NT

Ulloq

NT - 02.11.1985, Qupperneq 14

NT - 02.11.1985, Qupperneq 14
 rtir Laugardagur 2. nóvember 1985 14 lá i> Fréttir Time, Newsweek: Nútíma „Lýsiströtur“ slá frá sér ■ Fréttatímaritin Tíme og Newsweek gera bæði kvenna- deginum á Islandi skil í síðustu tölublöðum. Time segir að tug- þúsundir kvenna hafi lagt niður vinnu í sólarhring til að mót-, mæla „forréttindum karlmanna*'.' Framkvæmdamenn gátu ekki notað síma sína þennan dag, vegna þess að símastúlk- urnar í fyrirtækjunum sýndu kynsystrum sínum samstöðu með því að gefa ekki síma- sambönd cn hrópuðu í tólin „Við þorum, Við getum, Við viljum". Ríkisstjórnin var leiðtoga- laus, þar sem Vigdís Finnboga- dóttir mætti ekki á skrifstofu sína til að sýna samstöðu með verkfallskonum. En verst aföllu var að byrja daginn. Margir íslenskir karlmenn vöknuðu upp við það að konur þeirra neituðu að matbúa morgunmat- inn. Um gjörvallt landið voru öll veitingahús yfirfull urn morg- unmatarleytið. Tilgangurinn var að syna að landið þrifist ekki án kvenna sinna. Hvers vegna að leggja áherslu á svo augljóst mál? spyr blaðið. Og svarar að úti- vinnandi konur á (slandi þéni 40% minna en karlar. í Time fylgir mynd af fundin-i um á Lækjartorgi, þar sem Salome Þorkelsdóttir alþingis- maður stendur í fremstu röð og er í verkfalli frá þingstörfum. í Newsweek er fyrirsögnin: Nútíma „Lýsistrata". Þar er minnt á gríska gamanleikinn um þaö þegar konur neituðu körlurn sínum um kynmök. Minnt er á að kvennadagurinn hafi verið haldinn til að minnast þess að kvennaáratug Samein- uðu þjóðanna er lokið og að svipað verkfall hafi átt sér stað í upphafi áratugarins fyrir ná- kvæmlega lOárum. Blaðiðskýr- ir frá að þúsundir kvenna hafi neitað að vinna heimilisstörf og ekki farið í vinnuna en 18 þús- und kvenna fundur verið hald- inn á Lækjartorgi. Þá er rakið í stórum dráttum aödragandi þess að flugfreyju- verkfallið var bannaö með lög- um og aö Vigdís Finnbogadóttir hafi veigrað sér við að skrifa undir lögin á kvennadaginn. En Halldór Ásgrímsson, starfandi forsætisráðherra hafi talið henni hughvarf. Eftir það hafi hún gert það sama og flestar hinna 120 þúsund íslcnskra kvenna, farið heim og liafið verkfall. Tcikning fylgir frásögninni í Newsweek. Gerðuberg: 30 verk eftir látnar listakonur verkin eru öll í eigu Reykjavíkurborgar hefst sunnudaginn 3. nóvember og þá verða sýnd verk eftir myndlistarkonur sem nú eru látnar. Tæplega 30 verk getur að líta á þessari sýningu, eftir 10 listakonur m.a. hinar feikna- góðu listakonur, Júlíönu Sveinsdóttur, Nínu Tryggva- dóttur og Gerði Helgadóttur að öðrum ólöstuðum. Síðari sýn- ingin verður í janúar og þá verða sýnd verk eftir núlifandi inyndlistarkonur. Elsta verkið á sýningunni er frá árinu 1915 en yngsta verkið frá árinu 1974. „Það er mjög bagalegt en sum verkin eru ekki tímasett, það kemur t.d. hvergi fram á hvaða árum verk Kristín- ar Jónsdóttur eru.“ sagði Guð- rún Erla eða Gerla eins og hún er oftast kölluð. Auk þeirra fjögurra listakvenna sem þegar hafa verið nefndar eiga Barbara Árnason. Eyborg Guðmunds- dóttir, Gunnfríður Jónsdóttir, María H. Ólafsdóttir, Ragn- heiður Jónsdóttir Ream, og Vigdís Kristjánsdóttir verk á sýningunni, bæði málverk, skúlptúra. veggteppi o.fl. „Reykjavíkurborg' hefur keypt verkin á 30 ára tímabili. Fvrir um 20 árum sá átta manna nefnd um listaverkakaupin en síðan þurfti borgarráð að sam- þykkja þau. Þá kom tímabil þar sem borgarlögmaður sá uni kaupin. Borgarstjórar hafa líka ■ „Þessi verk voru sótt út um alla borg þar sem þau hanga uppi á mismunandi aðgengileg- mn stöðum, sum eru til dæmis inn á Höfða og þangað kemur almenningur ckki oft, flestöll vcrk Júlíönu Sveinsdóttur hanga inn á Skjalasafni Reykja- víkurborgar þar sem fáir eiga leið um og aöstæður þar bjóða heldur ekki upp á að málverk njóti sín vel þar, en önnur eru á stöðum þar sem margir leggja leið sína, eins og þar sem borgin greiðir út reikninga sína. En þetta eru stórgóð verk." sagði Guðrún Erla Geirsdóttir mynd- listarkona sem sett hefur upp sýningu í Menningarmiðstöð- inni Gcrðubergi á verkum eftir íslenskar myndlistarkonur. Verkin eru öll í eigu Reykjavík- urborgar. Reykjavíkurborg á alls 90 vcrk eftir íslenskar myndlistar- konur og stjórn Kjarvalsstaða hcfur í samráði við Geröuberg ákveðið að setja upp sýningar á verkum kvennanna. Sýningin verður í tvennu lagi, sú fyrri ■ Elsta verkið á svningunni í Gerðubergi olíumálverk frá árinu 1915 eftir Júlíönu Sveinsdóttur. Verkið heitir Landslag í Svíþjóð. ■ Götumynd - hús á Grímsstaðaholti, olíumálverk eftir Nínu Tryggvadóttur frá árinu 1940. í gegnum - tíðina öðru hverju keypt listaverk en á síðustu 5 árum hafa þeir sem kosnir eru pólitískri kosningu í stjórn Kjarvalsstaða séð um kaupin. En rúmiega helmingur allra þessara 90 verka eru keypt á síðastliðnum 4 árum," sagði Gerla að lokum. Sýningin stendur til sunnu- dagsins 1. desember og aðgang- urerókeypis. ■ Kona við sauma heitir þetta verk eftir Júlíönu Sveinsdóttur, olíumálverk frá árinu 1915 af móður listakonunnar.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.