NT - 09.05.1985, Blaðsíða 22
JOLA
T-60 Áburðardreifarinn
er tæknilega
mjög fullkominn.
kr. 19.980.-
★
★
★
★
★
★
Rúmjnnihald 650 kg. (13 pokar)
Hleðsluhæð aðeins 90 sm.
Er stækkanlegur í 2000 kg. (40 poka)
Hefur fullkominn mulningsbúnað sem
mylur köggla
Einn söluhæsti áburðardreyfarinn síðustu
þrjú árin.
Til afgreiðslu strax
Góð greiðslukjör
SKÚTAHRAUNI 15 - SlMI 91-54933
220 HAFNARFJÖRÐUR
T Fimmtudagur 9. maí 1985 30
íþróttir
Belfastbúar:
Kynnast borginni
í maraþonhlaupi
Walesbúar eru efstir og eiga aðeins einn leik eftir
íslendingar geta sett strik í reikninginn sem fyrr
■ Hin hrjáða borg á írlandi,
Belfast, hefur verið tvískipt
milli katólikka og mótmælenda
lengi og ef fólk úr röðum annars
hópsins vogar sér inn á yfirráða-
svæði hins, getur það verið visst
um að lenda í vandræðum.
Á mánudaginn var þessu þó
ekki þannig farið. Borgin var
opnuð um tíma, eða á meðan
maraþonhlaup borgarinnar fór
fram. Þrjú þúsund hlauparar
fengu tækifæri til að kynnast
borgarhlutum sem þeir hætta
sér ekki inná dags daglega.
Fólk sem hefur búið í borg-
inni alla sína æfi sér suma hluta
hennar í fyrsta sinn í maraþon-
hlaupinu.
Á mánudaginn hlupu nokkrir
úr lögreglu mótmælcnda sem
almennir borgarar í gegnum
hverfi sem IRA hefur mestan
stuðning frá. Þrjú hundruð
hlauparar frá Englandi létu sem
vind um eyru þjóta hótanir
írska þjóðfrelsishersins (INLA)
um að ráðast á enska íþrótta-
menn sem kepptu á Irlandi.
Þetta er einn af örfáum dög-
um ársins sem fólk getur óhrætt
haft samskipti hvort við annaö
án tillits til pólitískra skoðana.
Maraþonhlaup þetta var nú
haldið í fjórða sinn og sigurveg-
ari í karlaflokki varð heima-
maður, drengur að nafni Marty
Deane og setti hann hlaupsmet,
2:15,52 klst. Kvennakeppnina
vann Moira O’Boyle á 2:45,40
klst. sem einnig er hlaupsmet.
Landsliðið Wales í fótbolta. Tekst því loks að komast í úrslitakeppni HM?
Sjöundi riðill undankeppni HM í Evrópu:
Hvaða þjóðir munu
komast til Mexíkó?
um og leikinn Wales-Skotland
sem úrslitaleik um annað sætið
gætu hæglega reynst á ótryggum
grunni byggðar.
Welska landsliðið á harma að
hefna frá síðustu tveimur heims-
meistarakeppnum. Árið 1977
börðust Skotland og Wales um
að komast til Argentínu og það
var einmitt síðasti leikur riðils-
ins, Skotland-Wales, sem réði
úrslitum um það hvor þjóðin
kæmist áfram. Skotar unnu
þann leik 2-0 en Wales sat eftir
með sárt ennið.
Sérstaklega var þelta sárt fyr-
ir Wales af því að margir töldu
að fyrra mark Skota hafi verið
ólöglegt, Joe Jordan hafi hand-
leikið boltann. En dómarinn
dæmdi hendi á welska varnar-
manninn og Skotum vítaspyrnu.
Það var svo íslenska liðið sem
kom í veg fyrir að Wales kæmist
í úrslitakeppnina á Spáni 1982.
Þjóðirnar léku í Wales og það
var síðasti leikur Walesbúa í
riðlinum og þeir þurftu að sigra
til að komast áfram. Eins og
allir íslendingar muna gerðum
við jafntefli 2-2 í sögulegum leik
í Swansea þar sem apagrímur
komu nokkuð við sögu.
