NT - 20.08.1985, Page 17

NT - 20.08.1985, Page 17
Þriðjudagur 20. ágúst 1985 17 Þórmundur Bergsson (ábm.), Gylfi Þorkelsson og Sveinn Agnarsson ■ Valsmenn urðu íslandsmeistarar utanhúss í handknattleik um helgina. Liðið sigraði FH í síðasta leik mótsins með 21 marki gegn 15. Valsliðið sigraði þar með í öllum leikjum sínum um helgina en aðeins fjögur lið tóku þátt í mótinu: Valur, Breiðablik, Ármann og FH. Myndin sýnir Jakob Sigurðsson skora eitt marka Vals en Guðmundur Magnússon þjálfari horfir skelkaður á. NT-m.vnd: Svenír íslandsmótið í knattspyrnu - 3. deild: Selfyssingar í 2. deild - hafa sigrað örugglega í A-riðlinum - ÍK með stórkostlegan endasprett ■ Selfyssingar tryggðu sér sæti í 2. deild að ári með því að sigra í A-riðli 3. deildar afar örugg- lega. Liðið gerði jafntefli við Ármann á heimavelli sínum og það var stigið sem nægði til að vinna í riðlinum. Reyndar hefði Selfoss getað tapað þessum leik þar sem Grindvíkingar gerðu einnig jafntefli. í B-riðli er enn allt í sama hnútnum. Öll efstu liðin unnu sigra en Einherji stendurbest að vígi eins og er. Leikur Selfoss og Ármanns var mun ójafnari en úrslitin gefa til kynna. Selfyssingar voru ntun sterkari allan leikinn en þeim gekk afar illa að nýta sér yfirburðina til að gera mörk. Vörn Ármenninga var föst fyrir og oft fjölmenn. Það var Reykjavíkurfélagið sem náði forystu í leiknum með fallegu marki frá ívari Jósafatssyni og stuttu seinna þá skoraði bróðir hans Smári úr víti og staðan var skyndilega 0-2 fyrir Ármann. Þetta voru nánast einu verulegu sóknir liðsins í leiknum. Selfyss- ingar minnkuðu muninn fyrir hlé með skallamarki frá Gunnari Garðarssyni úr einni af fjöl- mörgum hornspyrnum liðsins. í síðari hálfleik þá jafnaði Þórar- inn Ingólfsson, besti maður vall- arins, með skalla og þar við sat. ÍK vann stóran sigur á Reyni frá Sandgerði er liðin mættust í Kópavogi. Staðan var þó ekki björt hjá ÍK-ingum fram eftir síðari hálfleik. Er rúmar 20 mín. voru til leiksloka var staðan 3-1 fyrir Reyni en þá tók Hörður Sigurðarson sig til og lék vörn Reynis sundur og saman og hann sá til þess að leggja upp jöfnunarmörk ÍK. Fyrir IK skoruðu Guðjón þjálfari Guð- mundsson 3, Jón Hersir Elíasson 2 og Þórir Gíslason 1. Fyrir Reyni skoruðu Jón G.B. Jónsson, Ari Haukur Arason og Sigurður Guðnason. í Grindavík gerðu heima- menn, sem voru án nokkurra fastamanna, jafntefli við Víking Ólafsvík. Steinþór Helgason kom heimamönnum yfir en Gunnar Örn jafnaði fyrir Ólsara úr víti. Einn leikmaður Grind- víkinga, Hjálmar Hallgrímsson, var rekinn af velli í síðari hálf- leik af ágætum dómara leiksins. HV gerði góða ferð í Garða- bæinn og lögðu Stjörnuna að velli með tveimur mörkum gegn engu. Birgir Birgisson og Valur Guðjónsson skoruðu mörkin í annars jöfnum leik. Stjarnan hefur aldeilis misst flugið eftir góða