NT - 20.08.1985, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 20. ágúst 1985 19
Iþróttir
Enska knattspyrnan:
Lítill meistarabragur
á meisturum Everton
- töpuðu 1*3 fyrir Leicester, Man. Utd.og Tottenham með stórsigra, Liverpool lagði Arsenal 2-0
■ Englandsmeistarar Everton
hófu titilvörn sína illa á laugar-
dag, með 1-3 tapi gegn Leicester
City í fyrstu umferö deildarinn-
ENGLAND
1. deild:
Birmingham-West Ham 1-0
Coventry-Man.City 1-1
Leicester-Everton 3-1
Liverpool-Arsenal 2-0
Luton-Nott. For 1-1
Man.Utd.-Aston Villa 4-0
QPR-Ipswich 1-0
Sheff.Wed.-Chelsea 1-1
South.-Newcastle 1-1
Tottenh.-Watford 4-0
WBA-Oxford 1-1
2. deild:
Brighton-Grimsby 2-2
Carlisle-Bradford 1-2
Charlton-Barnsley 2-1
Fulham-Leeds 3-1
Huddersfield-Millwall 4-3
Hull-Portsmouth 2-2
Norwich-Oldham 1-0
Shrewsbury-Crystal Pal 0-2
Stoke-Sheffield Utd 1-3
Sunderl.-Blackburn 0-2
Wimbledon-Middlesb 3-0
3. deild:
Bolton-Rotherham 1-1
Brentford-Wolves 2-1
Bristol C.-Walsall 2-3
Chesterf.-Bury 4-3
Darl.ton-Bristol R 3-3
Derby-Bournem 3-0
Lincoln-Gillin 1-0
Newport-Doncaster 2-2
Notts County-Cardiff 1-4
Reading-Blackpool 1-0
Swansea-Wigan 0-1
York-Plymouth 3-1
4. deild:
Burnley-Northmpton 3-2
Cambridge-Hartlepool 4-2
Chester-Halifax 1-1
Colchester-Stockport 3-1
Crewe-Southend 1-1
Exeter-Port Vale 1-0
Mansfield-Hereford 4-0
Orient-Tranmere 3-1
Preston-Peterb 2-4
Rochdale-Aldersh 2-0
Scunthorpe-Torquay 4-0
Swindon-Wrexham 0-1
! SKOTLAND
Skotland úrvalsdeild:
Celtic-Motherwell 2-1
Clydebank-Dundee 4-0
Dundee Utd.-Aberdeen 1-1
Hibernian-Rangers 1-3
St.Mirren-Hearts 6-2
ar. Leikmenn Leicester gáfu
fyrrum félaga sínum, Gary Lin-
eker, sem seldur var til Everton
í sumar, engin grið og fóru með
verðskuldaðan sigur af hólmi.
Þó náði Derek Mountfeld for-
ystu fyrir gestina á 23. mínútu
en Bobby Smith jafnaði metin
rétt fyrir hlé. í seinni hálfleik
var aðeins eitt lið á vellinum og
sóknarloturnar buldu á vörn
Everton. Mark Bright skoraði
þá tvívegis, en Bright var keypt-
ur frá Port Vale í fyrra. Hann
komst aldrei í lið í fyrra, Lineker
hélt honum í varaliðinu, en er
nú fastur maður í framlínunni.
Everton virkar mun veikara
nú en í fyrra, eins og íslenskir
sjónvarpsáhorfendur fengu að
sjá í leik liðsins gegn Manchest-
er United um góðgerðarskjöld-
inn.
Nágrannar Everton, Liver-
pool, unnu hins vegar léttan
sigur á Arsenal. Lundúnaliðið
liefur oft reynst Liverpool erfitt
í skauti en hafði ekkert að gera
í Rauða herinn á Anfield Road.
Ronnie YVhelan skoraði fyrir
hlé og Steve Nicol í síðari
hálfleik. Daninn Jan Mölby átti
stórleik á miðjunni hjá Liver-
pool, kannski hann sé loksins
farinn að finna sig.
