NT - 20.08.1985, Blaðsíða 11

NT - 20.08.1985, Blaðsíða 11
II Svartur sauður í konungsfjölskyldunni ■ .Allt er afstætt er oft sagt. Pað á ekki síst við um hegðun- armynstur ungs fólks. Það sem þykir alveg sjálfsögð hegðun venjulegs fólks, þykir nánast ósæmilegt í virðulegri þjóð- félagshópum, sem enn halda stift við fornar hefðir. Þennan dóm hefur Helen Windsor, dóttir hertogans af Kent, mátt þola. Sem meðlim- ur bresku konungsfjölskyld- unnar er ætlast til þess af henni að hún hagi sér í einu og öllu eins og eldri kynslóðin. En hún er ekki nema 21 árs gömul og þykir eðlilegra að lifa lífinu eins og jafnaldrar hennar. Og satt best að segja er henni tæpast veitt athygli, þegar hún tekur sér far með neðanjarðar- lestinni í London í morgunsár- ið á leið til vinnu sinnar. Þá er hún eins og hver önnur ung stúlka, klædd þægilegum fatn- aði og með hárið slegið og frjálst. Helen var ekki komin svo mjög til ára sinna, þegar farið var að hneykslast á sjálfstæðu framferði hennar. Hún sér ekki ástæðu til að klæðast formföstum klæðnaði, þegar hann hentar alls ekki aðstæð- unum. Og hún var ekki nema 19 ára þegar hún fékk sér eigin íbúð, þar sem hún býr án verndar foreldra og fjölskyldu. Sjálf varð hún sér úti um námspláss. í ástum hefur hún ekki held- ur troðið hefðbundna slóð fína fólksins. Hún hefur átt vingott við a.m.k. 3 karlmenn, sem hún lýsir mikilli aðdáun.á, en gefur það jafnframt ljóst til kynna að hún sé hreint ekki reiðubúin að binda sig við einn ákveðinn karlmann til lífstíðar enn. Mr fylgir hún sjónarmiði skólasystra sinna og jafnaldra, en er litin hornauga fyrir af íhaldssömum Bretum, sem sýnist breska konungsfjöl- skyldan þarna hafa misst taum- hald á einum meðlima sinna. Það er starfsframinn sem situr í fyrirrúmi í huga Helenar eins og er. Hún varð sér úti um lærlingspláss hjá uppboðs- fyrirtæki Christie’s og hefur verið þar í eitt og hálft ár. Mr standa að vísu allar dyr opnar fólki „af hærri stigum“, en engu að síður verður það að vinna sig upp. Helen fannst það því ekki nema sjálfsagt að byrja þar sem móttökustúlka og símadama í von urn að fá einhver virðulegri störf síðar meir. Þegar öllu er á botninn hvolft er ólíklegt að hún eigi nokkurn tíma eftir að setjast í hásæti Bretaveldis, það eru 18 aðrir aðilar sem nær því standa. ■ Helen Windsor er ósköp venjuleg 21 árs gömul stúlka, sem blæs á gamaldags hegðunarmynstur konungsljölskyldunnar bresku. Þriðjudagur 20. ágúst 1985 11 ■ Ástralíumaöurinn Peter Millington segisl vera hoppandi illur vegna þess hve kengúrunum ferfækkandi íheimalandi hans. Þærséu veiddar, og land þar scm þær geti lifað eðlilegu lífi sé tekið til annarra nota, svo að nú sé svo komiö að kengúrum l'ækki stöðugt frá ári til árs. Millington hefur því stofnað samtök sem nefnast „Bjargið kengúrunum,‘. Til að vekja athygli á þessum félagsskap hefur hann látið útbúa upphlásna kengúru sem hann hoppar í um stræti og torg. Hann lætur ekki við það sitja að hoppa um í Ástralíu heldur hefur hann ferðast með kengúruna sína til Evrópu og reynt þar að útbreiða félagsskapinn um kengúruvemd.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.