Þetta skapaði alvarlega fjár-
hagserfiðleika fyrir welska sam-
bandið. Ef liðið hefði komist í
úrslitin hefði fjárhagnum verið
borgið um ókomna tíð.
Til að kóróna allt hættu Eng-
lendingar og Skotar þátttöku í
bresku meistarakeppninni.
Þetta setti strik í reikning Norð-
ur- íra og Walesbúa því áhorf-
endatekjur landsliðanna snar-
minnkuðu. Englendingar og
Skotar gátu fengið vináttulands-
leiki eins og þeim sýndist við
hvaða þjóð sem var, en það var
ekki eins auðvelt fyrir litlu þjóð-
irnar að fá bestu liðin til að
koma og leika vináttuleiki.
Knattspyrnan í Wales hefur að
auki átt í eilífu stríði við Rugby-
íþróttina. Rugbyið er mun vin-
sælla en knattspyrna og áhorf-
endur því fáir á fótboltaleikjum.
Þegar welska liðið kom frá
Reykjavík í september með tap
á bakinu sagði Alan Evans,
ritari welska knattspyrnusam-
bandsins: „Við höfum þegar
tapað 100.000 sterlingspundum
í ár. Ef ekki gerast kraftaverk
verðum við komnir í stórskuld
eftir eitt ár og gjaldþrota eftir
eitt og hálft. “
Tap gegn Spánverjum mán-
uði seinna virtist vera rothögg-
ið.
Bankastjórar sendu knatt-
spyrnusambandinu viðvörun.
Ef það hefði orðið gjaldþrota,
hefði það ekki getað staðið við
skuldbindingar sínar við UEFA
og FIFA og af því hefði leitt
brottrekstur og bann við þátt-
töku í alþjóðlegum knatt-
spyrnumótum.
En þegar allt virtist vera á
• leið í gröfina, bjargaði vinstri-
fótar þrumuskot frá Ian Rush
framtíð welskrar knattspyrnu.
Sigur á Skotum 1-0, því þetta
þrumuskot reyndist það eina
sem rataði rétta leið í mark.
Walesbúar huga nú að því
hvort þeir ættu að leika leikinn
gegn Skotum í september á litla
vellinum í Wrexham, en þar
hefur liðið ekki tapað leik í
fimm ár, eða á aðalvelli Rugby-
sambandsins, Cardiff Arms
Park. Tekjur af sjónvarpsrétt-
indasölu og full stúka af áhorf-
endum, eða 60.000 manns,
myndu tryggja tilveru welska
knattspyrnusambandsins næstu
fimm árin að minnsta kosti. Að
auki fengju knattspyrnuaðdá-
endur sæta hefnd yfir Rugbyinu.
En það er víst að welska liðið er
ekki árennilegt, með þá Ian
Rush og Mark Hughes í fremstu
víglínu og fyrir aftan sig Evert-
on-leikmennina Kevin Ratcliff,
Pat van den Hauwe og mark-
vörðurinn Neville Southall.
Skotar verða því að ná góðum
leik til að komast til Mexíkó, ef
þeir þá vinna litla ísland.
Sama gildir um Spánverja
gegn íslendingum. Spyrjum að
leikslokum.
Spenna í Póllandi
■ Gífurleg spenna er í pólsku
1. deildinni í knattspyrnu. Þegar
sjö umferðir eru eftir eru fjögur
lið í einum hnapp í efstu sætun-
um og allt getur gerst:
Úrslit um helgina og síðan
staða efstu liðanna:
Varsjá-Radoniak ............... 2-0
Gdansk-Krakow.................. 2-0
Lublin-Szczecin................ 2-0
Katowice-Poznan................ 1-1
Zabrze-Sosnowiec............... 0-0
Wroclaw-Lks Lodz............... 1-3
Walbrzych-Gdynia............... 4-0
Widzew Lodz-Chorzow............ 1-0
Zabrze.......... 23 12 8 3 25 10 32
Widzew Lodz .... 23 12 7 4 28 11 31
Varsjá ......... 23 13 4 6 30 17 30
Poznan ......... 23 10 9 4 24 19 29
Sosnowiec....... 23 9 8 6 30 22 26
■ Tveir mikilvægirsigrarWal-
es í undankeppni HM upp á
síðkastiö hafa ekki aðeins glætt
vonir liðsins um að komast í
úrslitakeppnina í Mexíkó. Þess-
ir sigrar hafa einnig bjargað
welska knattspyrnusambandinu
frá gjaldþroti.
