NT - 25.10.1985, Síða 15
íþróttir
Föstudagur 25. október 1985 15
- við góðum leik Rúmena - Tapaði sannfærandi 23-15
■ Islendingar töpuöu í gær-
kvöldi fyrir Rúmenum í alþjóð-
lega æfíngamótinu sem nú fer
fram í Sviss. Lokatölur urðu
23-15 austantjaldsmönnum í vil
eftir að staðan hafði verið ll-5í
hálfleik.
Okkar mcnn byrjuðu vel og
komust yfir 4-3. Þá endaði góði
kaflinn og lét ekki sjá sig aftur í
herbúðunt íslendinga. Rúnten-
ar með Voencja í fararbroddi
tóku afgerandi forystu og voru
nánast búnir að gera út unt
leikinn er liðin gengu til hlés. í
síðari hálfleik juku Rúmenarnir
hægt og bítandi forystuna og
voru komnirS mörkum yfireftir
10 mínútur. Óðagotið í sókn-
inni, sem hafði verið áberandi,
minnkaði þá aðeins og íslend-
ingarttir tóku að halda í við
mótherjana, en það var of seint
og lokastaðan 23-15 var
sanngjörn.
Þessi leikur var ekki góður af
hálfu okkar manna. Kristján
skoraði 4 mörk og þeir Þorgils,
Þorbergur og Bjarni voru nteð
3 mörk hver. Geta verður þó
þess að leikið var gegn þjóð sem
er gæðaflokki ofar en okkar
ntenn í íþróttinni.
Knattspyrna:
Sultan jaf naði
- fyrir Sameinuðu furstaríkin gegn Mexíkó
■ Lið frá Sameinuðu fursta-
ríkjunum gerði jafntefli við
Mexíkó í landsleik í knatt-
spyrnu sem háður var í gær.
Bæöi liðin skoruöu tvö mörk en
Mexíkanar voru fyrri til með
marki frá varnarmanninum
Raul Servin. Miðherjinn Adnan
Talyani jafnaði en fyrirliði
Mexíkana Tómas Boy náði for-
ystunni fyrir sína menn með
marki úr vítaspyrnu. Það var
hinsvegar sjálfur Saif Sultan
sem jafnaði metin.
Landslið Mexíkó er nú á
keppnisferðalagi unt Mið-Aust-
urlönd en lítið hefur gcngið hjá
gestgjöfum næstu heimsmeist-
arakeppni, eins og þessi úrslit
sanna.
Cardinals sterkir
■ Nú stendur yfir í Bandaríkj-
unuin úrslitakeppnin í þjóðar-
íþrótt þcirra Bandaríkjamanna,
hornabolta (Baseball). Sama
fyrirkomulag er á þessari
úrslitakeppni og viðgengst í
körfuknattleiknum þarna
vestra. Nú standa eftir tvö lið og
eru þau nú að spila þar til annað
vinnur fjóra leiki (best of seven)
Liðin sem nú eigast við í The
World Series eins og Kanarnir
kalla úrslitakeppnina í horna-
bolta cru St Louis Cardinals og
Kansas City Royals. Cardinals
unnu fyrstu tvo leikina en Roy-
als þann næsta. í gær unnu
síðan Cardinals sinn þriðja leik
ogerstaðan því 3-1 fyrirCardin-
als. Fimmti leikurinn var í nótt
en úrslitin úr honunt verða að
bíða morgundagsins.
Samúel og Webster kljást um knöttinn. Aðrir hafa um annað að hugsa.
NT-mynd: Sverrir.
Námskeið
■ íþróttafélag fatlaðra í
Reykjavík og nágrenni
heldur námskeið í horiV
tennis fyrir fatlaða og ófatl
aða mánudagana 28. okt
og 4. nóv. og ntiðvikudag
ana 30. okt. og 6. nóv
Kennt verður í íþróttahúsi
Hlíðaskóla. Þjálfari veröur
Stefán Stefánsson.
Garðar hitti og hitti
- og hitti - Skoraði 28 stig - Það framar öðru tryggði KR sigur gegn Haukum
■ KR-ingar komu á óvart í
íþróttahúsinu í Hafnarfirði í
gærkvöldi. Þeir sigruðu Hauka
í úrvalsdeildarleik með 82 stig-
um gegn 79 eftir framlengingu.
Lokamínútur leiksins voru æsi-
spennandi svo og framlenging-
in, en í heild mistókust of marg-
ar leikfléttur og hittnin, sérstak-
lega hjá Haukum, var döpur.
Haukar náðu snemma foryst-
unni og héldu henni út fyrri
hálfleikinn. Þeir voru þó lengi
að komast almennilega í gang.
Pálmar skoraði t.d. sín fyrstu
stig ekki fyrr en eftir heilar 8
mínútur og Webster hitti illa.
KR-ingar voru þó sýnu verri.