byrjun. í B-riðli þá vekur hvað mesta athygli sigur Hugins á Austra á Eskifirði, 4-3. Huginn komst í 2-0 en Austramenn jöfnuðu. Þá skoruðu Huginsmenn tvívegis og síðasta orðið átti Bjarni Kristjánsson fyrir Austra. Bjarni skoraði einnig fyrsta mark Austra en Hilmar Ás- björnsson skoraði annað. Austramenn skoruðu síðan sjálfsmark til að koma Seyðfirð- ingum á bragðið en Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Amar Jónsson og Kristján Jónsson tryggðu sigurinn. Tindastóll vann sinn leik létt gegn Val. Guðbrandur Guð- brandsson skoraði gullfallegt mark strax í byrjun leiksins og Birgir Rafnsson bætti öðru marki við áður en yfir lauk. Tindastóll á að fara um næstu helgi á Vopnafjörð og spila við Einherja. Það er einn af úrslita- leikjum riðilsins. Einherji sigraði HSÞ með tveimur mörkum Kristjáns Dav- íðssonar gegn einu marki HSÞ skoruðu á síðustu sekúndu leiks- ins. Sigurinn var aldrei í hættu. Einherji á eftir að leika gegn Tindastól heima og Magna úti. Magni tók Þrótt Nes. í karp- húsið á heimavelli sínum. Stað- an í leikhléi var 1-0 og hafði Jón Ingólfsson skorað gegn gangi leiksins. í síðari hálfleik voru heimamenn mun betri og Hring- ur Hreinsson skoraði þrennu til að gulltryggja 4-0 sigur. Staðan í 3. deild: A-riðill: Selfoss............ 12 8 4 0 31-11 28 Grindavík.......... 13 6 4 3 24-17 22 Reynir S ...13 5 4 4 26-19 19 1K ...13 4 6 3 24-21 18 Ármann ...13 4 4 5 19-17 16 Stjarnan ...12 4 4 4 11-18 16 HV ...13 4 2 7 20-22 14 Víkingur Ó1... ...13 1 2 10 10-40 5 B-riöill: Einherji ...14 10 2 2 32-15 32 Magni ...14 9 2 3 29-16 29 Tindastóll .... ...14 8 5 1 19-6 29 Leiknir ...14 8 1 5 20-19 25 AuBtri ...15 4 6 5 24-21 18 Þróttur ...15 4 4 5 20-21 16 Valur ...14 4 2 8 14-27 14 Huginn ...14 3 2 9 16-33 11 HSÞ ...14 1 2 11 17-39 5 EM fatlaðra í frjálsíþróttum: Gott hjá Hauki ■ Nú um helgina var haldið í Belgíu 1. Evrópumeistaramótið í frjálsum íþróttum fyrir fatlaða. Mótið var tvískipt. í Brussel kepptu mænuskaðaðir íþrótta- menn en í Antverpen kepptu aðrir skaðahópar. Einn íslensk- ur keppandi, Haukur Gunnars- son, keppti á leikunum í Ant- verpen. Haukur keppir í flokki spastiskra (CP). A mótinu keppti Haukur í eftirtöldum greinum: 100 m, 200 m, 400 m hlaupum og langstökki. Árang- ur Hauks í einstökum greinum var sem hér segir: 100 m hlaup: (15 keppendur). Eftir riðlakeppni og undanúrslit hafði Haukur besta tíma allra keppenda, 13,5 sek. 1 úrslita- hlaupinu varð Haukur að láta í minni pokann fyrir dönskum hlaupara sem hljóp á 12,9 sek. Haukur varð annar á 13,4 sek. 200 m hlaup. (12 keppendur). Haukur komst í úrslit og hafn- aði þar í 4. sæti á 28,2 sek. Hann hlaut einnig sama tíma í undan- rásum. 