NT - 09.05.1985, Blaðsíða 6

NT - 09.05.1985, Blaðsíða 6
Vettvang u r Haraldur Ólafsson alþingismaður: Stórveldin eru viðsjárverðir vinir smárra ríkja En hvenær eru friðartímar? Hug- takið er teygjanlegt í allar áttir, ekki síst þegar haft er í huga að risaveldin tvö telja sér bæði rétt og skylt að láta sig varða hvers konar átök hvarvetna á hnettinum ■ Eftirfarandi er að mestu byggt á ræðu sem haldin var vegna skýrslu um utanríkismál er hún var til umræðu á Alþingi fyrir skemmstu. Sá kafli sem hér birtist fjallar um varnar- og öryggismál íslands, sem verið hafa ofarlega á baugi undan- farið vegna hugsanlegra bygg- inga ratstjárstöðva á Vest- fjörðum og á Norðausturlandi. En ég held að það mál sem kannske meira rými er varið til í þessari skýrslu heldur en nokkru sinni áður sé það sem nú í framtíðinni er hvað mikil- vægast fyrir íslendinga. Þar á ég við varnar- og öryggismál landsins. Það hefur að undan- förnu farið fram allmikil um- ræða um þau mál og nú síðast í dag var fjallað um hugsanleg- ar ratsjárstöðvar. Þaðerflókn- ara mál en svo að ég hafi talið rétt að afgreiða það með þings- ályktun einni, enda treysti ég mér ekki til þess. Ég taldi að það mál ætti að vera í höndum ríkisstj. En á það var lögð mikil áhersla að fá það til atkvæða, sem ég tel að hafi verið miður. Reiptog um „sterka reiti“ Lega landsins veldur því að það er eftirsóknarvert fyrir herveldi í reiptogi um „sterka reiti" eins og það er kallað í skákinni. ísland hlaut reyndar að lenda í hópi vestrænna þjóða. Það var eðlilegur hlutur, bæði út frá stöðu landsins, menningu þess, stjórnarfari og beinum við- skiptatengslum. Þar með var ekki sagt, að hér þyrfti að vera herstöð. Og við inngönguna í Atlantshafsbandalagið var ekki gert ráð fyrir herstöð hér á landi. En það liðu ekki nema tvö ár frá því að samningurinn var gerðurog þar til hingað var fluttur her og þá vegna styrj- aldar í Asíu austanverðri. Það var trú margra, að þetta væri einungis bráðabirgðaástand meðan gerðar væru upp sakirn- ar í Kóreu, en brátt kom í ljós að ekki var tjaldað til einnar nætur. Kalda stríðið var hafið fyrir alvöru og ísland orðinn hlekkur í herstöðvakeðju, sem teygði sig vítt um hnöttinn. í fyrstu var reynt að einangra herstöðina eftir megni, en í Ijós kom að áhrif hennar, efna- hagsleg og menningarleg, voru meiri en þjóðinni var hollt. Smátt og smátt var ljóst að enginn gat gert sér grein fyrir því við hvaða aðstæður her- stöðin hér yrði lögð niður. Kveðið var svo á, að hér skyldi ekki vera her á friðartímum. En hvenær eru friðartímar? Hugtakið er teygjanlegt í allar áttir, ekki síst þegar haft er í huga að risaveldin tvö telja sér bæði rétt og skylt að láta sig varða. hvers konar átök hvar- vetna á hnettinum. Ríki á engan vin Enginn veit betur en smá- þjóð að ríki á engan vin. Fyrir síðustu heimsstyrjöld og í kjölfar hennar kom upp sú hugmynd, að það væri fslend- ingum mjög í hag að tengjast Bandaríkjunum, jafnvel ekki síðuren Evrópu. Fyrirhagstæð viðskipti í Bandaríkjunum væri einfalt að bjóða hér land undir herstöð. Flestir held ég að hafi áttað sig á því að slík verslun væri ekki sæmandi neinni þjóð. Einhvern veginn hefur því samt verið komið inn hjá íslendingum, að þeir verði á sinn hátt að þakka herveld- inu. Þeim beri skylda til að leggja sitt af mörkum til vernd- ar hinum vestræna lýðræðis- heimi. Menn gleyma því að með því einu að hafa herstöð og eftirlitsstöðvar hér á landi leggja íslendingar ærið til varna bandalagsins. ísland er mjög mikilvægt fyrir Banda- ríkin og Atlantshafsbandalag- ið. Það er óbeint liður í vörn- um Norður-Ameríku og N- Atlantshafs. Stöð þar á fyrst og fremst að fylgjast með kaf- báta- og herskipaflota Sovét- ríkjanna og flugi flugvéla þeirra í grennd við landið. Tvær AWACS-vélar sem bækistöðvar hafa á Keflavík- urflugvelli fylgjast með flugi á Norðaustur-Atlantshafi. Margar framkvæmdir í gangi i senn í skýrslu utanríkisráðherra er nú í fyrsta sinn getið um mikilvægi SORSUS-kerfisins. Þetta hlustunarkerfi hefur nú verið tengt eftirlitsstöð