NT - 27.10.1985, Side 22
22 Sunnudagur 27. september NT
Á síðastliðnum laugardegi bar svo við að nýnæmi sást í íþróttaþætti
sjónvarpsins. Þá áttu áhorfendur þess kost i beinni útsendingu að fylgjast með
Norðurlanda-mótinu i karate sem haldið var í Laugardalshöll.
Karate er tiltölulega ung keppnisiþrótt (fyrsta keppnin var haldin í Japan á 6.
áratugnum). Þrátt fyrir það hefur karate verið til í þúsund ár á eyjunni Okinawa
undan Japansströndum og enn lengur í Kína.
Það var ekki fyrr en um miðja þessa öld sem Vesturlandabúar lærðu karate
af Japönum. Japanar höfðu þá sjálfir ekki þekkt karate svo ýkja lengi. Það var
á fyrri hluta þessarar aldar sem nokkrir meistarar frá Okinawa héldu til Japan
til þess að kynna þarlendum karate. Hver þessara meistara, og eins þeir sem
á eftir komu, kenndu sína aðferð við karate-iðkun. Þess vegna eru í dag til
margir mismunandi stílar í karate.
Einn þessara manna, Chojun Miyugi, útnefndi japanskan mann, Gogen
Yamaguchi, sem eftirmann sinn og þar með meistara goju-stílsins í Japan.
Yamaguchi er einn af fáum „gömlu meistaranna" sem enn er á lífi. Einn
nemanda hans, Ingo de Jong, er nú yfirkennari goju-iðkenda i Evrópu og þar
með á íslandi.
Hann var staddur hér á landi nokkru fyrir Norðurlandamótið við kennslu. Ég
hitti hann þá að máli með það fyrir augum að fræöast um karate, uppruna þess
og eðli.
Karate hefur tapað þeirri dulúð er lék um austurlensku sjálfsvarnarkerfin eftir
að það varð keppnisíþrótt. Ég spurði því Ingo de Jong fyrst að þvi hvað karate
væri, er það vísindi, list, íþrótt eða heimspeki?
/
ber aö fara eftir á æfingum en þeim
verður kennarinn líka aö hlíta, öfugt
viö herinn. Þær eru til þess aö
kennslan gangi greiðar fyrir sig og til
þess aö hjálpa nemandanum og
kennaranum að vinna saman en ekki
til þess aö brjóta niður vilja nemand-
ans. Ég geri nemendur mína ekki að
andlausum leikbrúöum. Ég trúi því
aö karate hafi mjög jákvæö áhrif ef
þaö er kennt rétt.
Eru karate-kennarar á Vesturlönd-
um starfi sínu vaxnir?
Nei, því miður. í Svíþjóö og víðar,
þar sem ég þekki til eru til kennarar
sem ekki eru starfi sínu vaxnir, hvorki
andlega né líkamlega. í karate er
gert ráö fyrir því aö kennarinn geti
framkvæmt allt það sem hann ætlast
til af nemendum sínum. En margir
kennarar hafa ekki fariö þá leið sem
þarf til aö verða hæfur kennari. Samt
kenna þeir og sýna almenningi það
kín^ersku kerfunum, mikið af „mjúk-
um hringlaga hreyfingum" í bland viö
beinar og harðar hreyfingar. Upp-
runalega kerfið frá Okinawa byggöi
hins vegar meira á beinum og hörö-
um hreyfingum líkt og önnur kerfi í
dag sem eru minna undir kínverskum
áhrifum.
Síðan hefur verið þróun í gujo.
Hún verður hvort sem menn búa sér
til sitt eigið kerfi eða ekki. Gujo hefur
breyst hjá mér. Japanskt gujo er ekki
nákvæmlega einsog það sem ég
kenni á Norðurlöndum. Kate-æfing-
arnar eru að vísu þær sömu og
hreyfingarnar eru þær sömu, en á
Vesturlöndum notum við meira af
háum spörkum, enda fer það Vestur-
landabúum vel að sparka. Kerfið
hefur því aðlagast líkamsbyggingu
Vesturlandabúa og það hefur qefist
mjög vel. Japanar eiga í mestu vand-
ræðum með að hafa við okkur.
Iþrótt, list, heimspeki og vísindi
Ingo de Jong leiðbeinir ístenskum nemendum sínum í kata.
NT-mynd: Sverrir.
Karate er þetta allt og meira til.
Iðkendur geta lagt áherslu á einstaka
þætti en allt er þettatil staðar í karate.
