NT - 20.08.1985, Blaðsíða 23
sjónvarp
Þriðjudagur 20. ágúst 1985 23
■ David Warner sem Charlie.
Sjónvarp kl. 21.10:
Utvarp kl. 20.40:
Öllum kom hann til
nokkurs þroska
■ Þorsteinn M. Jónsson.
Þorstein M. Jónsson í tilefni
aldarafmælis hans og nefnis
þátturinn Öllum kom hann til
nokkurs þroska.
Sverrir flytur erindi um
Þorstein og Guðmundur Gunn-
arsson les kafla úr skóla-
setningarræðu Þorsteins frá
1950. ^
Þorsteinn var skólastjóri
Gagnfræðaskóla Akureyrar í
tuttugu ár, frá 1935-55. Hann
kenndi í Borgarfirði eystra
frá 1909 og frá 1921 á Akur-
eyri. Hann sat í bæjarstjórn
Akureyrar frá 1945-56 og var
alþingismaður frá 1916-23.
Hann átti sæti í sambands-
laganefndinni 1918, sem
samdi við Dani um að ísland
yrði sjálfstætt ríki innan
dansk-íslenska konung-
dæmisins. Þorsteinn var mik-
ill bókasafnari.
Charlie—
■ í kvöld tekur nýr breskur
framhaldsmyndaflokkur við af
flokknum Hver greiðir ferju-
tollinn? Þessi flokkur er í fjór-
um þáttum og ber nefnið Cliar-
lie. Þátturinn í kvöld nefnist
Ég elskaði Charlie.
Með aðalhlutverk fara Da-
vid Warner og Michael Aldr-
idge.
David Warner er þekktur
breskur skapgerðarleikari,
fædduríManchesterárið 1941.
Hann var bóksali að atvinnu
og lærði leiklist í Royal Ac-
ademy of Dramatic Art. Hann
er meðlimur hins virta leikhóps
Royal Shakespeare Company.
Meðal þeirra kvikmynda sem
David Warner hefur leikið í
má nefna Tom Jones (1963),
Morgan! (1966), The Deadly
Affair (1967), The Sea Gull
(1968), Mr. Quilip (1975), The
Omen (1976), Cross of Iron
(1977), Silver Bears (1977),
Nigtwing, Airport, The Thirty-
Nine Steps, S.O.S. Titanic
(1979). Margir muna eflaust
Sjónvarp kl. 22
Hvalveiðar í
vísindaskyni
■ í kvöld kl. 22.00 veröur
umræöuþáttur í beinni útsend-
ingu úr sjónvarpssal um fyrir-
hugaðar hvalveiðar í vísinda-
skyni.
Umsjónarmaður er Einar Sig-
urðsson.
NT-myndir: Sverrir.
nýr framhaldsmyndaf lokkur
■ í dag hefur Sverrir
Pálsson, skólastjóri á Akur-
eyri umsjón með dagskrá um
eftir honum sem geðsjúklingn-
um í Straw Dogs, með Dustin
Hoffman í aðalhlutverki.
En aftur að Charlie. Charlie
heitir maður og er einkaspæj-
ari. Kona lians er nýfarin frá
honum með börnin þeirra þrjú
og Charlie er harmi sleginn.
Framtíðin virðist ekki brosa
við honum og liann dregst á
óvæntan hátt inn í flókið saka-
mál.
Fyrsti þáttur er 50 mínútur
og þýðandi er Kristmann Eiðs-
son.
Rás 2, kl. 17.
Tannafjöldi Simon Le Bon
■ Eðvarð Ingólfsson verður
með þátt sinn Frístund á Rás 2
ídagkl. 17.00.
„Aðstoðarþulur minn í dag
verður Guðrún Viðarsdóttir en
hún er 15 ára Kópavogsmær.
Krakkarnir sjá um tónlistar-
kynningar í þættinum og í dag
verður Cyndi Lauper kynnt og
það er Hrafnhildur Einarsdótt-
ir úr Hveragerði sem tók þessa
kynningu saman. Hrafnhildur
hefur áður kynnt Madonnu í
Frístund. Krakkar utan af
landi senda mér þessar kynn-
ingar í pósti, þannig að þau
geta tekið þátt í þessu hvaðan
sem er af landinu.
Svo ætla ég að ræða við tvo
unglinga, strák og stelpu sem
taka þátt í maraþonhlaupinu á
sunnudaginn. Ég les bréf sem
hafa borist til þáttarins í vik-
unni og slæ e.t.v. á þráðinn til
Vestmannaeyja og ræði við
fréttaritara Frístundar í Eyj-
um. Liðurinn Eftirlætislögin
þrjú verður á sínum stað í
þættinum og að þessu sinni er
það strákur úr Kópavoginum
sem kynnir eftirlætislögin sín.
Krakkarnir eru svo ofsalega
duglegir að skrifa mér að þeir
eru stundum að kaffæra mig í
bréfum og það er mjög
skemmtilegt hvað þessi bréf
eru fjölbreytt, þau eru m.a.
með athugasemdir við tónlist-
arkynningarnar og t.d. er
ennþá verið að leiðrétta og
bæta við kynninguna á Duran
Duran sem var flutt í janúar.
Það gleymdist að taka fram
tannafjölda Simon Lc Bons og
skónúmer Nick Rhodes kom
ekki tram, svo að dæmi séu
tekin.'-
■ Cyndi Lauper verður kynnt í Frístund í dag,
Sjónvarp kl. 19.25:
Sólogströndog
Milla María
■ íkvöldkl. 19.25 fákrakk-
arnir eitthvað fyrir sinn snúð.
Sýndur verður fimmti þáttur-
inn í myndaflokknum Sól og
strönd og teiknimynd um
Millu Maríu.
