NT - 25.10.1985, Blaðsíða 1

NT - 25.10.1985, Blaðsíða 1
NEWS SUMMARYIN ENGLISH h SEEP. 7 Verða kennarar áfram í BSRB? - fjármálaráðherra virðir dóm BSRB ■ I dag verður líklega tekin af- staða til tillögu BSRB um að úrsögn Kennarasambands Íslands úr samtökunum sé ekki lögleg. Að sögn heimildarmanna NT er næsta víst að sú tillaga vcrði samþykkt og þar með er komin uþp sú staða, að yfirgefi kennarar BSRB þrátt fyrir það brjóta þeir lög sambands- ins. Valgeir Gestsson, formaður KÍ, sagði við NT í gær, að komist þingið að þessari niðurstöðu hat'i kontið upp ný staða í málinu og verði þá rætt í fulltrúaráði og stjórn félagsins hvað næst verði gcrt í málinu. Valgeir sagðist hafa farið á fund Þorsteins Pálssönar, fjármálaráð- hcrra á miðvikudaginn. Ræddu þeir samningamál og samnings- réttarmál. Ekki vildi hann greina nánar frá þeim fundi, en sam- kvæmt heimildum NT mun Þor- steinn hafa tjáð Valgeiri að hann færi algjörlega eftir úrskurði þings BSRB. Þýðir það einfaldlega, að ef kennarar fara úr BSRB þrátt fyrir að þingið álykti að úrslit allsherjarkosningárinnar þýði að KÍ sé enn innan vébanda samtak- anna, þá eru kennarar án samn- ingsréttar og verkfallsréttar. Slík staða er mjög erfið og mun vera mjög þýðingarmikil þegar kennar- ar taka ákvörðun um hvort þeir virða úrskurð þingsins. SkákiníMoskvu: Karpovmeð gjörtapað ■ Gary Kasparov gaf það ótvírætt í skyn að hann væri að vinna 19. skák heimsmeistaraein- vígisins í gær, þegar hann lék biðleik sinn á skák- borðinu í stað þess að innsigla hann einsog venja er. Að allra dórni var staða Karpovs gjörtöpuð þegar skákin fór í bið eftir 41, leik. Kasparov lék síðan 42,Ieiknum á skákborðitiu, en slíkt hefur aldrei gerst áður í heimsmeistaraein- vígi. Sjá nánar bls. 3 ■ Nei, þetta er ekki biðröðin fynr utan pulsuvagninn á Lækjartorgi heldur eru þetta um 20.000 konur á útifundi í tilefni þess að kvennaáratugurinn er að líða og 10 ár voru frá kvennafrídeginum. ■5 , \ ... m m k s * s ■ i ■ «i| • ]i»rwfi «>B m u • f H»*l Ujiwfj - - b * • B *» ■ WSmF.w l»'g»itiiwa H « m , t fWt NT-mynd: Ámi Bjama. Kvennafrídagurinn endurtekinn: Verkfallslög ríkisstjórnarinnar gegn flugfreyjum: Um 20.000 konur á útifundinum Vigdís skrifaði undir - efftir umhugsunarfrest sem er einsdæmi í sögu lýðveldisins ■ Rúmlega tuttugu þúsund manns, mest konur, söfnuð- ust saman á Lækjartorgi í gær, í tilefni af því að þá var alþjóðakvennadagur Sam- einuðu þjóðanna. Lagði stór hluti kvenþjóðarinnar niður vinnu sína. Voru þær meö þessu að leggja áherslu á að þó kvennaáratugurinn sé nú að líða í aldanna skaut, er baráttu kvennafyrir jafnrétti langt í frá lokið. í gær opnaði einnig Kvennasmiðjan í Seðla- bankahúsinu og var mikil örtröð þar við opnunina og allan daginn. Par kynna kon- ur störf sín og launakjör. Úti á landi lögðu konur einnig niður vinnu og söfnuðust saman á fundum. Purftu ýmis fyrirtæki að loka vegna þessara aðgerða og önnur voru rekin með hálf- um afköstum. Þá munu kon- ur hafa mætt í vinnu á ýms- um stöðum á landsbyggðinni en ákveðið að gefa laun sín til ýmisskonar hjálparstarf- semi. Sjá nánari umfjöllun um útifundinn á bls. 2 og 3 í blaðinu. ■ Sá einstæði atburður gerðist í gær að Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands lýsti því yfir að hún hygðist taka sér umhugs- unarfrest áður en hún undirrit- aði lög um kjaradóm í verkfalls- deilu Flugfreyjufélagsins og Flugleiða. Þetta gerðist nokkru fyrir hádegi. Skömmu síðar boðaði hún Halldór Ásgrímsson á sinn fund, en hann gegnir störfum forsætisráðherra í fjar- vistum Steingríms Hermanns- sonar. Að fundinum loknum undirritaði hún loks lögin kl. 13. í 26. gr. stjórnarskrárinnarer gert ráð fyrir því að forseti geti neitað að undirskrifa lög og öðlast þau þá lagagildi samtímis en þjóðaratkvæðagreiðsla fylgir í kjölfarið. Það þarf víst ékki að fjölyrða um almennar pólitískar aflciðingar slíkrar synjunar forseta. Tilkynning Vigdísar Finn- bogadóttur í gær er sérstæð að því leytinu til að þetta er í fyrsta skipti í sögu lýðveldisins sem forseti nálgast það að beita rétti sínum skv.26.gr. Þess ber að geta að ekkert er gctið um umhugsunarfrest forseta í nefndri stjórnarskrárgrein. Sögusagnir voru á kreiki á Alþingi og víðar þess efnis að ríkisstjórnin hafi krafist tafar- lausrar undirskriftar forseta ef ekki ætti að reyna á ákvæði stjórnarskrárinnar. í samtali við blaðamenn vísaði Halldór Ás- grímsson slíkum sögusögnum á bug en kvaðst að öðru leyti ekkert um þetta mál vilja segja. Vigdís Finnbogadóttir vísaði sömuleiðis öllumspurningumum þetta á bug. Það er því alls óljóst hvort að samskipti forseta og starfandi forsætisráðherra í gær voru þess eðlis að einstakur atburður í Íslandssögunniværjí uppsiglingu. Flugfreyjur hjá Flugleiðum mættu til vinnu sinnar í gærdag, eftir að þær höfðu fullvissað sig um að lagasetning Alþingis hafði tekiö gildi formlega. Sæ- mundur Guðvinsson blaðafull- trúi Flugleiða sagði í samtali við NT í gær að innanlandsflug hefði hafist klukkan 16 og milli- landaflug hófst rétt eftir hádegi. „Við settum upp tvö flug í gærkvöldi, þegar við höfðum fengið upplýsingar um hvernig málin voru að þróast," sagði Sæmundur.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.