NT

Ulloq

NT - 09.05.1985, Qupperneq 20

NT - 09.05.1985, Qupperneq 20
w Fimmtudagur 9. maí 1985 28 Útlönd Hollar sígarettur? ■ Kínverjar halda því fram aö þeim hafi tekist aö framleiða sígarettur sem séu því sem næst skaðlausar og jafnvel hollar. Peir segja að það hafi tekið tíu ára þrotlaust rannsóknar- og tilraunastarf að finna hvernig ætti að búa til þessar sígarettur sem hafi góð áhrif á öndunar- færin. Kínverksu heilsusígaretturn- ar hafa nú verið boðnar til sölu erlendis á iðnaðar- og tækjasýn- ingunni sem stendur yfir í Tsuk- Logarí eitur- lyfjum í Perú l.ima-Keuter ■ Lögreglan í Perú efndi til mikillar lyfja- brennu fyrr í þessari viku. 1,5 tonnum af ým- iss konar eiturlyfjum var hlaðiö í köst og eldur borinn að. Hvítan fíkniefna- mökk lagði yfir sveitina fyrir austan höfuðborg- ina Lima. Öryggismála- ráðherra Perú, Oscar Brush er sagður hafa fylgst vel með brun-, anum þar til ekkert nema aska var eftir af eiturefnunum. Petta er mesta fíkni- efnabrenna í Perú það sem af er árinu. 1 bál- kestinum var m.a. að finna 562 kíló af maríjú- ana, rúmlega fjörutíu kíló af ópíum auk mikils magns af kókaínkremi. Talið er að næstum því helmingur af öllu kókaíni í heiminum sé upprunnið í Perú. Lög- regluyfirvöld þar í landi halda venjulega fíkni- efnabrennu einu sinni í hverjum mánuði. uba í Japan. Þar hafa þær vakið gífurlega athygli og hafa mörg af stærstu blöðum í Japan skrif- að langar greinar um þessar undrasígarettur. Sígaretturnar eru seldar undir kínversku vörumerkjunum Jinjian, Changle, Huanqiu og Zhongnanhai. Síðastnefndu sígaretturnar bera nafn sitt af lystigarði í miðborg Peking þar sem Mao Zedong bjó og margar af stjórnarbyggingum Kínverja eru. Sagt er að kínverskir leiðtogar reyki þessar sígarettur margir hverjir sér til heilsubót- Kínversk tóbaksfyrirtæki búa til heilsusígaretturnar með því að blanda ýmsum lækningagrös- um saman við tóbak. Talsmenn þessara fyrirtækja halda því fram að þeim hafi tekist að útbúa grasablöndu sem hafi læknandi áhrif á öndunarfærin þegar hún sé reykt og sé til dæmis góð við barkabólgu. Að minnsta kosti fimm stórir tóbaksframleiðendur í Kína framleiða nú heilsusígarettur. Peking sígarettuverksmiðjan er samt langstærsti framleiðandi þeirra og eru nú um 40% af framleiðslugetu hennar notuð til framleiðslu á heilsusígarett- um. Forystumenn verksmiðj- unnar segjast fullvissir um ágæti framleiðslu sinnar. Tilraunir í rannsóknarstofum hafi sýnt 94- 95% árangur af notkun heilsu- sígaretta í lækningarskyni. En ekki er samt vitað hvort læknar og vísindamenn í öðrum lönd- um hafi gert neinar rannsóknir enn sem komið sé sem styðji þessar fullyrðingar Kínverja. Kínverskir tóbaksfram- leiðendur hafa mikla trú á framtíð heilsusígarettanna. Peking-sígaretturverksmiðjan hefur þegar keypt mikið af nýj- um tækjum sem hún mun nota til að auka og bæta framleið- sluna með útflutning fyrri aug- ■ Forstjóri Peking-sígarettuverksmiðjanna, Liu Jinyu (lengst til hægri) fyrir utan sígarettuverslun Kínverja á tæknisýningunni í Tsukuba í Japan. Hcilsusígaretturnar frá fyrirtæki hans renn