NT - 20.08.1985, Blaðsíða 6

NT - 20.08.1985, Blaðsíða 6
auglýsingar varahlutir ökukennsla Hedd hf. Skemmuvegi M-20 Kópavogi Varahlutir - ábyrgjt- viðskipti Höfurrí fyrirliggjandi varahluti í flestar tegundir bifreiða, m.a. Galant 1600 árg '79 Subaru 1600 árg 79 Honda Civic árg 79 Datsun 120 A árg 79 Mazda 929 árg 77 Mazda 323 árg 79 Mazda 626 árg 79 Mazda 616 árg 75 Mazda 818 árg 76 Toyota M II árg 77 Toyota Cressida 79. Toyota Corolla árg 79 Toyota Carina árg 74 Toyota Celica árg 74 ' Datsun Diesel árg 79 DatSun 120 árg 77 Datsun 180 B árg 76 Datsun 200 árg 75 Datsun 140 J. árg 75 Datsun 100 Aárg 75 Daihatsu Carmant árg 79 Audi 100 LS árg 76 Passat árg 75 @pet Reeerd árg 74 VW 1303 árg 75 ? Vega árg 75 Migi árg 78 S/olvo 343 árg 79 Ránge Rover árg 75 Bronco árg 74 Wagoner árg 75 Scout II árg 74 Cherokee árg 75 Land Rover árg 74 Villis árg '66 Ford Fiesta árg '80 Wartburg árg '80 Laua Safir árg '82 Landa Combi árg '82 Lada*Sport árg '80 Lada 1600 árg '81 Volvo 142 árg '74 Saat^99 árg 76 Saáb 96 árg 75 Cortina 2000 árg 79 Sc$ut árg 75 . V-Qhevelle árg '79 A-Alegro árg '80 Transit árg 75 Skodi 120 árg '82 Fiat 132 árg '79 Fiat 125 P árg '82 F-Fermont árg 79 ■F-fiiranada árg 78 Ábyrgð á öliu, alit inni þjöppumælt’ og gufuþvegið. Vélar yfirfarnar eða uppteknar með allt að 6 mánaða ábyrgð. ísetning ef óskað er. Kaupum nýlega bíla til niðurrifs og jeppa. Staðgreiðsla. Opið virka daga frá kl. 9-19 laugardaga kl. 10-16. Sendum um land allt. Hedd h.f. síma 77551 og 78030 Reynið viðskiptin bílaleiga BILALEIGA REYKJAVÍK: AKUREYRI: BORGARNES: VÍÐIGERÐI V-HÚN.: BLÖNDUÓS: SAUÐÁRKRÓKUR: SIGLUFJÖRÐUR: HÚSAVÍK: EGILSTAÐIR: VOPNAFJÖRÐUR: SEYÐISFJÖRÐUR: FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: HÖFN HORNAFIRÐI: 91-31815/686915 96-21715/23515 93-7618 95-1591 95-4350/4568 95-5884/5969 96-71498 96-41940/41594 97-1550 97-3145/3121 97-2312/2204 97-5366/5166 97-8303 interRent Kenni á Audi ’82. Nýir nemendur geta byrjað strax og greiða aðeins tekna tíma. Æfingatímar fyrir þá sem hafa misst réttindi. Æfing í borgarakstri. Lærið þar sem reynslan er mest. Greiðslukjör, ennfremur Visa og Eurocard Símar 27716 og 74923. ökuskóli Guðjóns Ó. Hannesson- ar. húsnæði óskast íbúð óskast Einstæður faðir með eitt barn, sem ætlar að stunda nám i Reykjavík næsta vetur, óskar eftir 2-3 herbergja íbúð á löigu, helsf í Breiðholti I. Vinsamlegast hringiö í síma 96- 71382 eða 91-73445. varahlutir Aðalpartasalan Sími23560 Autobianci 77 BuickAppalo’74 . AMC Hornet 75 Honda Civic 76 AustinAllegro’78 Datsun 100 A'76 AustinMini’74 Simca1306'77 ■'ChevyVan’77 Simca1100'77 Chevrolet Malibu '74 Saab 99 73 ChevroletNova'74 Dodge Dart'72 Dodge Coronet '72 Ford Mustang 72 Ford Pinto '76 Ford Cortina 74 Ford Escort 74 Fiat 131 '77 Fiat 132 76 Fiat 125 P 78 Lada-1600'82 Lada1500’78 Lada1200 '80 Mazda323'77 Mazda929'74 Volvo 145 74 VW1300-1303 74 VW Passat 74 Mpccury Comet '74 Skoda120L’78 Subaru4WD 77 Trabant’79 Wartburg 79 Toyota Carina'75 ToyotaCorolla’74 Renault4'77 Renault5'75 Renault 1274 Peugout504 74 Jeppar Wagoneer'75 Range Rover'72 Scout '74 Ford Bronco 74 Ábyrgð á öllu, kaupum bíla til niðurrifs, sendum um land allt. Opið virka daga frá kl. 9-19, laugardaga frá kl. 10-J6. Aðal- partasalan Höfðatúni 10, sími 23560. r Nv lína ^ Hjólkoppar 12“ 13“ 14“. Verð frá kr. 1995.- Krómhringir 12“ 13“ Verð kr. 2200.- Givarahlutir ^ Hamarshöfða 1 Hamarshöfða 1 Simar 36510 og 83744 ÍTÍ Þriðjudagur 20. ágúst 1985 6 LlI wr Útlönd ■ Ungir Bretar mótmæla efnahagsstefnu stjórnar Thatchers. Mun bresk æska bjarga efnahag ríkisins þegar fram í sækir? Atvinnuleysi: Bjargayngri kynslóð- irnar efnahag Breta? ■ Mun atvinnuleysi í Bretlandi fara minnkandi á næstu árum? Ýmislegt þykir benda til þess, einkum og sér í lagi sú staðreynd að meðalaldur vinn- andi fólks í landinu fer lækkandi. Fyrir bragðið má búast við að hag- kerfi landsins verði sveigjanlegra, þar |sem yngra fólk á auðveldara með að ’aðlaga sig að nýrri tækni. Hins vegar er gert ráð fyrir að fleira fólk muni streyma á vinnumarkaðinn en áður hafði verið spáð. Á þriðja áratug þessarar aldar Kanada: Skólafólk not- að í f lugfreyju* verkfalli Montreal-Reutcr ■ Kanadíska flugfélagið Air Can- ada fékk háskólanamendur til að vinna við þjónustustörf um borð í flugvélum sínum í gærmorgun þegar verkfail 3.211 flugfreyja og flugþjóna hófst. Talsmenn flugfélagsins sögðust ekki ætla að gera neinar breytingar á áætlanaflugi félagsins vegna verkfalls- ins þótt þjónusta um borð í þeim myndi minnka eitthvað. Leiðtogar flugfreyja og flugþjóna segja að ákvörðun flugfélagsins um að nota stúdenta og annað starfsfólk til að ganga í störf þeirra minnki flugöryggi. Félag flugfreyja og flug- |ijóna krefst þriggja prósenta kaup- hækkunar á ári og lækkun hámarksins á leyfilegum flugtímum úr 80 á mán- uði niður í 75. Flugfélagið bauð tveggja ára samn- ing nreð sex prósenta launahækkun fyrir flesta starfsmenn en lægri byrj- unarlaununi. Ísrael: Mormónaskóli veldur deilum Jerúsalem-Reuter ■ Strangtrúaðirgyðingarogborgar- yfirvöld í Jerúsalem deila nú hart um það hvort mormónum skuli leyft að byggja háskóla í borginni. Rabbíarnir segja skólann vera „hræðilegt sár í sálu gyðingaþjóðar- innar", en borgaryfirvöld telja að hin helga borg eigi að vera öllum trúar- brögðum opin. Háskólinn á að vera útibú frá Brigham Young háskólanum í Utah, sem mormónar eiga og reka. Gert er ráð fyrir að skólinn kosti jafnvirði 615 milljóna kr. og er þriðjungi fram- kvæmdanna þegar lokið. Mormónar líta á trúboð sem mjög mikilvægan þátt trúarinnar, en þeir hafa lofað að boða ekki fagnaðar- erindið í Jerúsalem. jókst mjög fæðingartíðni í