NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 15.10.1985, Qupperneq 3

NT - 15.10.1985, Qupperneq 3
* \* i Þriðjudagur 15. október 1985 3 Albert selur Þór fyrir þúsund k - Slysavarnafélag íslands mun nota skipið sem æfingamiðstöð ■ Slysavarnafélag íslands eignaðist í gær gamla varðskipið f>ór. Kaupverð skipsins var þúsund krónur. Samning- ur var undirritaður í fjármálaráðu- neytinu í gær. Albert Guðmundsson fjármálaráðhérra og Hannes Þ. Haf- stein undirrituðu kaupsamninginn. Albert Guðmundsson sagði í samtali við NT í gær að skipið hefði verið selt til SVFÍ eftir að í Ijós kom að tilboð það sem gert var í skipið gat ekki staðist. Það hljóðaði upp á átta til tíu milljónir króna. „Það er gömul hugmynd að Slysa- varnafélagið og Sjóslysanefnd fengju skip til þess að æfa bjögunarmenn. Þessir aðilar hafa haft það í huga í nokkurn tíma. Þeir sem höfðu keypt skipið ráða ekki við kaupin svo þau ganga til baka,“ sagði Albert. Hann benti á að þetta væri rnjög verðugt hlutverk fyrir þetta gamla skip sem svo lengi hefur þjónað landi og þjóð. Það var með samþykki forsætisráð- herra og dómsmálaráðherra sem sal- jn fór fram, að sögn Alberts. „Kaupin voru fremur gjöf en kaup, en ég held að þjóðin öll meti mikið starf Slysa- varnafélagsins, og vonast til að þetta geri það enn hæfara," sagði Albert að lokum. Hannes Hafstein framkvæmda- stjóri Slysavarnafélagsins sagði að þetta væri mikil lyftistöng fyrir félag- ið, að fá þarna svo gott skip til þess að nota sem æfingamiðstöð. Þá benti hann á að Þór væri merkilegt skipt og væri búið að gegna því hlutverki í áraraðir og aðstoða menn á sjó, og það væri því vel við hæfi að skipið Fjárlagafrumvarpið: Lagt fram í nýrri mynd ■ Albert Guðmundsson, fjármálaráð- herra, mun í dag leggja fram fjárlaga- frumvarp fyrir Alþingi í nýrri mynd. Nýbreytnin felst í því að fjárlög A og B hluti ásamt lánsfjárlögum og þjóðhags- spá verður allt fellt undir sama lagabálk- inn. „Þetta er gert til þess að gera málin skýrari og gera fólki auðveldara að hafa yfirlit yfir skuldir og tekjur og hvernig fé er varið," sagði fjármálaráðherra í sam- tali við NT í gærkvöldi. Albert telur að þetta frumvarp sé mun aðgengilegra og veiti þingmönnum mun betra yfirlit yfir heildarmynd ríkisfjár- mála, en áður. „Það á að vera auðveld- ara að afgreiða frumvarpið, þegar það er lagt fram í þessu nýja formi," sagði hann. Umferðin: Tveir stungu af frá slysi ■ Lögregla leitaði í gær að öku- manni sem hvarf af slysstað við gatnamót Suðurlandsbrautar og Grensásvegar aðfaranótt laugar- dags. Árekstur varð á gatnamótun- um. Ökumaður tók til þess ráðs að hlaupa út í myrkrið. Þegar lög- regla kom á vettvang var umráða- maður bílsins sem brotthlaupni ökumaðurinn keyrði, á staðnum. Ökumannsins er enn leitað. Ekið var á kyrrstæðan bíl fyrir utan Hverfisgötu 12 aðfaranótt Iaugardags. Okumaður stakk af. Að sögn lögreglu var vitni að atburðinum og mun hafa hjálpað til við rannsókn. Maðurinn kom sjálfviljugur og gaf sig fram við lögreglu og viðurkenndi að hafa verið við stjórnvöl bifreiðarinnar. yrði notað