NT - 15.10.1985, Page 10
ÍTTP Þriðjudagur 15. október 1985 10
luí 3 3 3 ■i 3 Ifi
Minning
Bragi Kristjánsson
Fxddur 17. ágúst 1924 viö Landspítalann og átti hann lengst-
Dáinn 5. október 1985 an starfsaldur þeirra, sem vinna við
Vakt- og flutningadeild spítalans og
vann sem vaktstjóri síðustu árin.
Hann skilur eftir sig Ijúfar og góðar
minningar, sem mannkosta maður,
sem vildi öllum vel, viljugur og þægi-
legur í starfi og greiddi götu allra sem
til hans leituðu af bestu getu, og
þökkum við samstarfið af alhug.
Við samstarfsfólk hans vottum
honum virðingu, og sendum eigin-
konu hans og börnum dýpstu samúð-
arkveðjur.
Starl'sfólk
Vakt- og flutningadeildar
Landspítalans
■ Samstarfsmaður okkar Bragi
Kristjánsson lést á Landspítalanum
að morgni 5. þ.m.
Andlát hans kom okkur ekki á
óvart því í nokkra máþuði var hann
alvarlega veikur, og barðist við illan
sjúkdóm.
f>að var aðdáunarvert að sjá þann
mikla kjark og hugarró, sem Braga
var gefin en hann vissi vel að dauðinn
nálgaðist óðum, og ræddi hann við
mörg okkar síðustu dægrin enda þótt
hann væri helsjúkur.
Bragi hafði unnið samfleytt í 29 ár
Haustfundir 1985
Leiðbeininganámskeið um lífdýraflokkun
verða haldin vikuna 21. til 25. október 1985
á eftirfarandi stöðum um landið:
Mánudaginn, þann 21. október, klukkan 14.00 aö
Háleggsstöðum, Hofshreppi, Skagafiröi.
Þriðjudaginn, þann 22. október, klukkan 14.00 að Grund
í Grýtubakkahreppi Suður Þingeyjarsýslu.
Miðvikudaginn, þann 23. október, klukkan 13.00 að
Birkihlíð, Skriðdal, Suður Múlasýslu.
Fimmtudaginn, þann 24. október, klukkan 9.00 f.h. að
Hlíðabergi, Mýrarhrepp, Austur Skaftafellssýslu.
Föstudaginn, þann 25. október, kiukkan 13.00 að Tungu
í Gaulverjabæjarhreppi (rétt fyrir austan Stokkseyri),
Árnessýslu.
Einnig verður sýnd myndbandaspóla frá starfsemi
Hudson’s Bay í London og mörgum þáttum pelsafram-
leiðslunnar. Sýnt verður flokkunarskipulag Hudson’s
Bay og rætt um markaðshorfurnar.
Leiðbeinandi verður Tony Ellis, sem starfað hefur hjá
Hudson’s Bay síðastliðin sjö ár við flokkun á refaskinn-
um. Hann er að góðu kunnur mörgum íslendingum, sem
starfað hafa við flokkun eða verið við nám hjá Hudson’s
Bay.
Allar nánari upplýsingar veittar í síma: 91-44450.
Kjörbær hf. Skúli Skúlason Kópðavogi.
Innskrift -
starfskraftur
Vantar starfskraft á innskriftarborð, vanan vél-
ritun, góð íslenskukunnátta nauðsynleg.
Hálfs- eða heilsdagsvinna kemur til greina.
Uppl. hjá verkstjóra í Tæknideild NT, Síðumúla
15, R.
—
■ Hanna Schygulla og Angela Winkler, sem Olga og Ruth í Algeru óráði, Margarethu von Trotta.
Hin innri og ytri ógn
Algert óráð (Heller Wahn) ★★★
Kvikmyndahátíð kvenna, Stjörnubíói
V-þýsk, 1982
Leikstjórn og handrit: Margarethe von Trotta
Kvikmyndataka: Michael Ballhaus
Aöalhlutverk: Angela Winkler, Hanna Schygulla, Reter Strickbeck o.fl.
Kvikmyndahátíð kvenna hófst á laugardaginn með sýningu á kvikmyndinni
Heller Wahn, eða Algert óráð, eins og hún er nefnd á íslensku, eftir v-þýska
kvikmyndaleikstjórann Margarethe von Trotta, sem var viðstödd setningu
hátíðarinnar.
Von Trotta cr eitt af þcim nöfnum, sem
hvað hæst rís í endurreisn V-þýskrar
kvikmyndagerðar. nefnt í sömu andrá og
Fassbinder, Hcrzog og eiginmaður Trotta,
Volker Schlöndroff. Onnur vitundarvakn-
ing C’ristu Khtges, sem einnig verður sýnd
á kvikmyndahátíðinni, er vafalaust frægust
rnynda hennar. Fyrir hana fckk von Trotta
æðstu kvikmyndaverðlaun V-Þjóðverja
árið 1978. Þá hlaut hún Gullljónið í
Feneyjum fyrir kvikmyndina Die Bleierne
Zeit árið 1981.