400 m hlaup. (10 keppendur). Haukur hafnaði í öðru sæti með tímann 66,0 sek. Sigurvegari varð franskur hlaupari sem hljóp á 63,4 sek. í undanrásum hljóp Haukur á 64,4 sek. Langstökk (11 keppendur). Haukur hafnaði í 4. sæti, stökk 4,36 m. Af ofanskráðu má ljóst vera að árangur Hauks á mótinu var mjög góður. Alls þurfti hann að hlaupa 8 hlaup langstökksins á þremur dögum. ■ Haukur sigrar hér í riðli sínum í 400 im hlaupi. Kennarar Eftirfarandi kennarastöður eru lausar við Hafnarskóla Höfn Hornafirði 1. almenn1 kennsla, 2. myndmennt 1/2 staða, 3. stuðn- ings- og sérkennsla. Góð vinnuaðstaða. Gott íbúðarhúsnæði á staðnum. Flutnings- styrkur greiddur. Upplýsingar veitir skóla- stjóri í símum 97-8148 og 97-8142, yfirkenn- ari í síma 97-8595 og formaðurskólanefndar í síma 97-8181. Skólanefnd. Borgarskipulag Reykjavíkur minnir á kynningarfund á skipulagstillögu Skúlagötu- svæðis, fimmtudaginn 22. ágúst kl. 20.00 í Risinu, Hverfisgötu 105. Eigendum fasteigna í hverfinu og íbúum þess er sérstaklega boðið á fundinn. Bræðratunga þjálfunar- og þjónustumið- stöð fatlaðra á Vestfjörðum. Þroskaþjálfar Óskum eftir að ráða þroskaþjálfa til starfa strax eða eftir samkomulagi. Um er að ræða störf á þjónustumiðstöðinni sjálfri svo og sambýli sem rekið verður í tengslum við hana. Upplýsingar um starfið, launakjör og húsnæði veitir forstöðumaður í síma 94- 3290. Allir með til Færeyja - Leirvíkur og Bergen Brottför 22. ágúst og komið aftur 29. ágúst. Ódýr og skemmtileg ferð aðeins kr. 10.500 fyrir fullorðna, 50% afsláttur fyrir börn yngri en 15 ára og börn yngri en 7 ára greiða aðeins 10% af verði. Innifalið í verði er 3ja nátta gisting á Hótel Borg i Færeyjum. Við skoðum Færeyjar, Hjaltlandseyjar og lítum aðeins á Noreg. Allar nánari upplýsingar og bókanir eru gefnar í símum 97-1984 og 97-1640. Kjördæmissamband framsóknarmanna Austurlandi Skagfirðingar - Sauðár- króksbúar Fyrirhuguð er sumarferð laugardaginn 17. ágúst n.k. ef næg þátttaka fæst. Farið verður til Hveravalla og um nágrenni þeirra. Lagt verður af stað kl. 8:00 frá Suðurgötu 3, fólk hafi með sér nesti. Tilkynna þarf þátttöku fyrir 13. ágúst n.k., símar 5660-Jón Fr„ 6464-Jón Guðm. 5030-Guðrún. Allir velkomnir. Framsóknarfélögin. Vestfirðir - kjördæmisþing - Vestfirðir Kjördæmisþing framsóknarmanna í Vestfjarðarkjördæmi verður haldið í félagsheimilinu á Bíldudal og hefst kl. 18,00 föstudaginn 6. september. Framsóknarfélögin eru hvött til að kjósa sem fyrst fulltrúa á kjördæmisþingið. Stjórnin Héraðsmót framsóknarmanna í V-Skaftafellssýslu verður í Leikskálum í Vík í Mýrdal laugardaginn 24. ágúst. Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi, dagskrá auglýst nánar síðar. i Framsóknarfélögin Skagfirðingar - nærsveitarmenn Héraðsmót framsóknarmanna Skagafirði verður í Miðgarði laugardaginn 31. ágúst, góð skemmtiatriði.Hljómsveit Geir- mundar Valtýssonar leikur fyrir dansi. Nánar auglýst síðar. Nefndin.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.