NT - 27.10.1985, Blaðsíða 19
Magnús Pálsson
Fæddur 25. des. 1929
Narn leikmyndateiknun í Birmingham,
Reykjavík og Wien á árunum 1949-1956 og
starfaði við íslensk leikhús af og til fram á
síðustu ár.
Síðan 1960 hefur hann einkum fengist við
skúlptúr af ýmsu tagi en jafnframt stundað
myndlistarkennslu hér á landi og erlendis.
Hér er gerð grein fyrir ýmsum þeim verkum
hans þar sem sameinast mynd og hljóð.
Lúðurhljómur í skókassa
Lúðurinn opnast inn í kassann og fyllir hann hljómi þegar blásið er. í stað hljómsins er sett fast efni,
gips.
Hljóðverk fyrir 12 rafmagnstæki
Til minningar um látinn vin sem át eitt hús á Akureyri og spilaði blús á sköflung sinn.
Sett upp í Rauða húsinu á Akur-
eyri 1982.
12 mismunandi háværum raf-
magnstækjum var raðað í hálf-
hring við enda sýningarsalarins
og girt fyrir framan með röð af
smáhlutum úr gleri og kristal.
Tækin voru höfö í gangi sam-
tímis þann sunnudag allan sem
verkið stóð.
Þjóðníðingakonsertinn (The Anti Society League Concert)
Framkvæmt í listasafninu í Norrköping
1982 í tengslum við sýninguna „Musik“
Punk-grúppa hélt konsert í litlu herbergi. Tónlistin
var stöðvuð á augnabliki og hljóðrýmið í herberginu
og umhverfis flytjendur, eins og þeir stóðu, fyllt með
gipsi.