NT - 20.08.1985, Blaðsíða 3

NT - 20.08.1985, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 20. ágúst 1985 Liv Ullman 46 ára: Á hún von á barni? - ætlar að gifta sig í september ■ Upp á síðkastið hafa ýms skandinavísk kvennablöð og tímarit eytt miklu plássi undir frásagnir af ástalífi hinnar frægu leikkonu Liv Ullman. í einu blaðinu eru birtar mynd- ir af helstu karlmönnunum í lífi hennar í réttri tímaröð - allt frá því að hún kornung giftist norskum sálfræðingi, sem hún svo fór frá eftir 6 ár, þegar hún varð ástfangin af leikstjóranum Ingmar Bergman, og til þess að þau Donald Saunders tóku saman og segja blöðin að þau ætli að giftast á næstunni. Liv hefur sagt frá sambúð sinni við Bergman. Þau voru mjög ástfangin, og því fylgdi ofsaleg afbrýðissemi. Hann vill búa úti á Fárö með Liv og Linn litlu dóttur þeirra, en ■ Linn hefur fylgt móður sinni um heiminn. Skóladvöl og ýmislegt annað hefur þó oft aðskilið þær, en þær eru alltaf saman í fríum þegar þær geta. „Við erum vinkonur", segja þær báðar. hjúskaparheitið einu sinni. Hún ætlaði ekki að hætta á það aftur. Samt sem áður átti hún í mörgum ástasambönd- um, og stöðugt birtust myndir af henni í blöðum með ýms- um þekktum mönnum, sem sagðir voru elskhugar hennar Dragan iiriiin frá Jiigóslavíu, (seni l.iv kallar Ahel í bók sinni) hefur ferðast með henni víða um Liv fannst hún hálfgerður fangi á eynni og þrátt fyrir ástina vildi hún flytja í burtu og lifa sínu eigin lífi. Leikfer- ill hennar varð glæsilegur og hún hafði stöðugt litiu dóttur- ina Linn með sér hvort sem hún var að starfa á Norður- löndunum eða Bandaríkjun- um, en tilboðin bárust henni víðs vegar að. Liv gifti sigekki aftur. Hún sagði einhvern tíma í viðtali, að það væri nóg að svíkja dótturina Linn. ■ Donald Saunders og Liv hafa verið óaðskiljanleg upp á síðkastið og sagt er að þau ætli að gifta sig á næstu vikum. eða sambýlismenn. Hinn frægi Kissinger sást oft með Liv þegar hún var í Ameríku, en svo kvæntist hann og hvarf af sjónarsviðinu í slúðurdálk- um blaðanna. Karlmenn hrifust sterkt af Liv Ullman, og má til dæmis nefna Júgóslavann Dragan Babic, blaðamann og rithöf- und, sem kom til að hafa viðtal við leikkonuna. Það fer ekki sögum af því hvernig gekk með viðtalið, en blaða- maðurinn náði svo góðu sambandi við viðmælanda sinn, að þau voru óaðskiljan- leg í nokkur ár. Babic yfirgaf heimaland sitt og fjölskyldu til að fylgjast með Liv og milli þeirra blómstraði ásta- samband, sem ieikkonan seg- ir frá í bók sinni „Tidvatten“. Reyndar kallar hún Júgó- ■ Þessi mynd sem nýlega var tekinafLivUllmanþótti sanna að fréttin um að hún væri barnshafandi væri sönn. Einnig þótti hinn glaðlegi svipur hennar segja sitt. slavann Abel í bók sinni, en segir annars hispurslaust frá þeirra samlífi. Um þetta leyti fór Liv að vinna mikið fyrir alþjóða- samtök að hjálparstarfi í þró- unarlöndunum, og Dragan s Babic ferðaðist með henni á vegum UNICEF (Barnahjálp SÞ). Nú er sagt, að Donald Saunders, sem er 49 ára fjár- málamaður og fasteignasali, hafi fengið Liv til að gleyma gamla heitinu um að „gifta sig aldrei aftur“ og þau ætli að láta verða af því að ganga í það heilaga í september nk. Mikið er bollalagt um það, hvort leikkonan sé ófrísk. Hún hefur látið hafa eftir sér í viðtali, að hún hafi enn nokkur ár upp á að hlaupa til að eignast barn (hún er 46 ára), - og svo hefur hún sést ganga í víðum fötum í sumar og þá þótti nú alveg víst að fréttin um að hún væri barns- hafandi hefði við rök að styðjast. - En líka hefur verið bent á það, að víð föt séu í tísku, svo ekki megi draga ályktanir af klæðaburðinum einum saman. Sem sagt: Við seljum þetta ekki dýrara en við keyptum það!

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.