Engin læti urðu á áhorfenda-
pöllunum á leiknum í Liverp-
ool, en aðdáendur heimaliðsins
urðu sér til skammar fyrir leik-
inn er þeir trufluðu minningar-
athöfn um þá 39 sem létust í
blóðuga úrslitaleiknum í Bruss-
el í vor. Þá sást ítölskum fána
bregða fyrir á áhorfendapöllun-
um, greinilegt að sumir eru
stoitir af illvirkjunum á Heysel-
leikvanginum.
Manchester United hakkaði
Aston Villa í sig á Old Trafford.
Norman Whiteside skoraði
fyrsta markið og Mark Hughes
hin næstu tvö. Litli Daninn,
Jesper Olsen, skoraði. Colin
Gibson í liði Villa meiddist eftir
samstuð við Gary Bailey í Unit-
edmarkinu og varð að fara út af.
Það slys markaði upphafið að
ógæfu Birminghamliðsins.
Tottenham var einnig í miklu
stuði, og tók Watford til bæna.
Fjögur urðu mörkin og skoruðu
Chris Waddle (tvö og Paul AIl-
en þrjú þeirra. Mark Falco gerði
hið fjórða.
John Byrne skoraði sigur-
mark QPR gegn Ipswich og
Robert Hopkins eina markið í
leik Birmingham og West Ham.
Sigur Birmingham þótti í
minnsta lagi.
Oxford leikur nú í fyrsta
skiptið í 1. deild og náði jöfnu
gegn WBA á útivelli, 1-1. Imre
Varadi gerði mark WBA en
gamla brýnið Bobby McDonald
jafnaði metin.
Sigurður Jónsson var ekki
með Sheffield Wednesday í
leiknum gegn Chelsea, hefur
lítið æft vegna meiðsla. Mick
Lyons gerði fyrra markið í
leiknum, en David Speedie
jafnaði fljótlega fyrir Chelsea.
Manchester City skoraði bæði
mörkin gegn Coventry. Fyrst
skoraði Sammy Mcllroy, áður
Man. United og Stoke, í rétt
mark og svo Neil McNab í rangt
mark.
Southampton komst í 1-0 fyr-
ir hlé með marki David Puckett,
en í síðari hálfleik náði Newc-
astle að jafna með marki Peter
Beardsley.
Fimmta jafnteflið í deildinni
varð á gervigrasinu í Luton.
Brian Stein skoraði fyrst fyrir
heimamenn, en Nottingham
Forest náði að jafna. Nýi mað-
urinn hans Brian Clough, Neil
Webb, sem keyptur var frá Port-
smouth, sá um að skora.
í 2. deild kom heimatap
Sunderland geng Blackburn á
óvart og Stoke þótti einnig sýna
slappan leik geng Sheffield Un-
ited. Norwich var hið eina af
fallliðunum frá því í vor, sem
náði að sigra.
í skosku úrvalsdeildinni er
Rangers komið á toppinn eftir
3-1 útisigur gegn Hibernian í
Edinborg. Ally McCoist, Dave
McPherson og Bobby Williams
skoruðu fyrir Rangers, Gordan
Durie fyrir Hibernian.
Aðalleikurinn var þó í Dund-
ee þar sem United og Aberdeen
gerðu 1-1 jafntefli. Aldrei þótti
leikurinn ná þeim gæðum sem
vonast hafði verið til, enda
taugatitringur mikill hjá leik-
mönnum. Stuart McKimmie
skoraði 0-1 á 35. mín. en fjórum
mínútum fyrir hlé jafnaði Paul
Sturrock.
Chris Waddle - tvö mörk fyrir Spurs gegn Watford.
