NT

Ulloq

NT - 02.11.1985, Qupperneq 11

NT - 02.11.1985, Qupperneq 11
Guðsþjónustur í Reykjavíkurprófastsdæmi sunnudaginn 3. nóvember 1985 Árbæjarprestakall Barnasamkoma í safnaðarheimili Ar- bæjarsóknar kl. 10.30 árdegis. Guðs- þjónusta í safnaðarheimilinu kl. 14. Organleikari Jón Mýrdal. Miðviku- dag 6. nóv. Fyrirbænasamkoma í safnaðarheimilinu kl. 19.30. Sr. Guð- mundur Forsteinsson. Áskirkja Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Kaffisala safnaðarfélagsins í safnaðarheimili kirkjunnar eftir messu. Þriðjudag 5. nóv.: Fræðslu- kvöld í safnaðarheimili Áskirkju. Sig- urbjörn Einarsson biskup fjallar um bænina og hefst samvera kí. 20. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Breiðholtsprcstakall Laugardag kl. 11. Barnasamkoma í Breiðholtsskóla. Sunnudag kl. 14. Messa. Altarisganga í Breiðholts- skóla. Helgisýning fermingarbarna. Sr. Lárus Halldórsson. Bústaðakirkja Barnasamkoma kl. 11. Sr. Sólveig Lára Guðmundsdóttir. Guðsþjónusta kl. 14. Lesari Fjóla Kristjánsdóttir. Organleikari Guðni Þ. Guðmunds- son. Basar kvenfélagsins eftir messu. Þriðjudagskvöld: Æskulýðsfundur. Miðvikudagseftirmiðdaga: Félags- starf aldraðra. Fimmtudagskvöld: Samvera með fermingarbörnum. Sr. Ólafur Skúlason. Námskeið um skírnina í Bústaðakirkju mánudags- kvöld kl.20. Digranesprestakall Barnasamkoma í safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjón- usta í Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Dómkirkjan Laugardag. Barnasamkoma í kirkj- unni kl. 10.30. Sr. Agnes M. Sigurð- ardóttir. Sunnudag: Messa kl. 11. Sr. Hjalti Guðmundsson. kl. 14.00 Allrasálnamessa. Minningardagur látinna. Svala Nielsen syngur stólvers „Friður sé með öllum yður“ eftir Schubert. Sr. Þórir Stephensen. Dómkórinn syngur við báðar mess- urnar. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. Elliheimilið Grund Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Lárus Hall- dórsson. Fella- og Hólakirkja Laugardag: Kirkjuskóli fyrir börn 5 ára og eldri verður í kirkjunni við Hólaberg 88 kl. 10.30. Barnasam- koma í Hólabrekkuskóla kl. 14.00. Sunnudag: Guðsþjónusta kl. 14.00. Organisti Guðný Margrét Magnús- dóttir. Sr. Hreinn Hjartarson. Grensáskirkja Barnasamkoma kl. 11. Messa kl. 14. Fyrirbænir eftir messu. Organisti Árni Arinbjarnarson. Biblíulestur þriðjudag kl. 20.30. Takið biblíu með. Sr. Halldór S. Gröndal. Hallgrímskirkja Laugardag 2. nóv.: Félagsvist í safn- aðarheimilinu kl. 15. Sunnudag 3. nóv.: Messa kl. 11. Altarisganga sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Barnasam- koma á sama tíma í safnaðarheimili. Minningar- og þakkarguðsþjónusta kl. 17. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur mótettuna „Þeir sem sá með tárum“ eftir Schútz. Sr. Karl Sigur- björnsson prédikar. Þriðjudag 5. nóv.: Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10:30. Miðvikudag 6. nóv: Náttsöngur kl. 22. Fimmtudag 7. nóv.: Fundur Kvenfélags Hall- grímskirkju kl. 20.30. Landspítalinn Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Karl Sigur- björnsson. Háteigskirkja Messa kl. 10. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson. Messa kl. 14. Sr. Arngrímur Jónsson. Kársnesprestakall Messa í Kópavogskirkju kl. 11. Org- anisti Kjartan Sigurbjörnsson. Barna- samkoma kl. 11 í félagsheimilinu Borgum. Sr. Guðmundur Örn Ragn- arsson. Langholtskirkja Óskastund barnanna kl. 11. Söngur- sögur-leikir. Sigurður Sigurgeirsson, Þórhallur Heimisson, Jón Stefánsson o.fl. Guðsþjónusta kl. 14. Látinna minnst og fyrir horfnum ástvinum beðið. Guðbrandar Þorlákssonar biskups, sem starfið við kirkjuna er helgað, sérstaklega minnst. Prestur ,sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. Organisti Jón Stefánsson. Sóknar- nefndin. Laugarneskirkja Sunnudag: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Altarisganga, kórsöng- ur. Mánudag 4. nóv.: Fundur í kven- félagið Laugarnessóknar í safnaðar- heimilinu kl. 20. Þriðjudag 5. nóv.: Bænaguðsþjónusta kl. 18. Föstudag 8. nóv.: Síðdegiskaffi kl. 14.30. Bisk- up íslands hr. Pétur Sigurgeirsson verður gestur okkar. Sóknarprestur. Neskirkja Laugardag: Félagsstarfið í dag. Skemmtidagskrá í umsjá J.C. Nes. Sr. Frank M. Halldórsson. Sunnudag: Barnasamkoma kl. 11. allraheilagra- messa. Guðsþjónusta kl. 14. Minnst látinna. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson. Einsöngur Unnur Jens- dóttir. Sr. Guðmundur Óskar Ólafs- son.* Þriðjudag og fimmtudag: Opið hús á milli 13-17 fyrir aldraða. Mið- vikudag: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Föstudag kl. 16.00. Umræða um guðspjall næsta sunnudags. Sr. Guð- mundur Óskar Ólafsson. * Mánudag: Æskulýðsstarf kl. 20 Seljasókn Barnaguðsþjónusta í Seljaskóla kl. 10.30. Barnaguðsþjónusta í Öldusels- skóla kl. 10.30. Guðsþjónusta í Öldu- selsskóla kl. 14. Fyrirbænasamvera í Tindaseli 3, þriðjudag 5. nóv. kl. 18.30. Fundur í æskulýðsfélaginu þriðjudag 5. nóv. kl. 20 í Tindaseli 3. Sóknarprestur. Fríkirkjan í Reykjavík Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðspjall- ið í myndum. Barnasálmar og smá- barnasöngvar. Afmælisbörn boðin sérstaklega velkomin. Framhalds- saga. Við píanóið Pavel Smid. Sr. Gunnar Björnsson. Fríkirkjan í Hafnarfirði Barnasamkoma kl. 10.30. Guðsþjón- usta kl. 14. Orgel og kórstjórn Þóra Guðmundsdóttir. Sr. Einar S. Eyj- ólfsson. Óháði söfnuðurinn Guðsþjónusta verður í kirkju óháða safnaðarins sunnudag 3. nóv. kl. 11. Organisti Heiðmar Jónsson. Sr. Þór- steinn Ragnarsson. Prestar Prestar halda hádegisverðarfund í safnaðarheimili Bústaðakirkju mánu- daginn 4. nóv. Garðasókn Barnasamkoma í Kirkjuhvoli kl. 11. Sr. Bragi Friðriksson Bessastaðasókn Barnasamkoma í Álftanesskóla kl. 11. Sr. Bragi Friðriksson. Kálfatjarnarkirkja Messa kl. 14. Sr. Bragi Friðriksson. ■ Vetrarstarfið í Langholtskirkju er nú hafið af fullum krafti. Kvenfé- lag, Bræðrafélag og kórinn hafa hafið störf sín. Nýlega var kosin ný sóknar- nefnd, samkvæmt nýsettum lögum um kirkjusóknir, sóknarnefndir, hér- aðsfundi o.fl. Var fjölgað í sóknar- nefndinni úr fimm í sjö og eru varamenn jafnmargir. Sóknarnefndin hefur haldið vikulega fundi og verður svo enn um sinn a.m.k. Fyrirsjáanlegt er mikið hljómleika- starf í kirkjunni, auk þess sem verður á vegum Kórs Langholtskirkju. Það er margra manna mál, að Langholts- kirkja sé nú besta hljómleikahús landsins vegna ágætis hljómburðar. í vor hélt Polýfónkórinn hljómleika í kirkjunni og síðar Karlakórinn fóstbræður. Nýlega var þar Mótet- tukór Hallgrímskirkju og íslenska hljómsveitin með sína fyrstu hljóm- leika af átta sem haldnir verða í vetur. Hinn 3. nóvember verður haldin Guðbrandsmessa í minningu Guð- brands biskups Þorlákssonar. Kirkjan var af biskupi íslands helguð minn- ingu Guðbrands biskups, en vígsluár hennar bar upp á 300 ára afmæli útkomu Guðbrandsbiblíu. Þessi helg- un fór fram á biblíudaginn í fyrra. Afmælis safnaðarins verður minnst á fyrsta sunnudag í aðventu, sem nú ber upp á 1. desember. Kostnaður við smíði Langholts- kirkju var afar mikill og skortir enn mikið fé til að standa straum af honum. Sóknarnefnd