Hvað gerir Milla María í
þessum þætti?
Þýðandi er Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
Okkarámilli
■ Unglingaþátturinn Okkar
á milli verður á dagskrá út-
varps kl. 20.00 í kvöld. Sigrún
Halldórsdóttir, sér um þáttinn.
„Ég fæ tvennar mæðgur til
að spjalla við mig um lífið og
tilveruna í þessum þætti.
Þær eru Borghildur Anna
Jónsdóttir, blaðamaðurá Dag-
blaðinu og dóttir hennar, sem
er 17 ára og Sonja B. Jónsdótt-
ir, fréttamaður hjá sjónvarp-
inu og 14 ára dóttir hennar.
Viö ræðum um unglingsárin
nú og áður þegar við þær eldri
vorum unglingar. Við komum
inn á samskipti milli foreldra
og barna, hvernig þau fara
fram á þessum þreyttu
tírnurn," sagði Sigrún Hall-
dórsdóttir.
Þriðjudagur
20. ágúst
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn.
Morgunútvarpið. 7.20 Leikfimi.
Tilkynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurtekinn þátt-
ur Guðvarðar Más Gunnlaugsson-
ar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
8.15 Veðurfregnir. Morgunorð -
Jón Ólafur Bjarnason talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Margt fer öðruvísi en ætlað er“
eftir Margréti Jónsdóttur Sigurö-
ur Skúlason les (2).
j9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugreinar dagblaðanna (útdr.).
Tónleikar.
10.45 „Man ég það sem löngu leið“
Ragnheiður Viggósdóttir sér um
þáttinn.
11.15 í fórum mínum Umsjón Inga
Eydal. RÚVAK.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Frettir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Inn og út um gluggann
Umsjón: Heiðdis Norðfjörð.
RÚVAK.
13.40 Létt lög
14.00 „Lamb“ eftir Bernard Mac-
Laverty Erlingur E. Halldórsson
les þýðingu sína (10).
14.30 Miðdegistónleikar Sinfónía
nr. 4 í D-dúr eftir Luis de Freitas
Barnco. Sinfóniuhljómsveit port-
úgalska útvarpsins leikur; Silva
Pereira stjórnar.
15.15 Út og suður Endurtekinn þáttur
Friðriks Páls Jónssonar frá sunnu-
degi.
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Upptaktur Siguröur Einarsson
sér um þáttinn.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 „Hvers vegna, Larnia?" eftir
Patriciu M. St. John Helgi
Elíasson les þýðingu Benedikts
Arnkelssonar (7).
17.40 Síðdegisútvarp - Sverrir
Gauti Diego. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.45 Tilkynning-
ar. Daglegt mál Sigurður G. Tóm-
asson flytur þáttinn.
20.00 Okkar á milli Sigrún Halldórs-
dóttir rabbar við ungt fólk.
20.40 Öllum kom hann til nokkurs
þroska Minnst aldarafmælis Þor-
steins M. Jónssonar. Umsjón:
Sverrir Pálsson. RÚVAK.
21.20 Píanósónata í A-dúr K. 331
eftir Wolfgang Amadeus Mozart
Wilhelm Kempff leikur.
21.45 Útvarpssagan: „Sultur“ eftir
Knut Hamsun Jón Sigurösson frá
Kaldaðarnesi þýddi. Hjalti Rögn-
valdsson les (2).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Leikrit: „Boðið upp i morð“
eftir John Dickson Carr Sjötti og
síðasti þáttur endurtekinn: Svör
við níu spurningum. Þýöing, leik-
gerð og leikstjórn: Karl Águst
Ulfsson. Leikendur: Hjalti Rögn-
valdsson, Maria Sigurðardóttir,
Sigurður Karlsson, Aðalsteinn
Bergdal, Eyþór Árnason, Kristján
Franklín Magnús, Helgi Skúlason,
Sigurður Sigurjónsson og Arnar
Jónsson.
23.30 Kvöldtónleikar
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Ímj
Þriðjudagur
20. ágúst
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
andi: Páll Þorsteinsson
14.00-15.00 Vagg og velta Stjórn-
andi: Gisli Sveinn Loftsson
15.00-16.00 Með sínu lagi Lög leikin
af islenskum hljómplötum. Stjórn-
andi: Svavar Gests.
16.00-17.00 Þjóðlagaþáttur Stjórn-
andi: Kristján Sigurjónsson
17.00-18.00 Frístund Unglingaþátt-
ur. Stjórnandi: Eövarð Ingólfsson
Þriggja mínútna fréttir sagðar
klukkan: 11.00,15.00,16.00 og 17.00
Þriðjudagur
20. ágúst
19.25 Sól og strönd, Fimmti þáttur,
og teiknimynd um Millu Maríu
(Nordvision - Danska sjónvarpið)
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Nýjasta tækni og visindi Um-
sjónarmaður Sigurður H. Richter.
21.10 Charlie 1. Ég elskaði Charlie.
Nýr breskur framhaldsmyndaflokk-
ur i fjórum þáttum. Aðalhlutverk:
"■David Warner og Michael Aldri-
dge. Charlie ereinkaspæjari. Kona
hans er nýfarin frá honum með
börnin þeirra þrjú. Framtíðin virðist
ekki brosa við Charlie, og hann
dregst á óvæntan hátt inn í flókið
sakamál. Þýðandi Kristmann Eiðs-
son.
22.00 Hvalveiðar i vísindaskyni.
Umræðuþáttur i beinni útsendingu
úr sjónvarpssal um fyrirhugaðar
hvalveiðar i vísindaskyni. Umsjón-
armaður Einar Sigurðsson.
23.00 Fréttir í dagskrárlok.