hér í tvo áratugi. En hvað er SORS- US-kerfið? Það er mörg hundruð og jafnvel þúsundir hljóðnema, sem tengdir eru með köplum sem liggja í eftir- litsstöð á landi. Upplýsingar þaðan fara svo til flugvéla, herskipa og kafbáta. Þá eru hér 9 Orion P3C kafbátaleitar- vélar sem geta flutt kjarnorku- vopn. Þær annast eftirlit sitt með því að fleygja hlustunar- duflum og fylgjast þannig með kafbátaferðum. En þetta er búið að vera núna óbreytt um 20 ára skeið. Sú spurning hefur vaknað nú að undanförnu hvort eðli herstöðvarinnar sé að breytast. Og það sem hefur vakið þær spurningar er hve miklar framkvæmdir fara fram nú á tiltölulega skömmum tíma. Þar er um að ræða bæði fjölgun flugvéla, ekki aðeins að skipt er um orrustuvélar heldur er þeim fjölgað um 50%. Það hefur verið rætt um að byggja nýja stjórnstöð. Það eru endurbyggðar ratstjár- stöðvar, það er aukið verulega birgðarými fyrir eldsneyti í Helguvík. Þar er einnig unnið að hafnargerð. Það má segja að hvert þessara atriða út af fyrir sig er kannske ekki mikið og ég býst við því, að afstaða íslendinga til ratsjárstöðv- anna, hugsanlegra ratsjár- stöðva á Vestfjörðum og Norð- austurlandi væru aðrar, ef þessar framkvæmdir væru ekki allar í gangi í senn. Það hlýtur að vera íhugunarefni hvers vegna þetta gerist allt svona í einu. Og það sem kannske fyrst og fremst er þó íhugunar- efni er það, að nú er ekki lengur verið að leyna því að þessi stöð er engin bráða- birgðastöð. Það er ekki lengur sú hugmynd uppi að þessi stöð verði lögð niður. Ég held að þetta sé kannski eitt alvarleg- asta umhugsunarefnið um þessar mundir. Virðingarleysi í vetur komu fram upplýs- ingar um að áætlun hafi verið til um að flytja skyldi kjamorku- vopn til íslands, á hættutím- um. Þar væri um að ræða djúpsprengjur, B-57, sem hafa 10 kílótonna sprengjukraft, er jafngildir 10 þús. tonnum af TNT, en slík sprengja er að- eins kraftminni heldur en sprengjan sem varpað var á Hiroshima 6. ágúst 1945. Þess- um sprengjum skyldi varpað úr Orionvélunum til að eyði- leggja kafbáta eða þá hugsan- lega til að hindra ferðir þeirra Fimmtudagur 9. maí 1985 6 um sund. Ástæða er til að spyrja hvort áætlun þessi sé ekki í gildi eða hvort nýjar áætlanir liggi nú fyrir og þá hvort í þeim sé gert ráð fyrir flutningi kjarnorkuvopna til íslands. Ríkisstjórn íslandsvar ekki sagt frá þeirri áætlun um þessi efni. Slíkt virðingarleysi, sem jaðrar við fyrirlitningu, hlýtur að skapa tortryggni, og auðveldar ekki samninga, ætti a.m.k. ekki að auðvelda samn- inga um aukin hernaðarumsvif og framkvæmdir á vegum Atl- antshafsbandalagsins hér á Iandi. Það vekur undrun mína að þegar í Ijós kemur hve lítinn trúnað Bandaríkjastjórn sýnir ríkisstjórnum íslands, skuli vera léð máls á mikilli upp- byggingu og endurnýjun her- búnaðar, fjölgun flugvéla o.s.frv. á sama eða svipuðum tíma og slíkar upplýsingar koma fram. Ég tel, að ríkis- stjórn íslands beri skylda til og hafi rétt á að vita um allar áætlanir varðandi ísland svo að hægt sé að meta á hverjum tíma hvernig bregðast skuli við hugsanlegum beiðnum Banda- ríkjastjórnar eða Atlantshafs- bandalagsins um t.d. flutning kjarnorkuvopna til landsins. Þótt það sé stefna allra ís- lenskra ríkisstjórna til þessa að hér skuli ekki vera kjarn- orkuvopn er ekki hægt að for- taka að sú staða komi upp, að um þau verði beðið. Ótti og óvissa Ég er þeirrar skoðunar að Alþingi ætti að samþykkja að hér skuli aldrei leyfð kjarna- vopn af neinu tagi. Ef hins vegar kæmi fram beiðni um að hingað skuli flutt kjarnavopn, þá væri það Alþingis að taka afstöðu til þess á grundvelli upplýsinga sem ríkisstjórn ís- lands vissi um og þekkti. Krafa okkar íslendinga hlýtur að vera sú að vita ætíð um þær áætlanir sem g§rðar eru varð- andi landið. Smáþjóð þarf margs að gæta í ótryggum heimi en þó einskis fremur en láta ekki ótta óvissunnar ná tökum á sér. Okkur hættir dálítið til að sjá óvini og árásir í öllum áttum. Gæsla ber merki styrj- aldar sagði Montaigne, en ör- yggi þarf ekki að aukast þó að gæslan sé aukin, kannske