Bretlandi, en þau börn sem þá fæddust eru nú komin á eftirlaunaaldur og hverfa því af vinnumarkaðinum. Peirra sess munu yngri kynslóðir taka. Á árunum 1983 og 1984 bættust 510 þúsund manns á breska vinnumark- aðinn og hafði fjölgunin aldrei fyrr verið svo mikil. Á næstu fimm árum er gert ráð fyrir að önnur 750 þúsund byrji að leita sér að vinnu. Þessi mikla fjölgun er helsta ástæða þess, að þrátt fyrir góðan hagvöxt hin síðustu ár hefur atvinnuleysi aukist. Það er nú 13,1 prósent. Tvær ástæður eru nefndar fyrir þessum aukna þrýstingi á vinnumark- aðinum. Önnur er sú að fólki á vinnufærum aldri hefur fjölgað mjög. Hin er mikil aukning á þátttöku kvenna í atvinnulífinu. Á sama tíma og hlutfall karla sem eru í vinnu eða í atvinnuleit hefur lækkað, hefur atvinnuþátttaka kvenna aukist. Því cr spáð að þróunin haldi áfrani og að árið 1991 verði helmingur allra kvenna á vinnufærum aldri annað hvort í vinnu eða í leit að starfi. Vinnumálastofnun Bretlands spáir því að hlutur karla í atvinnulífinu eigi ekki eftir að minnka mikið úr þessu. Þessi spá hefur verið gagnrýnd harðlega, því reynslan sýnir að þegar atvinnuleysi eykst fækkar alltaf þeim, sem eru í atvinnuleit. Þeir gefast upp og telja vonlaust mál að fá nokkuð að gera. Byggt á Economist Kína: 300 farast með ferju Peking-Reuler ■ Um þrjú hundruð farþegar drukknuðu þegar ofhlaðin ferja sökk í fljóti í Norðaustur-Kína nálægt sovésku landamærunum nú um helg- ina. Að sögn Kvöldblaðsins í Peking tókst aðeins örfáum farþegum að bjarga sér á sundi. Mörg hundruð manns hafa á undanförnum árum drukknað í ferju- slysum í Kína. Þannig fórust 293 í ferjuslysi í Suður-Kína í febrúar 1980 og um 150 létust þegar ferja sökk við Kanton í mars 1983. Bandaríkjamenn halda áfram kjarnorkutil- raunum sínum Washington-Reuler ■ Bandaríkjamenn sprengdu kjarnorkusprengju neðanjarðar í Nevadaeyðimörkinni nú á laugardaginn. Þetta er í fyrsta skipti sem Bandaríkjamenn gera kjarnorkutilraun frá því að Sovétmenn lýstu yfir einhliða stöðvun kjarnorkutilrauna í seinasta mánuði. Ronald Reagan forseti Bandaríkjanna hafði boðið So- vétmönnum að senda fulltrúa til að fylgjast með trilrauninni en Sovétmenn afþökkuðu boðið og hvöttu Bandaríkjamenn þess í stað til að hætta við tilraunina. Bandankjamenn segja stöðv- un Sovétmanna á kjarnorkutil- raunum áróðursbragð. Sovét- menn liafi verið nýbúnir að ljúka við röð tilrauna sem gefi jjeim yfirburði yfir Bandaríkja- menn og því hafi þeir getað hætt tilraunum í nokkurn tíma. So- vétmenn hafa harðneitað þessu, þeir segjast hafa stöðvað áætlun um kjarnorkutilraunir þar sem gert var ráð fyrir mörgum fleiri sprengingum. Bandaríkjamenn segjast hugsanlega munu hætta kjarn- orkutilraunum sínum síðar þeg- ar þeir hafa lokið nokkrum nauðsynlegum tilraunum.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.