manneskj- an von, fyrst hún skildi íbúðina eftir ólæsta? Mér finnst satt að segja að konan hefði getað átt von á ýmsu verra en að finna mann í rúminu. Ef aumingja vesalings mað- urinn hefði ekki verið svona syfjaður, hefði hann t.d. getað tekið upp á því að pakka niður litasjónvarpinu hennar og hafa það með sér á brott og hefði maðurinn verið verulega burð- ugur, hefði hann kannski getað tekið stereogræjurnar undir hina hendina. Kannski hefði eyðileggingarfýsn getað gripið manninn og konugreyið hefði þá e.t.v. komið að íbúðinni sinni í rúst. Allt þetta og ýmislegt fleira heíði getað gerst og konan hefði svo sem engu getað kennt um nenta sjálfri sér, fyrst hún var að skilja íbúðina eftir ólæsta. Þar fyrir utan fæ ég ekki með nokkru móti skilið hvað konan hafði við það að athuga að finna mann í rúminu sínu Hraut í rúmi húsfreyjunnar ■ Konu nokkurri sem býr í Vcsturbænum í Reykjavík brá iliilega þegar hún kom heim í íbúð sína eftir að hafa verid á skemmtlstað aðfara- nótt laugardagsins síðasta, því úr svefnherberginu, sem hefði átt að vera autt, heyrð- ust mildar hrotur. Þegar konan kannaði mál- ið kom í Ijós að bláókunnug- ur maður hafði lagst til hvíld- ar í rúmi konunnar. Konan hringdi á lögregluna og hún kom að vörmu spori og vakti manninn upp. Gesturinn reyndist þá vera utanbæjar- maður sem sótt hafði á mikill svefn cftir drjúga skemmtun á veitingastöðum höfuðborg- arinnar. Einhverra hluta vegna komst hann inní íbúð konunnar, sem var ólæst, og lagðist þar til svefns. Að sögn lögreglu var til- gangur mannsins ekki annar með innbrotinu en að leggj- ast fyrir til hvíldar. þegar hún kom heim, nema maðurinn hafi verið þeim mun ólögulegri, - eða þá að það hafi farið í taugarnar á henni að hann skyldi vera sofandi! S.T.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.