Handritið að Heller Wahn er sícrifaö
með aðalleikkonurnar í huga, þær Angelu
Winkler, sem við þekkjum sennilega bcst
úr hlutverki Katarinu Blum, og Hönnu
Schygulla, scm óþarfi er að kynna nánar,
minnast hennar eflaust flestir sent Mariu
Braun og fleiri ógleymanlegra kvikmynda-
hlutverka í myndurn Fassbinders.
Schygulla leikur Olgu, sjálfsörugga,
upptekna, fráskildamenntakonu.sem hitt-
ir Ruth, leikna af Winkler, innhverfa,
óttaslegna konu með listrænar æðar, sem
ekki fá notið sín, auk þess sem umhverfið
þrúgar hana og brýtur niður, svo sjálfs-
morðið virðist cina útgönguleiðin. Myndin
fjallar um hvernig Olga reynir að draga
Ruth út úr skel sinni og hvernig umhverfið
bregst við þeim nánu vináttuböndum, sem
myndast milli kvennanna.
Þetta er kvikmynd sem fjallar um ógn,
ógnina innanfrá og ógnina utan að. Ekta-
maki Ruthar, Peter Striebeck, er á kafi í
friðarhreyfingunni og boðar ragnarök
verði ekki brugðist við. Þrátt fyrir það
reynist hann ófær um að kljást viðógnina,
sem hótar að rústa hans eigin tilveru.
Fálmkennd viðbrögð hans virðast stuðla
að því að flýta óumflýjanlegum endalok-
unum.
Annað meginviðfangsefni kvikmyndar-
innar er hvernig hjónaband Ruthar heldur
aftur af listrænni sköpunargáfu hennar,
drepur hana í dróma og hleður þannig upp
innri spennu, sem að lokum reynist tortím-
andi í stað skapandi.
Þá er eftir að minnast á fordóma um-
hverfisins gagnvart vináttuböndum kyns-
ystranna.
Áður en kveikt var á sýningarvélinni í
Stjörnubíói hélt von Trotta smátölu og
lýsti því yfir, að þegar hún hófst handa við
gerð Heller Wahn, hafi hún ætlað sér að
gera femeniska kvikmynd. Það er því
sjálfsagt að skoða afraksturinn í því Ijosi.
Þó femenisminn hafi verið upphafiega
leiðarljósið um þær myrkvuðu sálarkitrur
nútímafólks, sem Trotta leiðir okkur um,
er hún of mikill listamaður til að boða
einfalda lausn á vandanum, enda slík lausn
varla á lausu, þó einstaka kvenréttinda-
kona vilji láta svo í veðri vaka.
Þrátt fyrir það speglast þetta upphaflega
áform hennar í efnistökunum og eruni við
þar komin að veiku hlekkjunum í þessari
annars afar forvitnilegu kvikmynd. Karl-
peningurinn verður að hálfgerðum skugga-
verum, sem enga hönd er á festandi.
Fyrrverandi eiginmaður Olgu og núver-
andi sambýlismaður, hefðu alveg mátt
missa sín, þeir ráfa hvort eð er um í
tómarúmi á tjaldinu og áhorfandinn er
engu nær um þá sjálfa né þeirra hlut í
frásögninni.
Frauz, eiginmaður Ruthar, er með örlít-
ið hold á persónusköpuninni, enda hlut-
verk hans að vera orsök og afleiðing
ástandsins og að lokum fórnarlamb þess.
Þrátt fyrir þetta veigamikla hlutskipti virð-
ist persónuna vanta herslumuninn til að
vera sá mikli áhrifavaldur sem gefið er í
skyn að hún sé. Ef von Trotta heföi lagt
jafn mikla alúö í sköpun karlanna og hún
leggur í sköpun kvennanna hefði Heller
Wahn orðið nrun áhrifameiri kvikmynd.
Eins og þarna cr haldiö á málum verður
örvænting Ruthar hálf hjáróma og lokaat-
höfn hennar skot út í bláinn.
Þrátt fyrir þessa vankanta er Heller
Wahn áhrifamikil kvikmynd og full ástæða
til að hvetja sem flesta til að sjá hana þegar
Regnboginn tekur hana til sýningar, sem
vonandi verður áður en langt um líður.
Því miður gerist það æ sjaldnar að
kvikmyndir fái fólk til að'hugsa eftir að
sýningu lýkur, en von Trotta er áleitin og
lætur áhorfandann ekki í friði. Þá er
samleikur þeirra Hönnu Sc.hygullu og
Angelu Winkler með slíkum ágætum að
unun er á að horfa. Kvikmyndataka og
önnur tæknivinna er einnig til fyrirmyndar.
