NT - 18.08.1985, Blaðsíða 6
NT Sunnudagur 18. ágúst 1985 6
£%£©,
■ Með alla vöðva spennta og grettinn í framan stekkur hinn sænski Thomas Erikson til sigurs í langstökkinu.
Sigurstökkið mældist 7,61 metrar, fimm cm lengra en gamla vallarmetið. nt-mynd: Svemr
— svipmyndir frá
Fögruvöllum
■ Spakir menn sögðu að veðr-
ið hefði aldrei verið jafngott á
frjálsíþróttamóti á íslandi og um
síðustu helgi er 2. riðill C-keppni
Evópubikarsins fór fram á
Fögruvöllum (sem sumir vilja
kalla Valbjarnarvelli) í Laugar-
dal. Þáreyndu meðsérkarlarfrá
Svíþjóð, Danmörku, íslandi,
Belgíu og írlandi og fremstu
konur Noregs, íslands, Belgíu
og írlands hlupu, stukku og
köstuðu sem mest þær máttu.
Er upp var staðið voru Svíar
úrskurðaðir sigurvegarar í karla-
flokki og norsku stúlkurnar töld-
ust fremstar meðal jafningja.
Þær knúðu fram sigur í loka-
greininni, 4x400 m boðhlaupinu,
er sveit þeirra kom í mark rétt á
undan þeirri belgísku. „Norge,
Norge,“ endurómaði um dalinn
eftir sigurinn og þær norsku
hópuðust í kringum útvarpsþul
sinn og öskruðu og æptu af
krafti í hljóðnemann heim til
Noregs.
Svíarnir héldu upp á sigurinn
með því að varpa þjálfara sínum
í vatnsgryfju á vellinum, sem
keppendur í hindrunarhlaupi
eiga að stökkva yfir. Þeir ná því
ekki alltaf, og blotna þá rétt eins
og Svíinn.
(slensku liðin höfnuðu í
neðsta sætinu bæði í kvenna-
og karlakeppninni, þrátt fyrir tvo
sigra karlanna og einn hjá kon-
unum. Þrjú íslandsmet fuku
einnig.
Eigi að síður vann ísland
stóran sigur á mótinu, því að
áhorfendur flykktust á völlinn til
að hvetja sína menn, horfa á
Einar kasta spjótinu (og sigra),
Sjöberg hoppa yfir rána og
fallegasta kvenspjótkastara
heims (eins og Guðni Halldórs-
son kallaði hana), Trinu
Solberg, setja vallarmet. Svo
margir voru áhorfendur að fróm-
ir menn sögðust ekki hafa séð
annað eins síðan á gullöld ís-
lenskra frjálsíþrótta á sjötta ára-
tugnum.
Guðni og Ágúst Ásgeirsson
sáu svo um að upplýsa áhorf-
endur um gang mála á vellinum,
hver hefði sett vallarmet,
hvenær ætti að klappa og hvaða
börn væru týnd.
Sunnudagur 18. ágúst 1985 7
fluglei
FLUGUEIE01
KELANÓAt/
Randi Björn, Noregi, bítur í tunguna á sér, Rut Ólafsdóttir (lengst til vinstri) horfir hvössum augum fram á við,
en hinar stúlkurnar í 800 m hlaupinu h'ta ekki af brautinni. Isabelle De Bruyi
hvíta búningnum sigraði
B!
Svíinn langleggjaði Patrick Sjöberg lyftir sér yfir 2,26 m í hástökkinu. Hann kvartaði yfir kulda,
áhorfendum til nokkurra vonbrigöa.
vindi
og léglegri braut og reyndi ekki hærra stökk,
NT-mynd: Sverrir
■ Með keflið dýrmæta í hægri hendi þýtur Bryn dís Hólm af stað í 4x100 metra boðhlaupinu.
íslandsmetið í greinni féll, en það dugði samt aðei , ns ty fjórða og síðasta sætis. NT-mynd: Ami Bjama