NT - 27.10.1985, Blaðsíða 6

NT - 27.10.1985, Blaðsíða 6
6 Sunnudagur 27. september NT VÍU t I TWi 4»v« ö£VtÚT en maður verður að beita öllum vilja- styrknum til þess Rætt við Rögnvald Ólafsson glímukappa Aftar í þessu blaði er viðtal við karate-meistara. Eins og flestum er kunnugt er það sjálfsvarnarkerfi ættað frá Austurlöndum fjær. Þesskonar kerfi hafa flætt yfir Vesturlönd síðan eftir stríð og er ísland þar engin undantekning. En á sama tíma og mikill uppgangur er í kennslu og iðkunum á austrænum sjálfsvarnaríþróttum er mikil hætta á að hið íslenska sjálfsvarnarkerfi verði útdautt á næstu árum. Áður fyrr þótti enginn maður með mönnum nema hann gæti tekið eina bröndótta ef þannig stæði á. Ef tveir sveitapiltar hittust runnu þeir þegar saman og glímdu. Hetjurnar voru glímukappar, margir prestar voru bestu glímumenn sóknarinnar og það er vafasamt að Hermann Jónasson hefði nokkrun tímann orðið forsætisráðherra ef hann hefði ekki verið jafn glíminn og hann var, allavega hefði hann orðið öðruvísi stjórnmálamaður. Þegar íslendingar fóru að selja hver öðrum vín og bjóða mönnum að sitja við borð við drykkjuna þótti það ekki fært nema hafa í húsinu nokkra vaska glímumenn. Þá var mönnum líka varpað á dyr með glans, rifnir upp á buxnastrengnum og teknir sniðglímu á lofti útum dyrnar. En nú er öldin önnur. Glímumönnum hefur fækkað og kraftlyftingamenn og líkamsræktendur hafa tekið við dyravörslunni og nú eru menn jafnhattaðir og snarað á dyr. Glíman hefurorðið, einsog margiraðrirþættirþjóðlegrarmenning- ar, tákn álappalegrar sveitamennsku sem íslendingar vilja sem minnst vita af eftir að þeir yfirgáfu torfbæina og fluttu uppí Breiðholt. Maðurinn í ullarsamfestingnum með nærbuxurnarystar klæða hefur hrapað úr því að vera hetja kappsamra drengja sem ekki láta hvern sem er vaða ofaní sig, í það að vera ankannalegur sérvitringur. í stað þes sað halda áfram með vangaveltur um stöðu glímunnar í gegnum tíðina ræddi ég við einn af þessum sérvitringum. Hann heitir Rögnvaldur Ólafsson og er bílvélavirki. Milli þess sem hann gerir við bíla þjálfar hann KR-inga í glímu og er formaður Glímusambands íslands. Þegar vantar menn til að fylla lið hjá KR-ingum bregður hann sér í gamla búninginn og keppir. Þannig lenti hann í þvi síðastliðinn vetur að verða íslandsmeistari í glímu og fannst honum það sorglegt dæmi um hversu illa er komið fyrir glímunni. Ég spurði Rögnvald fyrst að því hvernig hann hafi komist í kynni við glímuna. Ég sá ekki glímu fyrr en ég var nemandi í íþróttaskóla Sigurðar Greipssopar 1965. Þar lærði ég að glíma og fannst þeir tímar ákaflega leiðinlegir. Síðan um vorið var skólamót í glímu og ég tók þátt í því. Þá var ísinn brotinn og ég leit á þetta sem íþróttagrein. Veturinn eftir var ég í bænum og hugðist fara að æfa fimleika. En þá vildi svo til að það var búið að færa æfingatímana og glíma var komin á sama tíma og fimleikarnir höfðu verið á áður. Eg mætti því óvart á glímuæfingu og hef æft hana síðan. En fimleikum hef ég ekki komið nærri eftir þetta, ekki nema þeim fimleikum er felast í glímunni. Hefur áhuginn fyrir giimu minnk- að síðan þú byrjaðir að æfa? Glímusambandið var stofnað 1965 og þá komst kraftur í þetta. Hámarkið var um 1970 og þá var á annað þúsund manns sem stund- aði glímu. Eftir það hefur þetta farið dvínandi og nú eru innan við hundrað manns sem koma nálægt glímu. Ástæðurnar fyrir þessu eru sjálf- sagt margar. Frá 1968 til 1972 var sýnt frá tveimur mótum á ári í sjónvarpinu og það hafði mikið að segja í sambandi vð áhugann, sér- staklega úti á landi. Eftir 1972 var lítið sem ekkert sýnt í sjónvarpinu og þá bara smábútar frá mótum. Á