a út eins og heitar lummur. Fyrrverandi yfirmaður Spandau-fangelsisins: Vill Hess lausan London-Reuler. ■ Fjöldi fólks í Nuuk á Grænlandi fylkti liði til stuðnings kvennahreyfingunni sem vill fá nýtt hús fyrir kvennaathvarfið í bænum. Grænland: ■ Fyrrverandi yfirmaður Spandau-fengelsisins hefur hvatt til þess að nasistinn og stríðsglæpamaðurinn Rudolf Hess verði látinn laus í því skyni að græða stríðssár Þýskalands. Bandaríski ofurstinn, Hugene Bird sem var yfir- maður Spandau-fangelsisins frá 1964-1972 lét þessa ósk sína í ljósi í tilefni 40 ára afmælis sigurs bandamanna í Evrópu í heimsstyrjöldinni síðari. „Sár þýsku þjóðarinnar verða að fá að gróa og það er kominn tími til að hún snúi baki við þessu tímabili í mannkynssögunni ekki til að gleyma því en hún má heldur Nýtt kvennaathvarf nauðsynlegt í Nuuk _ Fjöldi kvenna og ýmis fél- agasamtök fylktu liði í tilefni tveggja ára afmælis kvennaat- hvarfsins í Nuuk á Grænlandi og kröfðust nýs húsnæðis. kröfugangan nam staðar við Vestra fangelsið sem kvenna- hreyfingin vill fá undir athvarfið og voru haldnar þar ræður mál- inu til stuðnings og sungið til skemmtunar. Kvennahreyfingin segir að húsið sem hingað til hefur þjón- að sem kvennaathvarf og ráð- gjafarmiðstöð sé of lítið og auk þess heilsuspillandi. Hið góða starf sem nú er unnið geti orðið enn betra að því tilskyldu að flutt verði í stærra og betra hús. Kvennahreyfingin hefur aug- astað á Vestra fangelsinu sem kvennaathvarfi en hyggur ein- nig á samstarf við fleiri félög umfundarstað og félagsheimili í húsinu. Vestra fangelsið er í miðbæ Nuuk og er bæjarstjórinn lítt hrifinn af hugmyndum kvenn- anna. Hann segir að húsið sé illa farið og þurfi mikilla lagfæringa við sent muni reynast of dýrar. Samkvæmt nýju skipulagi um miðbæ Nuuk má rífa húsið hve- nær sem er. Leigusamningur kvenna- hreyfingarinnar og Nuuk-bæjar um það hús sem nú þjónar sem kvennaathvarf átti að renna út 1. júlí næstkomandi en í kjölfar ofangreindrar kröfugöngu hefur hann nú verið framlengdur um hálft ár. En eftir 1. janúar næstkomandi geta konurnar átt von á því að verða reknar út með mánaðar fyrirvara. ekki festast í því,“ sagði Bird á fundi með frétta- mönnum. „Þjóðverjar geta ekki snú- ið baki við þessu tímabili á meðan Hess er í fangelsi og ef hann deyr þar verður hann hetja í augum ný- nasista," sagði hann enn- fremur. Rudolph Hess, sem nú er 91 árs, hefur eytt 44 árum í fangelsi, lengst af í einangr- un íSpandau. Sonur hans, Wolf, var á sama máli og Bird, og sagði hann að ef Hess dæi í fangelsi yrði hann „píslarvottur í augum öfgamanna“. Hann hélt því fram að Rússar myndu aldrei fallast á að föður hans yrði sleppt úr haldi og yrði það því að gerast án samþykkis Sovét- manna. Wolf Hess er nú staddur í London ásamt Bird til þess að horfa á nýja kvikmynd sem fjallar um það er mála- liðar bjarga Rudolph Hess úr Sandau fangelsinu. Og það er enginn annar en Sir Laurence Olivier sem fer með hlutverk stríðsglæpa- mannsins. Blaðburðarfólk vantar í eftirtalin hverfi: