NT - 20.08.1985, Blaðsíða 13

NT - 20.08.1985, Blaðsíða 13
Skemmtistaðirnir um helgina: Þrír menn á slysadeild ■ Ungur maður liggur á sjúkrahúsi, skaddaðuraauga eftir að glasi var hent í andlit- ið á honum á skemmtistaðn- um Sietúni á laugardags- kvöld. Rannsóknadeild lög- reglunnar hefur málið td rannsóknar og er rannsókn enn á frumstigi. Maðurinn er illa farinn a auganu og getur allt eins rnisst sjónina" Þá voru tveir menn aðrir fluttir á slysadeild, eftir áflog fyrir utan skemnrtistaði í höfuðborginni um helgina. Ekki er vitað hversu alvar- leg meiðsli mannanna eru, en í bæði skiptin var áfengi talið eiga hlut að máli. Að sögn lögreglu er þetta svipað og um vanalega nelgi, að nokkrir menn séu færðir á slysadeild eftir kjaftshögg og ánog. Enginn mannanna þriggja hefur lagt fram form- lega Icæru, en buist er við því að atburðurinn sem átti sér stað í Sigtúni verði formlega kærður pegar maðurinn ei laus af sjúkrahúsi. Þriðjudagur 20. ágúst 1985 13 Stöðuveitingar á Sjónvarpinu: „Utvarpsráð leiksoppur í höndum pólitískra afla“ - segir Ingibjörg Hafstad, útvarpsráðsmaður ■ Mikill órói er nú meðal starfsmanna Sjónvarpsins vegna skipunar þeirra Ingva Hrafns Jónssonar í stöðu fréttastjóra og Hrafns Gunn- laugssonar í stöðu deildar- stjóra innlendrar dagskrár- gerðar. Sérstaklega á það við á dagskrárdeildinni, þar sem skipunin kom nokkuð á óvart, en fréttamenn Sjónvarps höfðu fyrir nokkru fengið stað- ■ Morgunblaðið fékk að halda Tímabikarnum eftirsótta eftir Utiskákmót Skáksambands tslands sem fram fór á Lækjartorgi í gær. Margeir Pétursson hlaut 6% vinning af 7 mögulegum, í öðru sæti varð Karl Þorsteins fyrir Heildverslun Guðmundar Arasonar en NT fulltrúinn, Helgi Ólafsson, var í hópi sem myndaði 3.-8. sætið með 5 vinninga. AIIs voru það 40 keppendur sem sýndu skáklistina í glampandi sól á torginu. festingu á því að Ingvi Hrafn yrði ráðinn fréttastjóri. „Það sem sérstaklega vekur furðu mína er, að aðeins örfá- um klukkustundum eftir að Útvarpsráð fjallar urn málið, skuli ráðinn í stöðu frétta- stjóra umsækjandi sem hlaut aðeins tvö af sjö atkvæðum útvarpsráðsmanna. Sú ákvörðun er vægast sagt óvenjuleg,“ sagði Markús A. Einarsson. útvarpsráðsmaður í gær. Markús sagði, að hin hraða afgreiðsla málsins benti ekki til þess, að ætlunin hefði verið að vega og meta tillögur ráðs- ins eða taka tillit til þeirra. Það væri miður. Ingibjörg Hafstað, útvarps- ráðsmaður, sagði í samtali við NT í gær, að ákvörðun út- varpsstjóra tæki af öll tvímæli um það að Útvarpsráð væri ekkert annað en leiksoppur í höndum pólitískra afla. „Þeg- ar pólitískur meirihlut er fyrir einhverri ákvörðun þá er ráðið látið ráða og því jafnvel beitt fyrir ákvörðunum. En þegar meirihlutinn er ekki til staðar, eins og núna, þá er ekkert tillit tekið til ráðsins," sagði Ingi- björg. Hún sagðist ætla að leggja fram bókun á fundi Útvarps- ráðs næsta föstudag. „Hún er ekki tilbúin í smáatriðum, en ég mun benda á þetta leik- soppshlutverk sem nú er opin- berað.