NT - 15.10.1985, Qupperneq 19
Þriðjudagur 15. október 1985 19
V-Þýskaland - Knattspyrna:
Uerdingen steinlá
- fyrir sterku liði Hamborgara - Bremen tapaði sínum fyrsta leik
• « ‘ '4
rt -
L *
■ Thomas von Heesen (í hvítu) skoraði tvívegis gegn Uerdingen. Hér er hann í slag við Wöhrlin
frá Uerdingen.
V-Þýskaland - Handknattleikur:
Alfreð
iPál
- Essen burstaði Dankersen sem nú er án stiga - Essen i
- Sigurður frá í þrjá mánuði
öðru sæti
Frá Guðmundi Karlssyni fréttaritara NT í
V-Þyskalandi:
■ Þær leiðu fréttir eru héðan
úr þýska handboltanum að Sig-
urður Sveinsson er það illa
meiddur að framundan hjá hon-
um er þriggja mánaða hvíld.
Loksins þegar hægt var að
mynda hnéð kom í Ijós að
krossböndin og innra liðbandið
voru slitin, einnig var liðhylki
rifið svo og liðböndin hin svo
verra gat það eiginlega ekki
verið. Annars er allt gott að
frétta af íslensku strákunum
sem samtals gerðu 19 mörk nú
um helgina.
Essen-Dankersen........23-10
í þokkalegum leik burstuðu
Alfreð og félagar Pál og félaga
fyrir framan fjögur þúsund
áhorfendur. í upphafi héldu þó
leikmenn Dankersen í heima-
menn og eftir 15 mínútna leik
var staðan 5-4. En eftir það
settu Essen á fullt og áttu leik-
menn Dankersen ekkert svar
við hröðum og skemmtilegum
leik þeirra. Páll átti ágætan leik,
gerði 1 mark en vann mjög vel
fyrir samherja sína. Alfreð átti
góðan leik og gerði 4 mörk auk
fjölda góðra sendinga.
Gúnzburg-Gummersbach 19-21
Eftir frábæran fyrri hálfleik,
þar sem Atli Hilmarsson og
félagar höfðu æ þriggja marka
forystu gegn meisturum síðasta
árs gekk ekkert upp í síðari
hálfleik. Á fyrstu 10 mínútum
seinni hálfleiksins tókst Gunz-
burg hið ómögulega - að skora
ekkert mark með einum manni
fleira á vellinum og brenna af
tveimur vítum, auk þess að fá á
sig rnark úr hraðaupphlaupi
þegar útileikmenn Gummers-
bach voru aðeins fjórir inná
vellinum. Á þessum 1Ö mínút-
um komust Gummersbach í 14-
11 og héldu forskotinu út leik-
inn. Atli gerði 3 mörk, þar af
eitt úr víti, og átti þokkalegan
leik en var að vonum óhress
með úrslitin. Atli gekk ekki
alveg heill til leiks þar sem hiti
og slappleiki hafa hrjáð hann
um hríð.
önnur úrslit:
Schwabing-Grosswallstadt ... 28-23
Lemgo-Göppingen............. 28-19
Hofweier-Dússeldorf......... 16-21
Reinfúchse-Handewitt ....... 19-19
Göppingen-Kiel (leikiðómiðvikud.) 21-32
í 2. deildinni sigruðu Bjarni
Guðmundsson og félagar hans í
Wanne-Eickel lið Herzhorn
með 19 mörkum gegn 18.
Leikurinn var spennandi en
ekki að sama skapi vel leikinn.
Bjarni átti ágætan leik og gerði
4 mörk. Hann sagði í samtali
við NT að þetta hefði verið
týpiskur útileikur og þeir hefðu
verið því fegnastir að hreppa
sigur.
Hameln tapaði hinsvegar á
útivelli. Nettelstedt unnu sigur
á Kristjáni og liði hans 20-19.
Hameln var þó með forystuna
mest allan leikinn. Þegar 10
mínútur voru hinsvegar eftir
snerist allt á móti Hameln og
Nettelstedt tókst að jafpa og
skora síðan sigurmarkið þegar
flautan gall við. Kristján var
góður, gerði 7 mörk, þar af 4 úr
vítum en sagðist náttúrlega vera
óhress með úrslitin.
Frá Gudmundi Karlssyni í V-Þýskalandi:
■ Gegn sterku liði Hamborg
töpuðu Uerdingen sanngjarnt í
v-þýsku Búndeslígunni á laug-
ardaginn. Tvö mörk frá Von
Heesen og eitt frá Rolff sáu um
heimamenn. Á fimmtugustu
GÖÍfi
Wadkins vann
■ Lanny Wadkins bar
sigur úr býtum á „PGA
World Classic" golfmót-
inu sem lauk um helgina
í Flórída í Bandaríkjun-
um. Hann tryggði sér
sigur á síðasta keppnis-
deginum þegar hann fór
á kostum og lauk hringn-
um á níu undir pari.