þvert á móti. Mín skoðun er sú, að við eigum að vera áfram í Atlantshafsbandaiaginu, eins og Danir og Norðmenn. Við höfum lýst yfir samstöðu okkar með lýðræðisþjóðum í norður- álfu heims. Én stórveldin eru viðsjárverðir vinir smárra ríkja. Sjálfstæði okkár tryggj- um við aðeins með því að sýna reisn gagnvart nágrönnum okkar og meta sjálfir hve langt á að hleypa vinaþjóðum inn í land okkar. Förum að með allri gát en gleymum því ekki að mikilvægi landsins gefur okkur tækifæri til þess að setja skilyrði. Ég tel mjög mikil- vægt, að hér sé ekkert gert til þess að raska jafnvægi á norðurslóðum. Ég held, að einmitt veruleg uppbygging hér geti skapað þá hugmynd að hér sé verið að byggja einhvers konar Gíbraltar. Þess vegna vil ég vara við allri Sú spurning hefur vaknað nú að undanförnu hvort eðli herstöðvar- innar sé að breytast. Og það sem hefur vakið þær spurningar er hve miklar framkvæmdir fara nú fram á tiltölulega skömmum tíma Eystra horn um f lótt- ann frá raunveruleikanum ■ í Eystra horni, úrvalsblaði sem gefið er út á Höfn í Hornafirði, er yndælis leiðara- hugvekja eftir Einar Georg Einarsson og í andleysinu tök- um við okkur það bessaleyfi að stela henni í Tfma og ótíma lesendumNT til andlegs fóður- auka: Flóttinn frá raunveruleikanum „Til er bókarkom sem heitir Flóttinn frá raunveruleikan- um. Kver þetta fjallar um skip- brotið sem þeir bíða er gefa sig eiturlyfjum á vald. Alltof margir velja þann kostinn að milda napra framtíðarsýn með vímuefnum. Þeir verða séy úti um stundarfró en langa þján- ingu. Enda þótt ofangreint sé dæmi um flótta sem á sér enga hliðstæðu virðist flóttinn í ein- hverri mynd vera eitt af megin- einkennum okkar tíma. Allir eru að flýja eitthvað annað hvort sinn innri mann ellegar ytri aðstæður. Það sem á fínu máli heitir framþróun reynist oft þegar grannt er skoðað vera undansláttur. \ Eins og blómaker í garði standa gulir gámar úti fyrir fjölda húsa á landsbyggðinni. Þeir verða settir um borð í Ríkisskip og fluttir suður með búslóð innan í sér. Fólkið er að flýja ytri aðstæður. Það er búið að vinna hörðum höndum til sjávar og sveita en aflaféð rennur allt til Reykjavíkur og þar er þenslan. í hinum dreifðu byggðum ríkir stöðnun. Ráðsmenn þjóðarbúsins tala um nýsköpun atvinnuveganna. Allt það snakk er mjög óljóst og nánast í véfréttastíl. Á hljóðri stund vaknar sá grunur að menn séu bara að flýja vandann. Það hefur nefnilega ekkert markvert verið gert í atvinnuuppbyggingu hérlendis síðan hresst var upp á frysti- húsin og skuttogararnir keypt- ir. Þá var líka gaman að lifa. Enn sem fyrr veltur framtíð þessarar þjóðar á gömlu undir- stöðuatvinnuvegunum og skyldum greinum. Að þeim skal hlynnt. Það er ekkert lítill flótti frá raunveruleikanum að beina gjörvallri þjóðinni út í umræð- ur um bjórsölu, hundahald, sólarlandaferðir og frjálsa fjöl- miðlun meðan laun alls þorra manna eru slík að þau hrökkva ekki fyrir brýnustu lífsnauð- synjum. Það verður enginn smáræðis undansláttur fyrir þjóð, sem lagt hefur metnað sinn í að varðveita tungu og bókmenntaarf, þegar hver og einn getur farið að reka út- varpsstöðvar sem byggja á er- lendri poppfroðu, auglýsing- um og þágufallssjúkum plötu- snúðum. Nú í kringum baráttudag verkalýðsins er öllum ljóst að íslensk verkalýðsforysta er löngu flúin af hólmi. I þeim herbúðum hreykir sér hver gullhúfan upp af annarri fáum til gagns og blessunar. Forystu- sauðirnir eru fullgildir með- limir í því samtryggingarkerfi sem gerir ríka ríkari og fátæka fátækari. Hér á dögunum upp- lýsti einn ágætu^ reykvískur kaupsýslumaður að fátæktin væri ýmsum sannköiluð nautn. Þessi speki hlýtur að vera gott innlegg í réttindabaráttuna. Þegar þeir sem hæst tróna ráða ekki neitt við neitt er alveg kjörið að flýja með alla alþýðu út á markaðstorg hé- ■gómans. Frelsi hins sterka, brauð og leikar er hollt vega- nesti fátækum lýð. Þetta gafst illa í Rómaveldi en gæti gefist betur hér.“ Við þe tta þarf engu að bæta. Baldur Kristjánsson.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.