NT

Ulloq

NT - 02.11.1985, Qupperneq 3

NT - 02.11.1985, Qupperneq 3
Laugardagur 2. nóvember 1985 Samþykktum Búseta breytt - átta húsnæðissamvinnufélög hafa sótt um lán ■ Búseti verður að breyta sam- þykktum félagsins, þannig að námsmenn, öryrkjar og aldraðir hafi forgang fram yfir aðra um íbúðir hjá húsnæðissamvinnufélaginu til að upp- fylla þá skilmála sem Húsnæðisstofn- un setti við afgreiðslu á lánaumsókn- um félagsins auk þess að félagiö mun geta byggt leiguíbúðir. Alexander Stefánsson gekk form- lega frá afgreiðslu Húsnæðisstofn- unar í gær og mun Búseti halda stjórnarfund í kvöld tii að ræða skilmálana. Tillögur stjórnarfundar verða svo lagðar fyrir almennan fé- lagsfund áður en þær öðlast sam- þykki. Með þessu er gerð grundvallar- breyting á Búseta, því samkvæmt samþykktum hans eiga allir sama rétt og sömu möguleika á að eignast búseturétt. Reynir Ingibjartsson, starfsmaður Búseta taldi líklegt að þessi breyting yrði samþykkt við þessa úthlutun, þó það væri andstætt stefnu félagsins, þar sem það er andvígt því að verið sé að flokka fólk niður, og einangra það í ákveðnum hverfum, eftir því hvort það tilheyrir þessum eða hinum hópnum í þjóðfélaginu. Þar sem 30% félagsmanna tilheyra áðurnefndum hópum þykir ekki stætt á því að útiloka svo stóran hóp frá því að fá þak yfir höfuðið, þegar honum býðst það. Búseti fær lán til að fullklára þriðja hluta byggingarinnar í Grafarvogi og hefst jarðvinnslan eins fljótt og auðið er. Sagði Reynir að haldinn yrði fundur með verktakanum og stefnan við framkvæmdirnar mótuð. Landsþing Búseta verður haldið í dag og þá munu þessi mál verða til umfjöllunar en átta húsnæðissam- vinnufélög hafa sótt um lán til Hús- næðisstofnunar á þessu ári. Reynir sagði að lokum að Búseti vonaðist til þess að löggjöf um hús- næðissanrvinnufélög yrði sett á þessu löggjafarþingi. Óeinkennisklæddir lögregluþjónar gómuðu smyglara Umhverfismálaráð: ■ Óeinkennisklæddir lög- regluþjónar úr fíkniefnadeild lögreglunnar handsömuðu þrjá menn með 220 grömm af amfetamíni, eftir eltingarleik í fyrrakvöld. Fíkniefnasmyglar- arnir gerðu tilraun til þess að komast undan á hraðskreiðum sportbíl, en komið var í veg fyrir þá undankomuleið, með því að aka á bíl smyglaranna við Gróubúð á Grandagarði, þegar þeir þeystu frá höfninni. Að lokum náðust smyglararnir eftir eltingarleik á fæti, og voru yfir- bugaðir og settir í handjárn. I framhaldi af þessu máli var fjórði maðurinn handtekinn um nóttina. Einn fjórmenninganna á yfir höfði sér dóm, einmitt vegna smygls á amfetamíni. Efnið sem smyglararnir náðu í var um borð í Karlsefni sem lá í Reykjavíkurhöfn. Arnar Jens- son hjá fíkniefnadeild lögregl- unnar sagði í samtali við NT í gær að þeir hcfðu ekki viljað ráðast til atlögu fyrr en mennirnir voru komnir úrskjpinu. þarsem þeir óttuðust að annars myndi efnið lenda í sjónum. Ekki var búið að ákveða hvort farið yrði fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum. Heimilarniður rif steinbæjar Bandarískir ráðamenn: Schultz og MacFarlane hérlendis á þriðjudag ■ Bygginganefnd Reykjavíkur ákvað á fundi sínum á fimmtudag, að heimila eigendum Bergstaðastrætis 15 niðurrif á húsinu. Var á fundinum vitnað til samþykktar umhverfisráðs frá því í fyrri viku, um að ráðið legðist ekki gegn niðurrifi á húseign- inni. í júlílok í sumarhafði umhverfisráð tekið þetta mál til umfjöllunar og þá lagðist - ráðið einróma gegn niðurrifi og vísaði til umsagnar borgarminja- varðar. Borgarminjavörður byggði umsögn sína á úttekt á svokölluðum „steinbæjum" sem gerð hefur verið í Reykjavík. Bæir þessir voru byggðir á árunum 1880-1905 og voru þeir vistarverur ajþýðufólks í Reykjavík. í úttekt Árbæjarsafns um Berg- staðastræti 15 segir að húsið hafi menningarsögulegt gildi og beri að varðveita það og að það væri tjón fyrir sögu Reykjavíkur ef húsið yrði rifið. Þrátt fyrir þetta og þó að