NT - 25.06.1985, Blaðsíða 14

NT - 25.06.1985, Blaðsíða 14
Þriðjudagur 25. júní 1985 14 Sjónvarp kl. 22.05: Umræðuþáttur ungs fólks um ungt fólk ■ Jack Hedley fer með hlutverk Kretans sem kemur aftur til Krítar mörgum árum eftir stríðslok. Gríska leikkonan Betty Arvaniti leikur Anniku Zeferis. Sjónvarp kl. 21.15: Nýr f ramhaldsmyndaf lokkur: Hver greiðir ferjutollinn? ■ Ungt fólk hefuroröiðnefn- ist umræðuþáttur ungs fólks um ungt fólk í sjónvarpi í kvöld, sem hefst kl. 22.05. Þátttakendur eru allir á fram- haldsskólaaldri og sama er að segja um stjórnandann, Krist- ján Þórð Hrafnsson. „Umræðuefni þáttarins eru m.a. kosningarétturinn, at- vinnulífið, framhaldsskólarnir ng hvað það er helst sem mótar lífsskoðanirunglinga, hvaðséu mestir áhrifavaldar í þeim efnum," segir Kristján Þórður. Þátttakendur eru Jónas Fr. Jónsson og Hrafn Jökulsson úr Reykjavík, Bjarnheiður Halls- dóttir frá Akranesi og Sigríður Jóhannsdóttir úr Kópavogi. Þátturinn er 50 mínútna langur og í beinni útsendingu. ■ í kvöld kl. 21.15 hefst nýr framhaldsmyndaflokkur í sjónvarpinu og kemur hann í stað Varða laganna. Flokkur- inn er breskur, í átta þáttum, og heitir Hver greiðir ferjutoll- inn? Vísar nafnið til grísku goðsagnarinnar um ferju- manninn Karon, sem ferjar látið fólk yfir ána Styx til undirheima gegn gjaldi. Þetta er rómantískur spennu-myndaflokkur og segir þar frá Bretanum Alan Hald- ane, sem heldur á vit fortíðar- innar á Krít. Þar hafði hann dvalist á stríðsárunum og tekið þátt í störfum grísku and- spyrnuhreyfingarinnar á staðnum. Þar gat hann sér svo gott orð, að margir Krítverjar minnast hans enn sem Leand- ros. Hann varð ástfanginn af 18 ára gamalli þarlendri stúlku, sem líka starfaði í andspyrnu- hreyfingunni, Melina Matakis, og þegar hann yfirgaf eyna eftir að hún losnaði undan yfirráðum Þjóðverja, átti hún von á barni hans, án þess að Alan hefði vitneskju þar um. Heimkominn skrifaði Alan hvert bréfið á fætur öðru til Melinu en fékk aldrei neitt svar. Hann stóð því í þeirri meiningu að hún væri orðin afhuga honum. Þegar hann kemur aftur til Krítar mörgum árum síðar kemst hann að raun um að hún hafði aldrei fengið bréfin hans. Melina er nú dáin, en móðir hennar er enn á lífi. Alan kemst fljótt að raun um að fortíðin lifir enn góðu lífi í hugum fólks og hann á ekki vináttu allra. Með aðalhlutverk fara Jack Hedley og gríska leikkonan Betty Arvaniti. Þýðandi er Jón O. Edwald. María Markan áttræð Leiknar upptökur söngkonunnar ■ María Markan, einhver ástsælasta söngkona okkar ís- lendinga fyrr og síðar og sem borið hefur hróður íslands hvað víðast í söngmennt á erlendri grund, er áttræð í dag. í tilefni dagsins hefur Trausti Jónsson umsjón með þætti í útvarpinu í kvöld kl. 21.15, sem kallast einfaldlega María Markan - afmæliskveðja. „Ég ætla að gera grein fyrir og leika upptökur með Maríu Markan í þættinum, bæði þeim sem hafa verið gefnar út og eins upptökum sem eru til í útvarpinu,“ segir Trausti. Margar þessara upptaka hafa verið endurútgefnar, en aðrar ekki og sum þeirra laga hafa ekki heyrst lengi í útvarp- inu. Plötur með söng Maríu munu nú vera ófáanlegar. ■ María Markan er áttræð í dag. Söngur hennar mun hljóma í útvarpinu í kvöld. ■ Kristján Þórður Hrafnsson stýrir umræðuþætti ungs fólks. Hann er sjálfur á sama aldri og aðrir þátttakendur, þ.e. á framhaldsskólaaldri. NT-mynd Svtrrir lltvarp kl.22.35: HvernhittirAlex fyrir úti í skógi? ■ í kvöld kl. 22.35 verður endurfluttur í útvarpi fjórði þáttur danska framhaldsleik- ritsins Raddir sem drepa eftir Poul-Henrik Trampe. Þýðing- una gerði Heimir Pálsson en Haukur J. Gunnarsson er leik- stjóri. Hljóðlist er eftir Lárus H. Grímsson. í 3. þætti gerðist þetta helst: Frú Hansson, ráðskona sendi- herrans, hringir í Alex yfir- komin af hræðslu eftir að hafa heyrt raddirnar. Skömmu síð- ar finnst hún látin. Holm lög- reglufulltrúi leggurekki trúnað á neitt yfirnáttúrulegt og skilur ekki þátt Alex í málinu. Um miðja nótt fær Alex upphring- ingu þar sem hann er boðaður á fund lögreglunnar úti í skógi. Leikendur í 4. þætti eru: Jóhann Sigurðarson, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Erl- ingur Gíslason, Ragnheiður Tryggvadóttir, Rúrik Haralds- son, Þóra Friðriksdóttir, Jón Hjartarson og Kjuregej Alex- andra. Tæknimenn eru Friðrik Stefánsson og Runólfur Þor- láksson. ■ Jóhann Sigurðarson fer ineð hlutverk Alex og Anna Kristín Arngrímsdóttir leikur umboðsmann hans. Það er hins vegar Erlingur Gíslason sem túlkar Holm lögreglufull- trúa og nú er það spurningin hvort það var hann sjálfur sem stefndi Alex til fundar við sig úti í skógi um miðja nótt! NT-mynd: Ární lljurna ■ > Þriðjudagur 25.júní 07.