NT - 20.08.1985, Page 10
Þriðjudagur 20. ágúst 1985 1 (
Ólíkir í sumarleyf um
■ Leikararnir í Dallas eru vissulega iðnir við sín storí' og sjá til þess aö ekki falli niður
vikuskammturinn sem aðdáendurnir bíöa svo ákafír eftir. En auövitað fá þeir sín frí, eins og
annað vinnandi fólk, og þá fara þeir að fást við áhugamálin, sem verða að sitja á hakanum á
meðan vinnan krefst alls af þeim.
Áhugainálin eru misjöfn eins og hjá öðru íólki. Þau Larry Hagman (JR) og Linda Grey (Sue
Ellen) leggjast gjarna í ferðalög, jafnvel heimsrcisur. En Pat Duffy (Bobby), sem reyndar mun
hættur að vera í Dallas-genginu, hefur valið sér allt annað tómstundagamiin.
Bandaríkjamenn eru sein kunnugt er niildir aðdáendur tyggigúmmís ag eiga reyndar heiðurinn
af því að hafa fundið það upp og gert notkun þess útbrcidda um heimsbyggðina. Þeir hafa fyrir
löngu komist að þeirri niðurstööu að það sé tilbreytingarlítið að láta sitja við það eitt að tyggja
það. Enn skcmmtilcgra sé að blása það upp í blöðru, og því stærri sem blaðran verður, því
meira gaman, þó að það geti farið að kárna, ef blaðran tekur upp á því aðspringa og tyggigúmmið
klístrast út um allt andlit.
Sennilega hefur Pat Duffy fundið til vanmáttar í þessari þjóðaríþrótt, því aö hann er sagður
hala varið drjúgum hluta eins sumarleyfis síns til að æfa sig í þessari göfugu kúnst. Enn sem
komið er viröist hann þó vera byrjandi í listinni eftir myndunum að dæma, en æfingin gerir
meistarann eins og kunnugt er.
■ Larry Hagman fór í heimsreisu og kom við á Suðurhafseyjum.
■ Pat
Dulfy æfði
tyggi'-
gúinms-
blöðru-
blástur.
Kóngur afsalar sér völdum
Yul Brynner hættir að leika í „Konungurinn og ég“ eftir 4.625 sýningar á 34 árum!
■ í byrjun júlí sl. mátti sjá í
blöðum í Bandaríkjunum
fyrirsagnir sem hljóðuðu
eitthvað á þessa leið: Kóngur
afsalar sér völdum - eða Yul
Brynner kveður leikhúsið,
o.s.frv. Það var sem sagt
verið að vekja athygli á því, -
að nú hafði Yul Brynner
ákveðið að hætta að leika
síamska konunginn í hinum
fræga söngleik eftir Rogers
og Hammerstein, „The King
and I“. Brynner er nú 65 ára
og hann hafði leikið þetta
hiutverk í 34 ár! „Ég vissi
varla orðið hvort ég var ég
sjálfur eða kóngsi!“ sagði
hann er hann kvaddi í
leikhúsinu.
Þegar leikarinn hafði
hneigt sig í síðasta sinn á
sviðinu biðu ótal aðdáendur
fyrir utan leikhúsið að fá að
sjá hann og helst fá eigin-
liandaráletrun hans. Það varð
að fá hóp löggæslumanna til
að koma Brynner heilum á
húfí út í fina bílinn sem beið
hans til að flytja hann í sam-
sætið sem samstarfsfólkið
hélt honum til heiðurs. Það
var reyndar ekki langt að
fara, því að kveðjupartíið var
haldið í STUDIO 54 nætur-
klúbbinuin, sem er í u.þ.b. 20
m fjarlægð frá leikhúsinu.
Yul Brynner fæddist 1920 í
Vladivostok í austasta hluta
Sovétríkjanna. Hann byrjaði
leikferll sinn sem loftfím-
leikamaður í sirkus og síðar
sem útvarpskynnir og sjón-
varpsmaður. Hann sótti um
hlutverk í söngleiknum Kon-
ungurinn og ég í leikhúsi á
Broadvvay árið 1951 þegar
fyrsti „konungurinn“, leikar-
■ Yul Brynner lét krúnuraka sig þegar hann tók við hlutverki síamska konungsins í söngleiknum
„The King and 1“ eftir Rogers og Hammerstein.
inn Alfred Drake, hafði hætt.
Brynner fékk hlutverkið og
hefur leikið það síðan. I
fyrstu uppfærslu söngleiksins
á Broadway lék hin fræga
leikkona Gertrude Lawrence
kennslukonuna Önnu, sem
kentur til Síams að kenna
hinum konunglegu börnum
við hirðina. Gertrude andað-
ist eftir að hafa leikið þetta
hlutverk í ár.
I fyrstu var Anna aðalpers-
óna leiksins, en smám saman
varð það konungurinn sem
varð mest áberandi í söng-
leiknum.
Börnin, sem léku litlu
prinsana og prinsessurnar,
báru Yul góða söguna. Einn
segir frá því, að hann hafi svo
sannarlega verið pabbalegur
við litlu leikarana, - farið
með krakkana í dýragarðinn
og kom fram við þá alla eins
og þetta væri ein fjölskylda.
„Hann gekkst upp í hlutverk-
inu og hann var kóngurinn og
hann var pabbi okkar,“ sagði
ein sem byrjaði 5 ára gömul
að leika síamska prinsessu.
Á síðustu sýningunni
sleppti Yul Brynner erfíðustu
söngvunum, þar sem hann
dansar samtímis söngnum, og
lét ungan niann koma inná í
hlutverk kóngsins. í leikslok
ætlaði lófatakinu aldrei að
linna. Sjálfur neitaði leikar-
inn því í viðtali að hann væri
orðinn þreyttur, en sagðist
vera orðinn leiður á að leika
stöðugt sömu rulluna, og nú
langaði sig til að fara á tón-
leika og leiksýningar og eiga
einhvern tíma fyrir sjálfan sig
og með fjölskyldu sinni.
Janine er
ánægð í
vinnunni
og blæs á
Hollywood
lífið!
■ Hún Janine James er koniin
í sumarfötin sín. Reyndar er hún
svo stálheppin að þetta er líka
vinnufatnaðurinn Itcnnar,
a.m.k. stundum.
Janine er eftirsótt fyrirsæta og
þykir ekki hvað síst hafa það sér
til ágætis að líkjast Marilyn
Monroe hcitinni. En Janine læt-
ur örlög Marilyn verða sér víti til
varnaðar og hefur ekki hinn
minnsta áhuga á að dragast inn í
það æsilega og ómannúðlega Iíf
sem HoIIywood býður upp á.
Hún lætur sér vel líka fyrir-
sætustarlið, ekki síst þegar það
gefur henni tækifæri til að ferð-
ast til ókunnra og fjarlægra
landa. Og hún er líka metnaðar-
full í starfí sínu. Þó að hún sé
ekki nema tvítug gerir hún sér
vel grein fyrir að það er nauðsyn-
legt að halda sér í góðu formi, ef
hún á að gera sér vonir um að ná
langt. Tómstundum sínum ver
hún þess vegna aðallega í að
spila veggbolta og fara í langar
gönguferðir.
Janine James er sem sagt
ánægð með lífið og tilveruna
þessa dagana og stefnir að því að
verða eftirsóttasta fyrirsætan í
heimalandi sínu, Englandi.