væntan- legt væri deiliskipulag af hverfinu, þá skipti meirihluti umhverfisráðs um skoðun á síðasta fundi sínum og lagðist ekki gegn niðurrifi. Minni hlutinn vildi aftur á nióti að fyrri samþykkt stæði. Nú háttar málum svo til að borgar- stjórn Reykjavíkur hefur ákveðið að þeir sem reisi byggingar á eignarlóð- um losni við gatnagerðargjöld sé bygg- ingin reist fyrir árið 1987. Hefur það orðið til þess að mikið rót er á eignum í miðbænum um þessar mundir og margir áfjáðir að geta hafið byggingu á eignarlóðum sem fyrst. Þykir heim- ildarmönnum NT flýtirinn við af- greiðslu þessa máls bera keim af því. Þó steinþærinn líti illa út þá er ekki þar með sagt að ekki sé hægt að lagfæra húsið og gera það að augna- yndi eins og gert var á Torfunni forðum. Hjörleifur Stefánsson, arki- tekt, sem situr í umhverfismálanefnd, sagðist hafa orðið mjög undrandi á þessari afgreiðslu, hann hafi ekki getað séð að neinar forsendur hefðu breyst og þykir honum hafa verið fáránlega að þessu rnáli staðið. Eigandi hússins er Sverrir Kristins- son, heildsali og bókaútgefandi en arkitekt hússins scm á að rísa í stað steinbæjarins er Ingimundur Sveins- son en íiann á jaínframt sæti í Skipu- lagsnefnd Reykjavíkur. ■ Schultz utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, eiginkona hans og ýmsir háttsettir bandarískir embættismenn munu koma hingað til lands á þriðju- dagskvöld. Hópurinn mun dvelja hér í tæpan sólarhring og talið er líklegt. að ráðherrann og fylgdarmenn hans muni eiga viðræður við íslenska ráða- menn. Dvöl Schultz hér á landi tengist för hans til Moskvu þar sem hann ætlar að sækja síðasta undirbúningsfundinn fyrir væntanlegan leiðtogafund í Genf. Á þriðjudag verður utanríkis- ráðherrann á leið aftur til Washington að fundarhöldunum loknum. Einn þeirra embættismanna sem munu fylgja Schultz er MacFarlane öryggismálaráðgjafi Reagans Banda- ríkjaforseta. Síðastliðina áratugi hef- ur handhafi þess embættis haft um- talsverð áhrif á mótun og framkvæmd bandarískrar utanríkisstefnu. Athugasemd ■ Vegna mistaka í filmuvinnu, birtist fyrir skömmu auglýsing frá versluninni Epal sem var lítillega gölluð. Rétt gerð auglýsingarinnar birtist í næsta tbl. „Innan Húss og Utan“. Mistökin verða að skrifast á auglýsingadeild NT og eru hlutað- eigendur vinsamlegast beðnir vel- virðingar. ■ Bergstaðastræti 15. Eins og myndin sýnir glögglega þá er húsið mjög illa farið að utan, en ekkert því að það sé lagfært og gæti það þá orðið hin mesta bæjarprýði. mælir þó gegn ■ Öllum á óvart sömdu þeir Kasparov og Karpov um jafn- tefli í 21. einvígisskákinni, aðeins þrem leikjum eftir að þeir tóku við að tefla biðskák- ina. Nær allir skáksérfræðingar voru sammála um að skákin væri unnin fyrir Kasparov, þeg- ar hún fór í bið. Kasparov lék undarlegum peðsleik í upphafi biðskákar- innar og við það fékk Karpov gagnfæri. Og skömmu síðar sömdu skákmeistararnir um jafntefli, öllum tii mikiliar furðu. Sumir töldu að Kasparov og aðstoðarmenn hans hefðu kom- ist að því við biðstöðurannsókn- ir að erfitt gæti reynst að knýja fram vinninginn og ákveðið að eyða ekki orku í það heldur sitja á tveggja vinnings forskot- inu. Staðan í einvíginu er nú \V/i-9'/i fyrir Kasparov og þrjár skákir eru eftir. Björgunarsveitamenn Rjúpnaskyttur Veiðimenn Snjósleðamenn Björgunarhnífurinn Explora survival Hinn heimsfrægi björgunarhnífur Explora survival fæst nú loks á íslandi. Hnífurinn er: Jámsög Trésög Hamar Víraklippur Skrúfjárn Verð 5.800 kr. Póstsendum Fylgihlutir Morsspegill Skali fyrir sólarhæðartöku Mælikvarði Alþjóðleg neyðarmerkjagerð Clinometer Stafrófið ásamt morsrófi Kompás Stækkunargler Yeið',ina Brennisteinn Önglar Læknahnífur Sökkur Plástrar Flotholt Tinna til að kveikja eld Neyðareldspýtur (Slokknar ekki á í vatni né vindi) ___ Martoumboðið póstversiun Sími: 671190

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.