NT - 02.11.1985, Side 8

NT - 02.11.1985, Side 8
Málsvarl frjálslyndis, samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútíminn h.f. Ritstj.: Helgi Pétursson Ritstjórnarfulltr.: Níels Árni Lund Framkvstj.: Guömundur Karlsson Auglýsingastj.: Steingrimur Gislason Innblaðsstj.: Oddur Ólafsson Skrifstofur: Siðumúli 15, Reykjavik. Sími: 686300. Auglýsingasimi: 18300 Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, taeknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Bla&aprent h.f. Kvöldsimar: 686387 og 686306 Veri i lausasölu 35 kr.og 40 kr. um helgar. Áskrift 400 kr. Lán handa Búseta: Til hvers? ■ Búseti hefur fengið lán úr Byggingarsjóði verkamanna til þess að byggja leiguíbúðir í Grafar- vogi við Reykjavík. Megintilgangur Byggingasjóðs verkamanna er að annast lánveitingar til félagslegra íbúðabyggina með það að markmiði að bæta úr húsnæðisþörf láglauna- fólks. Félagslegar íbúðir teljast samkvæmt lögum vera íbúðir í verkamannabústöðum og svo leiguíbúð- ir, sem byggðar eru eða keyptar af sveitarfélögum og ætlaðar eru til útleigu við hóflegum kjörum handa láglaunafólki, eða öðrum þeim, sem þarfnast af félagslegum ástæðum aðstoðar við húsnæðisöflun. Búseti hefur ætlað sér tii þessa að koma á kerfi íbúðabygginga, sem tíðkast víða annars staðar á Norðurlöndum, þar sem félagsmenn eignast svo- nefndan búseturétt í íbúð. í honum er falinn kostnaður við bygginguna og viðhald og afborganir af lánum. Búseturéttur þessi má síðan ganga kaupum og sölum á almennum markaði, en félagsmenn eignast ekki þær íbúðir, sem þeir fá úthlutað. Markaðsverð búseturéttarins segir til um, hversu mikið menn bera úr býtum við flutning úr íbúðinni. Pessari hugmynd hefur ekki tekist að tryggja fylgi hér á landi, enn sem komið er. Búseti ætlar að byggja leiguíbúðir fyrir þá félags- menn sína, sem fallið geta undir öryrkja, aldraða og námsmenn. Þeir ætla að byggja fjörutíu íbúðir í fjölbýlishúsi í Grafarvoginum. Ekki verður séð, að þessi lánveiting Húsnæðis- stofnunar úr Byggingasjóði verkamanna til Búseta, bæti ástand í húsnæðismálum þeirra, sem Bygginga- sjóði verkamanna er ætlað að sinna. í raun má segja, að enn einn aðilinn bætist við sem byggir verkamannabústaði. Og eitt er víst, fjármagn til verkamannabústaða verður tæplega aukið. Svo fleiri eru hér komnir inn til þess að skipta kökunni. Ekki verður heldur séð annað, en að Búseti sé að hverfa frá upphaflega takmarki sínu, að koma hér á fót búsetaréttaríbúðum. Þar við bætist, að Búseti ætlar að byggja leiguíbúð- ir fyrir aldraða, öryrkja og námsmenn. Hafa þessir hópar efni á að greiða þá leigu, sem Búseti verður að fá fyrir íbúðir sínar? Öll byggingarsamvinnufélög eiga nú í erfiðleikum vegna vanskila og byggingar- kostnaður hefur stórhækkað undanfarna mánuði. Verð á íbúðarhúsnæði t.d. í Reykjavík hefur hins vegar lækkað verulega. Og fyrir liggur, að þegar eigum við heimsmet í fermetrafjölda á mann í tilbúnu húsnæði hér á landi. Þorsteinn Pálsson, fjármálaráðherra, hefur gert athugasemd við afgreiðslu þessa máls. Raunar full- yrðir hann í NT í gær, að samþykkt lánsins til Búseta