Rufer bræður
■ Þeir Wynton og
IShanc Rufer sem spila
með Zurich í Sviss hafa
fengið levfi FIFA
(Alþjóðaknattspyrnusam
bandsins) til að leika með
landsliði Nýsjálendinga í
undankeppni HM. Zur-
ich vildi ekki láta
bræðurna fara þar sem
| ekki er klausa í samningi
þeirra er gefi þeini sjálf-
krafa leyfi til að fara í
landsleiki ef þeirra er
óskað. FIFA segir hins-
vegar að Knattspyrnu-
samband Nýja Sjálands
hafi beðiö um að þeir
vrðu látnir lausir í alla
Íandsleiki Nýja Sjálands í
Undankeppni HIVl og
hafi sú beiðni borist Zur-
ich fyrir löngu síðan. Zur-
ich hafi ekki svarað og
Nýsjálendingar því litið á
þetta sem sjálfsagt.
Garðar eyddi t.d. of ntörgum
skotum í sínar körfur en þaö
átti svo sannarlega eftir að lag-
ast er líða tók á leikinn. Staðan
í hálfleik var 44-37 fyrir Hauka.
í fyrrihluta síðari hálfleiks
virtist allt ætla að fara eftir
bókinni. Haukarnir juku for-
skot sitt og KR-ingar voru lítt
ógnandi. En síðustumínúturnar
léku KR-ingar sterka svæðis-
vörn með góðan hreyfileika sem
aðalvopn. Þeim tókst að komast
yfir en Haukar náðu að jafna og
að loknum venjulegum leiktíma
var jafnt 74-74. í framlenging-
unni höfðu KR-ingar svo betur
og sigruðu eins og áður sagði
82-79.
Garðar og Birgir unnu leikinn
fyrir KR með geysigóðri hittni.
Garðar gerði 28 stig og Birgir
19. Hjá Haukum var fátt um
fína drætti. Henning skoraði 17
stig og Pálmar 15, en hann hefur
þó líklega sjaldan leikið verr.
„Víkingsmálið":
Víkingur í próf
■ Undanfariðhafaáttsérstað
talsverð skrif um neitun Víkings
Traustasonar, kraftlyftinga-
manns, á að gangast undir lyfja-
próf hjá norska íþróttasam-
bandinu. Hafa sum skrifin leitt
til þess að Víkingur hefur verið
grunaður um ólöglega lyfja-
neyslu.
Kraftlyftingasambnd íslands
vill nú eyða þessum grun og
hefur í því skyni farið fram á að
Víkingur verði lyfjaprófaður á
heimsmeistaramótinu í Finn-
landi í næsta mánuði. Mótið
sjálft er lyfjaprófað skv. sér-
stökum reglum og ræður úr-
dráttur því hverjir valdir verða.
Verði Víkingur ekki í þeim
hópi hyggst KRAFT greiða sér-
staklega fyrir prófið.
Tyrkland-Rúmenía:
Aðeins á undan
■ Nú er búið að ákveða leik-
tíma á leiki Tyrklands og Rúm-
eníu annarsvegar og Englands
og N-írlands hinsvegar.
Leikirnir verða báðir 13 nóvem-
ber en leikur Englands og N-ír-
lands mun hefjast hálftíma
seinna en leikur Tyrkja og Rúm-
ena. Nákvæmur tími er 18:30 í
Tyrklandi en 19:00 í Englandi.
Þessir leikir skipta miklu í 3.
riðli Evrópu í undankeppni
HM. N-írar þurfa jafntefli til að
komast með Englendingum til
Mexíkó en ef þeir tapa þá þurfa
Rúmenar að vinna í Tyrklandi.
Skólamót
■ Körf'uknattleiks-
samband íslands er nú að
fara af stað með sín ár-
legu skólamót. Hér er
um að ræða keppni í
framhaldsskólum og
grunnskólum.
Framhaldsskólarnir
geta sent bæði karla og
kvenna lið. í grunn-
skólunum er drengjalið-
unum skipt í tvo aldurs-
hópa þ.e. 7. bekkur og
yngri og 8. + 9, bekkur.
Aðeins er eitt lið hjá
stúlkum þ.e. 1.-9.
bekkur.
Þátttökutilkynningar
skulu hafa borist til KKÍ
fyrir 5. nóv. n.k.
Utanáskriftin er:
Körfuknattleikssamband
íslands. P.O. Box 864
121 Reykjavík.
Allar nánari upplýsing-
ar eru gefnar á skrifstofu
KKÍ í síma 91-685949.
Krankl hæstur
■ Hans Krankl hjá
Rapid Vín er nú marka-
hæsti leikmaöur Evrópu
og leiöir því keppnina uin
„Gullskó Adidas“.
Krankl hefur gert 18 í 14
leikjum cn næstur honum
kemur Van Basten hjá
Ajax í Hollandi með 14
mörk eftir 11 leiki. Annar
leikmaður frá Rapid,
Kranjcar, er líka með 14
mörk en eftir 14 leiki.
Handknattleikur Ísland-Rúmenía:
Islenska liðið
átti ekki svar