Við hér á hjara veraldar lifum ef til vill
ekki í 'sömu nálægð við ógnina og íbúar
V-Þýskalands. Verum samt minnug þess
að enginn verður stikkfrí þegar ógnin
losnar úr læðingi og tekur á sig óskapnað
ofbeldis og eyðingar. Sáf
Framsóknarmenn á Austurlandi:
Eindreginn stuðningur
við fiskveiðistefnuna
Hér fer á eftir ályktun um atvinnumál sem gerð var á
kjördæmisþingi framsóknarmanna í Austurlandskjör-
dæmi:
■ Atvinnulíf hér á Austurlandi er
einhæft og byggir að mestu leyti á
landbúnaði og sjávarútvegi, en í
þessum atvinnugreinum fer störfum
fækkandi. Störfum í iðnaði hefur
ekki fjölgað á Austurlandi s.l. fjög-
ur ár. Verslun og þjónusta er að
miklu leyti háð umsvifum í öðrum
atvinnugreinum. Þjónusta við
ferðamenn hefur verið mjög vax-
andi atvinnugrein undanfarin ár.
Nú er kominn vísjr að nýjum at-
vinnugreinum svo sem loðdýrarækt,
skógrækt og tilraunir með fiskeldi
eru hafnar.
Það er mikið áhyggjuefni ef fólk
sem nú stundar framhaldsnám utan
fjórðungs fær ekki atvinnutækifæri
heima fyrir að námi loknu.
Atvinnulíf á Austurlandi þarf að
verða fjölbreyttara og mikla áherslu
verður að leggja á að ná því mark-
miði Framsóknarflokksins í atvinnu-
og efnahagsmálum að hagvöxtur,
atvinnusköpun og félagsleg þjón-
usta nýtist landsmönnum öllum,
þannig að lífskjör batni og verði
sem jöfnust um land allt.
Það er mjög brýnt að þingmenn
landsbyggðarinnar standi vörð um
að þessum markmiðum verði riáð,
þeirri búsetuþróun sem nú er
verður að snúa við og það tekst ekki
nema með öflugri landsbyggða-
stefnu. Samfara því að treysta þarf
grundvöll undirstöðuatvinnugrein-
anna þarf að koma til uppbygging
nýrra greina. Nýjar atvinnugreinar
þurfa að hafa aðgang að áhættu-
fjármagni, bankar og lánastofnanir
þurfa að geta lánað til þeirra meira
og á betri kjörum.
Ekki má gleymast að landbúnað-
ur er mikilvægur atvinnuvegur á
Austurlandi.
Pingið fagnar eflingu nýrra bú-
greina, en bendir á að þær einar
leysa ekki vanda landbúnaðarins í
heild.
Hefðbundinn landbúnað þarf að
skipuleggja betur t.d. með svæða-
skiptingu í framleiðslu.
Sjávarútvegur verður um ókomna
framtíð undirstöðuatvinnugrein
þjóðarinnar: Rétt nýting á físki-
stofnum er grundvöllur áframhald-
andi velmegunar á íslandi. Óheft
veiði nytjastofna gefur stundar-
gróða en stofnar framtíð okkar í
hættu.
Þingið telur að löggjöf um stjórn
fiskveiða þurfi að gilda til lengri
tíma en eins árs í senn og lýsir
cindregnum stuðningi við þær tillög-
ur um fiskveiðistefnu til lengri tíma
sem sjávarútvegsráðherra hefur haft
forystu um að móta.
Leggja þarf áherslu á að efla þær
iðngreinar sem starfræktar eru í fjórð-
ungnum og nýta jafnframt alla
möguleika til uppbyggingar nýrra
iðnfyrirtækja, sem arðvænleg eru,
þar á meðal fyrirtækja í orkufrekum
iðnaði.
Þingið telur nauðsynlegt að knýja
nú þegar á um það hvort samstarfs-
aðilar fáist um byggingu Kísilmálm-
verksmiðju við Reyðarfjörð og leita
þarf annarra úrræða í uppbyggingu
meiri háttar iðnaðar ef sá kostur
þykir ekki vænlegur eins og sakir
standa.
Þingið telur að ekki beri að kvika
frá þeirri virkjunarröð sem sam-
þykkt hefur verið á Alþingi, en
framkvæmdir verða að haldast í
hendur við möguleika til orkusölu.
Afram þarf að halda á sömu braut
við uppbyggingu þjónustu fyrir
ferðamenn á Austurlandi.
Vegna þess að Austurland hefur
orðið útundan varðandi uppbygg-
ingu nýrra atvinnugreina þurfa þær
að byggjast upp hér í mun meira
mæli á næstu árum ef ekki á illa að
fara.