NT - 02.11.1985, Blaðsíða 15
m F? Laugardagur 2. nóvember 1985 19
L1 y Fréttir
Amnesty International:
Látum vita að við vitum
að ungmennum í fangelsum. En
á þeim eru ekki síður framin
mannréttindabrot en hinum
fullorðnu. I sumum löndum eru
þau látin „hverfa," annarsstaðar
eru þau fangelsuð. í flestum
tilfellum hafa þau ekkert til
saka unnið.
Af þessu tilefni heldur Is-
landsdeild AMNESTY INT-
ERNATIONAL sýningu og
kynningu á starfi sínu í Norræna
húsinu. Þar er sýning á myndum
undir heitinu Við vitum að þú
ert á lífi. Þar er verið að vekja
athygli fólks á þeim sem sæta
þurfa pyntingum í fangelsum
erlendis.
Á sýningunni liggja einnig
frammi lýsingar á börnum út um
allan heim sem horfið hafa
sporlaust. Sýningargestir eru
hvattir til að skrifa eða að
undirrita bréf til stjórnvalda í
hverju landi þar sem farið verð-
ur fram á rannsókn á hvað orðið
hefur um ungmennin.
Tvær uppákontur verða í til-
efni sýningarinnar. Mánudags-
kvöldið 4. nóvember verður
leiksýning: Biko- réttarhöldin
eftir Bandaríkjamennina Jon
Blair og Norman Fenton í þýð-
ingu Hallbergs Hallmundsson-
ar, leikstjóri er Sveinn Einars-
son. Sjálfboðaliðar úr stétt
leikara hafa æft verkið undir
stjórn Sveins og verður aðeins
þessi eina sýning á mánudags-
kvöldið kl. 20.30.
Laugardaginn 9. nóvember
verður sýnd mynd frá kana-
díska sjónvarpinu „Mennirnir
■ Dagvistunarheimili fyrir
Alzheimes sjúklinga verður tek-
ið í gagnið um næstu áramót á
Flókagötu 53 í Reykjavík, og
verður það rekið af Rauða
krossinum og Múlabæ. Er þetta
í fyrsta skipti sem Alzheimis-
sjúklingar fá slíka aðstöðu hér á
landi, en ekki er langt síðan
sjúkdómur þessi var almennt
viðurkenndur meðal lækna.
„Þetta er gífurlegur léttir fyrir
marga aðstandendur Alzheimes
sjúklinga, og þótt þetta sé bara
dagvistunarheimili sem tekur
einungis 15 sjúklinga, er þetta
spor í rétta átt,“ sagði Gerður
Pálmadóttir formaður SAAS,
eða Samtaka aðstandenda Alz-
heimessjúklinga, í samtali við
NT, en félag þetta var stofnað í
fyrrahaust."
„Þegar eru hér á landi urn
300-400 manns sem þjást af
þessum sjúkdómi, en hann
leggst aðallega á eldra fólk og
lýsir sér þannig að það fer að
missa minni, heilarýrnun á sér
stað og fólk breytist smám sam-
an í börn, sífellt þarf að gæta
þeirra, vegna þess að það verður
andlega ósjálfbjarga.
Þar sem erfitt hefur reynst að
greina sjúkdóminn, eru þetta
oft talin vera elliglöp eða jafnvel
viss tegund geðveiki og jafnvel
þegar tekist hefur að greina
hann eru engir staðir til fyrir
þetta fólk nema elliheimili eða
geðdeildir.“
Gerður sagði einnig að óskap-
legt álag væri fyrir aðstandendur
að hafa Alzheimessjúkling á
heimili, þess væru dæmi að
heimilislíf undir þessum kring-
umstæðum hefði lagst í rúst á
fáeinum árum.
„Þessvegna er fuíl þörf á dval-
arheimili allan sólarhringinn
fyrir þetta fólk, því viljum við
stefna að á komandi árum,“
sagði Gerður að lokum.
■ Reynir Þorgrímsson formaður Lionsldúbbsins Víðarrs, afhendir Þórði Harðarsyni prófessor
hjartagæslutækið.
Lionsklúbburinn Víðarr:
Gefur hjartagæslutæki
■ Lionsklúbburinn Víðarr í
Reykjavík afhenti hjartadeild
Landspítala íslands nýtt hjarta-
gæslutæki, þann 30. október
s.l.