Eftir að við íslendingar unn-
um frækinn sigur á Wales á
Laugardalsvellinum með einu
marki gegn engu í fyrsta leik
riðilsins, tilkynnti welska knatt-
spyrnusambandið að það yrði
gjaldþrota innan 18 mánaða.
En óvæntur 1-0 sigur á Skotum
og síðan stórsigur á Spáni 3-0 í
síðustu viku, gerbreytti dæminu
og þessir sigrar gætu tryggt fjár-
hagslega afkomu knattspyrnu-
sambandsins um ókomin ár.
Wales er nú efst í 7. riðli og á
aðeins einn leik eftir, gegn Skot-
um í september. Spánverjar eru
úti í hinum stóra heimi taldir
sigurstranglegastir í riðlinum,
Sieir eigi létta sigra vísa gegn
slendingum heima og heiman.
Það gæti þó hæglega farið á
annan veg. Skotar eiga einnig
eftir að leika hér heima á Laug-
ardalsvellinum og verða að
vinna til að eiga möguleika er
þeir mæta Wales í september.
Möguleikar íslenska liðsins
eru vissulega fyrir hendi þó það
sé ekki eins sterkt á pappírunum
og spánska liðið og það skoska.
Allar vangaveltur um Spánverja
sem örugga sigurvegara í riðlin-
Þrír íslenskir
- á EM í júdó í Noregi um helgina
■ Evrópumeistaramótið í júdó fer fram í
Hamar í Noregi um næstu helgi, hefst reyndar í
dag. Þrír íslendingar eru meðal þátttakenda,
þeir Bjarni Friðriksson, Kolbeinn Gíslason og
Magnús Hauksson.
Bjarni keppir í -95 kgflokki, Kolbeinn í +95
kg flokki og Magnús í -86 kg flokki.
Þeir Bjarni og Kolbeinn hefja keppni í dag,
en Magnús hvílir sig fram á morgundaginn.
■ Bjarni Friðriksson er vanur að taka á móti
verðlaunum.
Vormót IR
■ ÍR-ingar halda sitt ár-
lega vormót í frjálsum
íþróttum á frjálsíþrótta-
vellinum í Laugardal
þann 16. maí næstkom-
andi. Keppnin hefst kl.
14:00 og verður keppt í
eftirtöldum greinum.
Karlar: lOOm hl., 400m
hl„ 3000ni hl. (Kaldals-
hlaupið), llOm grhl.,
4xl00m boðhl., hástökk,
stangarstökk, spjótkast
og kringlukast.
Konur: 400m hl., 800m
hl„ 4xl00m boðhl., lang-
stökk og kringlukast.
Meyjar: lOOm hl.
Skráningar þurfa að
berast í síðasta lagi föstu-
daginn 10. maí til Jó-
hanns Björgvinssonar,
Unufelli 33, á þar til gerð-
um spjöldum. Þátttöku-
gjald er kr. 100,- á grein
en kr. 200.- fyrir boð-
hlaupssveit.
V-Þýskaland:
■ Einn leikur var háður
í v-þýsku 1. deildinni í
knattspyrnu í fyrrakvöld.
Kaisersíautcrn og Ham-
borg gerðu jafntefli, 1-1.
Getraunir
■ f 35. leikviku Getrauna
komu fram 3 raðir með 11
réttum lcikjum, og var
vinningur fyrir hverja röð
kr. 120.825,- en 10 réttir
voru í 205 röðurn og vinn-
ingur fyrir hverja röð kr.
757.-.