eigi sér varla stoð í lögum. Fróðlegt verður að fylgjast með frekari framvindu málsins næstu daga. Því er haldið fram hér, að Búsetamenn hafi hlaupið á sig með því að þrýsta á afgreiðslu þessarar lánveitingar. Félagið hefur farið út fyrir þann ramma, sem það hafi sett sér og á í vændum harkaleg viðbrögð fjármálaráðherra. Laugardagur 2. nóvember 1985 8 Gunnar Guðbjartsson: Er Bjarni Pálsson trúgjarn maður? Nokkrar athugasemdir - Fyrri hluti ■ Bjarni Pálsson ritar tvær greinar í NT dagana 17. og 18. október 1985, sem fela í sér gagnrýni á rekstur sláturhúsa á vegum kaupfélaga og sölustarf á vegum Búvörudeilar S.Í.S. Hann ræðir um háan slátur- kotnað o.fl. og byggir dóma sína í því efni m.a. á ummælum bænda, ummælum, sem hann telur sig hafa heyrt á fundi á Hvanneyri sl. sumar. Hann telur sig þar hafa heyrt af vörum „þingeysk bónda“ „að sláturkostnaður hjá Kaup- félagi Þingeyinga hefði verið 22,5 millj. króna. Þarafvinnu- laun 5,5 millj. króna og um- búðakostnaður o,5 millj.“. Hann telur sig hafa heyrt að þetta hefði verið haustið 1983 en í greininni segir hann að þetta muni liafa átt við haustið 1982. 1 framhaldi af þessu segir hann og blaðið svartletrar og innrammar fullyrðinguna: „Aðalatriðið er það, að á Hvanneyrarfundinum kom fram tortryggni gagnvart þessum háa sláturkostnaði, en Framleiðsluráð landbún- aðarins sullar heildarsölu- kostnaði saman við slátur- kostnaðinn og kallar allti saman slátur- og heildsölu- kostnað". Hvað er sláturkostnaður? I þessari klausu kemur fram vottur á skilningi þess hjá Bjarna Pálssyni að það, sem „þingeyski bóndinn" kallar sláturkostnað muni vera eitthvað annað og meira en greiðsla fyrir vinnu við slátrun sauðfjár. Vissulega er það svo. Framleiðsluráð landbúnað- arins „sullar" þessu ekkert saman. Þessi kostnaður er tal- inn á reikningum allra þeirra aðila, sem slátra sauðfé, og hann er aðgreindur hjá þeim í marga þætti. Þeir, sem hafa haft það hlut- verk að ákveða heildsöluverð á kjöti undanfarna áratugi hafa þurft að leggja mat á allan kostnað við framleiðslu, slátr- un og sölu á kjöti. Þetta verk er búið að vera í höndum fimm aðila sl. 50 ár. Árin 1935 til og með 1944 var það í höndum kjötverð- lagsnefndar. Árin 1945 og 1946 í höndum Búnaðarráðs. 1947 og til og með 1959 í höndum Sex- mannanefndar að ákveða verð til bænda en Framleiðsluráðs landbúnaðarins að ákveða slát- ur- og heildsölukostnað og smásöluálagningu. Árin 1960 til og með árinu 1984 var f höndum Sexmannanefndar að ákveða alla þættina en 1985 í höndum Fimmmannanefndar skv. nýjum lögum nr. 46/1985 að ákveða slátur- og heildsöiu- kostnað, en í höndum nýrrar Sexmannanefndar að ákveða verð til bænda og Verðlags- ráðs að ákveða sntásöluálagn- ingu. Hér verður einungis rætt um slátur- og heildsölukostnað og lítillega um smásöluálagningu. Oft hefur verið deilt um verðlagninguna, hver sem hana hefur gjört. Gögn til að byggja hana á hafa verið mis- jafnlega vönduð. Framleiðslu- ráð landbúnaðarins hefur í 38 ár haft þá skyldu að leggja til gögn varðandi slátur- og heild- sölukostnaðarþátt kjötverðs- ins. Þau gögn hafa verið