Wadkins vann þarna sitt
þriðja stórmót á tímabil-
inu og kemur nú sterk-
lega til greina sem golf-
leikari ársins í Bandaríkj-
unum fyrir þetta ár.
Wadkins var að vonum
kátur eftir keppnina, sem
færði honum einar 16
milljónir króna í vasann,
og leit hýru auga tii út-
nefningar golfleikara
ársins: „Eftir fimmtán ár
eða svo verða peningar
þeir sem ég vann búnir en
útnefning sem besti golf-
leikari ársins mun standa
að eilífu," sagði Wadkins
við blaðamenn að lokinni
keppninni í Flórída.
Wadkins fór 72 holurn-
ar á 267 höggum sem er
21 höggi undir pari.
Schwabing .. 6 staðan í þýska handb. 146-121 11 Handewitt . 6 116-133 5
Essen .. 5 115-79 10 Kiel . 4 102-95 4
Grosswallst .. 6 142-115 10 Gúnzburg . 5 105-110 4
Dússeldorf .. 5 110-86 8 Lemgo . 6 112-121 4
Gummersbach . .. 5 100-86 8 Reinfúchse . 6 110-139 2
Dortmund .. 5 99-90 6 Hofweier . 6 107-145 1
Göppingen .. 6 144-154 5 Dankersen . 7 125-169 0
Hans frá Canteras
■ Spánska liðið Canteras
hefur sagt upp samningi sínum
við Hans Guðmundsson,
handknattleikskappa og fyrr-
verandi F.H.-ing.
Þeim spænsku þótti Hans
sóla sig helst til of mikið og
skora ekki nóg af mörkum.
Hin raunverulega ástæða er þó
örugglega sú að liðinu gengur
illa og sökudólg vantaði. Hans
varð fyrir valinu. Möguleiki er
á að Hans fari til 1. deildarliðs-
ins Tenerife en ef ekki verður
af því mun hann koma heim.
F.H.-ingar munu sjálfsagt kæt-
ast verulega ef af heimkomu
verður.
rnínútu var Plessers frá Ham-
borg vikið af leikvelli en þrátt
fyrir það áttu Uerdingen aldrei
möguleika. Lárus átti þokkaleg-
an leik en Atli lék ekki með. í
spjalli við NT sagði Atli: „Ég
hef litið verið með síðan í lands-
leiknum við Spánverja en ég á
nú von á einhverjum breyting-
um þar á“.
Werder Bremen tapaði sínurn
fyrsta leik um helgina er liðið
fékk skell gegn Kaiserslautern,
3-0. Andreas Brehme gerði tvö
marka Kaiserslautern en Thom-
as Allofs eitt.
Pá tapaði Bayern líka og nú
3-0 fyrir Bochum. Stefan Kuntz
skoraði öll mörk Bochum en
Jean-Marie Pfaff í markinu hjá
Bayern var mjög lélegur.
Úrslit:
Frankfurt-„Gladbach“.......
Uerdingen-Hamborg..........
Nuemberg-Hannover .........
Bochum-Bayern Munchen ....
Köln-Saarbruecken .........
Kaiserslautern-Werder Bremen
Dortmund-Leverkusen........
Staða efstu liða:
Werder Bremen .
„Gladbach".....
Kaiserslautern ..
Bayern Munchen
Mannheim ......
Stuttgart......
11 7 3 1 30 15 17
11 6 3 2 24 14 15
11 6 2 3 21 13 14
11 6 2 3 20 13 14
11 5 4 2 20 15 14
11 6 1 4 25 15 13
Evrópukeppnin í körfuknattleik:
„Betri leikur en
tapið svekkjandi“
- sagði Einar Bollason eftir tapið gegn Táby
■ „Leikurinn var sjálfsagt
betri hjá báðum liðum en tapið
var náttúrlega svekkjandi,“
sagði Einar Bollason, þjáifari
Hauka, en liðið tapaði fyrir
Táby Basket með sjö stigum í
Svíþjóð nú um helgina. Sigurinn
nægði sænska liðinu til að kom-
ast í aðra umferð Evrópukeppn-
innar.
Haukarnir börðust vel í leikn-
um og voru reyndar yfir á tíma-
bili í síðari hálfleik, þeir léku
bæði maður á mann og svæðis-
hæð sína og Larry Robinson,
sem ekki gat leikið hér heima
vegna meiðsla, skoraði grimmt.