Einum líkar íþróttin eða bardaginn en
öðrum hentar betur að nálgast karate
sem listgrein líkt og í „kata“ (kata er
sóknar- og varnartækni sem fram-
kvæmd er í ákveðinni röð líkt og í
dans). En um heimspekina gegnir
öðru máli. Heimspeki karate verður
ekki tjáð með orðum. Ef menn eru að
leita að heimspeki orða þá er miklu
nær að lesa Schopenhauer eða Kant
fremur en að leggja stund á karate.
Til þess að skilja heimsþeki karate
verða menn að iðka karate. Menn
öðlast skilning á henni með því að
framkvæma hana, þ.e. karate er
heimspeki athafna. Á vissan hátt má
segja að slík heimspeki sé sannari
en heimspeki orða, þar sem hún
tekur til einstaklingsins alls, bæði
sálar og líkama á meðan að heim-
speki orða höfðar einungis til hugar-
starfseminnar. Karate inniheldur
óumflýjanlega þroskun sálar og lík-
ama og ef menn leggja ofurkapp á
annan þáttinn á kostnað hins þá eru
þeir ekki að stunda raunverulegt
karate
Er þetta viðhorf ríkjandi hér á
Vesturlöndum eða æfa menn hér
karate einsog hverja aðra keppnis-
íþrótt?
Þetta þýðir auðvitað ekki að ég geri
alla að englum. En ég geri mitt besta
til þess að mönnum sé að minnsta
kosti treystandi fyrir þeirri kunnáttu
sem ég læt þeim í té.
Verður þroskun persónuleikans
undir þegar ofurkapp er lagt á
keppni?
Það veltur á kennurunum. Ég hef
kennt mörgum meisturum, bæði á
íslandi og útí heimi, sem eru topp-
menn á öllum mótum. En það þýðir
ekki að þetta fólk séu einhverjar
skepnur, það ber enn fulla virðingu
fyrir öðru fólki. Ég held að það hafi
ekki farið á mis við kjarnann í karate,
þ.e.a.s. þá innri þjálfun sem þar er að
finna.
Þegar ég er að tala um innri þjálfun
í karate þá á ég ekki aðeins við að
fólk verði betra í samskiftum sínum
við aðra. Ég trúi því einnig að fólk
verði betur í stakk búið að fást við
eigið líf. í gegnum þjálfun í karate
verða menn jákvæðari gagnvart hlut-
um í daglega lífinu. Þeir fá sterkari
vilja og ögun til þess að nýta sér
hann. Menn öölast innri afl til þess að
fást við vandamál sem mæta þeim
frá degi til dags, bæði í einkalífinu og
í vinnunni. Ég held að karate sé gott
bæði fyrir einstaklinginn og samfélag-
ið allt.
Áttu þá við að karate geri menn að
hlýðnum og góðum borgurum líkt og
heragi gerir hermenn að hlýðnum og
góðum hermönnum, m.ö.o. geri
menn samlita og leiðitama?
Nei, slíkt væri þveröfugt við tilgang
karate. í karate á einstaklingurinn að
þroskast. Aginn kemur innan frá og
það er sjálfsagi og virðing, en ekki
heragi sem þvingaður er fram af
yfirvaldi. Það eru að visu reglur sem
sem þeir kalla karate.
Þetta er mjög sorglegt og það er
hætt við að karate fái á sig slæmt orð
sökum þessa. Það er orðið tímabært
að koma á einhverskonar heildar-
samtökum sem halda uppi eftirliti og
gefi út kennararéttindi.
Voru kennarar þá betri hér áður í
Austur/öndum þar sem karate hafði
þróast um aldir?
Þaö hefur ábyggilega, líkt og nú,
verið mismunandi eftir hverjum og
einum. Það eru til sögusagnir um
karatesérfræðinga sem voru algerar
skepnur, börðu og limlestu fólk án
þess að depla auga. En það eru líka
til sögur af mönnum sem sýndu
þveröfuga hegðun og komu fram við
alla af kurteisi og hæversku þrátt fyrir
yfirburði sína í bardagalist.
Þetta veltur á því hversu vel þeir
hafa skilið listina og þetta á ekki
einungis við um karate heldur hvaða:
„do“ sem er („do“ þýðir vegur eða
aðferð).
Hefurkarate breystmikið ígegnum
árin. Breyttist það til dæmis við það
að fara frá Kína til Okinawa ogþaðan
tilJapan?
