NT - 09.05.1985, Blaðsíða 15

NT - 09.05.1985, Blaðsíða 15
 Fimmtudagur 9. maí 1985 23 Myndí ■ Átakanlegasta bridgesaga ársins 1985, og þó lengra væri leitað, gerðist í borginni Mon- treal í Kanada, þar sem eitt af fjórum stærstu mótum N.Amer- íku, Vanderbiltmótið, var hald- ið fyrir skömmu. Aðalmótið er sveitakeppni, þar sent yfir 100 sveitir taka þátt og -spilaðir eru útsláttarleikir. Ein sveitin var skipuð ástr- ölskum bræðrum, Tom og And- rew Reiner, sem ferðast höfðu frá Sidney til Montreal, 20.000 kílómetra, til að taka þátt í mótinu. Tom hafði áður búið í Montreal en Andrew er gamall landsliðsmaður í Ástralíu. Bræðurnir fengu sér kanadíska sveitarfélaga og settust niður í fyrsta leikinn. Og þegar eitt spil var eftir var sveit bræðranna tveim impum yfir, þetta var síðasta spilið. Vestur 4> K9843 ¥ DG6 ♦ D95 4» 86 Norður * G1076 ¥ 752 ♦ A 4» AD943 N/Enginn Austur ♦ - ¥ A1094 ♦ K10873 4- K1073 Suður * AD52 ¥ K83 ♦ G642 4» G5 Við annað borðið opnaði Andrew í norður á l laufi, austur sagði 1 tígul, suður I spaða, vestur 2 tígla og norður 2 spaða. Austur barðist í 3 tígla og Tom í suður sagði 3 grönd sem voru pössuð út. Vestur spilaði út tígli sem ásinn í borði átti.Síðan kom spaði á drottn- ingu og kóng vesturs og vcstur skipti í hjartadrottningu. Eftir það fór spilið 3 niður og AV fengu 150. Skömmu síðar komu sveitarfé- lagar bræöranna og báru saman. Það kom í Ijós að í þessu spili höfðu þeir fengið 50. Sveitin tapaði því þrem impum á spilinu og leiknum með 1 impa. Spilararnir voru auðvitað gíf- urlega vonsviknir. Bræðurnir rifust um 3ja granda sögnina, því ef AV hefðu fengið að spila 3 tígla, sem vinnast slétt, hefði leikurinn unnist á jöfnu. Kan- adíska parið tilkynnti að það ætlaði að fara út og detta æriega íða. En skömmu seinna hitti And- rew spilarana úr sveitinni sem þeir spiluðu leikinn við og báðir aðilar óskuðu hvorir öðrum til hamingju með sigurinn. Þegar nánar var að gáð, kom í Ijós að við hitt borðið höfðu NS einnig spilað 3 grönd, og farið þrjá niður en sveitarfélagar bræðr- anna höfðu skrifað 50 í staðinn fyrir 150. En nú var of seint að gera nokkuð í því þar sem sveitarfélagarnir voru farnir út að borða og týndir í næturlífinu. Svo bræðurnir gáfu leikinn og hugsuðu margt. En sagan var ekki búin enn. Þegar sveitin hittist daginn eftir koni í Ijós að Kanadamennirnir höfðu tafist í hótelherbergi sínu kvöldið áður og voru því enn á hótelinu þegar upp komst um mistökin! DENNIDÆMALAUSI „...og skjaldbökur baula ekki né gelta, brjóta ekkert og þurfa varla neitt að éta. 4591. Lárétt 1) Svefn. 6) Poka. 7) Eins. 9) Spil. 10) Drepa. 11) Slagur. 12) Úttekið. 13) Tók. 15) Ásökunina. Lóðrétt 1) Jörð. 2) Varðandi. 3) Hola. 4) 550.5) Blómanna. 8) Horfi. 9) Svif. 13) Kemst. 14) Baul. Ráðning á gátu No. 4590 / * » v p :.p» "P EilEEiE /£. Lárétt 1) Frakkar. 6) Frú. 7) Ól. 9) MN. 10) Naumleg. 11) SS. 12) Na. 13) Ein. 15) Afbroti. Lóðrétt 1) Flónska. 2) Af. 3) Krumpir. 4) Kú. 5) Rangali. 8) Las. 9) Men. 13) EB. 14) No.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.