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Morgunútvarpið. 7.20 Leikfimi. Tilkynningar. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Valdimars Gunnars- sonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð Hróbjartur Árnason talar. 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barnanna: „Litli bróðir og Kalli á þakinu“ eftir Astrid Lindgren. Sigurður Benedikt Björnsson les þýöingu Sigurðar Gunnarssonar (6). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.) Tónleikar. 10.45 „Man ég það sem löngu leið“ Ragnheíður Viggósdóttir sér um þáttinn. 11.15 l fórum minum Umsión: Inaa Eydal. RÚVAK. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 Inn og út um gluggann Umsjón: Sverrir Guðjónsson. 13.40 Tónleikar 14.00 Frá setningu prestasefnu í Dómkirkjunni Biskup Islands, herra Pétur Sigurgeirsson, flytur ávarp og yfirlit um störf þjóð- kirkjunnar á synódusári. Tónlistar- flutningur er í umsjón sr. Gunnars Björnssonar. Tónleikar 15.15 Út og suður Endurtekinn þáttur Friðriks Páls Jónssonar frá sunnu- degi. 15.45 Tilkynningar. Tónleikar 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir 16.20 Upptaktur - Guðmundur Benediktsson. 17.00 Fréttir á ensku 17.05 „Sumar á Flambardssetri" eftir K.M. Peyton Silja Aðalsteins- dóttir les þýðingu sina (7). 17.35 Tónleikar 17.50 Síðdegisútvarp - Sverrir Gauti Diego. 18.20 Tónleikar. Tilkynnignar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds- ins 19.00 Kvöldfréttir. 19.45 Tilkynning- ar. Daglegt mál. Sigurður G. Tómas- son flytur þáttinn. 20.00 Hvað nú! Á ári æskunnar. Umsjón: Helgi Már Barðason. 20.40 „Þeir voru fyrstir að kveikja ljósin“ Séra Björn Jónsson flytur synoduserindi. 21.15 María Markan - afmælis- kveðja Umsjón: Trausti Jónsson. 21.40 Útvarpssagan: „Langferð Jónatans" eftir Martin A. Hansen. Birgir Sígurðarson rithöf- undur les þýðingu sina (24) 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Leikrit: „Raddir sem drepa“ eftir Poul Henrik Trampe fjórði þáttur endurtekinn. Þýðandi: Heimir Pálsson. Leikstjóri: Haukur J. Gunnarsson. Hljóðlist: Lárus H. Grímsson. Leikendur: Jóhann Sig- urðarson, Þóra Friðriksdóttir, Anna Kristín Arngrimsdóttir, Erlingur Gíslason, Jón Hjartarsori, Rúrik Haraldsson, RagnheiðurTryggva- dóttir og Kjuregej Alexandra. 23.15 Kvöldtónleikar: Óperutónlist 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Þriðjudagur 25. júní 10:00-12:00 Morgunþáttur Stjórn- andi: Páll Þorsteinsson. 14:00-15:00 Vagg og velta Stjórn- andi: Gísli Sveinn Loftsson. 15:00-16:00 Með sinu lagi Lög leikin af íslenskum hljómplötum. Stjórn- andi: Svavar Gests. 16:00-17:00 Þjóðlagaþáttur Stjórn- andi: Kristján Sigurjónsson. 17:00-18:00 Fristund Unglingaþátt- ur. Stjórnandi: Eðvarð Ingólfsson. Þriggja minútna fréttir sagöar klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og 17:00. Þriðjudagur 25. júní 19.25 Guðir og hetjur í fornum sögnum Fjórði þáttur. Ástralsk- svissneskur myndaflokkur í sex þáttum um griskar og rómverskar goðsagnir. Þýðandi og þulur Bald- ur Hólmgeirsson. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Nýjasta tækni og vísindi Um- sjónarmaöur Sigurður H. Richter. 21.15 Hver greiðir ferjutollinn: (Who Pays the Ferryman?) Nýr flokkur - Fyrsti þáttur. Breskur framhaldsmyndaflokkur í átta þáttum. Leikstjóri William Slater. Aöalhlutverk: Jack Hedleyog Betty Arvanti. Breskur maður snýr aftur til Krítar þar sem hann barðist með skæruliðum á stríðsárunum. Þar hittir hann fyrir forna vini og eignast nýja. En koma hans kveikir einnig á ný gamalt hatur og dularfullir atburðir gerast. Þýðandi Jón O. Edwald. 22.05 Ungt fólk hefur orðið í þess- um umræðuþætti á ári æskunnar ræða nokkur ungmenni viðhorf sín og áhugamál og munu koma viða við. Umræðum i beinni útsendingu stýrir Kristján Þórður Hrafnsson. 23.05 Fréttir í dagskrárlok

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.