NT - 20.08.1985, Page 4
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjóransf.h. Gjaldheimtunnar í Reykjavík
og samkvæmt fógetaúrskurði, uppkveðnum 16. þ.m. verða
lögtök látin fara fram fyrir vangreiddum opinberum gjöldum
álögðum 1985 skv. 98. gr., sbr. 109. og 110. gr. laga nr.
75/1981.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, eignarskattur, lífeyristr.gjald
atvr. skv. 20. gr., slysatrygingagjald. atvr. skv. 36. gr.,
kirkjugarðsgjald, vinnuæeftirlitsgjald, sóknargjald, sjúkra-
tryggingargjald, gjald í framkv.sjóð aldraðra, útsvar, aðstöðu-
gjald, atvinnuleysistryggingagjald, iðnlánasjóðsgj. og iðnað-
armálagj., sérst. skattur á skrst. og verslunarhúsn., slysa-
trygg. v/heimilis og eignarskattsauki.
Ennfremur nær úrskurðurinn til hverskonar gjaldhækkana og
til skatta, sem innheimta ber skv. norðurlandasamningi sbr.
lög nr. 111/1972.
Lögtök fyrir framangreindum sköttum og gjöldum, ásamt
dráttarvöxtum og kostnaði, verða látin fram fara að 8 dögum
liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, verði þau eigi að
fullu greidd innan þess tíma.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik
16. ágúst 1985.
J.R.J. hf. bifreiðasmiðja
Varmahlíð - Sími 95-6119
Klæðningar í jeppa og fólksbíla.
Klæðningar í fólksflutningabíla.
Yfirbyggingar á:
Zuzuki, Pick-up, Nissan Patrol, Toyota Hayiux
og aðra pick-up bíla og jeppa.
Almálanir og skreytingar.
Réttingar, stór tjón lítil tjón.
Vanir menn - vönduð vinna.
TOLLSKÝRSLUR -
VERÐÚTREIKNIN G AR
CG^Donnnco
□□□□□□□□□□
"DnOODQDDQ
" — •■□□□□
(□□□□
Tek að mér
tollskýrslugerð,
verðútreikning,
bókhald
og vélritun.
Vönduð vinna
- gott verð.
Steinunn Björk Birgisdóttir, Skeifan 8,
sími 38555 frá kl. 9-13.
▲ ▲▲
• •••
• ••••
• •••
• •••
• •••
Kjarnaborun
Steinsögun
Malbikssögun
Raufarsögun
Sími 37461
Frá menntamálaránuneytinu:
Lausar stöður við
framhaldsskóla:
Umsóknartrestur um áður auglýstar kennarastöður I stærð-
fræði, eðlisfræði, tölvufræði, ensku og dönsku við Fjölbrauta-
skóla Suðurlands á Selfossi framlengist til 26. ágúst.
Umsóknir sendist menntamálaráðuneytiu, Hverfisgötu 6,101
Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið.
Tii sölu
Massey Ferguson 135 árgerð 1978. Skipti
koma til greina á ódýrari. Upplýsingar í síma
93-1338 eftirkl. 19.00.
Þriðjudagur 20. ágúst 1985 4
Skrifaði sögu um ál
- og það varð kveikjan að því sem á eftir kom
■ Danski myndlistarmaður-
inn Pia Schutzmann á nokkra
góða íslenska vini í Kaup-
mannahöfn. Hún hefur þess
vegna gaman af að sjá ísland og
kynnast dálítið íslenskri menn-
ingu. Pess vegna er hún nú
hingað komin til að sjá ísland
og íslendinga og leyfa þeim
hinum sömu að sjá sig og sín
verk.
Viö fyrstu kynni af íslandi
finnst henni að Ijós og skuggar
séu mjög sterkir hér á Iandi.
Þannig er það líka í Jerúsalem
og af þessu er hún mjög hrifin.
Hún gerðist nefnilega hugfangin
af Ijósi og skuggum þegar hún
nam myndlist við Lista-akadem-
íuna í Kaupmannahöfn og það
hefur loðað við hana síðan.
Pia byrjaði seint að mála og
fást fyrir alvöru við myndlist.
Hún giftist ung og eignaðist
börn, hafði ekkert menntað sig
og um þrítugt byrjaði hún allt í
einu að teikna. Hún samdi
nefnilega einn morguninn, eftir
langa vökunótt, sögu um ál,
sem ferðaðist um öll heimsins
höf og svo myndskreytti hún
söguna. Þetta varð kveikjan að
því sem síðar kom.