Þýska 1. deildin:
Auðvelt hjá Bayern
- sigraði Stuttgart 4-1, Bremen skoraði átta mörk og Bockum gerði f imm
■ Meistarar Bayern Miinchen Bockum er ásamt Bremen .. «
fóru létt með Asgeir Sigurvins- eina lioiö sem unnio hefur baöa Kaisersiautem-Köin . 1-0
son Og félaga í Stuttgart í þýsku fyrstu leiki SÍna. Það sigraöi Mannheim-Bayer Uerdingen. 2-0
Búndeslígunni á laugardag. Fortuna Dússeldorf 5-3, en átti “Bremen.no 0 9 2 (
Bæjaraliðið vann 4-1 og það i vandræðum með markvórð. Bochum.2200634
þótt svo Stuttgart kæmist í 0-1 á Bæði aðal- og varamarkvörður ..........J 1 1 0 4 0 3
7. mín. Tengiliðurinn Norbert liðsins voru meiddir svo hinn 38 Levorkusen. . . . . . . . . . . 2110313
Eder kom þá knettinum í eigið ára gamli Wolfgang Kleff, sem Bayem Munchen.2101422
net og það var ekki fyrr en á33. er löngu hættur að leika, tók ; 2020222
mín. að Bayem jafnaði. Michael sess þeirra. Frankíurt ........2020222
Rummenigge skoraði með „ . . Mannheím .2101342
skalla. Dieter Höness skoraði ** nað> Nuremberg 1-1 jafn- Wj^v -■ • ■ * J « J J J 2
svo á 77. mín og á síðustu sex tefli gegn Frankfurtarhðmu og Ktíln........2011121
mínútunum innsigluðu Lothar yar Það fy,rsta ,stl8lð sem llðlð Nuremberg...2011121
Matteus og Reinhold Mathy flytur a utivell. 1 siðustu 30 ............ J J J J J
sigurinn. leikjum. Var buið að tapa -9 1 Hanover .......2011391
rÖð. Schalke ....... 2 0 0 2 0 5 0
Mílumet
■ írsk sveit setti nýtt
heimsmet í 4xmílu hlaupi
á laugardag á móti í
Dublin. Sveitin hljóp á
15:49,08 mín. og bætti
gamia metið um ríflega
10 sekúndur. Sveitina
skipuðu þeir Eamonn
Coghlan, Marcus O’Sull-
ivan, Frank O’Mara og
Ray Flynn. Sjaldan er
keppt í þessari grein og
hafði gamla metið staðið
í tvö ár.
Werder Bremen er efst í
deildinni eftir fyrstu tvær um-
ferðirnar. Liðið malaði nýliða
Hannover 8-2 á heimavelli.
Landsliðsframherjinn Rudi
Völler skoraði þrennu og Frank
Neubarth og Norbert Meier
gerðu tvö hvor. Petta var versta
tap Hannover í 1. deild frá því
sögur hófust.
Borussia Mönchengladbach
verður sterkt í vetur, það sýndi
liðið með 4-0 sigri á Schalke.
Sex gul spjöld litu dagsins Ijós í
þeim leik.
Hamburg náði aðeins jöfnu,
1-1 gegn Borussia Dortmund.
Þetta var fyrsti leikur Horst
Hrubesch með Dortmundarlið-
inu, en hann hefur leikið með
Standard-Liege í Belgíu undan-
farin tvö ár. Lék þar áður með
Hamborgarliðinu en hélt þaðan
eftir að liðið hafði sigrað Juvent-
us 1-0 í úrslitum Evrópukeppni
meistaraliða 1983. Hrubesch
sást ekki í leiknum, var í
strangri gæslu hjá Jens Duve,
sem lék sinn fyrsta leik fyrir
Hamburg.
MOLAR MOLAR MOLAR
...Svisslendingurinn Karl Alpi-
ger sigraði í tveimur fyrstu
brunkeppnum vetrarins, sem
fram fóru í Las Lenas í Argen-
tínu. í fyrri keppninni hlaut
hann tímann 1:47,74 mín. oe
2:01,27 mín. í þeirri síðari...
.. .Tvö heimsmet féllu í 4x100 m
fjórsundi á Kyrrahafsleikunum
í Tokyo. Bandaríska sveitin
setti met er hún synti á 3:38,28
mín. og Matt Biondi setti heims-
met í 100 m skriðsundinu. Synti
á 47,84 sek. Bandaríska sveitin
setti einnig met í 4x100 m skrið-
sundi, 3:17,08 mín...