svipuðum tíma lagðist íþróttaskóli Sigurðar Greipssonar niður en það- an hafði komið mikill fjöldi af glímu- mönnum. En þetta eru bara ytri ástæðurnar. Það má líka segja að stjórn Glímu- sambandsins og félaganna hafi brugðist koivitlaust við þessari miklu fjölgun iðkenda uppúr 1970. í stað þess að gefa yngri mönnum tæki- færi og leyfa þeim að spreyta sig i keppni, var alltaf náð í gömlu hundr- að kílóa mennina og þeir fengnir til þess að glíma. Þannig að fljótlega gáfust menn bara upp, því það var alltaf gengið framhjá þeim. Þetta leiddi til þess að það vantar heilu kynslóðirnar í glímuna, ekki bara af keppendum heldur líka kennurum. Gömlu kennararnir höfðu náttúrlega mikla reynslu og þekkingu og þóttu góðir. En þrátt fyrir það hefði verið skynsamlegt að þjálfa yngri menn uppí það að geta kennt, því góðir kennarar eru ekkert síður vand- fundnir en góðir keppnismenn. En hefurglíman þróast eitthvað á síðustu árum? Það varð mikil breyting á glímunni uppúr 1965. Þá var beltinu breytt svo menn gátu ekki tekið vinstri handar takið langt aftur fyrir bak einsog handleggjalangir menn gátu áður. Nú verða allir að halda um andstæðinginn á hliðunum, Eins var skónum breytt. Áður voru menn á hrágúmmísólum og það er óvinn- andi vegur að lyfta upp hundrað kílóa manni sem er á hrágúmmísól- um og vill ekki láta lyfta sér. Nú eru allir skór úr leðri og líka botninn. Enda kvörtuðu þungu mennirnir yfir nýju skónum, þeim fannst sem þeir misstu jafnvægisskynið. Við þetta breyttist glíman að sjálf- sögðu. Snerpa og tækni vó þyngra en áður og að sama skapi minnkaði gildi þess að vera stór og þungur. Og glíman í dag stendur tækni- lega ekkert að baki glímunni fyrir tuttugu árum þó svo fáir æfi í dag. Við eigum í dag menn sem hefðu staðið í mönnum sem lentu í efstu sætunum á mótum þá. Hvað er til ráða svo glíman bjargist? Það er svo komið að það þarf stór átak til þess að glíman lognist ekki alveg útaf. Einsog málin eru í dag stefnir allt í það að þeir menn sem eru að glíma í dag taki síðustu íslensku glímutökin á Hrafnistu. Það er skylda í grunnskólalögun- um sem kveður á um að kenna beri glímu í 7. og 8. bekk, sex tíma á viku í hvorum bekk. En á síðasta vetri var ekki nema um fimm hundr- uð nemendur sem fengu þessa kennslu. Helsta ástæðanfyrirþví er sú að íþróttakennarar treysta sér eða vilja ekki kenna glímu þrátt fyrir að hún sé skyldugrein í íþrótta- skólanum. Við þessir síðsustu móikanar höfum því þurft að taka okkur frí úr vinnu til þess að kenna í skólunum og það gengur aldrei til lengdar. Svo má líka spyrja sig hvort ekki sé full seint að byrja að kenna glímu í 7. bekk. Þá eru flestir strákar búnir að ákveða sína keppnisgrein. Mér finnst persónulega að það ætti að byrja miklu fyrr t.d. í 3. bekk. En það er annmarki á kennslu- lögunum sem segir að ef kennari komist ekki yfir alla námsskrána þá megi hann sleppa úr því sem hann vill. Og oftast er það glíman sem fyrst dettur út. íþróttakennarar virð- ast vilja helst af öllu bara kenna sina eigin íþróttagrein, sem sést t.d. á því hversu mikið er kennt af blaki í dag. Þeir sem kenna það í skólunum í dag eru sama fólkið og keppti með liði íþróttaskólans í blaki þegar það var uppá sitt besta. Ef á að reka glímukennsluna á svipaðan hátt og gert hefur verið þá þýðir ekki annað en að ráða allt að þrjá menn í föst stöðugildi svo menn séu ekki að stefna atvinnu sinni í hættu. Síðan gæti einn af þessum mönnum tekið að sér að vera framkvæmdastjóri Glímusam- bandsins, því það þýðir ekki annað en hafa menn á skrifstofu á vinnu- tíma, því utan hans er eriftt að ná í menn.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.