Síðan hefur hún fengist við
grafík, blýantsteikningar,
kvassliti og málningu. Hún seg-
ist hafa þróast meira yfir í að
gera abstrakt verk og jafnframt
hafa þau stærri. Það sé þó engin
algild regla.
Á sýningu sína í Norræna
húsinu, sem stendur dagana 10,-
22. ágúst í anddyrinu, hefur hún
reynt af fremsta megni að velja
sem fjölbreytilegust verk, þó
hún gæti að sjálfsögðu ekki flutt
með sér skúlptúrana, sem hún
hefur gert. Alls eru um 60
myndir á sýningunni.
■ Pían Pia var önnum kafín
við að undirbúa verk sín á sýn-
inguna í Norræna húsinu sem
stendur frá 10. til 22. ágúst.
NT-nivnd Svenrir.’
Sölumiðstödin:
Fiskbirgðir að
verða uppurnar
- 46% aukning söluverðmætis milli ára
■ Söluverðmæti útflutn-
ings Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna var 1.500 mill-
jónum króna meira fyrstu 7
mánuði þessa árs en á sama
tíma 1984, sem er um 46,3%
aukning milli ára. Útfluttar
sjávarafurðir á vegum S.H.
frá áramótum til júlíloka
nam um 59 þúsund tonnum,
sem er sama magn og flutt
var út á sama tímabiii 1984,
að verðmæti nú um 4.600
milljónir króna, að sögn
Guðmundar H. Garðarsson-
ar, fulltrúa hjá Sölumiðstöð-
inni. Verðmætisaukninguna
milli ára sagði hann fyrst og
fremst skýrast af breytingu á
gjaldmiðlum en einnig af
nokkurri hækkun afurðanna.
Það sem af er árinu hefur
fiskurinn runnið út hjá þeim
í S.H. „Okkar vandamál fer
að verða það helst að okkur
vanti fisk í okkar sölukerfi.
Birgðir af ýsu og karfa eru
orðnar litlar, sem þegar er
orðið vandamál og birgðir af
þorski í 5 lbs. pakkningum
fara hraðminnkandi og
sömuleiðis í nokkrum öðrum
þorskpakkningum,“ sagði
Guðmundur.
Fram kom að gífurleg
söluaukning hefur orðið hjá
verksmiðju Sölumiðstöðvar-
innar í Bretlandi. Fyrstu 7
mánuðina nam salan þar um
12 milljónum sterlings-
punda, sem var aukning um
37,3% miðað við sama tíma
1984. Þar af nam sala verk-
smiðjuframleiddrar vöru
tæplega 4 milljónum sterl-
ingspunda, sem er 83,4%
aukning miðað við sama tíma
1984. Varðandi aukningu er
hér miðað við söluaukningu
í sterlingspundum.
Guðmundur sagði einnig
hafa gengið vel hjá Coldwat-
er í Bandaríkjunum. Sölur
þangað frá áramótum til júlí-
loka nema 114 milljónum
dollara, sem er 5% aukning
í dollurum talið miðað við
1984. Þar af nam sala í júlí-
mánuði um 13 milljónum
dollara, eða 529 milljónum
ísl. króna.
Fundurvegna
landkynningar
Á fundi fulltrúa Ferðamála-
ráðs, Flugleiða og Arnarflugs,
sem haldinn var fyrir skömmu í
Kaupmannahöfn, var rætt um
samstarfsmöguleika þessara að-
ila á sviði landkynningar og
leiðir að slíkri kynningu ræddar,
sérílagi Norðurlandakynningu í
Þýskalandi, sem Norðurlanda-
ráð hyggst veita fjármagni til
næstu tvö árin.
Engar ákvarðanir voru teknar
á þessum fundi, sem Ferða-
málaráð átti frumkvæði- að.
Hann var haldinn í framhaldi af
viðræðum, sem áttu sér stað
milli aðilanna í tilefni af stofnun
landkynningarskrifstofu þeirra
í Hamburg í fyrra, samkvæmt
upplýsingum Magnúsar Odds-
sonar markaðsstjóra Arnar-
flugs. Ekki hefur verið ákveðið
hvenær næsti fundur skal
haldinn.
■ Eftirfarandi fulltrúar voru á fundi Ferðamálaráðs, Arnarflugs
og Flugleiða í Kaupmannahöfn á dögunum: Frá vinstri Böðvar
Valgeirsson, Pétur Eiríksson, Sigfús Erlingsson, Vilhjálmur Guð-
mundsson, Sigurður Skagfjörð, Kjartan Lárusson, Davíð Vilhelms-
son, Hans Indriðason, Omar Benediktsson, Birgir Þorgiisson,
Steinn Lárusson, Magnús Oddsson og Jóhann Sigurðsson.