sem æfingamiðstöð fyrir björgunarstörf. „Því hefur verið forð- að frá því að fara í brotajárn," sagði Hannes. Þá vildi hann koma á frarn- færi þökkum til fjármálaráðuneytisins fyrir þetta framlag. Þór var seldur fyrir þúsund krónur til Slysavarnafélags íslands. - JTj T þegar vöxturínn er ★ Mjólk: nýmjólk, léttmjólk, undanrenna eða mysa. Unglingar verða að fá uppbyggilegt fæði vegna þess hve vöxtur þeirra er hraður á tiltölulega fáum árum. Þar gegnir mjólkurneysla mikilvægu hlutverki, því án mjólkur og kalksins sem í henni er ná unglingarnir síður fullri hæð og styrk. Komið hefur í Ijós að kalkneysla unglinga er oft undir því marki sem ráðlagt er og getur þeim því verið sérlega hætt við hinum alvarlegu afleiðingum kalkskorts síðar á ævinni. Sérstaklega eru stúlkur í hættu því konum er 4-8 sinnum hættara við beinþynningu en körlum eftir því sem rannsóknir Mjólk í hvert mál benda til. Ófullnægjandi mataræði og kalklitlir megrunarkúrar eru því miður oft einkenni á neysluvenjum stúlkna í þessum aldursflokki. Tvö mjólkurglös á dag innihalda lágmarkskalk- skammt fyrir unglinga og neysla undir því marki býður hættunni heim. Það er staðreynd, sem unglingar og foreldrar þeirra ættu að festa í minni, því þegar vöxturinn er hraður er hver dagur dýrmætur. Helstu heimildir Bækíngurinn Kalk og beinþynning eflir dr. Jón Óttar Ragnarsson og Nutrition and Physical Fitness, 11. útg., efbr Briggs og Caloway, Holt Reinhardt and Winston, 1984. Aldurshopur Ráðlagður dag- skammturaf kalki i mg Samsvarandl kalk- skammtur í mjólkur glösum (2,5 dl glösf Lágmarks- skammtur f mjólkurglösum (2,5 dl glös)* Börn 1-10ára 800 3 2 Unglingar11-18ára 1200 4 3 Ungt fólk og fullorðið 800*** 3 2 Ófrískarkonurog 1200 4 3 ★ Hór er gert ráð fyrir að allur dagskammturinn af kalki komi úr mjólk. ★ ★ Að sjálfsögðu er mögulegt að fá allt kalk sem llkaminn þarf úr öðrum matvælum en mjólkurmat mjólk, en sllkt krefst nákvæmrar þekkingar á næringarfræði. Hér er miðað við néysluvenjur eins og þær tfðkast I dag hór á landi. ★★★ Margir sórfræðingar telja nú að kalkþörf kvenna eftir tlðahvörf só mun meiri eða 1200-1500 mg á dag. ★★★★ Nýjustu staðlar fyrir RDSI Bandaríkjunum gera ráðfyrir 1200 til 1600 mg á dag fyrlr þennan hóp. Mjólk inniheldur meira kalk en nær allar aðrar fæðutegundir og auk þess B-vítamín, A-vítamín, kalíum, magníum, zink og fleiri efni. Um 99% af kalkinu notar líkaminn til vaxtar og viðhalds beina og tanna. Tæplega 1 % er uppleyst (líkamsvökvum, holdvefjum og frumuhimnum, og er það nauðsynlegt m.a. fyrir blóðstorknun, vöðvasamdrátt, hjartastarfsemi og taugaboð. Auk þess er kalkið hluti af ýmsum efnaskiptahvötum. Til þess að llkaminn geti nýtt kalkið þarf hann D-vítamln, sem hann fær m.a. með sólböðum og úr ýmsum fæðutegundum t.d. lýsi. Neysla annarra fæðutegunda en mjólkurmatar gefur sjaldnast meira en 300-400 mg á dag, en það er langt undir ráðlögðum dagskammti. Ur mjólkurmat fæst miklu meira kalk, t.d. 800 mg úr u.þ.b. þremur glösum af mjólk. MJÓLKURDAGSNEFND

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.