NT - 09.05.1985, Side 13

NT - 09.05.1985, Side 13
Fimmtudagur 9. maí 1985 21 7*1, jiVinj - ■ ■ ■■' ■■;■■ ■■■' Hvernig fer ef einn dettur, fara þá ekki margar dráttartaugar í flækju? í kringum Robert Wagner ■ Loksins virðist Robert Wagner og fjölskylda hans vera farin að taka gleði sína á ný, en það var mikið áfall fyrir Wagner sjálfan, dætur og vini og ættingja, þegar hin fagra eiginkona hans, Natalie Wood leikkona, drukknaði af lystisnekkju þeirra hjóna. Auðvitað var fljótt farið að orða Wagner við þær leikkonur, sem hann lék með í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, en þar var að sögn aðeins um venjulegan vinskap starfsfélaga að ræða, því að allir sem til þekktu vildu reyna að hjálpa til við að hugga dæturnar ungu. Tryggust vinanna allra var þó leikkonan Jill St. John, sem allan tímann, frá því slysið varð, hefur verið stoð og stytta fjölskyldunnar. Nú er svo komið, að Robert og Jill St. John hafa látið það heyrast að þau hyggist ganga í hjónaband, og er svo komið að það gleður alla viðkomandi, jafnt dæturnar sem fyrrverandi tengdamömmu Wagners, móður Natalie. f fyrstu urðu dætur Roberts mótfallnar því, að pabbi þeirra tæki saman við aðra konu, en nú sjá þær að það yrði allri fjölskyldunni til góðs að samband hans og Jill gæti haldist. Því segir Wagner nú ánægður: „Allar fallegu konurnar mínar eru orðnar vinkonur“. ■ Robert Wagner og fallegu konurnar hans: Aftast stendur dóttirin Kate, 20 ára, en við hlið hennar er Jill St. John. í fremstu röð er svo Natasha sem er 14 ára, þá kemur amma systranna, (móðir Natalie), og svo yngsta dóttirin, Courtney, 10 ára. ■ Natalie Wood og Robert Wagner voru tvisvar sinnum gift. Þau skildu um tíma - og giftu sig þá öðrum maka - en tóku síðan saman aftur. Natalie þótti með fegurstu konum heims, og hún var orðin kvikmyndastjarna aðeins barn að aldri. Hún var ein af þeim fáu barnastjörnum, sem héldu frægð sinni áfram á fullorðinsárum. Að því og ýmsu öðru leyti þótti henni líkja til Elizabeth Taylor: Þær urðu báðar frægar kvikmyndastjörnur á barnsaldri og héldu fegurð sinni og frægð, uppkomnar - og þær giftust báðar tvisvar sinnum manninum sem þær elskuðu. >• > • HEIMSMET: Með 80 í taumi! ■ í Queensland í Ástralíu met var sett - með 80 manns gerðu menn sér það til gamans aftan í einum kraftmiklum að reyna við heimsmet í hversu báti. Þetta varð mjögskemmti- margt sjóskíðafólk gæti með leg og falleg sýning sem vakti góðu móti verið aftan í einum mikla athygli, enda var hún báti. notuð í auglýsingu til að efla ferðamannastraum til Ástral- Niðurstaðan var, að heims- íu.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.