reikn- ingar frá sláturleyfisaðilum. Um mörg ár voru fengnir reikningar frá 10-12 sláturleyf- ishöfum á landsbyggðinni og þeir voru lagðir fyrir verðlags- aðilann til að byggja ákvörðun lá- . , Fyrtr 10-15 árum þotti rett að fá til viðbótar reikning frá Stærstur hluti allra kostnaðarþáttanna eru vinnulaun starfsfólks. Starfsfólks við slátrun, starfsfólks á skrifstofum, starfs- fólks í frystihúsum, starfsfólks við flutn- inga, starfsfólks við tryggingar og fleiri verk. Launakjör alls þessa fólks þykja knöpp. En þau eru ákveðin í samningum. Þeir, sem hafa haft það hlutverk að ákveða heildsöluverð á kjöti undanfarna áratugi hafa þurft að leggja mat á allan kostnað við framleiðslu, slátrun og sölu á kjöti. Mannræktar- stofnun í hættu ■ Fátt hefur heyrst af málum Sædýrasafnsins í Hafnarfirði að undanförnu og er það miður, því safnið og starfsemi þess er svo merkilegt mál að helst þyrfti án afláts að klifa á hvað mætti verða því til bjargar, en sem kunnugt er hefur lengi vofað yfir að því verði lokað. Þarna er gott dæmi um það hvernig ómögu- legt getur reynst að hefja merkismál upp úr þö gn og áhugaleysi meðanfimbulfambað er um alls konar ónytjahluti og skitirí vikunum saman. Þegar Sædýrasafnið var sett á laggirnir var þar í byrjun um vísi að ræða með aðeins fáum dýrum. Það sýndi sig samt uv IIVI rui komið til sögunnar hlutur sem eftir hafði verið beðið, - af börnunum á höfuðborgar- svæðinu. Jón Kr. Gunnarsson, forstjóri safnsins gat með sanni sagt að æskan hefði rétt honum örvandi hönd þegar gestirnir urðu meira en hundrað þúsund eitt árið, eða fleiri en gestir allra leikhúsanna í Reykjavík. Einu sinni komu fimmtíu skólahópar á rnánuði. Þessar einstæðu viðtökur hlutust nátt- úrlega af því að þarna var á ferðinni holl og sáraódýr skemmtun og fræðandi og mannbætandi jafnframt. Þetta hvatti Jón Kr. Gunn- arsson til dáða og nú var reynt að fjölga dýrunum og færa út kvíarnar, þótt auðvitað þýddi það stóraukinn kostnað við umönnun og fóðrun. Bjarndýr komu og stórhuga menn færðu safninu gersemar að gjöf, eins og Ijónin. Þetta kallað á veru- legar framkvæmdir, meiri en stórhugurinn einn réði við framan af og víst máttu mörg dýranna búa þröngt um hríð. Þó var stöðugt verið að gera endurbætur á aðstöðunni, og menn vissu að betri tíð hlaut að vera í vændum. Ekki stóð á börnum höfuðborgarsvæðisins að leggja málinu lið með áhuga sínum og heimsóknum. En viti menn. Fyrr er varði upphófst gegn þessari ungu stofnun einhver hin fáheyrð- asta róg og æsingaherferð sem dæmi eru um hér á landi. Hver „dýravinurinn“ á eftir öðrum vaktist upp í blöðunum og ataði safnið auri, kærur voru skrifaðar og sendar yfirvöldum í mannúðarnafni, illgjarnir njósnarar voru á stjái á ótrú- legustu tímum sólarhringsins til þess að láta sér koma eitt- hvað enn nýtt í hug til að stefna gegn starfseminni. Þá var nú ekki þögnin og skeyting- arleysið líkt og nú er. Loks heppnaðist að fá safninu lokað °g byrgja dýrin þar fyrir augum yngstu borgaranna um langt skeið. Enginn hefur kunnað að skýra hvers vegna dýrunum

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.