...Niki Lauda, heimsmeistari í
kappakstri lýsti því yfir á laugar-
dag að hann hygðist hætta að
keppa í formúlu eitt kappakstri.
„Eftir 11 ár held ég að það sé
kominn tími til að gera eitthvað
annað,“ sagði Lauda. „Ég mun
ekki verða með næsta ár.“
Lauda lenti í alvarlegu slysi árið
1976 en lét það ekki aftra sér og
mætti aftur til leiks. Hann er 36
ára...
... Alain Prost, Frakklandi, sigr-
aði í austurríska Grand Prix
kappakstrinum. Hann ók
McLaren bifreið sinni að meðal-
tali á yfir 211 km hraða...
...Sandy Lyle sigraði í miklu
golfmóti í York, Englandi.
Hann lék síðasta hringinn á átta
undir pari og varð höggi á undan
landa sínum lan Woosnam,
Bretlandi...
Styttist í Reykjavíkur maraþonið:
Búinn að skrá þig?
Úrslitakeppni 4. deildar:
Jafnt á mottunni
■ Kristján Halldórsson, þjálfari og leikmaður með Augnabliki,
sækir hér að einum ÍR-ingnum. Kristján og hans menn sóttu ekki
gull í greipar Breiðhyltinganna, því liðin deildu með sér stigunum
í 1-1 jafnteflisleik.
■ Tveir leikir voru í úrslita-
keppni 4. deildar um helgina. Á
grasmottunni í Laugardal spil-
uðu ÍR og Augnablik og lauk
þeim leik með jafntefli 1-1 en á
Höfn í Hornafirði sigraði Sindri
Vask 3-0 og þar með stendur
Reynir Á best að vígi í Norð-
Austur riðlinum. ÍR og Augna-
blik eru hins vegar í jöfnum slag
í Vestur-Suður riðlinum.
Sigurður Halldórsson náði
forystu fyrir Augnablik en síðan
fengu ÍR-ingar víti. Pað var
varið en varnarmaður ætlaði að
senda boltann til markvarðarins
eftir vítið en hann fór í eigið
mark og jafntefli varð 1-1.
Sindri hefndi fyrir norðanför
sína og lagði Vask með mörkum
Grétars Vilbergssonar, Arnar
Sveinssonar og Þránds Sigurðs-
sonar.
■ Óðum styttist í Reykjavíkur
maraþonið og þeir sem ætla að
mæta á ráslínuna kl. 10 næsta
sunnudag skulu fara að huga að
því hvort þeir séu búnir að skrá
sig í hlaupið eða ekki.
Skráningum lýkur á föstudag
en að sögn Gunnars Páls Jóa-
kimssonar, framkvæmdastjóra
hlaupsins, hafa íslendingar ver-
ið seinir að taka við sér við að
skrá sig. Rúmlega eitthundrað
útlendingar munu þó koma til
landsins, sem er svipuð tala og í
fyrra, en þetta er annað skiptið
sem hlaupið fer fram.
Hlauparar geta valið úr þrem-
ur keppnisvegalengdum í hlaup-
inu: 7 km skemmtiskokki, hálfu
maraþoni og maraþoninu, sem
er rúmir 42 km að lengd. Að
sögn Gunnars Páls virðist sem
flestir þekktari keppnismanna
íslendinga stefni á hálfmara-
þon. Þar ætlar t.d. Sigurður
Pétur Sigmundsson að hlaupa
og veitir hann vonandi Þjóð-
verjanum Herbert Stcffny, sem
á 2:11 í maraþonhlaupi, ein-
hverja keppni.
Gunnar Páll minnir keppend-
ur á að sækja keppnisgögn sín
frá ferðaskrifstofunni Úrval á
Austurvelli milli klukkan 10 og
4 á laugardag. Hann tók fram
að allir keppendur í hlaupinu
fengju verðlaunapening og
skoraði á alla að fara að skrá sig
í hlaupið.