Endurkoma hans gerði gæfu-
muninn í þessum leik. Mike
Scheib gerði 21 stig fyrir Hauka
og Pálmar 18 og áttu báðir
góðan leik. Ólafur Rafnsson
var einnig í hörkuformi.
Einar var ánægður með þátt-
töku Haukanna í keppninni og
kvaðst vona að þetta myndi
verka hvetjandi á íslenskan
körfuknattleik.
■ Einar Bollason og Haukar fagna sigri í fyrri leiknum gegn Táby.
Svíamir fögnuðu þó að lokum. NT-mynd Róbert
Noregur-Knattspyrnan:
„Áttum skilið jafntefli“
- sagði Bjarni Sigurðsson hjá Brann sem tapaði fyrir Mjöndalen og féll þar með í 2. deild
Guðmundur til Baden
■ Guðmundur Þorbjörnsson
knattspyrnumaðurinn snjalli úr
Val, hefur gert tveggja ára
samning við svissneska félagið
Baden sem nú kúrir á botni 1.
deildarinnar þar í landi og er án
stiga eftir níu umferðir. Sviss-
neska liðið bauð Guðmundi
■ Kjartan Másson mun þjálfa
Víði frá Garði næsta keppnis-
tímabil. Kjartan er „sjóaður" í
þjálfunarstörfum. Þekktasturer
hann fyrir góðan árangur sem
hann hefur yfirleitt sýnt með lið
Vestmannaeyinga, nú síðast
fyrir að koma þeim í 1. deildina
samning eftir góða frammistöðu
hans í leiknum gegn Spánverj-
um og með Val á móti Nantes.
Það góða við samning Guð-
mundar er að í honum er klásúla
sem segir að Guðmundur geti
komið heim að vori líki honum
ekki veran úti.
Kjartan er einmg vel þekktur
á Suðurnesjum og hefur þar
þjálfað bæði Grindvíkinga og
Reynismenn. Hans bíður það
erfiða hlutverk nú að halda
Víðismönnum í fyrstu deild.
Frá Magnúsi Magnússyni fréltaritara
NT í Noregi:
■ „Við áttum í það minnsta
skilið jafntefli“, sagði Bjarni
Jakob með sex
Frá Magnúsi Magnússyni fréttaritara
NT í Noregi:
■ íslendingaliðunum í
handboltanum hér í Nor-
egi gengur allt í haginn
um þessar mundir. Stav-
anger, liðið sem Helgi
Ragnarsson þjálfar, er
efst í deildinni. Þeir unnu
sigur á Oppsal nú um
helgina 36-16. Jakob
Jónsson sem leikur með
liðinu við góðan orðstír
gerði 6 mörk í leiknum.
Fredriksborg, lið
Gunnars Einarssonar,
gerði jafntefli við Urædd
21-21 og eru í öðru sæti.
Sigurðsson, landsliðsmarkvörð-
ur, eftir tap gegn Mjöndalen í
síðustu umferð deildarkeppn-
innar hér í landi. Þar með féllu
Bjarni og félagar í 2. deild. Þeir
voru með fallstimpil á sér í
þessum leik, sóttu stanslaust í
síðari hálfleik en allt kom fyrir
ekki, Mjöndalen sigraði 3-1.
Bjarni ætlar samt að halda
■ Bjarni fallinn í 2. deild.
áfram með liðinu næsta ár. Hon-
um líkar vel en hann er við
nám í tölvu- og viðskiptafræð-
um hér í vetur.
Það var Rosenborg sem sigr-
aði í norsku deildarkeppninni.
Þeir lögðu Lilleström að velli í
lokaleiknum.
Það er nánast víst að Tony
Knapp verði þjálfari Brann á
næsta ári og er stefnan eflaust
tekin á 1. deild á ný.
Knapp til
Frá Magnúsi Magnússyni í Noregi:
■ Það er nú nærri víst að Tony
Knapp landsliðsþjálfari íslands
mun þjálfa Brann frá Bergen
næsta árið. Eftir mjög áreiðan-
legum heimildum þá mun nú
verið að þýða samning Knapp
við Brann yfir á ensku til að
Scifo ekki með
■ Belgíski miðvallarleik-
maðurinn Enzo Scifo sem
leikur með Anderlecht get-
ur ekki verið með Belgum
í leiknum gegn Hollending-
um á morgun. Lcikurinn er
annar úrslitaleikur þessara
þjóða um sæti í HM í
Mexíkó. Scifo er meiddur
á ökla.
Brann?
Knapp hafi allt á hreinu. Síðasti
samningur Knapps í Noregi var
á norsku og virkaði illa.
Eins og getið er annarsstaðar
á síðunni þá féll Brann í 2. deild
norsku knattspyrnunnar um
helgina en þá um leið varð Tony
Knapp 49 ára.
Kjartan til Víðis
a ny.