hefir eins og undan- farin ár sent öllum heimilum gíró- seðla með ósk um að húsráðendur leggi sitt af mörkum til að leysa fjárhagsvandann. Laugardagur 2. nóvember 1985 11 Gullnáma 20 reggae Classics - The music that inspired a generation j ■ Sú plata sem hér er til umfjöllunar i inniheldur 20 klassísk reggae-lög frá J árunum kringum 1970, þegar reggae- I tónlistin var að mótast sem sjálfstæð tónlistargrein. Þessi tónlist þróaðist, eins og eflaust flestir vita, á eynni Jamaica í Vestur-Indíum. Flestir vita líka og er óþarfi að taka frani, að langþekktasti tónlistarmaður á þessu | sviði hét Bob Marley. Hann á reyndar eitt lag á þessari plötu. Val laga á þessa plötu virðist rniðast við að setja á plötu upprunalegar útgáfur laga sem nýlega hafa orðið vinsæl í öðrum útgáfum. Hér er t.d. lagið Red Red Wine sem helsta reggae-hljómsveit samtímans, UB 40, lék inn á plötu og gerði mjög vinsælt j fyrir skömmu. Lagið er hér flutt af Tony nokkrum Bribe, og er frá árinu i 1969. En auðvitað var það Neil Dia- mond sem samdi lagið, þannig að hér er aðeins hægt að tala um uppruna- lega reggae-útgáfu. Hér er einnig Love Of The Common People, eftir þá Hurely og Wilkins, sem Paul Young söng og gerði vinsælt. Það er Nicky Thomas sem flytur og lagið er frá 1970. Þá má nefna Many Rivers To Cross, þekktast með Lindu Ronstadt, en upphaflega flutt af Jimmy Cliff, sem einnig samdi lagið. Enn má nefna Rivers Of Babylon, það fræga Boney-M lag. Hér eru það The Melodians sem flytja lagið, löngu áður en Boney-M nauðguðu laginu með fáránlegri diskóútsetningu. Eitt skemmtilegasta lagið heitir Rudy, A message To You, flutt af Dandy Livingstone. Þetta lag fluttu The Specials og gerðu vinsælt rétt fyrir 1980. í framhaldi af því hrifust Fræbbblarnir af laginu og fluttu í sinni eigin útgáfu, gott ef lagið er ekki á Viltu nammi væna. Það liggja sem sagt víða þræðir og ýmislegt kemur á óvart. Eins og áður sagði á Bob Marley eitt lag á plötunni, það nefnist Keep On Moving. Þar er hinn sérstæði Wailersstíll í mótun og þegar orðinn nokkuð þróaður. Þeir sem heilluðust af Marley í kring um 1975 ættu að kannast við sig. Yfir allri plötunni er sérkennilega heillandi frumstæður blær. Tónlistin hljómar eins og hún sé orðin mjög gömul, svo mjög hefur upptökutækni þróast á þessum stutta tíma. Það er semsagt hljómurinn sem er gamall, en ekki andinn í tónlistinni. Tónlistin er enn jafnfersk og þegar hún kom 20 REGGAE CLASSICS THE MUSIC THATINSPIRED A GENERATION fyrst fram, og flest þessara laga hafa þegar sannað það að þau eru klassísk. Platan hefur sama seiðmagn og gaml- ar rokkabillýplötur, hún geymir þann óspillta neista poppsins sem mörgum hefur reynst erfitt að finna að undan- förnu. Neistann er ennþá víða að finna, en nú ætti fremur að tala um spilltan neista. ÁDJ með plötu ■ Væntanleg er á markaðinn ný hljómplata í nóvember með Rúnari Þór Péturssyni. Hann semur og útsetur öll Iögin á plötunni sjálfur. Hann er auk þess söngvari tlestra laganna, en auk hans syngja Eiríkur Hauksson, Siguröur Sigurðsson og Bubbi Morthens, eitt lag hver. isí!l í'! I,, i : I. . a1 .111, JiH f ;' 'i ssm i.. íí Nýtt bakarí að Dalshrauni 13, Hafharfirði! Við bjóðum upp á rjúkandi krœsingar úr bökunarofninum ■Jk Frábærir rjómahringir og perutertur á aðeins kr. 155 Leyfðu okkur að leika við bragðlaukana - þú sérð ekki eftir því. Bakaríið Starmýri 2 og Dalshraunl 13 Opnunartími: Mánudaga til föstudaga kl. 8.00 - 18.00. Laugardaga til sunnudaga kl. 9.00 - 16.00.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.