Aðalgrandi, Boðagrandi, Flyðrugrandi, Keilugrandi, Rekagrandi, Austurbrún, Dyngjuvogur, Dragavegur, Kambsvegur, Norðurbrún, Kleppsvegur, Skeiðarvogur, Karfavogur, Snekkjuvogur, Ferjuvogur. Einnig vantar blaðbera á biðlista. , J; l I I i IMTfMVnr' ' ' ■ • i»' * Síðumúli 15. Sími 686300 Israel: Handtekinn fyrir galdra ■ Lögreglan í Tel Aviv hand- tók nýlega konu nokkra sem grunuð var um galdra og fjársvik. Kvartanir manns nokkurs sem þjáist af geðrænum truflun- um og fór að ráði vinar síns til konunnar í leit að lækningu urðu til þess að vekja athygli lögreglunnar á galdrakonunni. Maðurinn sagði að konan, sem er46 ára gömul, hefði gefið sér töframixtúru, sem virkaði reyndar ekki, og framkvæmt ýmsar serimóníur í lækningar- skyni, m.a. slátraði hún svörtum hanaunga í því skyni að ráða bót á meinum mannsins. Hann sagðist hafa greitt henni umtals- verða fjárupphæð fyrir greið- ann. Menn úr fjársvikadeild lög- reglunnar héldu svo til heimilis konunnar í síðustu viku í kjölfar kvartana mannsins og fleiri að- ila sem leitað höfðu til konunn- ar. Foringi lögregluliðsins þóttist vera mögulegur viðskiptavinur sagðist þjást af þunglyndi og fá alvarleg köst. Hinir lögreglu- mennirnir þóttust vera fjöl- skylda hans. Skýrðu þeir hinni grunuðu frá því að sjúklingur- inn hefði leitað til margra lækna, en án árangurs. Konan skoðaði manninn og sagðist strax greina sjúkdóm lians. Hún sagði að sál hans væri á valdi ýmissa djöfla og að hún gæti rekið þá út, væri lienni greitt nógu vel fyrir það. Hún mælti með öruggu læknisráði, sem lögreglan telur að hún hafi gefið öllum sjúkling- um sínum og sagði þeim að kaupa svartan hanaunga og sjóða hjarta hans. Síðan sagðist hún ætla að láta þá fá sérstakan ~ pergamentsbút til að hengja fyr- ir ofan dyrnar að heimili sjúk- lingsins og ýmsa töfragripi og jurtir til að fullkomna læknis- meðferðina. Síðan krafðist konan greiðslu bæði í dollurum og ísraelskum gjaldmiðli en þegar svo var komið gerðu lögreglumennirnir grein fyrir sér. Konan afneitaði ekki athöfn- um sínum heldur sagði hún að í raun og veru hefði hún afl til að lækna sjúka. Ólga í brasílískum fangelsum: Fangarnir barðir til bana í mótmælaskyni Rio dc Janeiro-Reutcr. ■ Fangar í brasilísku fangelsi börðu tvo klefafélaga sína til bana í gær í mótmælaskyni við slæmar aðstæður í fangelsinu, en fangarnir drógu um það hver skyldi deyja. Fangar í tveimur klefum ákváðu að einn úr hvorum klefa skyldi láta lífið í þeim tilgangi að vekja athygli á slæmum að- búnaði þeirra. Nöfnin voru skráð á miða sem dregnir voru upp úr hatti en síðan var sparkað og kýlt í fangana tvo sem töpuðu, uns þeir lágu dauðir í valnum. Þeir voru báðir á þrítugsaldri. Lögreglan óttast að svipuð morð kunni að verða framin meðal hinna 64 fanga sem geymdir eru í níu litlum klefum í þessu brasilíska fangelsi í Min- as Gerais fylki. Á undanförnum tveimur inánuðum hafa 13 fangar látið lífið í mótmælum gegn slæmum aðbúnaði í ríkisfangelsunum í Minas Gerais. í nágrannafylkinu Sao Paulo létu níu fangar lífið í uppreisn í yfirfullu fangelsi nótt eina í marsmánuði síðast liðnum.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.