Það er alltaf einhver þróun með
hverjum meistara, t.d. með Miyugi
sem er stofnandi goju kerfisins. Hann
lærði fyrst „hörðu“ aðferðina á Okin-
av/a en fór síðan til Kína þar sem
hann lærði „mjúku" aðferðina. Hann
setti þær síðan saman í einn stíl og
kallaði hann goju (go þýðir h'art og ju
þyðir mjúkt). Gujo er því mjög líkt
Hvernig varð nútíma keppnis-kar-
ate til?
Á fyrri hluta aldarinnar þróaði Gog-
en Yamaguchi kerfi þar sem menn
gátu barist án þess að drepa hver
annan. Áður kepptu menn ekki hvor
við annan án þess að berjast upp á
líf og dauða. Þá var ekki hætt fyrr en
annar dó eða var ófær um að halda
áfram að berjast. Eftir að Yamaguchi
þróaði þetta kerfi gátu menn æft og
reynt sig I bardaga nær hættulaust.
Út frá þessu þróaðist nútíma keppnis-
karate.
Erkarate betri bardagalist en áður?
Það er erfitt að fullyrða um það. Ég
held að við séum léttari og sneggri nú
en áður. Þegar ég var að byrja þá
voru menn mun harðari. Og ég held
að við séum tæknilega betri í dag.
Hvað með innra-karate. Á sérstað
einhver þróun þar eða hefur eitthvað
glatast?
Ég get náttúrlega einungis talað út
frá minni reynslu sem kennara. Ég
reyni að varðveita gamla karate-
andann. T.d. verða menn að keppa
tuttugu viðureignir stanslaust til að
sanna viljaþrek sitt áður en þeir fá
svart belti. Ég kenni íhugun og alltaf
öðru hvoru eru tímar þar sem við
setjumst niður og ræðum um karate
sögu þess og merkingu.
Það veltur að verulegu leyti á kenn-
urunum. Vissulega er mikill þrýsting-
ur á menn að vinna til verðlauna en
það má vel gera án þess að missa
sjónar af öðrum markmiðum.
Það kostar andlega ögun að vinna
til verðlauna. Menn verða að leggja á
sig erfiðar æfingar og mikinn tíma og
þann hluta af andlegri hlið karate
framkvæma keppnismennirnir að
minnsta kosti.
En það er til æðri tegund heimspeki’
í karate en heimspeki verðlauna-
peninga. í karate setjum við okkur
hærri markmið; þroskun persónuleik-
ans. Það er auðveldara að gera
menn að hæfum keppnismönnum
en að betri mannverum. Til þess
að slíkt sé mögulegt verður við-
komandi að geta litið í eigin barm.
Slíkt nám byggist á samvinnu
kennara og nemanda, allt þar til
nemandinn hefur vaxið kennara sín-
um yfir höfuð og þarf sjálfur að vega,
meta og leiðrétta sjálfan sig. Þess
vegna reynir góður kennari að inn-
ræta nemendur sýna hæfileikanum
til sjálfsskoðunar.
Hvernig er hægt að gera menn að
betri mannverum með því að kenna
þeim að berjast við og beita aðra
menn ofbeldi?
Þaö kann að vera að manni sem
sér karate í fyrsta skifti virðist það
ofbeldiskennt að sjá menn sparka og
kýla hverí annan: En það er ásetn-
ingurinn á bak við hreyfinguna en
ekki hreyfingin sjálf sem ræður úrslit-
um um það hvort um ofbeldi er að
ræða eða ekki. Ef ég ætla að sparka
í höfuðið á einhverjum og fylgja
sparkinu eftir þá er ásetningur minn
illur. Ef ég hins vegar sparka af fullum
krafti en stöðva höggið 1 cm frá höfði
mannsins þá er ekkert ofbeldi á
ferðinni. Þetta er list, fullkomin stjórn
á líkamanum og engar illartilfinningar
því fylgjandi.
Ofbeldi er innra með hverjum og
einum. Þeim sem ekki tekst að útiloka
það úr huga sínum er nánast ómögu-
legt að stunda karate.
En kennarinn getur aldrei verið
100% öruggur og því er hættan á
misnotkun alltaf fyrir hendi og ég
reyni því að vera varkár þegar ég
gráða fólk. (Gráður fá menn með því
að sanna hæfni sína í því sem þeir
hafa þegar lært og sanna þar með að
þeir eru tilbúnir að halda lengra.)
Eg gráða fólk ekki eingöngu á
grundvelli líkamlegrar getu heldur
reyni ég einnig að meta andlegt gjörvi
þeirra og afstöðu og met útfrá því
hvort það er tilbúið undir frekari
kennslu í karate.