“ Markús Á. Einarsson benti á ummæli sem höfð voru eftir Markúsi Erni Antonssyni, nú- verandi útvarpsstjóra og þá- verandi útvarpsráðsmanni, við svipaðar kringumstæður í Morgunblaðinu í janúar 1981. Þá sagði Markús Orn: „Ég get ekki annað sagt, en að það komi mér afskaplega mikið á óvart, að æðsti embættismaður þessarar stofnunar skuli sýna kjörinni nefnd, sem raunar fær umboð sitt frá Alþingi íslendinga til að fjalla um veigamikil embætti hjá Ríkis- útvarpinu, þar á meðal frétta- mannastöður, slíka lítilsvirð- ingu þegar liaft er í huga, að tveimur umsækjendanna, sem fengu mjög greinilega meiri- hluta stuðnings í Útvarpsráði, skuli vera hafnað, en aðrir tveir, sem fengu mikið minni- hlutafylgi, skuli ráðnir í þeirra stað.“! í lok fréttarinnar sagði Markús Örn: „Nú finnst mér keyra algerlega um þverbak og ég get ekki litið á þessa aðgerð útvarpsstjóra örðu vísi en sent hreina stríðsyfirlýs- ingu. NT náði ekki í Markús í gær til að spyrja hvað hefði breyst. li a Steingrímur í Eden: „Olían óútreiknan- leg eins og konur“ ■ Steingrímur St. Th. Sigurðs- son opnar í kvöld 9. málverka- sýningu sína í Eden í Hvera- gerði en sýningin sem er tileink- uð Suðurnesjum er jafnframt 58. einkasýning hans. Sýning- unni lýkur 2. september. „Þetta er afmælissýning“, segir Steingrímur þegar NT hitt- ir hann á hlaupum í listmunum Renate Heiðar að Laufásvegi. „Ég á nefnilega 5 ára afmæli um þessar mundir," segir hann og hlær. 5 ára afmæli? „Já, það eru fimm ár síðan að ég fór að betrumbæta sjálfan mig en við skulum nú ekki vera að fjölyrða neitt um það“. Á sýningunni eru 32 málverk og langflest unnin í olíu. „Olían er eins og konurnar, óútreiknanleg,“ segir hann og hlær mikið, „en ég geng hiklaust til leiks. Mér fannst ég verða að vinna einhvern andlegan sigur. Ég er búinn að halda svo margar sýningar að mér fannst ég verða að sýna fram á að ég gæti eitthvað á þessu sviði.“ „Taktu eftir því að þetta er í fyrsta sinn sem konur eru ekki viðfangsefni málverka hans,“ skýtur Renate inn í. „Já,“ bætir Steingrímur við, „en á sýningunni er þó ein mynd litaspjald sem gæti táknað sam- skipti við konur.“ Hann hlær og segist vera bara ansi hress með lífið og tilveruna, það sé alltaf mikið að gera þegar sýningar eru á döfinni en þegar þær byrji róist hann niður. „Ég geri nefnilega allt einn en þó gæti ég ekkert án hennar Renate sem rammar inn mál- ■ Á sunnudaginn fór fram „Rally-cross" keppni á splunku- nýrri braut við Kjóavelli, skammt frá Vatnsenda. Níu bíl- ar voru skráðir til leiks, en hörðust var keppnin um sigur- inn milli þriggja kraftmestu bíl- anna. Éftir spennandi og skemmtilega keppni að við- stöddum á annað þúsund áhorf- verkin mín. Ég vann allar þessar myndir í sumar og vor og gisti á Suðurnesjum annað veifið og hafði aðstöðu á Hafurbjarnar- stöðum á Garðsskaga.“ enda fóru leikar þannig að Jón Hólm á sérsmíðaðri 180 ha. Volkswagen bjöllu sigraði. Annað sætið hreppti nafni hans Ragnarsson á 250 ha. rall- Escortinum sínum og þriðja sætinu náði Eiríkur kokkur Friðriksson á sínum rall-Escort. Nánar um keppnina í bílamark- aði NT á fimmtudag. Au.A. Jóni Hólm tókst að keyra keppinauta sína um sigurinn af sér með stæl. NT-mynd: Au.A. 180 hestafla bjalla Íblaðbera VANTAR Blaðburðarfólk vantar

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.