Notkun tækis sem þessa
brý'tur biað í sögu hjartalækn-
inga hér á landi þar sem það
auðveldar til muna allar rann-
sóknir á hjartasjúkdómum, en
í þessu sambandi eykst sérstak-
lega öryggi í mælingum á þan-
þrýstingi hjartans.
Þeir Þórður Harðarson
prófessor og Árni Kristinsson
sérfræðingur ásamt forsvars-
mönnum spítalans, veittu tæk-
inu viðtöku í Lionsheimilinu.
Til að fjármagna kaup á
þessu tæki hefur Lionsklúbb-
urinn Víðarr staðið fyrir sölu á
barmmerki, unnið að fegrun
umhverfis, gefið út borðdag-
bók og nú síðast unnið við
hreinsun Tjarnarinnar í
Reykjavík, eins og fram hefur
komið í blöðum.
JCNES:
Þriðji félagsfundur
■ Þriðji félagsfundur JC NES
verður haldinn mánudaginn 4.
nóvembernk. kl.20.30íNýjabæ
við Sefgarða.
Gestur fundarins verður að
þessu sinni Gunnar M. Hansson
forstjóri IBM á íslandi og mun
hann einkum fjalla um starfs-
mannahald IBM á fslandi, en
uppbygging starfsmannahalds
þar hefur verið rómað um víða
veröld.
Þá gefst einnig tækifæri á
þessum fundi að festa kaup á
miða vegna 5 ára afmælis JC
NES sem haldið verður í félags-
heimili Seltjarnarness, laugar-
daginn 9. nóvember nk.
Aizheimessjúklingar:
Fá nýtt dagvist-
unarheimili
ESTY INTERNATIONAL á-
kveðið að beina athygli heimsins
■ íslandsdeild Amnesty kynnir sýninguna fyrir blaðamönnum.
með hettina" þar sem lýst er
nútímalegum aðferðum við að
brjóta niður sakborninga í yfir-
heyrslum. Á eftir sýningu
myndarinnar mun sr. Bernharð-
ur Guðmundsson stýra pall-
borðsumræðum sálfræðings.
geðlæknis og fulltrúa lögreglu-
yfirvalda um aðferðir við yfir-
heyrslur. Fundurinn hefst kl.
15.00.
■ Enn lifir ekki nema brot
mannkyns við lýðfrelsi....
Barðastrandarsýsla:
Sýslumaður varð
frá að hverfa
- engin kind skorin á tveimur bæjum
■ Ekki er enn búið að skera
niður fé bændanna á bæjunum
Lambeyri og Hjallatúni í V-
Barðastrandarsýslu, þar sem
þeir staðhæfa að þeirra fé sé
ósýkt af riðuveiki og því ekki
ástæða til að undirrita samning
landbúnaðarráðherra um niður-
skurð.
Þrátt fyrir að þeir hafi ekki
undirritað samninginn, átti s.l.
fimmtudag að skera niður féð»
gegn vilja þeirra. Að sögn heim-
ilisfólksins á Lambeyri kom þá
sýslumaður með lögreglu frá
Tálknafirði og ætlaði að smala
saman fénu til niðurskurðar.
Mótmælti bóndi þá harðlega
einkum á þeim forsendum að
sýslumaður hefði enga heimild
um þær aðgerðir og varð sýslu-
maður frá að hverfa án þess
tækist að ná einni einustu kind.
Ríkir nú mikil óánægja meðal
bændanna á Lambeyri og í
Hjallatúni með hvernig farið er
að þessu máli, en það er nú í
biðstöðu.
Leiðrétting
■ I frásögn í NT af komu
indverska sendiherrans til ís-
lands var sagt að Þóra Einars-
dóttir, formaður Indlandsvina-
félagsins, væri eiginkona Guð-
mundar Sveinssonar skóla-
meistara og kveðjuhóf til heið-
urs sendiherranum hefði verið
haldið að heimili þeirra. Hið
rétta er að Guðmundur er
giftur systur Þóru en Þóra býr
í Hveragerði, Guðmundur og
kona hans lánuðu hins vegar
hús sitt fyrir samkvæmið.
NT biðst velvirðingar á þess-
um mistökum.